Morgunblaðið - 18.11.1986, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 18.11.1986, Qupperneq 58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986 58 Ragnhildur Bjama dóttir — Minning Fædd 18. april 1893 Dáin 9. nóvember 1986 Ragnhildur Bjarnadóttir fæddist í Holtaseli á Mýrum í Austur- Skaftafellssýslu 18. apríl 1893. Foreldrar hennar voru hjónin Bjami Bjamason og Ástríður Magnús- dóttir sem þá bjuggu þar, en flutt- ust nokkm síðar að Rauðabergi, bæ þar skammt frá. Hún var elst sjö systkina er upp komust og ólst upp á heimili foreldra sinna við al- menn sveitastörf og bamagæslu. Þegar Ragna — eins og við kölluð- um hanna venjulega — var um tvítugt réðst hún til Þórhalls kaup- manns Daníelssonar á Höfn, sem um þær mundir hafði þar allmikil umsvif og var að koma fótunum undir verðandi kauptún. Síðar lágu leiðir hennar til Vestmannaeyja, þar sem hún vann hvers konar verka- kvennavinnu, að fiskverkun og öðmm störfum, meðal annars hjá Einari ríka Sigurðssyni. Á þessum ámm kynntist Ragna ungum manni, Þorgeiri Lúðvíkssyni Kemp, og eignuðust þau son, Óskar Þorgeir, sem nú er stórkaupmaður í Reykjavík. Ekki varð þó af frek- ari sambúð og leiðir þeirra lágu sín til hvorrar áttar og fyldi sonurinn móður sinni. Um 1930 réðst Ragna að Selalæk til Helga Jónssonar, sem löngum var kenndur við Tungu. Hófu þau sambýli og eignuðust eina dóttur, Þórdlsi Ragnheiði. Síðar fluttust þau Helgi að Kotvogi í Höfnum og bjuggu þar um hríð. En vorið 1939 brann húsið ofan af þeim. Ragna, sem þá var stödd á neðri hæð hússins, bjargaðist ásamt syni sínum, en Þau Helgi og Þórdfs, sem vom á efri hæðinni, iétu líf sitt í bmnanum. Þá var Þórdís sjö ára gömul. Eftir þetta áfall fluttist Ragna til Reykjavíkur með son sinn og dvaldist þar Iöngum eftir það, en vann þó á ýmsum stöðum og hverja þá vinnu sem henni bauðst. En skömmu eftir 1950 réðst hún til Safnahússins, þá komin um sex- tugt. Til að byija með var það einkum fatavarsla safngesta sem hún hafði með höndum en síðar, þegar innanhússsími kom til sög- unnar, gætti hún hans. Virtist hún hveijum manni vel og naut vinsælda bæði starfsfólks og gesta, enda var Ragna greind kona, glaðlynd og sporlétt, en gat tekið röskiega til hendinni ef svo bar undir. Ævistríði hennar var þá að mestu lokið og ástríðulítið logn efri áranna að færast yfir, en þó átti hún enn svo mikið af fomum þrótti að hún naut sín að fullu og blandaði geði og gamanmálum við heimamenn og gesti, ekki síst ef fermingarbróð- ir hennar séra Gunnar Benediktsson leit inn sem oft kom fyrir. Mér kæmi það ekki á óvart, þó að tutt- ugu ára dvöl Rögnu í Safnahúsinu hafi orðið henni léttbærasti tími ævinnar. Hún undi sínu fábrotna starfi glöð og hress og átti enn af svo miklu þreki að má, að hún virt- ist njóta tilverunnar vel. Henni var að vísu farið að förlast nokkuð síðustu árin, en samstarfsfólkið leit það blindu auga þó að eitthvað smávegis gengi úr skorðum. Þannig liðu árin og þegar Ragna stóð á áttræðu sagði hún starfi sínu lausu og kvaddi samstarfsfólkið með ágætri veislu, sem hún hélt því f prentarafélaginu, enda var hún höfðingi í lund þó að heimurinn skæri henni löngum nauman skammt. En Ragna var kona sem unni því illa að hafa ekkert með höndum, enda vafalaust óvön því. Um nokkurt skeið bar hún út blöð í hverfinu þar sem hún bjó og kvaðst gera það til þess að halda sér gangandi. Síðustu árin átti hún athvarf í dvalarheimili aldraðra við Lönguhlíð