Morgunblaðið - 29.05.1986, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
Dómsorð í máli Jóns Páls og ÍSÍ:
Keppnisbanninu aflétt
ÓHÆTT er aö segja aö úrskuröur Borgardómara, í máli því sem ión
Páll Sigmarsson höfðaði gegn ÍSÍ til aö fá ógildingu á úrskuröi um
tveggja ára keppnisbanni, hafi vakiö mikia athygli.
Kröfur ións Páls voru í stuttu máli þœr að úrskurður lyfjaeftirlits-
nefndar 18. aprfl 1985 þess efnis aö ión Páll hafi gerst brotlegur
með þvf aö mœta ekki til lyfjaeftirlits sem hann var boðaöur til og
útilokist þvf frá þátttöku í íþróttamótum innan allra sérsambanda ÍSI
f tvö ár, veröi dœmdur ógildur.
Morgumblaöiö birtir hór hluta af dómum. Fyrst meginuppistöður
úr sjónarmiöum ións Páls, síðan sjónarmið ÍSÍ í málinu og loks niður-
stööu dómarans, Garðars Gfslasonar.
Sjónarmið Jóns Páls:
ión Páll styður kröfu sína tvenns
konar rökum. í fyrsta lagi að ISÍ
hafi ekki haft lögsögu yfir honum
þegar úrskurðurinn hafi verið
uppkveðinn, og í öðru lagi að verði
ekki á það fallist, þá sé úrskurður-
inn ólögmætur efnislega og vegna
meðferðar málsins hjá lyfjaeftir-
lítsnefnd.
ión Páll kveðst hafa verið félagi
í Knattspyrnufélagi Reykjavíkur
(KR) og æft í lyftingadeild félagsins
þar til hann hafi sagt við Viðar
Sigurðsson, stjórnarmann í lyft-
ingadeild KR í desember 1984, að
hann hygöist verða atvinnumaður
í kraftlyftingum og hann færi því úr
félaginu þar sem þaö samræmdist
~ ekki áhugamannafélagi aö stunda
atvinnumennsku. í febrúar 1985
hafi hann síðan fariö til útlanda í
keppnisferð, og komið heim um
helgina 2. mars 1985. Hinn 12.
mars hafi starfsmaður ÍSl, Her-
mann Guðmundsson, hringt til
Ólafs Sigurgeirssonar og óskað
þess að Jón Páll yrði boðaður í
lyfjapróf 13. mars kl. 16.15, og
símtalinu hafi verið fylgt eftir með
hraðskeyti. Ólafur Sigurgeirsson
hafi þá sent Jóni svohljóðandi sím-
, skeyti hinn 13. mars 1985:
„Vegna skeytis er ég fékk í gær
vil ég taka fram að Kraftlyftinga-
nefnd LSÍ er ekki lengur til og ég
sjálfur er ekki lengur í stjórn LSI.
Jón Páll Sigmarsson er ekki fé-
lagsbundinn í neinu íþróttafélagi,
hann æfir í líkamsrækt fyrir al-
menning, er rekin er af hlutafé-
lagi. Hann er meðlimur i nýstofn-
uðu Kraftlyftingasambandi eins
og allir kraftlyftingamenn l'slands.
Það samband sér um allar lyfja-
prófanir sem gerðar verða á Jóni
Páli og öðrum kraftlyftingamönn-
um í samráði við IPF meðan
sambandið er utan ÍSÍ."
Með símskeyti þessu hafi Ólafur
Sigurgeirsson neitað að boða Jón
Pál til lyfjaprófs 13. mars, og hafi
neitun þessi orðið undirrót mikilla
blaðaskrifa og fjölmiðlaumfjöllun-
ar.
Síðan segir f dómnum:
Með bréfi 18. apríl 1985 hafi Jóni
Páli verið birtur úrskurður sá sem
hér sé krafist ógildingar á, án þess
nokkru sinni að hafa verið kallaður
fyrir nefnd þá sem kvað hann upp.
