Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1986
víkur og tjölmörgum ráðum og
nefndum á vegum Reykjavíkur-
borgar. Hann hefur fljótt fundið að
hann kæmi ekki málum sínum fram
með öðrum hætti en þeim að verða
virkur þátttakandi í pólitísku starfi
að einhverju leyti.
Á þessum árum hafði hann for-
giingu um byggingu Heilsuverndar-
stöðvar við Barónsstíg sem þá var
nýmæli og hann átti mikinn þátt í
undirbúningi og byggingu Borg-
arspítalans í Fossvogi á sinni tíð.
Um svipað leyti og Sigurður hóf
starf sem berklayfirlæknir hóf hann
störf sem trúnaðarlæknir alþýðu-
trygginga og vann við slysatrygg-
ingar ríkisins frá 1934—1937 og
eftir breytingu á lögum um al-
mannatryggingar 1946 varð hann
heilsugæslustjóri tryggingastofn-
unar ríkisins og síðar sjúkramála-
stjóri, en í því embætti fólst það
að hafa yfirumsjón með sjúkra-
tryggingadeild Tryggingastofnunar
ríkisins og umsjón með sjúkrasam-
lögum landsins.
Lagabreyting almannatrygginga
1946 gerði ráð fyrir gerbreyttu
fyrirkomulagi heilsugæslu í landinu
með byggingu heilsugæslustöðva
og aðild tryggingastofnunar ríkisins
að uppbyggingu þeirra og rekstri.
Þessi áform drógust frá ári til árs
og voru endanlega lögð á hilluna
með breytingu á almannatrygg-
ingalögum 1956 og voru síðan ekki
tekin upp að nýju fyrr en með lögum
um heilbrigðisþjónustu 1973 sem
nú eru ígildi.
Sigurður var skipaður landlæknir
hinn 1. janúar 1960 og tók við því
embætti af Vilmundi Jónssyni.
Hann gegndi áfram embætti
berklayfirlæknis svo sem fram
hefur komið hér að framan enda
höfðu umsvif þess embættis stöðugt
farið minnkandi fyrir áhrifamiklar
berklavarnir og berklalækningar.
Þegar Sigurður tók við embætti
landlæknis var það að mörgu leyti
framkvæmdastjórn heilbrigðismála
í landinu því ekkert ráðuneyti heil-
brigðismála var þá til og heilbrigðis-
mál voru einn þáttur í starfi dóms-
og kirkjumálaráðuneytis. Á þessum
árum starfaði Sigurður sem for-
maður fjölda nefnda og ráða og
kynntist ég honum fyrst að ráði er
við sátum saman í læknaráði á ára-
bilinu 1960—1970. Sigurður var
formaður stjórnarnefndar ríkisspít-
alanna frá janúar 1960 til desember
1973 og formaður byggingarnefnd-
ar Landspítalans frá miðju ári 1961
til 1972.
Uppbygging Landspítalans sem
var byggður á árabilinu
1925—1930 hófst að nýju skömmu
eftir 1950 en hafði gengið hægt
vegna fjárskorts og þótti mörgum
óþarft að byggja tvær sjúkrahús-
byggingar í Reykjavík samtímis og
raunar á tímabili þrjár þ.e. Land-
spítala, Borgarspítala og viðbygg-
ingu Landakotsspítala.
Það kom í hlut Sigurðar sem
formanns byggingarnefndar
Landspítala að leiða þetta upp-
byggingarstarf spítalans og á ára-
bilinu 1965—1973 komu nýbygg-
ingar spítalans í not í áföngum,
bæði legudeildir, rannsóknarstofa,
skurðstofur og kóboltmeðferðar-
tæki röntgendeildar. Þá var einnig
tekið í notkun nýtt eldhús spítalans
á þessum tíma.
Utan Landspítalasvæðisins voru
sett á stofn þvottahús og birgðastöð
á Tunguhálsi og geðdeild barna við
Dalbraut.
