Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 54
P’g4
DÆLUR
úr ryðfríu stáli
• 1 og 3ja fasa.
• Til stýringar á
vatnsrennsli.
• Einstök gæði,
góð ending og
fágað útlit.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSUJN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA- LAGER
ESAB
RAFSUÐU
TÆKI,VIR
OG FYLGl
HLUTIR
vjlfe
FORYSTA ESAB ER
TRYGGING FYRIR
GÆÐUM OG ÞJÓNUSTU
= HÉÐINN =
VÉLAVERSUJN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
ESAB
h
'óHor JaM .ce SUOACfTTTMMT’? .GiaAjaKUOÍÍOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
Hnefahögg í
andlit kvenna
eftir Huldu
Bjarnadóttur
Á kvennadaginn, 24. október sl.,
lét sú ríkisstjóm er nú situr að
völdum sér sæma að löðrunga
konur landsins á heiðursdegi þeirra,
með þeim endemum að lengi mun
I minnum haft. Með bráðabirgða-
lögum setti hún verkfallsbann á
flugfreyjur sem vom f löglegu verk-
falli til áréttingar kjaramálum sín-
um og valdi til þess kvennadaginn,
sem hana rak engin nauður til.
Aðspurður sagðist Matthías
Bjamason ráðherra ekkert hafa
velt því fyrir sér, hvort þessar
aðgerðir myndu kannski koma illa
við Vigdísi forseta, sem þurfti að
undirrita plaggið til þess að lögum
yrði, og var ekkert að víla fyrir sér
að neyta aðstöðu sinnar út í ystu
æsar til þess að fá áritun forsetans.
Slíkt var offorsið. Engum af sam-
ráðherrum hans datt í hug að vara
hann við þvílíku smekkleysi.
Við afgreiðslu laganna á Alþingi
þögðu alþingiskonur Sjálfstæðis-
flokksins þunnu hljóði. Ekki voru
þær að mögla heldur beygðu sig í
auðmýkt fyrir karlaveldinu eins og
sómakærum flokkskonum sæmir,
en ekki trúi ég því að þær hafí allar
tekið þátt í þessu athæfí með glöðu
geði. Þingmenn Alþýðuflokksins
studdu aðgerðina nema Jóhanna
Sigurðardóttir. Þeir sem mótmæltu
voru: Alþýðubandalagið, Bandalag
jafnaðarmanna, Jóhanna Sigurðar-
dóttir og Samtök um kvennalista.
Þegar ríkisstjómin greip til þess
gerræðis að afnema vísitöluna á
laun án þess að láta það sama gilda
um raunvextina, afsakaði Stein-
grímur Hermannsson sig með því
sama og Matthías, að hann hefði
ekki hugleitt afleiðingamar. En eins
og alþjóð veit varð þetta „hugsunar-
leysi“ Steingríms til þess að stór
hluti þjóðarinnar komst á vonarvöl.
Svo stæra þessir ráðamenn sig af
því þrekvirki að hafa lækkað verð-
bólguna. En hveijir vora látnir
blæða? Hvergi hef ég séð að þeim
fómarlömbum gerræðisins, sem
verst vora leikin, húsbyggjendum
og húsnæðiskaupendum, hafí verið
bættur skaðinn svo nokkra nemi,
enda allar uppboðsauglýsingamar,
sem þekja síður dagblaðanna dag
hvem, sönnun þess. Þrátt fyrir ít-
rekaðar áskoranir um að stöðva
nauðungarappboðin hefír ríkis-
stjómin ekki látið sér segjast heldur
skellt skollaeyram við, og hún hefír
ekki heldur skilað fólkinu þeim
peningum sem ranglega vora af
því hafðir.
Það er vandséð hvað slíkir menn
hafa að gera í ráðherrastóla, sem
þrátt fyrir ijölda ráðgjafa og að-
stoðarmanna á hveijum fingri gera
slík axarsköft og sjá ekki afleiðing-
ar gjörða sinna fyrr en í óefni er
komið, og afsaka sig þá með því
að þeir hafí ekki hugleitt málin
nægilega. Allt er þetta auðvitað
fyrirsláttur til þess eins að slá ryki
í augu manna. Þeir vissu hvað þeir
gjörðu og lögðu sitt lóð af mörkum
með þeim afleiðingum að fátækt
jókst á íslandi og var hún þó næg
fyrir.
Það er vitað mál að stór hluti
kvenna býr við fátæktarkjör og er
stærsti láglaunahópur í landinu.
