Morgunblaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIPjyDAGUR 15. APRÍL1986
á úrslitunum, eða eins og einn
sagði: „Sigurður er betri vaxtar-
ræktarmaður, en ég hefði samt
valið Jón Pál í þessari keppni." Fór
mikill óánægjukliður um áhorfenda-
salinn enda Jón Páll heimamaður.
Er ekki ólíklegt að bæjarrígur hafi
haft áhrif á einhveija þeirra. í
hnotskum þótti dómumm Sigurður
hafa betra samræmi milli líkams-
hluta, en Jón Páll, sem heillaði
flesta uppúr skónum með mjög líf-
legri framkomu.
„Að mínu mati fannst mér Sig-
urður hafa betri hlutföll, sérstak-
lega hafði hann betri lærvöðva. Ef
Jón Páll væri meiri á löppunum
væri hann í heimsklassa. Bæði
Sigurður og Jón Páll vom í góðu
formi, þannig hefði raunvemlega
getað farið á hvom veginn sem er,
þetta er alltaf matsatriði,“ sagði
Finnbogi Helgason yfirdómari
mótsins. Hann dæmdi ekki sjálfur
en reiknaði ásamt dómritumm út
úrslit keppninnar.
Önnur úrslit ollu ekki viðlíka
deilum. Keppni í unglingaflokki var
sérstaklega lífleg og ijölmenn. I
þeim léttari vann Björn Broddason
frá Akureyri, en varð síðan að lúta
í lægra haldi fyrir sigurvegara
þyngri flokksins, Júlíusi Guðmunds-
syni, þegar valinn var Islandsmeist-
ari yfir heildina í unglingaflokki.
Rósa Olafsdóttir vann léttari
kvennaflokkinn og Marta Unnars-
dóttir þann þyngri, valið um heild-
arsigurvegara kvenna varð því á
milli þeirra og hafði Marta betur.
Var erfítt að dæma um kvennasig-
urvegara vegna mikils þyngdar-
munar á Mörtu og Rósu.
Gestur Helgason þótti hafa tekið
miklum framfömm frá fyrra ári,
vann undir 80 kg flokkinn, Magnús
Oskarsson varð annar og Gary
Randolph þriðji. Margir Bandaríkja-
menn frá varnarliðjnu í Keflavík
tóku þátt í mótinu. í 90 kg flokkn-
um náði Kenneth Horton öðm sæti
á eftir Sigurði Gestssyni og Michael
Oliveri varð þriðji. Kraftakarlinn
Karl Elísson vann 70 kg flokkinn
og tók áhorfendur með trompi,
Sævar Símonarson varð annar og
Ólafur Birgisson þriðji.
Hvor er betri? Um þetta var mikið deilt á vaxtarræktarmótinu og verður sjálfsagt næstu daga. Dómur-
um mótsins þótti Sigurður hafa betra samræmi milli líkamshluta.
íslandsmótið í vaxtarrækt:
Hart deilt um úr-
slit í karlaflokki
SJÁLFSAGT hefði íslandsmeist-
ari karla í vaxtarrækt, Akur-
eyringurinn Sigurður Gestsson,
viljað sigra undir öðrum kring-
umstæðum en voru í Broadway
á sunnudagskvöld. Eftir að úrslit
höfðu verið tilkynnt var urgur í
mönnum og sumum hitnaði mikið
í hamsi. Þótti mörgum Jón Páll
betur að titlinum kominn.
Skyggði þetta talsvert á annars
g°tt Islandsmót vaxtar-
ræktarmanna, en þrjátíu kepp-
endur mættu til leiks.
Lokaúrslitin komu vissulega
mörgum á óvart. Þeir vaxtarrækt-
armenn sem blaðamaður spjallaði
við strax eftir keppni voru dolfallnir
CITIZEN reiknivélarnar eru liprar, skemmtilegar,
fljótvirkar og ódýrar. Þær eru nýtískulega
hannaðar, öruggar og aðgengilegar, með stóru
og skýru Ijósaborði, pappírsstrimli, góðum
prenthraða og öllu því öðru sem prýðir góða 1
reiknivél. Þess vegna finnurðu CITIZEN
reiknivélar í íslenskum bönkum, íslenskum
stórfyrirtækjum, íslenskum smáfyrirtækjum og á
íslenskum heimilum.
