Morgunblaðið - 18.11.1986, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986
ÚRVALS vörur
ÚRVALS verö
SALERNI.
Við bjóðum þér vönduð
salerni af ýmsum gerðum.
Ásamt ýmsum áhöldum á
baðherbergið. Sérlega
hagstætt verð.
BAÐMOTTUR.
Mikið úrval af baðmottum
og ýmsum gerðum af bað-
hengjum. Svo og öðrum
smáhlutum á baðherberg-
ið.
STÁLVASKAR.
Vandaðir stálvaskar í ýms-
um stærðum og gerðum.
GUFUBÖÐ.
Bjóðum nú gufu og sauna-
böð, er henta hvaða heimili
sem er. Allt í einum pakka.
BLÖNDUNARTÆKI.
Ótrúlegt úrval af blöndun-
artækjum. Stílhrein/falleg.
STURTUKLEFAR. *
Sturtuklefar er ganga hvar
sem er. Af öllum stærðum
og gerðum.
1
Er hungursneyðin í
Súdan af nrannavöldum?
eftirlnga
Þorsteinsson
Hungurdauði fjölda manns blasir
við í Súdan. Er þetta í annað skipt-
ið á sl. þrem árum sem þetta ástand
skapast. En nú er vandamálið að
mestu orðið til af manna völdum
en ekki náttúrunnar.
í fyrra skiptið, árið 1984, ollu
þurrkar því að hungursneyð heijaði
aðallega á vestur- og austurhluta
landsins. Nú, á árinu 1986, er það
í suðurhluta landsins sem dauðinn
ber að dyrum vegna lyfja- og matar-
skorts.
En hver er ástæðan fyrir þessari
hungursneyð, sem hrjáir um tvær
milljónir manna í Suður-Súdan?
Hún stafar af innanlandsófriði, sem
ríkir milli ríkisstjómar landsins og
herafla hennar gegn SPLA eða
þjóðfrelsisher Súdans, sem hefur
mestan hluta Suður-Súdans á sínu
valdi. Vegna þessarar þriggja ára
gömlu borgarastyijaldar hefur líf
bænda, sem áður stunduðu arð-
bæran landbúnað og nautgripa-
rækt, truflast. Hafa margir þessara
bænda flosnað upp af jörðum sínum
í lejt að öryggi og fæðu.
Á árunum 1984 og 1985 voru
helstu erfiðleikamir fólgnir í því hve
erfítt var að koma rnat og nauðsynj-
um til Súdans. Í ár er vandinn
fólginn í dreifingu á þeim nauðsynj-
um, sem em fyrir hendi í Súdan,
til þeirra, sem þurfa á þeim að
halda.
Það hefur verið mjög erfitt að
senda lyf, fæðu og aðrar nauðsynj-
ar með flugi til Suður-Súdan þessa
dagana þótt nokkrar flugvélar hafi
komist til Juba í Suður-Súdan og
til Isora í Zaire í því skyni að flytja
vistir landleiðina með vömbifreiðum
til Juba. Er allt útlit fyrir að þessir
flutningar séu nú strandaðir vegna
innanlandsátaka. Afstaða ríkis-
stjómar Súdans svo og SPLA er
sú, að sá sem úthlutar nauðsynjum
hljóti hylli og þakklæti fólksins. Um
þetta snúast deilur þessara aðila
og vegna þeirra sveltir fólkið.
Alþjóðlegar hjálpastofnanir í
Súdan em ekki öfundsverðar um
þessar mundir. Margt af starfsfólki
þeirra leggur líf sitt í sölumar við
að reyna að veita aðstoð og að
hálpa þeim, sem þurfandi em og
þetta gerir fólkið í óþökk ráðandi
afla í Súdan. Ríkisstjóm Súdans
hefur verið neikvæð í garð alþjóð-
legra hjálparstofnana að undan-
fömu. Trúir almenningur í landinu
því nú, að þessar hjálparstofnanir
hafi valdið því, að meiri harka hef-
ur færst í deilur hinna stríðandi
fylkinga. í lok október gerðist það,
að sérstakur fulltrúi Sameinuðu
þjóðanna í Súdan, sem fór með yfir-
stjóm hjálparstarfs samtakanna í
landinu, hefur verið rekinn af ríkis-
stjóm landsins sem óæskilegur aðili
(persona non grata).
Talsmaður SPLA lýsti yfir í út-
varpsstöð hreyfingarinnar hinn 31.
október sl., að SPLA hefði flugvell-
ina í Juba, Wau og Malakal á sínu
valdi. Útvarpstöðin hélt því jafn-
framt fram, að ríkisstjómin í
Khartoum færi með algjör ósann-
indi, þegar hún segðist ráða yfir
flugvöllunum. Þá uppýsti talsmaður
SPLA, að hreyfíngin hefði skotið
niður Herkules C-130-flutningavél
yfir Lado-hæðunum, sem em
skammt fyrir norðan Juba. Útvarp-
ið gat ekki nánar um afdrif flugvél-
arinnar.
Síðan hafa neyðarflutningar í
lofti alveg fallið niður. Og það er
mjög hættulegt að flytja vaming
landleiðina frá Kenýa í gegnum
Uganda og Zaire þessa dagana.
Á meðan þetta ástand ríkir í
Suður-Súdan þjást hundmð þús-
unda fólks af hungri í þessum hluta
landsins. Er ástandið verst annars-
vegar umhverfís Malakal, sem er
aðalborg Efri-Nílar-héraðsins, og
hinsvegar umhverfís Wau, sem er
aðalborg Bahr Al-Ghazal-héraðs-
ins.
Hungursneyðin hverfur ekki þótt
matur kunni að berast. Dauðinn
heldur áfram að heija, vegna þess
að áhrif þriggja mánaða hungurs
Ingi Þorsteinsson
„Alþjóölegar hjálpar-
stofnanir, sem viija
aðstoða Súdan, geta
lítið annað aðhafst
þessa dagana en að bíða
og safna birgðum lyfja
og matvæla hér í Kenýa
og í Khartoum, þangað
til tekist hefur að miðla
málum eða koma á
vopnahléi milli deiluað-
ila.“
hverfa ekki eftir eina eða tvær
máltíðir.
Alþjóðlegar hjálparstofnanir,
sem vilja aðstoða Súdan, geta lítið
annað aðhafst þessa dagana en að
bíða og safna birgðum lyfja og
matvæla hér í Kenýa og í Kharto-
um, þangað til tekist hefur að miðla
málum eða koma á vopnahléi milli
deiluaðila. Ég tel litlar líkur á slíkri
málamiðlun á næstunni, því stjóm-
völd í Khartoum sýna ekki bilbug
á afstöðu sinni til SPLA, og þau
hafa varað alþjóðlegar hjálparstofn-
anir við og segja að hverskonar
sending lyfja og matvæla til land-
svæða á valdi uppreisnarmanna sé
frekleg íhlutun í innanríkismál Súd-
ans, sem samrýmist ekki stöðu
alþjóðastofnana.
Höfundur er aðalrœðismaður ís-
lands (Nairobi iKenýa.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^tóum Moggans!
LÍTIÐ VIÐ - VANDIÐ VALIÐ.
Lietamaðurinn Karl Lagcrfcld hefur í samvinnu vi?> CHLOÉ-safnið i Paris hannað þcssi
gullfallcgu matar og kaflistcll ..Kalablómið 'sem Ilutschcnrculhcr framlciðir úr postulini
VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK
af bcstu gcrð.
@ SILFURBÚÐIN
SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966
Laugavegi 55, Reykjavík
Sími 11066