Það var rætt við fískverkunarkonu
í sjónvarpinu á dögunum. Mánaðar-
laun hennar vora, eftir sjö ára
starf, 17.060 krónur og í árslok,
þegar allar hækkanir verða komnar
á launin hennar verða þau 19.272
krónur á mánuði að viðbættum
smábótum, sem eiga að greiðast
tvisvar á árinu og munar sáralítið
um. Margir aldraðir draga fram lífíð
við bág kjör og lélegar aðstæður.
Sama gegnir um öryrkja og fatlaða
að ógleymdum mörgum listamann-
inum. Þetta era olnbogaböm þjóð-
félagsins. Við eigum skáld og lista-
menn á heimsmælikvarða en hvem-
ig búum við að þeim sumum hveij-
um? Á hátíðis- og tyllidögum gum-
um við af verkum þeirra og laugum
okkur í frægðarljóma þeirra, en þá
era þeir oftast dauðir. í lifanda lífi
löptu þeir flestir dauðann úr skel
og svo er ennþá, því miður. Mér
dettur sérstaklega í hug þeir lista-
menn sem hafa ekki fastar mánað-
artekjur af listsköpun sinni. Tökum
sem dæmi rithöfund. Það getur
tekið hann eitt eða fleiri ár að
skrifa eina bók. Á hveiju á hann
að lifa á meðan? Höfum við nokkuð
hugleitt það, eða myndlistarmaður,
svo ég taki annað dæmi. Hann
verður að viða að sér rándýra efni,
sem hann þarf á að halda við list-
sköpun sína, og gera fjölmargar
myndir eða verk áður en hann getur
haldið sýningu og allsendis óvíst
hvernig sölu myndverkanna reiðir
af. Á hveiju á hann að lifa? Þess
vegna verður að krefjast þess að
fólk, sem hefir listsköpun að ævi-
starfi og eins er ástatt um eins og
ég hef tilgreint, verði sett á föst
mánaðarlaun sem ríkið greiðir því.
Það er kominn tími til að þetta fólk
sé ekki talið ómagar af samfélaginu
eins og gert hefír verið hingað til.
Kjarasamningamir, sem gerðir
vora í febrúar sl., era launþegasam-
tökunum og ríkisstjóminni, sem
lagði blessun sína yfír þá, til stór-
skammar. Hvemig dettur mönnum
í hug að bjóða vinnandi fólki upp
á slík smánaríaun? Hvemig á þetta
fólk að draga fram lífíð með rúm-
lega 19 þúsund krónur á mánuði,
eins og dýrtíðin er mikil í landinu?
Þetta nægir rétt fyrir húsaleigunni,
a.m.k. fyrir það fólk sem heldur
heimili, eins og t.d. einstæðar
mæður og fleiri. Treysta þeir sér,
sem undirrituðu samningana, að
lifa af þessum launum? Þeir sem
samþykktu kjarasamninginn, þegar
hann kom til afgreiðslu Alþingis,
vora: Alþýðuflokkur, Alþýðubanda-
lag, nema Guðrún Helgadóttir,
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur. Þeir sem sátu hjá vora:
Bandalag jafnaðarmanna, Guðrún
Helgadóttir og Samtök um kvenna-
lista.
Hulda Bjamadóttir
„Kvennaframboðið héit
velli og hef ir þegar
haft gifurleg áhrif á
stjórnmálavettvangin-
um eins og sjá má af
óvenjumikilli þátttöku
kvenna í kosninga-
slagnum nú undanfar-
ið. Allt eru þetta áhrif
frá Kvennaframboð-
inu.“
Við gerð flestra kjarasamninga
hafa hátíðleg loforð verið gefín um
að rétta hlut þeirra lægst launuðu,
en litlar orðið efndimar. Láglauna-
fólk í landinu getur ekki lengur
beðið eftir sömu tuggunni, „að nú
eigi að fara að bæta hag þess". Það
getur ekki sóað lífí sínu í áratuga
bið eftir einhveijum svikaloforðum.
Konumar verða að rísa upp og
karlamir með. Það er einnig þeirra
hagur, bæði beinn og óbeinn, að
kjör kvenna verði bætt. Það era
nægir peningar til í landinu til þess
að hægt sé að greiða fólki lífvænleg
laun ef vilji er fyrir hendi. Það sést
best á öllum fjáraustrinum út og
suður, sem eytt er í ýmislegt fá-
nýti, sem látið er sitja í fyrirrúmi
og öllu fjármálabraskinu og §ár-
málasvindlinu, sem viðgengst í
landinu.
Ég heyrði einhvers staðar nefnda
„þjóðarsátt" í sambandi við febrúar-
samninginn. Aldrei hef ég heyrt
annað eins öfugmæli. Þótt laun-
þegasamtökin og ríkisstjómin hafi
komið sér saman um að hespa þessa
samninga af, þá er engin þjóðarsátt
þar að baki, öðra nær. Halda menn
að um þriðjungur þjóðarinnar, sem
á varla málungi matar, sé ánægður
með samningana?
