Morgunblaðið - 18.11.1986, Blaðsíða 71
Fiskiþing sett í gær:
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986
71
Djúprækjuaflinn takmarkað-
ur á næsta ári í fyrsta sinn
Rækjuaflinn hefur þrefaldazt á fimm
árum en verðmæti hans nær sjöfaldazt
Hafrannsóknastofnun hefur
lagt til að djúprækjuafli á næsta
ári verði sá sami og á síðasta
ári. Er það i fyrsta sinn, sem
stofnunin leggur til að veiðar á
djúprækju verði takmarkaðar.
Afli á sóknareiningu hefur viða
minnkað talsvert, en sjávarút-
vegsráðherra telur ekki tíma-
bært að setja kvóta á þessar
veiðar. Rækjuafli hefur rúmlega
þrefaldazt á síðustu árum og
verðmæti sjöfaldazt.
Þessar upplýsingar komu fram í
ávarpi Halldórs Ásgrímssonar, sjáv-
arútvegsráðherra, við setningu
Piskiþings í gær, en ávarpið verður
birt í heild í blaðinu síðar. Hann
sagði, að á síðustu fimm árum hefði
rækjuafli íslendinga meira en þre-
faldazt. Hann hefði aukizt úr ríflega
9.000 lestum 1982 í rúmlega
30.000 á þessu ári. Vegna breyttra
vinnsluaðferða og batnandi mark-
aðsaðstæðna hefði verðmæti
rækjuaflans nær sjöfaldazt á sama
tíma eða farið úr 425 milljónum
króna í tæpa 3 milljarða króna á
þessu ári miðað við núverandi verð-
lag. Aukning þessi hefði orðið án
þess að fískiskipaflotinn hefði
stækkað og ætti það tvímælalaust
þátt f batnandi afkomu útgerðar.
Hann hefði hins vegar um nokkurt
skeið haft áhyggjur af því að sívax-
andi sóknarþungi kynni að ganga
of nærri stofninum. Á síðasta ári
hefðu 155 skip haft leyfi til rækju-
veiða en 230 á þessu ári. Afli á
sóknareiningu hefði víða farið
minnkandi, þó hann væri enn góður
á ýmsum nýjum veiðisvæðum.
Síðastliðinn föstudag hefði Haf-
rannsóknastofnun í fyrsta sinn lagt
til ákveðinn hámarksafla af djúp-
rækju; að aflinn á næsta ári yrði
ekki meiri en á þessu. Með hliðsjón
af því virtist óhjákvæmilegt að tak-
marka sókn í rækjustofninn við
setningu reglugerðar um stjóm
fiskveiða árið 1987. Ekki væri tíma-
bært að koma upp kvótakerfi á
djúprækjuveiðum, en til greina
kæmi að telja rækjuveiði sóknar-
marksskipa til sóknardaga. Fleiri
leiðir kæmu einnig til greina og
ákveða yrði stjóm rækjuveiðanna á
næstunni.
Lúðvík Kristjánsson
heiðraður fyrir ritstörf
VIÐ setningu Fiskiþings á mánudag heiðraði fiskimálastjóri, Þor-
steinn Gislason, tvo félaga, þá Lúðvik Kiistjánsson, rithöfund og
Hilmar Bjarnason, erindreka á Eskifirði. Lúðvík var heiðraður fyr-
ir rit sitt „íslenzka sjávarhætti“ og Hilmar fyrir vel unnin störf í
þágu íslenzks sjávarútvegs i áratugi.
Fiskimálastjóri færði Lúðvík og
konu hans Helgu Proppé „þakklæti
Fiskifélagsins, íslenzks sjávarút-
vegs og allrar þjóðarinnar fyrir það
afrek og björgunarstarf, sem þau
hjónin hefðu unnið með útgáfu „ís-
lenzkra sjávarhátta““ „Við emm
stoltir af að eiga slíkan afreksmann
sem heiðursfélaga í Fiskifélagi ís-
lands," sagði Þorsteinn Gíslason.
Lúðvík Kristjánsson þakkaði fyrir
sig og færði Fiskifélaginu að gjöf
síðasta bindi ritverksins áritað, en
fyrri bindin hefur hann einnig gefið
félaginu.
Hilmar Bjamason varð sjötugur
fyrr á þessu ári og fór fiskimála-
stjóri nokkmm orðum um mikið og
óeigingjamt starf Hilmars í þágu
íslenzks sjávarútvegs í áratugi. Þá
færði hann honum að gjöf fyrir
hönd Fiskifélagsins þjóðhátíðarút-
gáfu Landnámu.
