Morgunblaðið - 15.04.1986, Page 64
Tveir átta ára
drengir drukkn-
uðu í Borgarfirði
TVEIR átta ára gamlir drengir úr Borgamesi drukknuðu í
Borgarfírði á laugardag. Talið er að þeir hafí verið að leika
sér á kubbi úr einangrunarplasti í fjörunni en borist út fjörðinn
með vindi og straumum og fallið af flekanum. Drengimir hétu
Bjarki Ólafsson og Vilberg Órvar Egilsson.
Að sögn Rúnars Guðjónssonar Að sögn Rúnars er talið að dreng-
sýslumanns í Borgamesi fóru
drengimir að heiman frá sér fyrir
klukkan níu á laugardagsmorgun-
inn. Þeir skiluðu sér ekki heim
og var farið að grennslast fyrir
um þá í bænum eftir hádegið og
þegar það bar ekki árangur var
hafin skipuleg leit. Sameiginleg
björgunarsveitaæfing var í hérað-
inu og vom sveitimar kallaðar út
auk þess sem flugmenn tveggja
lítilla flugvéla í héraðinu voru
fengnir til leitar á flugvélum sín-
um. Eftir klukkan 17 fundust
drengimir látnir f Borgarfirði fyrir
utan Borgarvog, um 2 kílómetrum
vestan við Borgames.
Enginn er til frásagnar um
slysið. Skammt frá drengjunum
fannst einangrunarplastkubbur.
imir hafi verið að leika sér í fjör-
unni við íþróttahúsið og notað
plastið sem fleka, en lent í út-
fallinu um morguninn, borist með
vindi og straumum frá landi og út
fjörðinn ogfallið af flekanum.
Bjarki Olafsson var fæddur 8.
janúar 1978 og átti heima á
Borgarbraut 34 í Borgamesi.
Hann var ásamt tvíburabróður
sfnum jmgstur fjögurra bama
Jóhönnu Þórðardóttur og Ólafs
Axelssonar trésmíðameistara.
Vilberg Örvar Egilsson var
fæddur 18. mars 1978 og átti
heima á Þorsteinsgötu 5 í Borgar-
nesi. Hann var næst yngstur af
fimm bömum Jónínu Báru
Óskarsdóttur og Egils Pálssonar
bifreiðarstjóra.
Bjarki Ólafsson
Vilberg Órvar Egilsson
\\ .
...— ' ... 1-r-
Morgunblaðið/Úlfar.
Norski rækjutogarinn á Pollinum á Isafírði f gærkvöldi. Togarinn Hafþór og hafnsögubátur undirbúa
að draga norska skipið af strandstað.
ísafjörður:
Norskur rækjutogari
strandar í höfninni
faafirðL
RÆKJUTOGARINN Ole
Nordgárd frá Tromsö f Noregi
strandaði f ísafjarðarhöfn
skömmu fyrir klukkan 21.00 í
gærkvöldi. Liklegt er að þrengsli
í höfninni og mikil djúprista
skipsins séu heistu orsakavaldar,
þvf reyndur hafnsögumaður var
umborð.
Nánari tildrög vom þau að togar-
inn, sem lá utan á togaranum
Hafþóri við norðurenda hafskipa-
kantsins, var að leggja frá og ætlaði
Hafþór að halda út strax á eftir.
En í beygjunni sem þarf að taka
til að komast út lenti norski togar-
inn aðeins of vestarlega og tók niðri
syðst á Torfnesrifi. Nokkur halli
kom að skipinu, en þama er leirbotn
svo ekki er talið að skemmdir hafí
orðið.
Með aðstoð hafnsögubátsins var
komið togvírum yfír í Hafþór, sem
þrátt fyrir þrengslin tókst að ná
strandaða togaranum út. Þá hafði
annar togvírinn lent í skrúfu Haf-
þórs. Láðlega einni og hálfri klukku-
stund eftir strandið losnaði skipið
af rifinu.
Þegar Morgunblaðið fregnaði
síðast í gærkvöldi voru bæði skipin
komin að bryggju. Ekki er búist við
teljandi skemdum en kafari átti að
skoða botn og skrúfubúnað.