Ekki alls fyrir löngu heyrði ég
einhveija háspekinga ræðast við í
útvarpinu um fátækramálin. Það
var nú meiri þvælan. Nær hefði
verið að fá bæjarstjórann í Bolung-
arvík til að fjalla um þau mál. Hann
tók þá stórmannlegu ákvörðun, að
enginn bæjarstarfsmaður í Bolung-
arvík skyldi hafa lægri laun en 30
þúsund krónur á mánuði. Þetta er
maður sem skilur kjör hinna lægst
launuðu og er ekki í vandræðum
með að koma orðum að því, hvað
fátækt er, eins og sýndi sig er hann
kom fram í sjónvarpinu og skil-
greindi afstöðu sína til þessara
mála. Það er eitt af því viturlegasta
sem ég hef heyrt í sjónvarpinu og
skora ég á það að endursýna þátt-
inn. Ekki er mér kunnugt um að
þessi maður hafí fengið hrós í
hnappagatið fyrir framtak sitt.
Þessi brautryðjandi ákvörðun bæj-
arsljórans í Bolungarvík á eftir að
skila víðtækari árangri en margur
hyggur. Vandséð er, hvernig laun-
þegasamtökin og/eða ríkisstjómin
taka á þessum málum. Ég held að
þeir þurfí að fara að leggja heilann
í bleyti og endurskoða títtnefíidan
kjarasamning áður en hann hrynur
til granna. En fyrsta krafa til ný-
skipaðs borgarstjóra hlýtur að
verða 30 þúsund króna lágmarks-
laun til borgarstarfsmanna. Ekki
krónu minna.
Með tilkomu Kvennaframboðsins
varð gjörbylting í íslenskum stjóm-
málum. Því var ekki spáð löngum
lífdögum í fyrstu. Margir héldu að
hér væri um bólu að ræða sem fljótt
myndi hjaðna, en reyndin varð
önnur. Kvennaframboðið hélt velli
og hefír þegar haft gífurleg áhrif
á stjómmálavettvanginum eins og
sjá má af óvenjumikilli þátttöku
kvenna í kosningaslagnum nú und-
anfarið. Allt era þetta áhrif frá
Kvennaframboðinu. Flestir stjóm-
málaflokkamir hafa keppst um að
beita konum fyrir sig í væntanleg-
um kosningum og aldrei hafa jafn
margar konur og nú látið til sín
heyra í fjölmiðlum og á fundum,
flokkum sínum til framdráttar. Allt
er þetta gott og blessað en hrædd
er ég um að það verði karlamir sem
taka ráðin þegar leiknum er Iokið.
Með Kvennaframboðinu komu ný
sjónarmið, nýtt gildismat á flestum
hlutum. Heimilinu og ijölskyldunni
skyldi skipað í öndvegi. Hlúð skyldi
að lítilmagnanum í þjóðfélaginu,
hlúð skyldi að öiyrkjum, fötluðum
og öldraðum, bættur hagur þeirra
lægst launuðu svo þeir geti búið
við mannsæmandi kjör, bættur
hagur kvenna, bætt heilsuþjónusta,
byggð fleiri bamaheimili. En aftur
á móti hafnað reykspúandi stóriðju,
en stutt við bakið á þeim sem vilja
stunda smáiðnað, lögð meiri rækt
við umhverfísmál og umhverfís-
vemd. Og hafnað kjamorku í hvaða
mynd sem er, svo fátt eitt sé talið.
Eða með öðram orðum, áhersla lögð
á að skapa fegurra og betra mann-
líf þar sem hver einstaklingur fær
notið sín.
í hinum harða og kalda heimi
sem við búum í held ég, að fátt sé
jafti mikilvægt og að hyggja betur
að hinum mannlega þætti í tilver-
unni. Með því sköpum við betri
heim. Þess vegna ætla ég að kjósa
Kvennalistann.
Höfundur hélt eríndi og skrífaði
ýmsar greinar um kvenréttinda-
mál, sérstaklega á árunum 1956-
1969oghefuralla tfð látið rétt-
indamál kvenna tilsín taka.
Stúdentasamband VI
Stúdentafagnaður VÍ verður haldinn 1 Átthagasal Hótel Sögu föstudaginn 30.
maí, og hefst með borðhaldi kl. 19.30.
Aðgöngumiðar fást á skrifstofu Verzlunarskólans við Ofanleiti og við innganginn.
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í borðhaldinu til fulltrúa hvers afmælisár-
___________ gangs fyrir fimmtudagskvöld. stjímin.