Morgunblaðið - 18.11.1986, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986
5
Kirkjuþing:
Húsnæðis- og skattalögin
ógnun við hjónabandið?
MEIRIHLUTI þeirra tillagna sem komu til umræðu á Kirkjuþingi í
gær snertu þjóðfélagsmál á einn eða annan hátt. Sr. Lárus Þ. Guð-
mundsson mælti fyrir tveimur þingsályktunum sem vörðuðu skatta-
mál og lánamál hjóna og einstaklinga. Hann lagði m.a. fram
útreikninga löggilts endurskoðanda og skattstjóra sem leiðir í ljós
að hjón með þijú börn á skólaskyldualdri bera allt að 30.000 krónum
hærri skatta á mánuði en sambærilegir einstæðingar. „Þetta er eitt
af þeim málum hér á Kirkjuþingi sem tekur af allan vafa um það
að kirkjan verður að taka afstöðu í mikilvægum þjóðfélagsmálum,
hún getur ekki látið það óátalið að grafið sé undan hjónabandinu
og vígðri sambúð með skattalöggjöf,“ sagði sr. Lárus.
í greinargerð með tillöguninni
bendir Sr. Lárus á að í ísafjarðar-
prófastdæmi fækkaði hjónavígslum
um 28% á síðasta ári, en skilnuðum
fjölgaði stórlega. Þeir voru 43%
allra þeirra giftinga sem fram fóru
hjá prestum og sýslumanni á því
ári. Sr. Lárus sagðist því vilja láta
kanna hvort óréttlát skattlagning
hjóna leiddi til þess að ungt fólk
gengi ekki í hjónaband, eða sliti
sambúð.
í því dæmi sem Sr. Lárus lét
reikna út til stuðnings máli sínu er
miðað við foreldra þriggja bama.
Það foreldri sem hefur bömin á
framfæri er látið vinna fyrir 14.000
krónum á mánuði, en þrjú dæmi
voru tekin um árslaun hins, frá
227.000, 450.000 eða 900.000
krónur. Þegar skattlagning þessara
foreldra er borin saman við ógifta
einstaklinga og ekki í sambúð, þar
sem annar þeirra nýtur fullra með-
laga og tekjuskattsfrádráttar,
kemur í ljós að ráðstöfunartekjur
hjónaleysanna eru liðlega 30%
hærri en tekjur hjónanna, nema
þegar miðað er við hæstu árstekjur
í áðurnefndu dæmi, þá er munurinn
23,4%.
Lárus gagnrýndi einnig núver-
andi húsnæðislög, sem skerða
lánsrétt hjóna ef annað þeirra hefur
ekki öðlast réttindin með þáttöku í
lífeyrissjóði. Hann benti á að sam-
kvæmt því hlyti einstaklingur með
fullan lánsrétt, sem giftist einstakl-
ingi með engan slíkan rétt, helmingi
lægra lán en ef hann léti það vera
að ganga í hjónaband. Einnig tækju
lögin ekki af allan vafa um lánsrétt
heimavinnandi maka, sem hefði
ekki haft þann aðalstarfa í full tvö
ár. „í þessu sambandi er' rétt að
ítreka að skertur lánsréttur annars
hjóna skerðir lánsrétt hins. Meðal-
tal lánsréttar hjóna sem svo er
ástatt um verður aldrei óskertur,"
sagði Sr. Lárus. „Því hlýtur að
vakna sú spuming hvort löggjöf
sem þessi komi ekki til með að
ógna hjónabandinu sem stofnun í
þjóðfélaginu."
Morgunbladid/Julíus
Lögreglubíll í útkalli í árekstri
Tveir f luttir á slysadeild
LÖGREGLUBÍLL á leið á slys-
stað lenti í hörðum árekstri um
kvöldmatarleytið í gær. Lenti
bíllinn á tveimur fólksbilum og
voru farþegi og ökumaður ann-
ars þeirra fluttir á slysadeild.
Areksturinn varð með þeim
hætti að lögreglubflnum var ekið
á rauðu ljósi í austurátt jrfír
gatnamót Laugavegar og Nóa-
túns. Var lögreglubíllinn með rauð
blikkandi ljós, enda á leið á slys-
stað. Skipti engum togum, að
þegar ekið var yfir gatnamótin
skall bíllinn á fólksbfl og kastaði
honum á annan. Eins og áður
sagði voru tveir fluttir á slysa-
deild. Allir bflamir þrír vom
óökufærir og varð að draga þá
af vettvangi með kranabíl.
Dr. Ármann Snævarr
A
Armann
Snævarr heið-
ursdoktor
við Hafnar-
háskóla
DR. ÁRMANN Snævarr, fyrrver-
andi háskólarektor, verður á
fímmtudaginn, 20. nóvember,
sæmdur nafnbót heiðursdoktors frá
Kaupmannahafnarháskóla. Athöfn-
in fer fram á hinni árvissu háskóla-
hátíð en það er lagadeild skólans
sem hefur kjörið dr. Ármann til
heiðursdoktors.
Mun Ármann flytja fyrirlestur í
boði deildarinnar þann 19. nóvemb-
er þar sem hann íjallar um hæsta-
rétt Danmerkur sem æðsta dómstól
í íslenskum málum fram til 1920.
Fréttamenn
sjónvarps vilja
óbreyttan
fréttatíma
FRÉTTAMENN sjónvarps, RÚV,
hafa sent útvarpsráði og útvarps-
stjóra áskorun um að breyta ekki
útsendingartíma frétta í sjón-
varpi. Vilja þeir hafa frétta-
tímann klukkan 19.30, en ekki
kl. 20.00 eins og áður var.
Markús Örn Antonsson, útvarps-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að ákvörðun varðandi þetta
atriði væri í höndum útvarpsráðs.
Það hefði tekið ákvörðun um að
færa- fréttatímann aftur til klukkan
20 vegna óska áhorfenda og þeirri
ákvörðun yrði ekki breytt.
Vegna breytinga í verslunum okkar höfum við
ákveðið að selja nokkrar vörutegundir á útsöluverði
20%-40% afsláttur
HJÁ KARNABÆ,
barnadeild/unglingadeild,
Austurstræti 22.
★ Barnaúlpur
★ Kuldajakkar
★ Úlpur o.fl.
í ÖLLUM VERSLUNUNUM ERU SÍÐAN FÁEIN STYKKI
AF ÝMSUM VÖRUM Á NIÐURSETTU VERÐI.
Nú getur þú sparað þér innkaupaferðina til útlanda.
HJÁ KARNABÆ:
Laugavegi 66:
★ Kápur
★ Úlpur o.fl.
ALLT NÝJAR IfÖRUR
HJÁ B0NAPARTE:
★ Jakkaföt
★ Stakir jakkar o.fl.
HJÁ GARBÓ:
★ Kápur
★ Kuldajakkar o.fl.
/AU&lUISUc&U £.£.
— Sími 45800.