og sagði hún mér að betra húsnæði hefði hún aldrei haft. Undi hún þar hag sínum hið besta. Sonur hennar, tengdadóttir og dæt- ur þeirra komu í heimsókn og svo bættust langömmubömin í hópinn og gleðin ríkti hjá gamalli konu í lítilli íbúð við Lönguhlíð. Það var í Safnahúsinu sem fund- um okkar Rögnu bar fyrst saman, og héldust þau kynni að nokkru upp frá því. En aldurinn var orðinn hár og lfkamsþrótturinn þverrandi. Þegar fundum okkar bar síðast saman á liðnu sumri voru þeir þrotnir. Líkaminn bognaður og málfærið að bresta. Aldurinn var orðinn hár, á fjórða ár yfir nírætt. „Um héraðsbrest ei getur, þó hrökkvi sprek í tvennt" kvað Guð- mundur Friðjónsson um ekkjuna við ána látna. Sjúkri og þreyttri var Rögnu bestur kostur að hvílast. Lífíð hefur ugglaust stundum farið um hana hörðum höndum og von- imar brugðist eins og gengur. Nú verður henni hvíldin vær. Eg kveð Rögnu vinkonu mína með það í huga, að þar sem hún fór hafí ég kynnst góðri konu. Haraldur Sigurðsson Eftir hátt í hundrað ára jarðvist, er hún amma Ragna lögð af stað í ferðina góðu. Hún fæddist að Holtaseli á Mýr- um í Austur-Skaftafellssýslu 18. apríl árið 1893. Foreldrar hennar vom hjónin Ástríður Magnúsdóttir og Bjarni Bjamason. Nálægt aldamótum fluttist fjöl- skyldan að Rauðabergi, sem var bær þar stutt frá. Þar ólst amma upp, elst af 7 systkinum og gerðist snemma lið- tæk við öll störf utan húss sem innan. Um tvítugt fór hún úr föðurgarði og hóf lífsbaráttuna upp á eigin spýtur. Amma Ragna var mjög sjálf- stæður einstaklingur og baráttu- glöð. Það kom sér oft vel, einkum þegar haft er í huga hve lífsbarátt- an var hörð á þessum tíma. Hún eignaðist tvö böm, Óskar Þorgeir Þorgeirsson og Þórdísi Ragnheiði Helgadóttur. Þórdís Ragnheiður lést aðeins sjö ára göm- ul ásamt föður sínum, Helga Jónssyni, í eldsvoða í Kotvogi. Það varð ömmu þungbær raun svo og syni hennar, sem missti þar systur sína og stjúpa. Þrátt fyrir þessa erfiðleika og ýmsa aðra lét hún aldrei deigan síga. Hún fór víða og vann þá vinnu sem til féll og ætíð hafði hún son- inn með sér. Hún hafði þann dásamlega eiginleika að þróa með sér óbilandi bjartsýni og æ jákvæð- ara viðhorf til lífsins, ekki síst á elliárunum. Lítið fór fyrir skólagöngu hennar ömmu í æsku, en ekki lét hún það aftra sér, heldur las allt sem hún komst yfir, bundið mál sem óbund- ið og drakk í sig mikinn fróðleik, sem hún svo óspart miðlaði af. Amma Ragna var atorkusöm og sístarfandi. Hreint var ótrúlegt hvað þessi litla og lágvaxna kona var kraftmikil. Sem dæmi um það var að þegar hún lét af störfum við Landsbókasafnið, komin hátt á átt- ræðisaldur, fannst henni ótækt að vinna ekki úti. Hún tók því að sér blaðburð í Hlíðunum og sá árum saman um að lesendumir þar fengju blaðið sitt fyrir allar aldir. Oft var eins og ekkert gæti stoppað hana og alls ekki veðurguð- irnir. Gjarnan var það í verstu vetraraveðrum, þegar aðrir héldu sig innivð, að bankað var á dymar. Og þar var amma komin i heim- sókn, veðurbarin og köld í kinnum, en með glampandi bros í augunum, kát yfir því að hafa tekist á við kalda Kára. Mikla gleði hafði hún af bömum og ekki síst langömmubörnunum sínum. Endalaust gat hún setið við og pijónað sokka og vettlinga á litla fætur og hendur. Hún setti saman liti og ný mynstur, allt fram á síðasta haust. Amma var góð kona, hún safn- aði aldrei að sér veraldlegum eignum, en átti jafnan nóg að gefa öðmm. Það fannst henni meir um