-Úlfar
íslenskir aðalverktakar og vamarliðið:
Samið um 1,5 milljarða
framkvæmdir í Helgnvík
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki árið 1986
LENSKIR aðalverktakar og
vamarliðið hafa gert með sér
samning um verklegar fram-
kvæmdir í Helguvík. Samningur-
inn hljóðar upp á 35 miiyónir
dollara eða um tæpan 1,5 milljarð
íslenskra króna.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
íslenskir aðalverktakar annist allar
verklegar framkvæmdir við gerð
olíuhafnar í Helguvík, þar á meðal
gerð bryggju og viðlegukants ásamt
olfuleiðslum og tilheyrandi bygging-
um. Að sögn Gunnars Þ. Gunnars-
^mar, forstjóra íslenskra aðalverk-
Taka, er gert ráð fyrir að verkinu
ljúki seint á árinu 1988. Hann sagði
að undirbúningur að framkvæmd-
um væri nú þegar hafinn. Verið
væri að undirbúa aðstöðu á staðn-
um og kvaðst Gunnar gera ráð fyrir
að framkvæmdir við dýpkun hafn-
arinnar gætu hafist í þessari viku.
Að sögn Gunnars liggur ekki
endanlega fyrir hversu mikill hluti
verksins verður unninn á þessu ári,
en byijað verður á að dýpka höfnina
eins og áður segir. Síðan er gert
ráð fyrir að hafist verði handa við
grjótsprengingar og gijótflutning f
viðlegugarðinn. Næsta sumar er svo
gert ráð fyrir að steypa fimm stór
ker undir bryggju. Gunnar sagði
að verkið yrði unnið að verulegu
leyti af undirverktökum og hefði
verið ákveðið að reyna samninga
við fyrirtækið Núp hf., sem unnið
hefði byijunarframkvæmdir við
sprengingar á siðastliðnu sumri.
Kostnaður við framkvæmdir f
Helguvík er að öllu leyti greiddur
af Atlantshafsbandalaginu.
Samdráttur hjá verkstæðum
FRÁ ÞVÍ tollar voru lækkaðir á
bílum eftir undirskrift siðustu
kjarasamninga hafa verkefni
þeirra sem vinna við bílaviðgerð-
ir minnkað verulega, að sögn
Jónasar Þórs Steinarssonar
framkvæmdastjóra Bílgreina
sambandsins. Samdrátturinn er
mest áberandi i réttingum og
bílasprautun.
Jónas Þór sagði að eftir lækkun
tolla á nýjum bílum væri varahluta-
verðið orðið óhagstætt, enda væru
aðflutningsgjöld á þeim ennþá tæp
70%. Við þetta lækkar aldur þeirra
bíla sem menn létu gera við. Hann
sagði að sjálfsagt væri eitthvað til
af gömlum bflum sem væru orðnir
það lélegir að þeim mætti leggja
en þarna yrði að vera eitthvert
meðalhóf þannig að það borgaði sig
fyrir menn að láta gera við þá bfla
sem hagkvæmt væri að halda í til
að sóa ekki verðmætum. Því hefði
Bflgreinasambandið verið að leita
eftir lagfæringu á1 varahlutaverð-
inu, það er að fá tollana lækkaða
til samræmis við aðflutningsgjöld á
bflum.
Jónas nefndi það einnig í þessu
sambandi að þegar sala á varahlut-
um minnkaði yrði það sífellt erfið-
ara fyrir umboðin að liggja með
hluti sem seldust hægt og gætu þau
síður veitt þá þjónustu sem ætlast
væri til.
Rússnesku
sjómenn-
imir skildu
ekki fyrir-
mælin
SOVÉSKUR togari, sem
staddur var suð-vestur af
Reykjanesi, sendi í gær
beiðni til Landhelgisgæsl-
unnar um aðstoð við að
koma sjúkum skipveija
undir læknishendur. Þyrla
Landhelgisgæslunnar varð
hins vegar frá að hverfa
þegar til kom í gærkvöldi.
Enginn um borð virtist
skilja nægjanlega mikið í
ensku til að geta farið að
fyrirmælum um hvernig
ætti að koma manninum um
borð í þyrluna.
Upphaflega komu boð frá
togaranum um miðjan dag í
gær, þar sem tilkynnt var um
sjúkan mann um borð. Mátti
þá skilja á boðunum að togar-
inn myndi sjálfur sigla með
manninn til hafnar. Um klukk-
an 21.00 í gærkvöldi var svo
beðið um aðstoð Landhelgis-
gæslunnar, sem ekki kom þó
að notum eins og fyrr greinir.
Varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli víir þá beðið um að koma
skipinu til aðstoðar, en liðið
hefiir á sínum snærum rússn-
eskumælandi menn. Er Morg-
unblaðið fregnaði síðast, laust
eftir miðnætti í gærkvöldi,
voru vélar frá bandaríska
hernum á leið út að sovéska
togaranum með túlk innan-
borðs.