Það má því segja að á þessu
árabili hafi þróun sjúkrahúsupp-
bygginga ríkisspítala verið í örum
vexti.
Á þessum áratug 1960—1970
voru skipulagsmál Landspítalalóðar
mjög á döfinni og niðurstaða fékkst
í þeim málum 1969, ekki síst fyrir
forgöngu Sigurðar.
Það samkomulag sem gert var í
desember 1969 milli heilbrigðisráð-
herra, menntamálaráðherra og fjár-
málaráðherra annars vegar fyrir
hönd ríkisins og borgarstjórnar
Reykjavíkur hins vegar um þessi
mál hefur verið mótandi um fram-
tíðarstefnu í uppbyggingu Land-
spítalans og Háskóla Islands á
svæði Landspítalans norðan og
sunnan Hringbrautar.
Sigurður gekkst fyrir því, að
þekkt breskt arkitektafyrirtæki var
fengið til að taka að sér skipulagn-
ingu lóðarinnar í samvinnu við
húsameistara ríkisins og núverandi
ski))ulag, sem byggt er eftir er í
meginatriðum í samræmi við þær
tillögur.
Það er á allra vitorði að tímabilið
frá 1960—1980 var mikið fram-
faraskeið í læknisfræði og í starfi
sínu sem stjórnarformaður hafði
Sigurður það að leiðarljósi að skapa
á Landspítala aðstöðu fyrir nýja
starfsemi og nýjar sérgreinar eftir
því sern aðstaða og fjárhagur leyfði.
Eftir að Sigurður Sigurðsson
varð landlæknir þá hófst fyrst
skipuleg þátttaka íslands í sam-
starfi Norðurlanda að heilbrigðis-
málum og sama máli gegndi um
þátttöku Islands í starfi Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar.
Meðan hann var landlæknir sótti
hann Allsherjarþing Alþjóða heil-
brigðismálastofnunarinnar að jafn-
aði sem aðalfulltrúi Islands og sat
sem fulltrúi íslands í framkvæmda-
stjórn stofnunarinnar árin
1961-1963.
Svo sem fyrr var að vikið þá var
embætti landlæknis frá gamalli tíð
í reynd á mjög mörgum sviðum
framkvæmdaaðili heilbrigðisstjórn-
ar. Á þessu varð breyting þegar
ný lög um stjórnaráð tóku gildi 1.
janúar 1970 og ráðuneyti heilbrigð-
is- og tryggingamála var stofnað.
Með stofnun ráðuneytisins færðist
framkvæmdastjórn heilbrigðismála
smám saman frá embætti land-
læknis og með lögum um heilbrigð-
isþjónustu sem tóku gildi 1. janúar
1974 var endanlega sett í lög að
landlæknir skyldi fyrst og fremst
vera læknisfræðilegur ráðgjafi ráð-
herra og ríkisstjómar og faglegur
umsjónar- og eftirlitsaðili heilbrigð-
isstarfsmanna og heilbrigðisstofn-
ana í landinu.
Það er athyglisvert að svo hefð-
bundnar venjur og reglur höfðu
komist á um embætti landlæknis,
að ekki þótti ástæða til að setja
landlækni erindisbréf enda þótt
ákvæði um slíkt væri í lögum og
var í gildi konungleg tilskipun um
landlækni frá 25. febrúar 1824 og
allt til 1. janúar 1974 að í gildi
gekk núgildandi reglugerð um land-
læknisembættið.
Eg hefi áður skýrt frá samvinnu
minni við Sigurð Sigurðsson í
læknaráði um tíu ára bil en fyrstu
persónulegu kynni mín af honum
eru frá árinu 1955. Þá ritaði hann
mér bréf þar sem ég starfaði í Sví-
þjóð, en hann var þá formaður
stjórnar Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur. Hann bauð mér þá
starf á nýstofnaðri slysavarðstofu
Reykjavíkur í Heilsuverndarstöð-
inni en stöðina vantaði þá lækni til
starfa. Ég tók þessu boði og frá
þeim tíma höfðum við veruleg per-
sónuleg og embættislegsamskipti.