Þá hafi verið Ijóst, og vitað frá 13.
mars, að Jón Páll væri ekki og
hafi ekki verið í KR síöan í desem-
ber 1984, og því ekki innan vé-
banda ÍSÍ. I Ijós sé leitt, að nefndin
hafi leitað til KR með bréfi 10.
apríl 1985 til þess að fá upplýsing-
ar um hvort Jón Páll væri genginn
úr félaginu og gögn sem sönnuðu
það. Gögnin hafi borist nefndinni,
en samt hafi úrskurðurinn veriö
kveðinn upp af meirihluta nefndar-
innar 15. apríl 1985. í Ijós sé leitt
hér í málinu með framlagningu
gagna, aö málsmeðferð öll hafi
verið með eindæmum. Nefndin
hafi fengið öll gögn um að Jón Páll
hafi sagt sig úr KR á venjulegan
hátt í desember 1984 og að ekki
tíökaöist að menn segðu sig skrif-
lega úr félagi. Jón Páll hafi þvt ekki
verið undir lögsögu (SÍ þegar aö-
förin að honum hafi verið gerð.
Önnur sjónarmið
Jóns Páls:
Fallist dómurinn ekki á þetta og
telji að Jón Páll hafi enn verið form-
lega í KR og því í lögsögu ÍSÍ, þá
beri Jón Páll fyrir sig, að úrskurður-
inn sé ólögmætur efnislega. ÍSf
hafi ekki lagaheimild í íþróttalögum
til þess að setja reglur um líferni
íþróttamanna á milli opinberra
keppnismóta. (S( hafi því ekki
heimild er skyldi íþróttamenn til
að gangast undir lyfjaeftirlitspróf
nema slíkt próf sé liður í eftirliti (SÍ
með opinberri íþróttakeppni í
grein, sem lúti lögsögu ISÍ. Þá
bendi Jón Páll á, að setji ÍS( reglur
um lyfjaprófanir í keppni, þá verði
þær aö vera í samræmi við aörar
reglur, eins og alþjóðlegar reglur
um lyfjaeftiriit kraftlyftingamanna.
í þriöja lagi telji Jón Páll úrskurð-
inn ólögmætan vegna þess að
Ifyjaeftiriitsnefnd hafi í störfum sín-
um sjálf brotið 2. gr. reglugerðar
um eftirlit með notkun örvunar-
efna, er hún lagði grunn að því
lyfjaprófi sem Jón Páll átti að
mæta í. Nefndarmenn hafi einir
sér og án nokkurs samráðs eða
samvinnu við sérsambönd innan
vébanda (S( ákveðið á fundi 18.
febrúar 1985 aö Jón Páll ásamt tólf
öðrum íþróttamönnum skyldi
mæta til lyfjaprófs miðvikudaginn
28.febrúar 1985. kl. 17.00-18.30.
Nefndin hafi veriö andsnúin sam-
ráði eða samvinnu um boðun til
lyfjaeftirlits, þar sem tillögu þáver-
andi formanns kraftlyftinganefnd-
ar LSÍ um lyfjaprófun á öðrum
kraftlyftingamanni en Jóni Páli hafi
verið hafnað og sagt að hann, þ.e.
stefnandi, gæti komið til prófsins
þegar hann kæmi að utan. 2. gr.
reglugerðarinnar mæli fyrir um
samvinnu við viðkomandi sérsam-
band, og eða fyrirvaralaust á
íþróttaæfinum, íþróttamótum og
alþjóðamótum. Þarna hafi ekki
verið um íþróttamót aö ræða held-
ur tímabil á milli móta. og því hafi
þurft samvinnu við LSI, til þess að
eftir ákvæði reglugerðarinnar væri
farið. Þetta hafi verið í fyrsta skipti
sem iyfjapróf af þessu tæi hafi
verið ákveðið, þ.e. án þess að um
keppni væri að ræða, og því hafi
ekki reynt á þetta áður.
í fjórða lagi bendi Jón Páll á að
úrskuröinn beri aö ógilda vegna
þess að meöferð málsins hjá lyfja-
eftiriitsnefndinni hafi farið í bága
við grundvallarreglur réttarfars.