CITIZEN CX-100... KR.4.980
CITIZEN 220 DP .. KR. 6.380
CITIZEN 320 DP .. KR. 8.310
Verð miöast viö gengi 2. apríl 1986.
Hverfisaötu 33 - Sími 91 -20560
Helstu söluaöílar: Bókaversl. JónasarTómassonar ísafirði • Bókaversl. Þórarins Stefánssonar Húsavík • Bókval Akureyri
• E.Th.Mathiesen Hafnarfiröi • Fjölritun s.f. Egilsstöðum • Kaupfél. Árnesinga h.f. Selfossi • Kjarni Vestmannaeyjum • Penninn Hallarmúla
ifíSa
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
„Stór stund
að vinna
Jón Pál“
— sagði Sigurður Gestsson
Islandsmeistari annað árið í röð
„EG VAR mjög ánægður með
úrslitin, fannst ég eiga þetta
skilið. Það er nú bara þannig að
mönnum finnst að stór maður
eigi að vinna litinn mann. Það
er bara ekki málið í vaxtarrækt-
inni,“ sagði íslandsmeistari
karla, Sigurður Gestsson, í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Jón Páll gerði vissulega krafta-
verk á skömmum tíma, en eins og
sagði fyrir keppni þá er ekki málið
að vera stór og mikill heldur þurfa
hlutföll og skurður að vera í góðu
lagi. Fyrir mér var stór stund að
vinna Jón Pál, annar eins harðjaxl
og hann þekkist varla. Ég er búinn
að vinna hart að þessu og er nú
orðinn langþreyttur, vil fara að
vinna að fjölskyldumálum. Mótið
var gott og mér fannst menn móts-
ins vera Einar Guðmann og Gestur
Helgason, burtséð frá öllum titl-
um,“ sagði Sigurður.
„Hvorki
svekktur
né sár“
— segir Jón Páll
„ÉG ER hvorki svekktur né sár
og óska Sigurði tii hamingju með
titilinn. Ég átti hins vegar allt
eins von á því að vinna. Ég var
með meiri vöðvamassa og vöðv-
arnir sáust betur,“ sagði Jón Páll
Sigmarsson í samtali við Morgun-
blaðið.
„Úrslit eru úrslit og dómararnir
dæma. Það er ekki hægt að breyta
því. Ég náði að koma mér í gott
form á þessum stutta tíma sem ég
hafði til undirbúnings,“ sagði Jón
Páll. Þjálfari hans, Finnur Karlsson,
vildi hins vegar taka dýpra í árinni
og sagði: „Ég tel þetta hreint út
sagt hneyksli. í einni æðstu keppni
vaxtarræktarmanna, Mr. Olympia,
er sigurvegarinn Lee Haney. Hann
er 106 kg að þyngd, Jón Páll er
117 kg og allur þakinn vöðvum og
þykir gjaldgengur í þá keppni að
mati vaxtarræktarmanna hérlendis.
En þegar hann keppir í Islandsmóti
þykir hann ekki verður íslands-
meistari! Það er alveg út í hött og
óskiljanlegt," sagði Finnur.
„Mér finnst illa farið með góðan
dreng og veit að vaxtarræktarfólki
almennt ofbauð það sem gerðist. Ég
tel að þetta sé nokkurs konar aðför
að Jóni Páli, þar sem hann hefur
æft á stöðvum sem ekki eru innan
sambands vaxtarræktarmanna.
Það voru þrír Akureyringar í dóm-
nefnd og tveir Reykvíkingar og mér
fannst Gestur Helgason frekar átt
að eiga við Jón Pál um heildarsigur-
vegara en Sigurður. Síðan var for-
keppnin skemmd fyrir Valbirni
Jónssyni með því að láta Jón Pál
sýna um leið. Jón Páll hafði komið
inn á fyrir mistök og voru þau ekki
leiðrétt. Mér finnst Jón Páll hafa
verið leiksoppur á þessu móti,“
sagði Finnur.
Texti og myndir:
Gunnlaugur Rögnvaldsson
Cterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
JJIirr^mMahifo