Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
t
Eiginmaður minn og faðir,
GÚSTAF RAGNAR BERGMARK,
lést á heimili sínu, Skellefteá, Svíþjóð, þann 9. desember sl.
Útför hans fer fram í kyrrþey.
Anna, Lára og Karl Bergmark.
t
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR FINNUR ÓLAFSSON,
verslunarmaður,
andaðist á heimili sínu Lokastíg 2, þann 12. desember sl.
Sigriður Sigurðardóttir,
Þórunn Sigurðardóttir,
Sigurður Blomsterberg,
Sveinn Blomsterberg,
tengdabörn og barnabörn.
... %.
t
Systir okkar,
JÓHANNA EINARSDÓTTIR,
frá Vogi, Fellsströnd,
Bergþórugötu 53,
andaðist 2. desember sl. að Hrafnistu. Jarðarförin hefur fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Agnes Einarsdóttir, Hjálmtýr Einarsson,
Jófriður Einarsdóttir, Herborg Einarsdóttir.
t
Útför eiginmanns míns og föður okkar,
JÓNS GUNNLAUGSSONAR
frá Klaufabrekknakoti,
Svarfaðardal,
Hátúni 10, Reykjavfk,
fer fram frá Dómkirkjunni i Reykjavík þriöjudaginn 16. desember
kl. 13.30.
Guðbjörg Magnúsdóttir,
Hafliði Helgi Jónsson,
Þóra Jónsdóttir,
Guðbjörg Ásta Jónsdóttir
t
Útför eiginkonu minnar, móður og ömmu,
KRISTJBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Boðahlein 3,
áður Ægissfðu 96,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. desember kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hrafnistu, Hafnarfirði.
Jón Vilhjálmsson,
Erla S. Jónsdóttir,
Einar Ingl Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför móður okkar og tengdamóður,
RAGNHILDAR RUNÓLFSDÓTTUR,
frá Hólmi f A-Landeyjum,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. desember kl. 13.30.
Ragriar Jóonsson,
Ingólfur Jónsson,
Ólafur Jónsson,
Árni Jónsson,
Ásta Jónsdóttir,
Sigrfður Jónsdóttir,
Ingibjörg Björgvinsdóttir,
Magnea Ágústsdóttir,
Bjarney Tryggvadóttir,
Arnljótur Sigurjónsson,
Gróa H. Kristjánsdóttir.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
RAGNHEIÐUR EGGERTSDÓTTIR,
Blönduhlfð 29,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum þann 12. desember.
Reidar Kolsöe,
Sigrún Kolsöe, Ragnheiður Kolsöe.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
STEFÁNS STEINGRÍMSSONAR,
Barmahlfð 35.
Stefán Stefánsson, Guðrún Lind Waage,
Guðmundur Hilmar Hákonars., Marfa Björk Valdimarsdóttir
og börn.
Kveðjuorð:
Tryggvi Sigtryggs-
son, Laugabóli
Aðfaranótt 1. desember sl. and-
aðist í sjúkrahúsinu á Húsavík
Tryggvi Sigtryggsson, lengi bóndi
að Laugabóli í Reykjadal, S-Þing-
eyjarsýslu, 92 ára að aldri. Þar
lagðist til hvíldar mikill þrekmaður
til sálar og líkama og óvenjulega
vel gerður á marga lund. Hann
hélt skýrleik í hugsun nær til loka-
dægurs, miklu og öruggu minni
fram undir síðustu ævivikur og
undraverðu líkamsþreki full níutíu
ár. Hann fylgdist með mönnum og
málefnum, eins og tekið er til orða,
allt til lokavikna og ræktunaráhugi
þessa mikla ræktunarmanns slævð-
ist aldrei. Geta má sér til, að síðasta
hugsun hans hafí numið staðar í
skógarhlíðinni fögru yfir Lauga-
bólsbæ, lokaverki hans af mörgum
og undir það síðasta hjartfólgnasta.
Tryggvi Sigtryggsson fæddist að
Hallbjarnarstöðum í Reykjadal. Þar
bjuggu foreldrar hans búskapartíð
sína alla: Sigtryggur Helgason,
bóndi og kennari, þriðji maður frá
Helga Asmundssyni, sem hin kunna
Skútustaðaætt er kennd við, og
Helga Jónsdóttir, húsfreyja frá
Arndísarstöðum. Hún var föður-
systir Ólafs Tryggvasonar, hug-
læknis og bónda á Hamraborg við
Akureyri. Tryggvi var fjórða barn
þeirra hjóna, Helgu og Sigtryggs,
en alls urðu þau níu og stendur sá
ættleggur nú víða fótum. Sigtrygg-
ur var áhugasamur fræðari og
fékkst löngum við barna- og ungl-
ingafræðslu í sveit sinni og víðar,
áhugamikill um framfara- og fé-
lagsmál, tónlistarunnandi og laga-
smiður. Lék á fiðlu og kenndi. Af
honum lærði Tryggvi fiðluleik, sem
var honum hugbót og unaðsauki
um stopular tómstundir fram á
efstu ár. Hið hljóða starf húsfreyj-
unnar á Hallbjarnarstöðum við
umsjá barna og heimilisönn spurðist
eins og títt hefir löngum verið
minna manna í milli en umsvifa-
meiri fræðslu- og félagsstörf
bóndans, en kom vel í ljós er
atgervisböm þeirra uxu úr grasi.
