Morgunblaðið - 15.04.1986, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL1986
59
2
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
h'
Bingó — Bingó
Nú mæta allir í bingó í Glæsibæ í kvöld
kl. 19.30.
Bifreið íaðalvinning
Vinningar og verð á spjöldum í öðrum
umferðum óbreytt.
Mætum stundvíslega.
Stjórnin.
0»^
S£i
Þessir hringdu . . .
Sömu
flugskilyrði
Áhug-amaður hringdi:
Mig langar að varpa fram
þeirri spumingu hvort sömu
flugskilyrði hafi verið á hafinu
úti fyrir Snæfellsnesi og í Ljósu-
fjöllum, þegar slysið varð þar
5. apríl síðastliðinn.
Fagmannlegir
útvarpsþættir
Útvarpshlustendur eru jafnan
óragir við að gagnrýna það, sem
ekki fellur í þeirra smekk, í dag-
skrá útvarpsins en aftur á móti vill
oftast gleymast að nefna og þakka
fyrir það sem vel er gert. Þess
vegna sé ég ástæðu til að stinga
niður penna og þakka fyrir þætti í
dagskránni sem ég tel hafi verið
mjög áhugaverðir og vel undirbúnir.
Fyrst vil ég nefna þætti Hjartar
Pálssonar um Passíusálmana og
Hallgrím Pétursson sem fluttir voru
á föstunni. Eins og útvarpshlust-
endur vita þá er Hjörtur Pálsson
einn af okkar fjölhæfustu og bestu
útvarpsmönnum og frábær upples-
Einkennilegur frétta-
flutningur af launakjörum
Það virðist vera talsvert ein-
kennilegur fréttaflutningur í ríkis-
fjölmiðlunum varðandi launakjörin.
Þar er stundum sagt frá sjómönn-
um, sem hafi svo og svo miklar
tekjur á skömmum tíma, t.d. einn
og einn „túr“. Þar er ekki tekið
nokkurt tillit til lengdar vinnutím-
ans né annars álags. Aftur á móti
er svo sagt frá opinberum starfs-
mönnum, svo sem kennurum og
lögreglumönnum. Þar er því haldið
fram að launin séu svo lítil að þau
séu um það bil 20 þúsund krónur
á mánuði. Þama er ekkert sagt
frá yfirvinnu, vaktaálagi, fríum né
ýmsum öðrum hlunnindum. Þama
virðist því um meiriháttar blekkingu
að ræða. Það kom einnig fram í
sjálfu útvarpinu að meðallaun lög-
reglumanna væru um sextíu þúsund
á mánuði eða meira. Fróðlegt væri
að fá upplýsingar um hversu há
laun kennara eru þegar allt er fram
talið eins og hjá sjómönnum og að
þar sé ekkert undandregið, hvorki
jóla-, páska- eða sumarfrí né neitt
annað er til hlunninda má telja. Það
getur varla verið annað en sann-
gjöm krafa að ríkisfjölmiðlarnir láti
jafnt yfir alla ganga á þessu sviði
sem öðrum. Sök sér er þótt ríkis-
styrkt dagblöð vandi ekki málflutn-
inginn að sama skapi enda ekki
starfrækt til þeirra htuta.
Landsmaður
ari. í þáttum sínum um Pássíu-
sálmana leitaði hann víða fanga og
ræddi við marga þekkta fræðimenn.
Öll samantekt og framsetning þess-
ara þátta var mjög skilmerkileg og
fræðandi og vona ég að þættimir
verði endurteknir síðar og þá auð-
vitað á föstunni.
Þá vil ég nefna þættina um
Oddrúnarmál, sem fluttir voru í
febrúar og mars sl. Þetta sérkenni-
lega mál varð í höndum flytjenda
mjög spennandi og ánugavert, þar
sem leikarar bæði lásu og léku, en
Hjörtur Pálsson var sögumaður og
tengdi efnið saman. Klemenz Jóns-
son leikari hefur samið handritið
og stjómaði upptöku. Þjóðleg tón-
list var leikin milli atriða og féll vel
að þessu sérstæða efni. Þessir
þættir voru allir mjög fagmannlega
unnir. Ég vænti þess fastlega að
þeir verði endurteknir og þá sér-
staklega vegna þess, að á sama
tíma og þeir voru fluttir á sunnu-
dögum var útvarpað á rás 2 frá
heimsmeistarakeppninni í hand-
bolta. Hafa eflaust margir, fyrir
þær sakir, misst af einum eða fleiri
þáttum Oddrúnarmála.
Sigurður Jónsson
Ekki verra orðbragð
en í öðrum leikhúsum
Kæri Velvakandi.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa
þér er sú að ég sá bréf frá Jórunni
í Morgunblaðinu föstudaginn 4.
apríl, þar sem hún fór ófögrum
orðum um sýningu lcikhúss unga
fólksins á Myrkri eftir Frederik
Knott.
Ég dreif mig eitt kvöldið á sýn-
ingu hjá þeim og varð alls ekki
fyrir vonbrigðum. Að mínu mati var
þetta alveg stórkostlegt hjá þeim.
Jórunn kvartaði yfir slæmu orð-
bragði en ég varð ekki vör við verra
orðbragð en maður heyrir í öðrum
leikhúsum borgarinnar. Einnig
fannst henni leikritið hrollvekja og
auglýsingin ósmekkleg. Jórunn
hlaut að sjá á auglýsingunni að
þetta væri ekki beinlínis bamaleik-
rit og mér fínnst auglýsingin bara
góð. þar sem tekið er fram að leik-
ritið er ekki við hæfí barna þá átti
hún ekki að taka 8 ára son sinn
með sér.
Mér finnst að allir ættu endilega
að drífa sig á þessa stórkostlegu
sýningu, því leikfélagið „Veit
mamma hvað ég vil“ er afskaplega
efnilegt og á réttri braut.
Anna
Metsölublad á hverjum degi!