Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.12.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 9 HUGVEKJA Jóhannes skírari eftir ÓSKAR JÓNSSON I „Jóhannes þurfti ekki aÖ fara inn í bœi og borgir til að prédika. FólkiÖ kom til hans hvaðanœva úr landinu og hlust- aÖi á boðskap hans. “ Texti. Matt. 11,2—11. Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði: „Ert þú sá, sem koma skal, eða eigum vér rað vænta annars?" Jesús svaraði þeim: „Farið og kunngerið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið: „Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufír heyra, dauð- ir rísa upp, og fátækum er flutt fagnaðaerindi. Og sæll er sá sem hneykslast ekki á mér.“ Þegar þeir voru famir, tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: „Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að fínna í sölum konungs. Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spá- mann. Hann er sá, sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér. Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í Himnaríki er honum meiri.“ Jóhannes skírari var alltaf hreinn og beinn, bar sannleikan- um vitni og fór ekki í manngrein- arálit, heldur sagði öllum til syndanna, einnig konunginum Heródesi, sem varð til þess að honum var varpað í fangelsi og síðan hálshöggvinn. Hann hafði sagt við Heródes: „Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns.“ Davíð Stefánsson segir í kvæðinu um Jóhannes skírara, meðal annars: Rödd hans er sterk eins og stormsins og þrumunnar gnýr. Hann er stoltur sem Qallið, er glóandi eldinum spýr. Hinn vesæli lýður, hin villta og sundraða hjörð - hún verður að hlusta. - Það bergmála himnar og jörð ... Ég kom til að beijast og kveikja hið andlega stríð. Ég kom til að hrópa og vekja hinn sofandi lýð. Ég kom til að sjá um, að illgresið felli ekki fræ, og flugumar geti ekki sogið hin eitruðu hræ ... í skínandi elfinni skíri og lauga ég þá, er skrifta og iðrast og frelsara mannkynsins þrá. Ég veit, að hann kemur... Ég kom til að ryðrja honum slóð. Ég kom til að vekja þig, skriftlærða Gyðingaþjóð. Jesús segir í textanum að Jóhannes sé meira en spámaður, já, jafnvel mestur allra þeirra sem af konu eru fæddir. „Hann var logandi og skfnandi lampi. Þér vilduð um stund gleðjast við ljós hans,“ sagði Jesús við lýð- inn. Jóh. 5,35. Jóhannes þurfti ekki að fara inn í bæi og borgir til að pré- dika. Fólkið kom til hans hvaðanæva úr landinu og hlust- aði á boðskap hans og fjöldinn allur iðraðist synda sinna og lét hann skíra sig í ánni Jórdan. Jóhannes sagðist vera sendur í heiminn til að ryðja braut fyrir Messías. Þegar Jesús nálgaðist staðinn þar sem Jóhannes var að skíra, bendir hann á Jesúm og segir: „Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins ... Hann er sá sem skírir með heilögum anda.“ Jóh. 1,29. í fangelsinu var Jóhannes einn og yfirgefinn og margar spumingar vöknuðu hjá honum. Engir komu í heimsókn, nema lærisveinar hans af og til. Þó svo að Jóhannes væri mik- ilmenni, fóru efasemdir og órói að gera vart við sig. Hefur mér skjátlast? Er Jesús Messías sem koma átti samkvæmt ritningun- um? Efasemdir sækja líka á okkur þegar erfíðleikar og vonbrigði koma á veg okkar. Hvers vegna mæta þessir erfíðleikar mér? Er Jesús í raun og veru frelsarinn sem gefur eilíft líf? Hvað með lífíð eftir dauðann? o.s.frv. Tómas sagði forðum, þegar hinir lærisveinamir sögðust hafa séð Drottin upprisinn: „Sjái ég ekki naglaförin í höndum hans og geti sett fíngur minn í nagla- förin og lagt hönd mína f síðu hans, mun ég alls ekki trúa.“ Viku seinna var Tómas viðstadd- ur þegar Jesús kom. Þá varð Tómasi að orði: „Drottinn minn og Guð minn.“ Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því að þú hefur séð mig. Sælir em þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ Saga Jóhannesar skírara kennir okkur hvað skal gera ef efasemdir gera vart við sig. Hann losaði sig við einangmnina og sendi tvo af lærisveinum sínum til Jesú: „Ert þú sá, sem koma skal, eða eigum við að vænta annars"? Hveiju svarar Jesús?" Kunngerið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið.“ Það var nægjanlegt til að sann- færa Jóhannes, því spádómarnir vom að rætast fyrir augum þeirra. Svo segir: „Verið hug- hraustir, óttist eigi! Sjá, hér er Guð yðar!... Hann kemur sjálf- ur og frelsar yður.“ Þá munu augu hinna blindu upp ljúkast og opnast eym hinna daufu. Þá mun hinn halti létta sér sem hjörtur og tunga hins mállausa fagna lofsyngjandi. Jes. 35,3—5. Gleðiboðskapur Messíasar: Andi Drottins er yfír mér, af því Drotinn hefír smurt mig. Hann hefur sent mig til að flytja nauð- stöddum gleðilegan boðskap og til að græða þá, sem hafa sund- urmarið hjarta. Jes. 61,1—2. Þegar vantrú og efasemdir mæta okkur þurfum við líka að koma til Jesú og fá svör við spumingunum sem sækja á. Þegar við lifum í daglegu bæna- samfélagi við Jesúm ná vantrúin og efasemdimar engum tökum á okkur. Jesús segir: „Biðjið og yður mun gefast." Matt. 7,7. Hann óhreinn var og líkþrá þungri þjáður, hann þurfti að forðast menn og kvaldist einn, ogjafnan ormi jámhörð örlög gerði hann, en Jesús kom, og hann varð þegar hreinn. Menn, blinda og þjáða af saurugleik og Satan, er Sonur Guðs að frelsa um allan heim. Þeir öðlast sýn, og syndafjötrar rofna, er sjálfur Jesús fær að dvelja í þeim. Kór Er Jesús kemur, flýr hin skæða freisting. í fagran sigur ósigri hann snýr. Hann gerir tár að björtu sólskinsbrosi. Allt breytist, þegar Jesús hjá oss býr. Oswald J. Smith FJARFESTINGARFELAGIÐ VERÐBREFAMARKAÐURINN Genaiðídan 14. DESEMBER 1986 Markaðsfréttir Veðskuldabréf - verðtryggð Lánst. 2 afb. áári Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu 12% 14% 16% 1 ár 4% 95 93 92 2ár 4% 91 90 88 3ár 5% 90 87 85 4ár 5% 88 84 82 5 ár 5% 85 82 78 6ár 5% 83 79 76 7 ár 5% 81 77 73 8ár 5% 79 75 71 9 ár 5% 78 73 68 10ár 5% 76 71 66 Veðskuldabréf - óverðtr. Lánst. 1 afb. áári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti 20% HLV 15% 1 ár 89 84 85 2 ár 81 72 76 3 ár 74 63 68 4 ár 67 56 61 5 ár 62 50 56 KJARABRÉF Gengl pr. 12/12 1986 = 1,805 Nafnverð 5.000 50.000 Söluverð 9.025 90.250 TEKJUBRÉF Gefðu fjölskyldunni kjarabréf - langtíma jólagjöf með góðri ávöxtun Gengi pr. 12/12 1986 = 1,090 Nafnverð 100.000 500.000 Söluverð 109.000 545.000 f jármál þín - sergrein okkar Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.