Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
4
Minningar
veiðimanns
ALMENNA bókafélagið hefur
gefið út bókina Bergið klifið —
Minningar veiðimanns eftir
Hlöðver Johnsen. í kynningu AB
segir:
„Hinn víðkunni Vestmanneying-
ur Hlöðver Johnsen (Súlli á Salta-
bergi) skýrir hér frá því sem hann
hefur lært í lífsins skóla, hvort held-
ur sú lexía hefur verið gefín í tíræðu
berginu, við veiðimennsku í úteyjum
eða Eldey, á sjó einhvers staðar við
ísland með Binna í Gröf, úti í Fleet-
wood á stríðsárunum, í eldgosinu
eða við landbúnaðarstörfin fyrir
ofan Hraun í Eyjum fyrir 50—60
árum.
En hver er þá þessi maður?
Ævintýramaður? Veiðimaður sem
hugsar um það eitt að drepa sem
mest? Nei, síður en svo. Hann er
fyrst og fremst náttúrubam, sem
unir engu lífí betur en lífí úteyjanna
og fuglabjargsins. Og svo er hann
líka athugun mannlífs- og náttúm-
skoðari. Hann þekkir lífshætti
fuglanna, sem hann hefur umgeng-
ist, betur en flestir aðrir — að maður
ekki tali um mannlífið í Eyjum þau
tæp 70 ár sem hann hefur lifað þar.
Hlöðver var aðstoðarmaður
vísindamanna í Eyjum í eldgosinu,
og er þáttur hans í sambandi við
þau mál og hraunhitaveituna eftir
gos bæði mikill og merkilegur.
Þrír vinir Hlöðvers, Páll Magnús-
son fréttastjóri, Guðjón Ármann
Eyjólfsson skólastjóri og Sveinbjöm
Bjömsson prófessor rita um kynni
sín af honum í formála fyrir bók-
inni.“
Bókin erf 223 bls. auk 8 litsíðna
og prentuð í Prentsmiðju Áma
Valdemarssonar en Bókbandsstof-
an Örkin annaðist bókband.
Víkurútgáfan og
Sögusafn heimilanna:
Samræður
um kenningu
Búddha og
Borgarljóð
- meðaljólabókanna
„Samræður um kenningu
Búddha“ eftir Francis Story í
þýðingu Skúla Magnússonar og
„Borgarljóð“ eftir Gunnar Dal
eru meðal þeirra bóka sem
Víkurútgáfan sendir frá sér.
Auk þeirra kemur bókin „Manns-
sonurinn" eftir Kahlil Gibran út í
þýðingu Gunnars Dal. Sögusafn
heimilanna sendir frá sér bækumar
„Nellikkustúlkan" eftir A.J. Cronin,
„Son eyðimerkurinnar" eftir E.
Marlitt og „í örlagaQötrum" eftir
Charles Garvice.
SÍMINN
TILÞÍN
Á YFIR100 SÖLUSTÖÐUM
UM LAND ALLT
Hér geturðu hækkað
eða lækkað í þeim sem
þú talar við. Gott fyrir
heyrnarskerta. A
4 mismunandi
stillingar á
hringingu.
Sé lokað fyrir htjóðnemann
heyrir viðmælandinn í A
símanum ekki sam- JBk
tal notandans við 44
aðra á staðnum. jU
Hér er stillitakki fyrir mis-
----- munandi hringingar.
Tii að setja símanúmer í minni,
velja númer úr minni og endur-
velja síðastvaida númerið.
Litir: rauður, hvítur og svartur.
Rofi fyrir hátalara,
þegar þú taiar í símann
með hendur lausar og
þegar aðrir viðstaddir
eiga að hlusta á samtalið.
Um leið og þú velur birtist
númerið á skjánum.y
Litir: hvítur, dökkgrár, ijósbiár,
rauður, vínrauður.
Hér er lokað fyrir hljóðnem
ann og viðmælandinn
„geymdur".
Þú getur lokað fyrir
hljóðnemann.-_
Plata fyrir
númer í minni.
Þessir takkarsjá um endurval
á því númeri sem síðast .
varhringtí. _______________^A
Hann hefur níu Til að velja aftur númerið_______2
númera minni. sem hringt var í síðast, þarf
aðeins að ýta á endurvalstakkann.
Hefur minni
fyrir 9 númer.
Litir: drapplitaður, blár,
rauður, svartur og hvítur.
Litir: hvítur, rauður, svartur.
<
C/5
e
Þ
S
Hér eru fjórirsímar frá Pósti
& Síma og einn þeirra
hentar þér alveg örugglega
heima eða á vinnustaðnum.
Við höfum aukið þjónustu
okkar við símnotendur og nú
eru rúmlega 100 söludeildir á
póst- og símstöðvum um land
allt. Þar eru sölumenn reiðu-
búnir að veita allar upplýsing-
ar um símana, möguleika
þeirra og notkun. Á póst-og
símstöðvum getur þú fengið
að prófa símana og finna út
hver þeirra hentar þér best.
Með símunum fylgja nákvæm-
ar leiðbeiningar á íslensku og
við bjóðum einnig eins árs
ábyrgð á öllum símum. Líttu
við á næstu póst- og símstöð
og þú finnur örugglega sím-
ann sem þig vantar.
PÓST-OG SÍMAMALASTOFNUNIN