Nefnd þessi sé dómstóll á vegum
ÍSÍ. ÍS( sé stjórnvald og komi fram
fyrir hönd íslenskra stjórnvalda á
sviði íþróttamála. Hann hafi ekki
verið persónulega boðaður til lyfja-
prófs fyrr en 25. mars 1985, er
Hermann Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSl, hafi rætt við sig
tilboð formanns nefndarinnar, Al-
freðs Guðmundssonar, sem hann
hafi gefið í sjónvarpsþætti 22.
mars. Þetta hafi verið einkafram-
tak formannsins, til þess að leysa
einhvern vanda, sem hann og
nefndin hafi þá verið komin í, og
engra formreglna hafi því verið
gætt. Síðan hafi Jón Páll ekki verið
boðaður á einn eða annan stað til
þess að gæta réttar síns er hin
nefndin hafi haft mál hans til
meöferðar. Slík vinnubrögð séu
brot á meginreglum réttarfars svo
sem reglum um birtingar og and-
mælareglunni. Stjómvöld hafi þá
brýnu skyldu aö gefa mönnum
kost á að tjá sig áður en úrskurður
er upp kveðinn í máli þeirra. Regla
þessi sé lögfest í lögum um með-
ferö mála fyrir dómstólum lands-
ins, og nefndin hefði einnig átt að
hafa hana í heiðri. Komi í Ijós að
aðila hafi ekki verið gefinn kostur
á að tjá sig um kröfur á hendur
honum fyrir úrskurðaraðila leiði
það til ógildingar úrskurðarins.
Jón Páll leggur áherslu á, að ÍSÍ
hafi verið kunnugt að frá og með
2. mars 1985 hafi Jón Páll ásamt
flestum kraftlyftingamönnum hér á
landi stundað kraftlyftingar á veg-
um Kraftlyftingasambands fs-
lands, sem standi enn utan vé-
banda stefnda. Þátttöku í KRAFT
kveði Jón Páll sér heimila og (Sf
óviðkomandi meðan félagafrelsi
ríki hér á landi, og þess vegna
geti ÍSÍ ekki skikkað sig til lyfja-
prófs þegar því henti.
Sjónarmið ÍSÍ:
ÍSÍ og meirihluti nefndar mót-
mæla sem of seint fram kominni
við munnlegan málflutning þeirri
málsástæðu Jóns Páls að Jón Páll
hafi veriö genginn úr KR og að
úrskurðurinn hafi verið ólöglegur
af þeirri ástæðu.
ÍS( geri ekki kröfu um frávísun
málsins en bendir á aö 26. gr.
íþróttalaga nr. 49/1975 ætti að
leiða til sjálfkrafa frávísunar. Þar
sé kveðið á að ágreiningi út af
skilningi á lögunum skuli skjóta til
úrskurðar íþróttanefndar, nema
svo sé vaxinn að hann heyri undir
dómstóla. Þessi nefnd sé róttur
aðili til að skera úr um bærni ÍSÍ
til að setja reglur um lyfjaprófanir
og um málsmeðferð við slíkar próf-
anir. Jóni Páli hafi bréflega verið
tilkynnt niðurstaða hins umdeilda
úrskurðar og þá aö heimilt væri
að áfrýja úrskurðinum til dómstóla
(SÍ. Þótt dómstólar eigi skv. 60.
gr. stjórnarskrárinnar úrskurðar-
vald um embættistakmörk yfir-
valda verði ekki af því ákvæði leidd
heimild dómstóla til að skera úr
um þau atriði sem krafist sé af Jóni
Páli í þessu máli.
Sýknukröfu sína styður (Sf í
fyrsta lagi þeim rökum aö hinn
umdeildi úrskurður hafi verið kveð-
inn upp á lögmætum grundvelli.
> Jón Páll hafi gest meðlimur í
íþróttafélagi innan vébanda (Si og
þar með skuldbundið sig til að hlíta
reglum þess félags, þ.e. KR. og
sérsambandsins, Lyftingasam-
bands íslands og reglum ÍSf. Jón
Páll hafði ekki löglega sagt sig úr
KR þar sem lög félagsins kveði á
um að úrsögn skuli vera skrifleg.
Upplýst sé, aö eftir þessu sé
stranglega gengið, þegar maður
gengur úr félagi til þess að keppa
fyrir annað félag í sömu íþrótta-
grein. Þessu megi alfarið jafna við
slíkt tilvik. Hér hafi Jón Páll sagst
hafa gengið úr KR þegar hann
hafi verið kallaður til lyfjaprófs.