Tryggvi Sigtryggsson varð bú-
fræðingur frá Hvanneyri 1916 og
reyndist þar mikill námsmaður.
Næstu fjögur árin var hann far-
kennari í Reykdælahreppi og kom
þá mikið við sögu ungmennafélags
sveitar sinnar. Meðal annars hóf
félagið undir forystu hans auk Arn-
órs Siguijónssonar, Litlu-Laugum,
og Sigurgeirs Friðrikssonar; Skóg-
arseli, síðar bókavarðar í Reykjavík,
rekstur unglingaskóla að Breiðu-
mýri 1918. Varð Breiðumýrarskól-
inn, þótt með nokkrum hléum
starfaði um næstu ár, raunar fyrsti
vísirinn að Héraðsskólanum á
Laugum, er tók til starfa haustið
1925. Árið 1920 kvæntist Tryggvi
eftirlifandi konu sinni, Unni Sigur-
jónsdóttur, Litlu-Laugum. Ekkert
áttu ungu hjónin til að hefja búskap
sinn með nema lífsþrek sitt og bjart-
sýni. Þau voru bæði börn efnalítilla
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR M. WAAGE,
Kelduhvammi 11,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 15. desember
kl. 13.30. Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlega bent á Hjarta-
vernd.
Marfa Ú. Úlfarsdóttir,
Magnús Waage, Fríöa Ágústsdóttir,
Ingimar Waage, Ólafur M. Waage,
Guðný María M. Waage.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúö og vináttu við andlát og útför
bróður okkar,
GÍSLA PÁLMASONAR,
fyrrverandi kjallarameistara Nausts.
Fyrir hönd vandamanna,
Jónfna Pálmadóttir,
Hólmfrfður Pálmadóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, sonar, föður, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR KR. JÓNSSONAR,
Vatnsholti 4,
Reykjavfk.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki háls-, nef- og eyrnadeildar
Borgarspítalans fyrir mikla og góða umönnun í veikindum hans.
Ingibjörg Jóna Jónsdóttir,
Vilhelmfna Kristjánsdóttir,
Vildís Guðmundsdóttir, Halldór Haraldsson,
Jón Ingi Guðmundsson, Sigrfður Helga Þorsteinsdóttir,
Guðrún E. Guðmundsdóttir, Skarphéðinn Haraldsson
og barnabörn.
1 e nstsinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
ii S.HELGASON HF STEINSmlÐJA SKEMMWEGI 48 SÍMI76677
HHMHHMnHHHMnni
bændahjóna, bæði úr stórum systk-
inahópi. Ekkert fast jarðnæði var
fyrir hendi. Á einum klyfjahesti var
flutt fábrotin búslóð þeirra úr for-
eldrahúsum að Skógarseli í Selja-
dal, afdal Reykjadals. Þar bjuggu
þau fyrsta árið í litlu framhús-
herbergi á leiguhomi Skógarsels,
en síðar bjuggu þau skamma hríð
að Holtakoti í Reykjahverfi, þá
rýrðarkoti. Árið 1923 auðnaðist
þeim hjónum að fá eignarhald á
þriðja hluta lands Litlu-Lauga. Þá
hófst þeirra landnámssaga. Á
næstu árum reistu þau í suðurhluta
hálfdeigjumýra Litlu-Lauga, nýbýl-
ið Laugaból, hituðu það laugar-
vatni, ræstu fram mýrarnar,
græddu þær allar í töðuvöll, sígandi
en jafnt juku þau bústofn sinn, uns
þau sátu í bjargálna búi og allt
þetta meðan þau komu upp 11
barna hópi. Mörg hafa afrek og
ævintýr gerst með íslenskri þjóð,
en þessi eru ekki í síðri röð.
Á úthöllu sumri ævi sinnar hratt
Tryggvi Sigtryggsson í framkvæmd
þeim draumi sínum að klæða hlíðina
ofan Laugabóls skógi. Þar átti hann
síðari árin mörg ræktunarhand-
tökin og marga unaðsstundina og
hvert tré virtist dafna, sem hendur
hans hlúðu. Skógardraumur hans
var stór og orðinn fagur veruleiki
áður en augum lauk. Aldrei gleymdi
hann að geta þess, hve hvatningar-
orð góðra manna, ekki síst Hákonar
Bjarnasonar, lengi skógræktar-
stjóra ríkisins, hefðu verið sér gott
ræktunarílag, né hve ómetanleg og
afdrifarík hefði orðið sér margs
konar fyrirgreiðsla og hjálpsemi
ísleifs Sumarliðasonar, skógarvarð-
ar Vaglaskógar. Tryggvi taldi enga
hluti sjálfsagða úr annarra höndum
og var langminnugur á allt, sem
honum þótt vel að sér rétt. Af allri
rækt jarðar mun Tryggva haft ver-
ið hugstæðust skógræktin. Fæstum
Btómastofa
fíiðftnns
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!