Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 88

Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 88
ltsemþarf / STERKTKDRT SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Rúmlega millj- arður í skyndi- happdrættum Dómsmálaráðuneytið hefur á þessu ári, eða fram til 25. nóv- ember sl., veitt 114 leyfl til ~ — rekstrar skyndihappdrætta. Leyfin fela í sér útgáfu rúmlega 3,2 milljóna happdrættismiða að verðmæti um milljarður króna. Vinningar eru tilgreindir sam- tals 164,5 milljónir króna. Samkeppni á skyndihappdrættis- markaðinum fer sífellt harðnandi og hafa um 1.400 manns látið afmá nöfti sin af því eintaki þjóðskrár, sem notuð er við útsendingar happ- drættismiða með póstgíróseðlum, en til þess þarf sérstakt leyfí Hag- stofu eða tölvunefndar. Má af því marka að mörgum fínnst nóg kom- ið af slíkum póstsendingum. Sjá ennfremur: „Er verið að «drekkja þjóðinni í happdrætt- ismiðum?" á bls. 12c-15c. Skjálftar við Ljótapoll frá því í ágúst LJÓTIPOLLUR við Torfajökul hkelfur enn. Jarðskjálftamælar á þessu svæði greindu fyrst merki um hræringar á svæðinu í kring- um Torfajökul í ágúst. Hefur skjálftavirkni verið þar stanslaus síðan, að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisf:ræðings. Jarðfræðingar telja að skjálfta- virkni af þessari tegund sé gjaman fyrirboði eldgosa. Ekki hefur nein skýring fundist á því af hveiju Ljóti- pollur skelfur. Skjálftamir eru tíðir, en mjög litlir og geta menn sem ganga um svæðið ekki greint þá. jLeiðangur visindamanna í haust mældi mikið jarðsig á svæðinu. Bendir það til þess að þar flakki )kvika um undir jarðskorpunni líkt jog í Kelduhverfi. \ ■ ■ ' ■ ■ ' : • ■ • • ■ - I I II -I— Morgunblaðið/Ámi Sœberg Umferðarspegill á Amtmannsstíg SETTUR hefur verið upp speg- ■11 á horni Amtmannsstígs og l’ingholtsstrætis í Reykjavík. Spegill þessi gerir ökumönnum, sem aka niður Amtmannsstig, kleift að sjá umferð eftir Þing- holtsstræti. Að sögn Óskars Ólasonar yfir- 'lögregluþjóns hefur gatnamála- stjórinn í Reykjavík fengið nokkra slíka spegla til reynslu og verða þeir settir upp á 5-6 blindhomum. Nú hafa þegar verið settir upp tveir slíkir, á Amtmannsstíg og á Kleifarvegi. Fyrirhugað er að setja einnig upp spegil á mótum Laugavegar og Smiðjustígs, Skál- holtsstígs og Þingholtsstrætis og víðar. Erlendis eru speglar þessir víða notaðir og sagði Óskar að ef þeir reyndust vel væm þeir ódýr lausn á miklum vanda. Hækkun á minkaskinn- um 20-25% MINKASKINN hækkuðu mikið í verði fyrstu daga desemberupp- boðs á minkaskinnum í uppboðs- húsi danska loðdýraræktarsam- bandsins í Kaupmannahöfn. Skinnin hækkuðu á bilinu 20—25% miðað við desemberupp- boð á sama stað fyrir ári. Minkaskinnauppboðið í Kaup- mannahöfn hófst á fimmudag og því lýkur í dag, sunnudag. Búið er að bjóða upp brúnlituðu skinnin (pastel og scan-brown) en svartminkurinn, sem er mikilvægasta skinnategund- in, er seldur núna um helgina. Sem dæmi um verð þá fór brúnminks högni (scan-brown) á 308 danskar krónur eða 1.650 krónur íslenskar, að meðaltali. Er þetta 20—25% hærra verð en á desemberuppboði í fyrra og tæplega 30% hærra verð en minkaskinn voru seld á að meðal- tali síðasta vetur. Um 3.500 íslensk skinn voru send út fyrir þetta uppboð en ekki verður nema hluti þeirra boðinn upp nú. Ekki er vitað hvemig íslensku skinn- in hafa komið út í samanburði við þau dönsku. Að sögn Jóns Ragnars Björnsson- ar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra loðdýraræktenda, eru for- ystumenn loðdýrabænda mjög ánægðir með þessa verðhækkun minkaskinna. Öll skinn sem boðin hafa verið upp hafa selst, ekki eitt einasta hár eftir, eins og Jón Ragn- ar orðaði það. DAGAR TIL JÓLA Freðfisksalan til Sovétríkjanna: Um 5.200 lestir vantar upp á umsamið magn í ár Tekur þrjá til fjóra mánuði á næsta ári að uppfylla samninginn HORFUR eru á þvl, að um fimmt- ung, 5.200 lestir^ vanti upp á það um áramót, að íslendingar hafi framleitt upp I samninga þessa árs um sölu á freðfiski tíl Sov- étrikjanna. Stafar þetta að mestu leyti af þróun dolíars og hækk- andi fiskverði i Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum, því vegna þessa er tæpast hagkvæmt að framieiða fyrir