Hann hefði því átt að hafa úrsögn
sína skriflega, til þess að ekkert
færi á milli mála. Úrskurðurinn
hafi síðan verið kveðinn upp skv.
reglugerö, sem sett hafi verið af
ÍSI á Iþróttaþingi, eins og lög geri
ráð fyrir. Ákvörðun stjórnar Lyft-
ingasambands (slands um aö
skipta sér ekki frekar af kraftlyft-
ingum hafi ekki getað tekið gildi
tafarlaust. Samkvæmt 2. gr. laga
LSÍ hafi það yfirstjórn allra ís-
lenskra lyftinga, en lagabreytingin
hafi ekki verið afgreidd fyrr en á
Lyftingaþingi í nóvember 1985.
Lagabreytingin þurfi staðfestingu
Sambandsstjórnar ÍSÍ til þess að
öðlast gildi.
ÍSÍ mótmælir því, að stofnun
Kraftlyftingasambands fslands og
þátttaka stefnanda í bví komi f veg
fyrir heimild stefnda ISÍ til að boða
stefnanda til lyfjaprófs og úrskurða
um viðurlög. Það að reglur þær
sem ÍSÍ hafi sett um lyfjaeftirlit
samrýmist ekki reglum Alþjóða-
kraftlyftingasambandsins breyti
engu um lögmætan grundvöll úr-
skuröarins. Stangist alþjóðlegar
reglur á við reglur (S( gangi ís-
lensku reglurnar framar, og þær
þurfi að gilda um íþróttamenn allra
sérsambanda innan (S(. Löagjöf
um íþróttir leiði til þess að (SÍ hafi
á hendi yfirstjórn frjálsrar íþrótta-
starfsemi í landinu og því réttur
aðili til að halda uppi eftirliti með
því að ólöglegra lyfja sé ekki neytt
af íþróttamönnum.
I öðru lagi sé sýknukrafan byggð
á því að málsmeðferð varðandi
lyfjaprófin og uppkvaðningu hins
umdeilda úrskuröar sé ekki haldin
slíkum ágöllum sem leiði til að
ógilda beri úrskuröinn. Því sé mót-
mælt að lyfjaeftirlitsnefnd hafi við
boðun til lyfjaprófs brotið 2. gr.
reglugérðar um eftirlit meö notkun
örvunarefna. Samráð við sérsam-
böndin felist í milligöngu formanna
sérsambanda um boöunina og
aðstoð við val manna. i samráði
felist m.a. að fá aðra menn til prófs
en nefndin hafi upphaflega fyrir-
hugaö ef til þess eru gild rök svo
sem að viökomandi sé ekki í þjálf-
un. Ekkert slíkt hafi átt við um Jón
Pál. Hann hafi verið löglega boðaö-
ur til lyfjaprófs og að eigin sögn
hafnað því.
(Sí vísar fullyrðingum Jóns Páls
um brot á reglum um birtingar-
og andmælareglu á bug. Þegar
lyfjaeftirlitsnefnd hafi komið sam-
an til að kveða upp hinn umdeilda
úrskurð hafi legið fyrir að Jón Páll
heföi ekki sinnt boöun til lyfjaprófs.
Viðurlög við slíku séu ákveðin í
reglugerðinni og verði ekki séð á
hvern hátt annan Jón Pál! hafi verið
þörf aö gæta réttar síns en aö
fara fram á að honum yrði gert
lyfjapróf. Jón Páll hafi ekki notað
rétt sinn til að áfrýja úrskurðinum
til íþróttadómstóls ÍS( skv. 9. gr.
reglugeröarinnar. Einnig sé mót-
mælt að Jóni Páli hafi ekki verið
birtur úrskurðurinn með eölilegum
hætti. Birtingin hafi verið eðlileg,
en hins vegar sé Ijóst að galli á
birtingu geti ekki varðað ógildingu
úrskurðarins.
Niðurstaða
Borgardómara:
Telja verður að málsástæða
Jóns Páls um aö hann hafi ekki
verið í félagi innan vébanda (SÍ
felist í framkomnum málsástæð-
um hans í greinargerð og að hún
sé því ekki of seint fram komin.
Telja verður að 26. gr. íþrótta-
laga nr. 49/1956 standi ekki í vegi
fyrir því aö Jón Páll geti lagt mál
sitt beint fyrir almenna dómstóla
landsins, þar sem hér er um mikla
einstaklingshagsmuni aö ræða.