Sigurður var í almannavarnaráði
frá stofnun þess og á árabilinu
1965—1970 fól hann mér að vinna
margskonar undirbúningsvinnu að
gerð áætlana um viðbúnað gegn
vá, einkum við búnað sjúkrahúsa
og hvemig gera mætti ráð fyrir að
bregðast þyrfti við, ef koma þyrfti
upp bráðabirða sjúkrahúsum utan
Reykjavíkur vegna eldgosa, jarð-
skjálfta eða stríðsátaka. Af þessum
sökum áttum við mjög veruleg
persónuleg samskipti á þessu ára-
bili.
Eftir stofnun heilbriðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins höfðum við
Sigurður að sjálfsögðu mjög vem-
leg og stundum dagleg samskipti
vegna ýmiskonar áætlana og fram-
kvæmda um heilbrigðismál í
landinu en einnig um samskipti við
Norðurlönd og alþjóðaheilbrigðis-
mál og saman 'sóttum við þing
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innaríGenf 1971 og 1972.
Öll samvinna ráðuneytisins og
mín persónulega við Sigurð og
embætti hans var frá fyrstu byrjun
með ágætum, enda var hann ein-
stakur embættismaður, samvisku-
samur og vandvirkur. I starfsferli
manns, sem kom svo víða við í þjóð-
félaginu og Sigurður Sigurðsson
gerði, er erfitt að taka eitthvert
einstakt atriði út úr og segja, þetta
var veigamest.
Samt sem áður leikur enginn
vafi á því að þrátt fyrir veigamikil
störf í landlæknisembætti verður
Sigurðar lengst minnst og lands-
menn þekkja hann best vegna
starfa hans að berklavarnamálum
og þáttar hans í því að útrýma
berklaveikinni á íslandi sem dánar-
____________________________5V
orsök. Ég held einnig að hann hafi
sjálfur litið á það sem veigamesta
lífsstarf sitt. Þessu til sönnunar er
að meginhlutinn af því sem hann
ritaði um fagleg læknisfræðileg efni
var á sviði berklamála, þar á meðal
doktorsritgerð hans um faraids-
svæði berklaveiki á Islandi, sem var
gefin út í Bandaríkjunum 1950 og
hefur víða verið notuð sem kennslu-
bók um það hvernig farið skuli að
því að útrýma berklaveiki sem dán-
arorsök.
Nú að leiðarlokum þakka ég
Sigurði Sigurðssyni þriggja áratuga
persónuleg kynni og áratuga sam-
vinnu og samstarf við uppbyggingu
heilbriðisþjónustu á íslandi.
Við Guðrún sendum dætrum
hans, tengdasonum og öllum af-
komendum hugheilar samúðar-
kveðjur.
Páll Sigurðsson
Snowcem
aftur á íslandi
Byggingamarkaðurinn hefurtek-
ið umboð fyrir SnQWCeiTI
og býður þér nú að sérpanta
á húsið þitt.
Við viljum vekja athygli þína á að:
snowcem sem þú ætlar að mála með í júní þarft
þú að panta fyrir 10. apríl.
snowcem sem þú ætlar að mála með í júlí þarft
þú að panta fyrir 10. maí.
snowcem sem þú ætlar að mála með í ágúst þarft
þú að panta fyrir 10. júní.
Mýrargötu 2, sími622422
ÓTRÚLEGA
LÁGT VERÐ
kr. 17.800 staðgreiðsla
Afborgunarskilmálar
KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR
Samt. stærö: 275 I.
Frystihólf: 45 I.
Hæð: 145 sm. Breidd 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Vinstri eöa hægri opnun
Fullkomin viðgeröa-
og varahlutaþjónusta.
Heimilis- og raftækjadeild.
HEKLA HF
LAUGAVEG1170-172 SÍMAR 11687 --21240
I