Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
5
V etrar dagskrá Kammersveitar Reykjavíkiir:
Jólatónleikar í Hall-
grímskirkju 21. des.
Nafnnúmer og kennitöl-
ur notuð jöfnum höndum
KAMMERSVEIT Reykjavíkur er
nú að hefja 13. starfsár sitt.
Fyrstu tónleikamir verða jóla-
tónleikar í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 21. desember.
A jolatónleikunum verða leikin
mörg þekkt verk frá barokk-tíman-
um og er tónlistin valin með það
fyrir augum, að áheyrendur komist
í sannkallað jólaskap í hinni nývígðu
kirkju. Á dagskrá tónleikanna, sem
hefjast kl. 17, verður konsert fyrir
2 trompeta, strengi og continuo
eftir V. Manfredini, konsert fyrir 2
fiðlur, strengi og continuo, BWV
1043 eftir J. S. Bach, Adagio í g-
moll fyrir orgel og strengi eftir T.
Albinoni, konsert fyrir fiðlu, óbó,
strengi og continuo, BWV 1060
eftir J. S. Bach og Concerto grosso
nr. 8, „Jólakonsert" eftir A. Co-
relli. Einleikarar verða Ásgeir H.
Steingrímsson, trompet, Lárus
„VIÐ fyrstu sýn virðist þetta
vera óttalegt klúðursfyrirkomu-
lag,“ sagði Ólafur Þ. Jónsson
formaður læknaráðs Borgarspít-
alans um hugmyndir heilbrigðis-
ráðherra að stjórn Borgarspítal-
ans verði skipuð þingkjörnum
fulltrúum, þeim sömu og skipa
stjórn ríkisspítalanna, en að auki
fulltrúum starfsmanna.
Ólafur sagði að erfitt væri að
Sveinsson, trompet, Rut Ingólfs-
dóttir, fiðla, Unnur María Ingólfs-
dóttir, fíðla og Kristján Þ.
Stephensen, óbó.
Eftir áramótin verða þrennir tón-
leikar á dagskrá Kammersveitar-
innar. Að venju verður leitast við
að gefa flytjendum tækifæri á að
takast á við íjölbreytta tónlist.
Meðal verkefnanna eru tvö, sem
íslenskum áheyrendum hefur ekki
gefíst kostur á að heyra áður á
tónleikum hér á landi, Serenaða op.
24 og Blásarakvintett op. 25 eftir
Amold Schönberg og aðstoðar Paul
Zukofsky við undirbúning og flutn-
ing verkanna.
Haldið verður upp á 100 ára af-
mæli brasilíska tónskáldsins Heit-
ors Villa-Lobos með tónleikum þann
25. janúar í Bústaðakirkju. Þrjú
verka hans verða á dagskránni,
Blásarakvintett í „Choros“-stíl,
Bachianas Brasileiras nr. 1 fyrir 8
meta svona lauslegar hugmyndir
sem kæmu fram í fjölmiðlum, en
þetta væru sín fyrstu viðbrögð.
Fyrirkomulag stjómunar Borg-
arspítalans hefur vafist fyrir
mönnum við frágang samkomulags
um yfírtöku ríkisins á honum. Unn-
ið hefur verið að lausn málsins, en
ekki var búið að ganga frá samning-
um um hádegið á laugardag.
selló og Bachianas Brasileiras nr. 5
fyrir sógran og átta selló. Þar kem-
ur Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona,
í fyrsta sinn fram á tónleikum Kam-
mersveitarinnar, en píanóleikari
verður Anná Guðný Guðmunds-
dóttir. Auk verka H. Villa-Lobos
verður á tónleikum þessum flutt
verk F. Poulenc, sextett fyrir píanó
og blásarakvintett.
Þriðju tónleikar Kammersveitar-
innar verða 12. mars í Áskirkju.
Þá verður flutt serenaðan eftir
Schönberg fyrir klarinett, bassa-
klarinett, mandólín, gítar, fiðlu,
lágfiðlu, celló og bassasöngvara og
Blásarakvintett op. 26. Einsöngvari
verður John Speight en stjórnandi
Paul Zukofsky.
Síðustu tónleikar vetrarins verða
síðan í Bústaðakirkju 29. mars. Þar
verða flutt verkin Sechs Bagatellen
op. 9, fyrir strengjakvartett eftir
A. Webem, Píanókvintett op. 57
eftir Shostakovich og Strengja-
kvartett í F-dúr eftir M. Ravel.
Píanóleikari verður Guðríður S. Sig-
urðardóttir.
HAGSTOFAN hefur stefnt að því
að leggja núverandi nafn-
númerakerfi niður um næstu
áramót, en taka i stað þess upp
nýtt auðkenni fyrir einstaklinga,
fyrirtæki, félög og stofnanir, svo-
kallaða kennitölu. Að sögn
Hallgríms Snorrasonar, Hagstofu-
stjóra, er ljóst að ekki verður hægt
að kasta gamla kerfinu á gamlárs-
kvöld. Vegna þess að ýmsar stofn-
anir hins opinbera og stór hluti
einkafyrirtækja hafa ekki búið sig
undir breytinguna verður næsta
ár umþóttunartími. Nafnnúmer og
kennitölur verða því notaðar jöfn-
um höndum. Skattframtöl næsta
árs munu þó bera kennitölur og
hætt verður að úthluta tólf ára
bömum nafnnúmeri.
Nyja kennitalan hefur um langt
árabil verið notuð í heilbrigðiskerfínu.
