Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. APRÍL1986
félk í
fréttum
MYNDIN UM RONJU
RÆNINGJADÓTTUR
Guðfaðirinn
Julio
E1 Cordobes, nautabaninn
frægi, er réttu nafni heitir
Manuel Benitez lét nýlega skíra
sinn fimmta son og fékk góðvin
sinn söngvarann Julio Iglesias til
þess að halda baminu undir skím.
Drengurinn var reyndar skírður
Julio Benitez Fraiser, en móðir hans
heitir Martina Fraiser. Skímin fór
fram með mikilli viðhöfn í Nassau
á Bahamaeyjum.
Rassálfar. Skrin9ilegar skepn-
Hanna Zetterberg og Dan
Hafström í hlutverkum rœn-
ingjabarnanna.
Ræningjar, rassálfar
og fleira
Kvikmyndin Ronja ræningja-
dóttir, eftir sögu astrid Lind-
gren, hefur verið sýnd um öll Norð-
urlönd við mikla aðsókn. Nú er verið
að sýna hana í Nýja bíói í Reykja-
vík. Myndin er með íslensku tali,
sem áhorfendur hafa kunnað vel
að meta, enda mjög vel gert. Eins
og aðrar sögur Astrid Lindgren
gerist hún í ævintýralegu umhverfí,
í þetta sinn meðal ræningja í stórum
skógi. Atök eiga sér stað milli góðs
og ills, en hið góða sigrar að lokum
einsogvera ber.
Hanna Zetterberg var valin úr
hópi þúsund stúlkna til þess að leika
Ronju og Dan Hafström úr hópi
500 drengja til að leika Birki Borka-
son og eru þau í myndinni einkabörn
ræningjaforingja er elda saman
grátt silfur, en börnin verða óað-
skiljanlegir vinir. Hanna og Dan eru
bæði frá Stokkhólmi og þurftu að
læra ýmislegt í sambandi við hlut-
verkin t.d. að sitja á hestbaki.
Myndatakan tók u.þ.b. eitt ár, en
bömin þurftu ekki að vera með í
henni nema í um 80 daga. Þess var
gætt að þau misstu ekki úr skóla-
göngu og var kennari ráðinn til að
vera þeim sem “mamma" og hjálpa
þeim við námið. Hanna og Dan
segja að það hafí verið ævintýri lík-
ast að leika í myndinni. Leikararnir
fengu yfirleitt góða dóma, en eftir-
minnilegastur af fullorðna fólkinu
er án efa elsti ræninginn, Skalla-
Pétur, sem er snilldarvel leikinn af
Allan Edvall. Það tók förðunar-
meistarann margar klukkustundir
að breyta hinum líflega leikara í
hruman öldung. Áður en við skiljum
alveg við leikarana má til gamans
geta þess að hestamir Laban og
Rap eru af íslenskum ættum.
Höfundurinn, Astrid Lindgren,
er mjög ánægð með hvemig til
hefur tekist og lýsti því m.a. yfir
er hún var viðstödd frumsýningu
myndarinnar hérlendis á Listahátlð
í fyrra. Mörg tæknileg atriði þurfti
að leysa, s.s. fínna heppilega staði,
flytja þangað allt sem nota átti, búa
til gervi fyrir hinar mörgu verur
(skógarnornir, rassálfa og grá-
dverga) er skóginn byggðu um árið
1200 þegar sagan á að gerast. Allt
þetta hefur tekist vonum framar
og í þetta sinn er það satt og rétt
þegar sagt er að myndin sé
skemmtun fyrir alla íjölskylduna.
Helle Nielsen meö dagatalið sem
hún selur fyrir „U—landshjælp fra
folk til folk“.
' . j........................................................................................................................................................
,vc^s
;>°s
,v>
Allan Edvall f hlutverki Skalla-
Péturs.
„U-LANDSHJÆLP FRA FOLK TIL FOLK“
Selur dagatal til styrktar
vanþróuðum Afríkuríkjun
Dönsk stúlka, Helle Nielsen, er stödd hér
á landi á vegum samtakana “U-lands-
hjælp fra folk til folk“ (Þróunarhjálp þjóða á
milli) og hefur hún til sölu dagatal til styrktar
samtökunum. „U-landshjælp fra folk til folk“
er samtök sem starfa í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð og hafa þau tvö meginmarkmið,“ sagði
Helle Nielsen í samtali við blm. Mbl. „I fyrsta
lagi að kynna kjör fólks í þróunarlöndúnum og
í öðru lagi að afla fjár til uppbyggingar í þriðja
heiminum.
Starfsemi okkar hefur að undanfömu beinst
mest að ríkjum í suðurhluta Afríku s.s. Zamb-
íu, Namibiu, Zimbabwe og Mósambik. Við
höfum að sjálfsögðu afdráttarlausa afstöðu
gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-
Afríku, sem teygir sig til ríkjanna í kring. Þessi
ríki eiga í mjög miklum erfíðleikum við að
byggja upp skólakerfí og koma landbúnaði og
öðrum atvinnuvegum í nútímalegt horf. A
vegum samtakanna hafa verið þarna sjálf-
boðaliðar frá Norðurlöndunum sem hafa aðstoð-
að innfædda við uppbyggingu og skólastarf.
Sjálf var ég I Zimbabwe fyrir tveimur árum
og vann þar við að byggja upp skóla.
— Hver er tilgangurinn með ferð þinni
hingað til Islands?
„Ég ætla að kynna starfsemi samtakana hér
á landi, m.a. með sölu dagatals. Dagatal þetta
er vandað að allri gerð og I því 24 stórar lit-
myndir frá löndum Suður-Afríku. Allur hagnað-
ur af sögu dagatalsins rennur til starfsemi
samtakanna í Afríku en dagatalið er til sölu í
Bóksölu stúdenta í Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut í Reykjavík.