Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 72
72
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Náttúrufræðistofnun Norðuriands
Forstöðumaður
Hinn 1. júní 1987 verða Náttúrugripasafnið
og Lystigarðurinn á Akureyri sameinuð í eina
stofnun, Náttúrufræðistofnun Norðurlands.
Auk núverandi starfsemi verður stefnt að
því í framtíðinni að stofnunin taki að sér rann-
sóknir á sviði orkumála, fiskeldis, vatnsöflun-
ar og náttúruverndar.
Laust er starf forstöðumanns stofnunarinnar
frá 1. júní 1987 og er umsóknarfrestur til
1. febrúar nk.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi
í náttúruvísindum, helst grasafræði, auk þess
sem krafist er starfsreynslu við vísindastörf
og stjórnun.
Umsóknir berist undirrituðum, sem veitir
nánari upplýsingar í síma 96-21000 alla virka
daga kl. 10.00-12.00.
Akureyri, 11. desember 1986.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Lögmaður/
lögfræðingur
Lögfræðingur óskast til starfa á lögfræði-
skrifstofu. Þarf að geta hafið störf nú þegar.
Góð laun í boði.
Upplýsingar um nám og starfsferil sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 17. des. nk. merkt-
ar: „Þ - 5026“.
Lyfjafræðingur
óskast
Cand.pharm lyfjafræðingur óskast til starfa
hjá lyfjainnflutningsfyrirtæki. Æskilegt er að
viðkomandi hefji störf 1. feb. 1987.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 20. des.
merkt: „Lyfjafræðingur — 5012“.
Iðnráðgjafi
Starf iðnráðgjafa á Norðurlandi vestra með
aðsetri á Blönduósi, er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur um starfið er til 20. des-
ember og skal umsóknum skilað til Knúts
Aadnegard, Raftahlíð 22, 550 Sauðárkróki,
en hann gefur jafnframt allar nánari upplýs-
ingar um starfið í síma 95-5669 eftir kl. 20.00.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Iðnþróunarfélag Norðuriands vestra.
Lagermaður
Óskum eftir lagermanni til starfa hjá bygg-
ingafyrirtæki frá og með 1. janúar. Við leitum
að eldri manni til lager- og framleiðslustarfa.
Þægileg vinna — góð vinnuaðstaða.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merktar „D — 2004“ fyrir miðvikud. 17. des.
raöauglýsingar — radauglýsingar — raöauglýsingar
' 4
útboö
(P ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f. h.
byggingadeildar óskar eftir tilboðum í að
byggja dagheimilið og leikskólann Kvarnar-
borg við Arkvörn. Um er að ræða fullbúið
hús og eru helstu magntölur: Flatarmál 1.
hæðar 446 fm, flatarmál kjallara 42 fm.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000
skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama
stað þriðjudaginn 30. desember nk. kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sírni 25800
Útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem
skemmst hafa í umferðaróhöppum:
Lancer 1500GLX árg. 1986
Toyota Corolla árg. 1986
Lada Samara árg. 1986
Mazda 323 árg. 1986
Daihatsu Charade árg. 1985
Seat Fura árg. 1984
Nissan Cherry árg. 1983
Lada 1200 station árg. 1982
Lada Sport árg. 1981
Honda Accord árg. 1979
Honda Civic árg. 1979
Subaru 1600 árg. 1978
BMW316 árg. 1977
Ford Fairmont árg. 1978
Kawasaki GP 1100 árg. 1982
Bifreiðarnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 15. desember 1986,
kl. 12.00-16.00.
Á sama tíma
Sauðárkrókur.
Skoda 130 L árg. 1986
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga
g.t. Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna
fyrir kl. 12.00, þriðjudaginn 16. desember 1986.
x HSAMVINNU
xJtryggingar
ÁRMÚLA 3 SIMI681411.
— Bifreiðadeild —
TKTGGINGI
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem
hafa skemmst í umferðaróhöppum.
Ford Escort 1986.
Mazda 626 1986.
Lancia Y10 1986.
Toyota Corolla 1986.
Toyota Crown 1982.
Toyota Twin Cam 16 1984.
Toyota Cressida 1978.
Ford Cortina 1977.
Chevrolet Concord 1977.
Lada 1500 1977.
Daihatsu Charade 1980.
Wartburg 1980.
Galant 1600 1979.
Bifreiðamar verða til sýnis mánudaginn 15.
des. í Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 10.00-16.00.
Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 17.00 sama
dag til bifreiðadeildar Tryggingar hf., Lauga-
vegi 178, Reykjavík, sími 621110.
LA UGA VEG1178. SlMI 621110.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í veg
og brú yfir Ölfusárós. Brúin er 360 m löng
en vegurinn 560 m.
Helstu magntölur brúar:
Mótafletir 7500 m2.
Steypustyrktarjárn 168 tonn.
Eftirspennt járnal. 55 tonn.
Undirvatnssteypa 240 m3.
Steypa 2700 m3
Helstu magntölur vegar:
Sandfylling 13200 m3.
Hraunfylling 47000 m3.
Grjótvörn 9000 m3.
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1988.
Útboðsgögn verða seld hjá aðalgjaldkera
Vegagerðar ríkisins, Borgartúni 5, 105
Reykjavík og á skrifstofu Vegagerðarinnar,
Breiðumýri 2, 800 Selfossi frá og með þriðju-
deginum 16. des. 1986.
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 14.00 hinn 26.
janúar 1987.
Vegamálastjóri.
tyÚTBOÐ
Forval
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h.
byggingardeildar borgarverkfræðings og
skólaskrifstofa Reykjavíkurborgar auglýsir
eftir verktökum sem hefðu áhuga á að hanna
og byggja skóla í Ártúnshverfi skv. svoköll-
uðu “allsherjarútboðsformi".
Verktakar leggi inn nafn og símanúmer fyrir
nk. fimmtudag þ.e. 18. des. á skrifstofu vora,
Fríkirkjuvegi 3.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sinii 25800
nauöungaruppboö
Auglýsing um nauðungar ■
uppboð og lausafé
þrotabús plastiðjunnar
Eyrarbakka hf.
Föstudaginn 19. desember nk. kl. 14.00 fer
fram nauðungaruppboð á lausafé þrotabús
plastiðjunnar Eyrarbakka hf. eftir kröfu
Rúnars Mogensen, hdl., bústjóra þrotabús-
ins.
Eignirnar eru þessar helstar:
1. Vélar og tæki til framleiðslu á einangr-
unarplasti s.s. stór og lítil plastmót,
Rauscher freyðari ásamt fylgibúnaði,
geymslusíló, sagir og fræsarar til sögunar
á einangrunarplasti.
2. Lager búsins af einangrunarplasti.
3. Plastmót (Flugfiskur) til framleiðslu á
plastbátum 9, 12 og 18 fet.
4. Bifreiðin X-5162, sem er Volvo-vörubif-
reið, yfirbyggð, árg. 1977.
5. Annað lausafé í verksmiðju og á skrif-
stofu s.s. skrifstofuvélar, húsgögn og fl.
Hinir auglýstu munir eru að Búðarstíg 4,
Eyrarbakka (Miklagarði) og verða til sýnis á
uppboðsstað frá kl. 13.00 19. des. nk.
Uppboð§skilmálar eru til sýnis á skrifstofu
embættisins.
Uppboðið fer fram að Búðarstíg 4, Eyrar-
bakka.
Skrifstofur Árnessýslu; 12.12. 1986.
Uppboðshaldarinn í Arnessýslu.