Ekki verður fallist á með Jóni
Páli að sýnt sé að hann hafi á
lögfullan hátt sagt sig úr lyftinga-
deild KR í desember 1984 og að
(Sí hafi því ekki haft lögsögu yfir
honum og að þegar af þessari
ástæðu beri að ógilda úrskurðinn
frá 15. apríl 1985. Er þar um slíkt
vafamál að ræða sem útkljá hefði
þurft af þar til bærum úrskurðarað-
ilum ÍSf samkvæmt íþróttalögum.
Ekki verður heldur fallist á með
Jóni Páli að úrskurðurinn sé ólög-
mætur vegna þess að ÍS( hafi ekki
haft heimild til að setja reglur er
skyldi íþróttamenn til að gangast
undir lyfjapróf á milli opinberra
keppnismóta. (SÍ hefur í samræmi
við hlutverk sitt tekiö að sér aö
berjast gegn þeim vágesti sem
ólögleg lyfja- og efnanotkun
íþróttamanna er og hefur sett
reglur þar að lútandi á lögformleg-
an hátt.
Enn veröur ekki fallist á að úr-
skurðinn beri að ógilda vegna þess
aö nægilegt samráð skv. 2. gr.
reglugerðar hafi ekki verið viðhaft.
Er þá komið að málsástæðu
stefnanda sem lýtur að meöferð
málsins hjá lyfjaeftirlitsnefnd.
ÍSÍ mátti vera fullljóst að ástæð-
ur Jóns Páls fyrir því að mæta
ekki til lyfjaprófs þess sem hann
var boðaður til 25. mars 1985 voru
bæði að hann taldi sig ekki í félagi
innan vébanda ÍSf og einnig, að
hann teldi sig ekki vera frekar en
flest allir kraftlyftingamenn lengur
í Lyftingasambandi fslands, þar
sem þeir höfðu hinn 2. mars 1985
stofnað Kraftlyftingasamband fs-
lands. Andmæli voru af hálfu (S(
við stofnun hins nýja kraftlyftinga-
sambands, og hafði það ekki hlotið
aöild að (SÍ. Þegar svo stóö á var
rík ástæöa til að boða Jón Pál sér-
staklega fyrir nefndina og skjóta
álitaefninu um félagsaöild hans og
lögmæti hins nýstofnaöa Kraftlyft-
ingasambands fslands til þar til
bærs úrskurðaraðila (S(, áður en
nefndin tæki afstöðu til þess hvort
Jón Páll hefði með hátterni sínu
gerst brotlegur við reglugerð um
eftirlit með notkun örvunarefna.
Hér var um grundvallaratriði varð-
andi féiagsaöild einstaklings að
ræða, og varöandi lögmæti annars
félags, sem ekki verður úrskurðað
um í sérstakri nefnd sem hefur
annað hlutverk, nema um slíkt sé
full samstaða málsáöilja og að
einstaklingar fái að tala máli sínu
og svara til saka.
Þegar þetta er virt verður að
telja, að skortur á að gefa Jóni
Páli kost á að skýra mál sitt fyrir
nefndinni, og að ekki var hlutast
til um að ágreiningur um félags-
aðild og fólagsstofnun væri út-
kljáður af þar til bærum aðilum,
áður en úrskurðarefni skv. reglu-
gerð um eftirlit með notkun örv-
unarefna væri tekið fyrir / nefnd-
inni, valdi því að hinn umdeildi
úrskurður hafi ekki verið byggður
á lögmætum grundvelll. Ber þv/
að fallast á með Jóni Páli að
ógilda beri úrskurðinn.
Eftir öllum atvikum er rétt aö
hver aðila beri sinn málskostnað.
Knattspyrnuskóli KR
Námskeið hefjast 2. júní og verða fjögur fyrstu
þeirra sem hér segir:
1. námskeið 2.-13. júní
2. námskeið 16.-27. júní
3. námskeið 30. júni-11. júlí
4. námskeið 14. júlí-25. júlí
6-7 ára verða kl. 9.00-10.00 eða kl. 13.00-14.00,
8-9 ára kl. 10.45-12.15 og 10-12 ára kl. 14.45-
16.15.
Kennarar verða Sigurður Helgason íþróttakennari
og Gordon Lee þjálfari m.fl.
Innritun fer fram á skrifstofu knattspyrnudeildar
KRísíma 27181.