Sovétríkin. Staða sem þessi hefur ekki komið upp lengi, því undanfarin ár hefur dæmið verið þveröfugt. Engir samningar hafa enn verið gerðir um sölu á freðfíski til Sovétríkj- Lánsloforð verða send út í vikunni UMSÆKJENDUR um lán Húsnæðisstofnunar eftir nýja kerfinu svo- kallaða mega eiga von á þvi að fá lánsloforð sín send í pósti eftir helgina. Einnig er verið að afgreiða þær umsóknir sem borist höfðu áður en nýju húsnæðislögin tóku gildi. í lok mánaðarins verða greidd út lán að upphæð 400 milljónir króna. Nú hefur þriðjungur lífeyris- sjóða uppfyllt skilyrði Húsnæðisstofnunar til þess að félagar þeirra • -^|u lánshæfir. Á landinu öUu eru 86 lífeyrissjóðir. Að sögn Sigurðar ,*-• Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar, bætast jlífeyrissjóðir í hópinn á hveijum degi. (Lánsloforðin sem send verða út eftir helgina eru gefin án tillits til þess hvort umsækjendur séu búnir að festa kaup á húsnæði eða ekki. Þeir sem eru að sækja um í fyrsta ■J^ÉBti og ætla að byggja fá loforð um lán að upphæð allt að 2.360.000 krónum. Þeim sem ætla að kaupa eldra húsnæði eða hafa áður fengið lán hjá stofnuninni og ætla að byggja er lofað 1.652.000 krónum. f þriðja flokknum lenda þeir sem ætla að kaupa eldra húsnæði og búa í eldra húsnæði. Geta þeir feng- ið lán allt að 1.157.000 krónum. Umsækjendur í lífeyrissjóðum sem ekki hafa gert samninga við Húsnæðisstofnun verða að bíða þangað til þeir liggja fyrir. Sam- kvæmt nýju húsnæðislögunum þurfa sjóðimir að semja við Hús- næðisstofnun um að þeir kaupi ríkisskuldabréf fyrir ákveðið hlut- fall af ráðstöfunarfé sínu. Sigurður sagðist eiga von á því að allir lífeyr- issjóðimir myndu ljúka því að ganga frá sínum samningum á nýja árinu. anna á næsta ári. Samingar þessa árs námu alls 26.000 lestum af fiski, 14.000 lest- um af karfaflökum, 6.000 lestum af ufsaflökum og 6.000 lestum af heilfrystum físki. Sigurður Markússon, fram- kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar Sambandsins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að um miðjan nóv- ember hefði vantað 15 til 20% upp á að Sambandið hefði staðið við sinn hlut af samningunum við Sov- étmenn. Hann sagðist búast við því, að staðan yrði svipuð um ára- mótin, þar sem lítið af karfa og ufsa bærist á land í desember. Hann sagðist telja að það tæki um þijá mánuði á næsta ári að upp- fylla samninginn. Skýringin á því, hve illa gengi að standa við þennan samning væri einfaldlega sú, að munur á skilaverði á freðfiski fyrir Sovétríkin annars vegar og Vestur- Evrópu og Bandaríkin hins vegar, væri verulegur. Benedikt Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri hjá SH, sagði í samtali við Morgunblaðið, að um áramót myndi líklega skorta á um 2.000 lestir að framleitt hefði verið hjá SH upp í samninga um sölu á karfaflökum. Þá myndi ennfremur vanta svipað magn af ufsa og 500 til 600 lestir af heilfrystum fiski. Hann taldi að ekki yrði búið að framleiða þetta magn fyrr en eftir þijá til íjóra mánuði á næsta ári. Benedikt sagði aðspurður, að engir samningar hefðu enn verið gerðir ívið Sovétmenn um sölu á freðfiski já næsta ári, en þeim yrðu sendar hugmyndir um magn og verð fyrir áramót. Velti bíl og hvarf á brott BÍLL valt á Miklubraut rétt vest- an við Lönguhlið aðfaranótt laugardagsins. Þegar að var komið var enginn i bílnum. Að sögn lögreglu virðist sem bílnum hafi verið ekið á mikilli ferð austur Miklubraut. Sennilega hefur ökumaður misst stjóm á bílnum og lent upp á eyju sem skilur að braut- ina og húsagötu. Ökumaður hvarf af vettvangi og var ófundinn þegar rætt var við lögreglu í gær, en þó var talið vitað hver hann er. Skömmu eftir miðnætti varð þó harður árekstur á Breiðholtsbraut við Stöng og skullu þar saman þrír bílar. Farþegi úr einum var fluttur á slysadeild og allir bílarnir dregnir á brott með kranabíl. Lögreglan hefur grun um að áfengi hafi verið með í spilinu. Brotist var inn í verkstæðis- byggingu Bifreiða og landbúnaðar- véla við Suðurlandsbraut um hálf þijú og tveimur tímum síðar var tilkynnt um innbrot í Nesti í Foss- vogi. Rannsóknarlögreglan hefur þessi mál með höndum. J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.