Hún er samsett úr tíu tölustöfum og
tákna sex fyrstu tölumar fæðingar-
daginn, mánuð og ár. Tvær næstu
tölur eru hið eiginlega fæðingamúmer
sem skilur á milli þeirra sem eiga
sama fæðingardag. Síðan kemur
„vartala" sem notuð er til að hindra
villur í kennitölunni. Loks er síðasti
tölustafurinn sem táknar þá öld sem
viðkomandi er fæddur á. Fyrirtækjum
er úthlutað kennitölum á sama hátt
en þær munu þó aldrei byrja á lægri
tölu en 41.
Enginn þeirra aðila sem blaðamað-
ur hafði samband við á mánudag var
búinn að breyta sínu tölvukerfí til
samræmis við nýja kennitölukerfíð.
Kjartan Konráðsson, hjá tölvudeild
Verzlunarbanka íslands, sagði að gert
hefði verið ráð fyrir kennitölunni í
hugbúnaði bankans um nokkra hríð.
Launþegar og hluthafar bankans
verða skráðir með kennitölunni um
áramótin og fylgja aðrar tölvúskrár í
kjölfarið á næsta ári. Kjartan bjóst
við því að kennitalan yrði alsráðandi
um mitt næsta ár. Sólveig Guðjóns-
dóttir, yfírmaður bókhaldsdeildar
Sveins Egilssonar, sagði að hún fagn-
aði kennitölukerfinu. Tölva fyrirtæk-
isins væri enn miðuð við nafnnúmerin
og vissi hún ekki hvenær breytingin
gæti orðið.
„í sjálfu sér verður notkun beggja
talnanna ekki mikið vandamál. „ Al-
menningur mun hinsvegar verða fyrir
þeim óþægindum á næsta ári að þurfa
að muna tvær tölur og nota þær jöfn-
um höndum," sagði Hallgrímur. Hann
sagði að það sem aðallega hefði stað-
ið breytingunni fyrir þrifum væri að
stórar ríkisstofnanir svo sem Launa-
deild Qármálaráðuneytisins væru ekki
tilbúnar að breyta tölvuskrám sínum
til samræmis við nýja kerfíð. Nafn-
númer yrðu einnig notuð við skil á
launaskatti og söluskatti, þannig að
kerfín yrðu notuð jöfnum höndum í
fyrirtækjum jafnvel þótt mörg þeirra
hefðu breytt bókhaldskerfum sínum í
tæka tíð.
Um leið og kennitalan er tekin upp
verður þjóðskránni breytt þannig að
skráður verður allt að 31 bókstafur í
nöfnum. Áður þurfti að skammstafa
þriðjung íslenskra nafna vegna duttl-
unga tölvunnar. Þá verður öllum
íslensku stöfunum beitt við þessa
skráningu og heimilisföng verða skráð
í þágufalli. Fólki sem býr erlendis
verður gefínn kostur á að skrá um-
boðsmann svo tryggt sé að opinber
gögn komist til skila þótt viðkomandi
hafí hvergi búsetu. Hagstofan hefur
látið gera samræmdar reglur fyrir
stafrófsröðun í samstarfí við Póst 'og
Síma. Hallgn'mur sagði að líklega
yrðu margir aðilar sem notað hafa
tölvur við stafrófsröðun að gera breyt-
ingar á hugbúnaði til samræmis við
þessar reglur.
Yirðist klúðurslegt
- segir formaður læknaráðs Borgarspítalans um
hugmyndir um stj órnarfy rirkomulag
Persónukort:
Framtíðarkort:
Við segjum að stjörnuspeki sé stórkostleg og
eitt það gagnlegasta tæki sem manninum stendur
til boða, leiði til sjálfsþekkingar, mannþekkingar
og almennt til aukins skilnings manna á meðal.
Stjörnuspeki er góð fyrir einstaklinga og t.d. hjón,
foreldra, ungt fólk og fyrir þá sem standa á tímamót-
um.
Athugaðu málið og dæmdu ffyrir sjálfan þig!
LÍTTU VIÐ Á LAUGAVEGI66,
EÐA HRINGDU í SÍMA
10377 OG PANTAÐU KORT!
Ef bæði kortin eru gerð samtímis er
VIÐ BJÓÐUM EINNIG:
Bækur:
Allar nýjustu íslensku bækurnar um sjálfsrækt m.a.
sálfræði, heilsurækt, mataræði o.fl. Auk þessfjöldi
nýrra erlendra bóka um stjörnuspeki og jákvæðan
lífsstíl.
Kassettur:
Tónlist til afslöppunar og spennulosunar m.a.;
Kitaro, Deuter.
Einnig stórgóð íslensk
slökunarspóla með
leiðbeiningabók.
20%
STJORNUSR EKI
JlOSTGDL'
afsláttur. Einnig 20% fjölskylduafsláttur.
Laugavegi 66,
Bjóðum einnig sérstakan
einkatíma
þar sem kort þitt
ertúlkað af
Gunnlaugi Guð-
mundssyni
stjörnuspekingi.
Hvað gerist næstu tólf mánuði?
Framtíöarkortiö segir frá hverjum mánuöi,
bendir á jákvæöa möguleika og varasama
þætti. Hjálpar þér aö vinna meö líf þitt á
uppbyggilegan hátt og finna rétta tímann til
athafna.
V í VÁNDRÆÐUM MEÐ JÓLAGJÖF?
Lýsir persónuleika þínum, m.a.:
grunntóni, tilfinningum, hugsun, ást og vin-
áttu, starfsorku og framkomu. Bendir á
hæfileika þína, ónýtta möguleika og vara-
sama þætti.
Opið næstkomandi laugardag til kl. 22.00. Þorláksmessu til kl. 23.00.
sími 10377