Þingforseti var kosinn Marteinn
Friðriksson og til vara Hilmar
Bjamason. Fundarritari var kosinn
Jón Páll Halldórsson og til vara Jón
Bjami Stefánsson. Fiskiþingi lýkur
í lok vikunnar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Lúðvik Kristjánsson
Líkur á svípuðum afla
á þessu ári og var í fyrra
Morgunblaðið/Einar Falur
„ÁRIÐ 1985 skilaði mestum
heildarafla í fiskveiðisögu ís-
lendinga. Ársaflinn varð
1.680.000 lestir. Þegar aflatölur
lágu fyrir eftir fyrstu 9 mánuði
ársins í ár, virtist stefna í metár
eða um 1.800.000 lesta heildar-
afla miðað við að svipað magn
aflaðist og á þremur siðustu
mánuðum ársins 1985. Vegna
erfiðrar veðráttu í októbermán-
uði komu aðeins á land 154.000
lestir á móti 247.000 í fyrra eða
93.000 lestum minni afli. Þetta
minnir okkur enn einu sinni á
hve sjósókn okkar er háð veðrát-
tunni. Varlegt er því að spá
lengra en að heildaraflinn verði
svipaður í ár og hann varð á
seinasta ári.“
Þetta voru meðal annars orð
fískimálastjóra, Þorsteins Gíslason-
ar, við setningu 45. Fiskiþings á
mánudag. Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra ávarpaði
síðan þingið og Jón Sigurðsson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar, flutti
erindi um endurskoðun sjóðakerfís
sjávarútvegsins. í dag flytja dr.
Grímur Valdimarsson og dr. Jakob
Magnússon erindi um Rannsókna-
stofnun fiskiðanaðarins og karfa-
stofninn mögulega nýtingu á
ýmsum djúpsjávarfískum.
Að loknum erindum gesta flutti
Bjöm Pétursson framsöguerindi um
stjómun fiskveiða og Einar K. Guð-
finnsson um afkomu sjávarútvegs-
ins. Bjöm Pétursson gerði grein
fyrir tillögum fiskideilda umhverfis
landið og rakti helztu mál er físk-
veiðistjóm lúta. Hann ræddi meðal
annars um þorskaflahámark í sókn-
arkvóta, sem er mismunandi eftir
svæðum og munar þar um 500 lest-
um. Til að sýna hve piiklu það
Morgunblaðið/Einar Falur
Þorsteinn Gíslason, fiskimála-
stjóri
munaði að afla 500 lesta af þorski
og 500 lesta af karfa, bar hann
saman mismum á aflaverðmæti og
fleiri þáttum. Þorskurinn er 5,6
milljónum króna dýrari, hásetahlut-
urinn 108.000 krónum hærri,
framleiðsluverðmæti í frystihúsi
13,5 milljónum meira og mismunur
á áætlaðri framlegð er rúmar 6
milljónir króna. Bjöm ræddi sfðan
stærð fískiskipaflotans, samræm-
ingu veiða og vinnslu og afkomu-
mál.
Einar K. Guðfinnsson ræddi með-
al annars um svokallaða meðaltals-
útreikninga, sem hann sagði að í
raun gætu aldrei sýnt nema hálfan
sannleikann. Slíkum útreikningum
mætti líkja við manninn, sem stæði
með annan fótinn í 100 gráðu heitu
vatni en hinn í vatni við frostmark
og liði að meðaltali yel. Hann sagði,
Frá setningu 45. Fiskiþings
að gert væri ráð fyrir 8,5% aukn-
ingu framleiðslu sjávarafurða á
þessu ári eða svipaðri og í fyrra.
Við eðlilegar aðstæður ætti J>ví að
ríkja bjartsýni í sjávarútvegi Islend-
inga. Það ætti ekki heldur að vera
nein þörf að kvarta. Atvinnugrein,
sem byggi við vaxandi framleiðslu
og verðmætaaukningu ætti við eðli-
legar aðstæður að lifa góða tíð og
geta lagt fyrir til mögru áranna.
Þessu væri bara því miður ekki svo
fyrir að fara nema að takmörkuðu
leyti. Staðreyndin væri að afkoma
ftystingarinnar væri síður en svo
góð, en hins vegar væri gleðilegt
að hagur saltfiskvinnslu væri góður.
Þá gat Einar þess, að útgerð
væri nú í fyrsta sinn rekin halla-
laust í 16 ár. Það væri vissulega
gleðilegt, en engu að síður væri
rétt að undirstrtika það, að undan-
farin ár hefði tap útgerðar verið
gegndarlaust og hún gengið mjög
á eigið fé. Það væri því mikilvægt
að unnt yrði til að nýta þennan
bata og tryggja að hann yrði til
frambúðar. Einar sagði, að meðal
annars vegna þess mjmdu útgerðar-
menn vitaskuld ekki sætta sig við
fyrirhugaðan olíuskatt stjómvalda.
í erindi Jóns Sigurðssonar um
endurskoðun sjávarútvegsins kom
meðal annars fram, að nefnd sú,
sem hann veitti formennsku um
endurskoðun sjóðakerfisins, hefði
nú skilað áliti varðandi verðjöfnun-
arsjóð fiskiðnaðarins og stofnfjár-
sjóð fiskiskipa. í því kemur meðal
annars fram að nefndin telur rétt,
með undantekningum tveggja
nefndarmanna, að starfsemi verð-
jöfnunarsjóðsins skuli vera óbreytt.
Ennftemur hefur nefndin lagt fram
drög að frumvarpi um stofnfjársjóð
fiskiskipa. Knútur Óskarsson, full-
trúi Samtaka fískvinnslustöðvanna
í nefndinni taldi að leggja ætti sjóð-
inn niður, en Ámi Benediktsson,
framkvæmdastjóri Félags Sam-
bandsfrystihúsa lagði til talsverðar
breytingar á sjóðnum.
#T=
TIMKEN
keilulegur
pgyNsLA
pJÓI
nustA
pEKl<|AlG
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670