vert. Hún var vel undir ferðina búin og hafði lagt sitt af mörkum til allra sem hún náði til. Lífsvefurinn, sem Ragna amma mín spann með gjörðum sínum held- ur áfram að hafa áhrif um ókomna tíð. Við systumar þökkum ömmu fyrir samveruna hér og óskum henni alls hins besta. Helga, Kolbrún og Sigurbjörg. • i með súkkulaðinu eru komin á alla útsölustaði Öll Lionsdagatöl eru merkt og þeim fylgir jólasveinslímmiði Allur hagnaður rennur óskipt- ur til ýmissa líknarmála ■ ■ i a * i ■ « i i é i i ■ ■ » ■ i «'i' i" i a i i i i i t v i ■ i i i ■ ■ ■ i i i ■ i i ■ a • • • • .. ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ................ Aldarminning: Páll Zóphóníasson í dag, 18. nóvember 1986, eru liðin 100 ár frá fæðingu Páls Zóph- óníassonar í Viðvík í Skagafirði. Foreldrar hans voru prófastshjónin þar, Zóphónias Halldórsson bóndi á Brekku í Svarfaðardal Rögnvalds- sonar og kona hans, Jóhanna Soffía Jónsdóttir háyfirdómara í Reykjavík Péturssonar. Páll andaðist 1. desember 1964, 78 ára gamall og var sivinnandi fram á síðustu ár. Hann kom víða við í störfum sínum. Hann var bóndi og búfræðikennari, skólastjóri og ráðunautur, búnaðarmálastjóri og alþingismaður. Hvar var orka hans mest? Urn það geta verið skiptar skoðanir. í mínum huga var hann hvergi jafn einlægur og orkan jafn- mikil og í búfræðikennslunni. Síðari vetur minn, sem ritar þessar línur, í Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal 1920—1921, var fyrsti vetur hans þar. Kennslustundimar hans Páls eru enn ekki gleymdar, hvort sem þær voru í nautgripa- rækt, sauðfjárrækt, fóðurfræði eða líffærafræði. Best man ég þær þó, þegar fjallað var um búreikninga og erfðafræði. Ég hygg, að um langt árabil hafi Páll verið mesti erfðafræðingur í búfjárrækt hér á landi. Skrifaði hann mikið um þau fræði, einnig í erlend tímarit. Fáir íslendingar, ef nokkrir, hafa byijað búfræðikennslu sína jafn- ungir og hann, þegar hann hóf það starf á Hvanneyri 23 ára gamall 1909. Páll var ákaflega mannglögg- ur og mun hann hafa þekkt með nafni fleiri íslenska bændur en flest- ir eða allir aðrir. Á sama hátt var hann afburða glöggur á búfé, eink- um nautgripi og sauðfé, og mundi ættir langt aftur í tímann. Þetta kom sér oft vel í sambandi við erfðarannsóknir hans. Árið 1912 kvæntist Páll Guðrúnu Þuríði Hannesdóttur bónda í Deild- artungu Magnússonar og konu hans Vigdísar Jónsdóttur. Guðrún var fædd 11. maí 1881, dó 11. nóvem- ber 1963. Hún var vitur kona og góðgjöm, sem margir sóttu góð ráð til, einnig eiginmaður hennar. Þau hjón vom ákaflega gestrisin og var þar jafnan opið hús, ekki síður eft- ir að þau fluttu til Reykjavíkur. Bestu gestir þeirra vora að ég hygg bændur og nemendur Páls frá Hvanneyri og Hólum. Á Hvanneyri kenndi hann 1909—1920 og sóla- stjóri . var hann á Hólum 1920—1928. Eftir það var hann ráðunautur hjá Búnaðarfélagi ís- lands 1928—1951. Þau ár var hann líka að kenna, leiðbeina bændum í nautgriparækt, sauðfjárrækt og fé- lagsmálum. Búfræðikennsla var því aðalstarf hans í 42 ár. Við fráfall Páls Zóphóníassonar 1964 vora margar minningargrein- ar skrifaðar um hann svo og um frú Guðrúnu Hannesdóttur, m.a. grein um Pál i Búnaðarritinu 1965. Til þessara upplýsinga um þau hjón- in leyfi ég mér að vísa og læt því hér staðar numið um einn eftir- minnilegasta þjóðskörang, leiðtoga og kennara íslenskra bænda. Guðmundur Jónsson frá Hvanneyri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.