Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 26

Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 26
I 26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 AVON í APÓTEKUM OG ÖLLUM BETRI SNYRTIVÖRUVERSLUNUM LANDSINS. FOXflRE NES tt* PORTHF HEILDVERSLUN AUSTURSTRÓND 1 SELTJARNARNESI SÍMAR 62 11 90 61 10 20 LEÐURSÓFASETT OG STAKIR LEÐURSÓFAR Metsölublað á hverjum degi! Vopnasala Bandaríkjastjórnartil íran: Mánuður ólgu og sívaxandi spennu RÚMUR mánuður er nú liðinn frá því uppvíst varð um vopnasendingar Bandaríkjastjórnar til íran. Flest er enn á huldu um viðskipti þessi en Ijóst þykir að málið er hið erfiðasta sem Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, hefur þurft að glíma við íforsetatíð sinni. Fréttir af vopnasölunni hafa borist víða að og fjölmörg ríki hafa verið bendluð við hana. I Bandaríkjunum hafa þingnefndir yfirheyrt ýmsa nánustu samstarfsmenn forsetans og ákveðið hefur verið að skipa óháðan rannsóknardómara til að kanna máliðtil hlítar. Því er Ijóst að vopnasalan verður enn um sinn eitt helsta umfjöllunarefni fjölmiðla víða um heim. Bandaríska stórblaðið The New York Times birti nýlega grein þar sem þróun málsins er rakin dag frá degi og birtist hún hér í fslenskri þýðingu. Atburðarás síðustu daga er unnin úr fréttaskeytum AP og Reuters- 3. nóv. Líbanska tímaritið Al Shiraa skýrirfrá því að Bandaríkjastjórn hafi sent írönum skotfæri og varahluti í skriðdreka og orustu- þotur í kjölfar leynilegrar ferðar Roberts C. McFarlane, fyrrum öryggisráðgjafa forsetans, til ír- an í septembermánuði. Tals- menn Bandaríkjastjórnar segja að vopn hafi ekki verið send til íran í skiptum fyrir bandaríska gísla í Líbanon. 4. nóv. Hojatolislam Hashemi Rafs- anjani, forseti íranska þingsins, segir að McFarlane og fjórir aðrir Bandaríkjamenn hafi kom- ið til íran í leynilegum erinda- gjörðum. 5. nóv. Talsmenn Reagans forseta staðfesta að Bandaríkjastjórn vinni ásamt stjórnum fleiri ríkja að því að fá gísla leysta úr haldi í Líbanon og vilja ekki taka fyrir að íran sé eitt þeirra ríkja. Ríkisútvarpið í ísrael skýrir frá því að ísraelar kunni að hafa flutt varahluti í bandarískan vopna- búnað til íran til þess að flýta fyrir lausn gíslamálsins. 6. nóv. Ónafngreindir starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) segja Bandaríkjastjórn hafa stundað leynilegar vopna- sendingartil íran undanfarna 18 mánuði í því skyni að fá gíslana leysta úr haldi. ísraelar eru sagðir hafa aðstoðað við flutn- ingana. Reagan forseti neitar að tjá sig um málið. 7. nóv. Bandarískir embættismenn segja Reagan forseta hafa sam- þykkt leynilega áætlun McFarla- Vopnasölunni mótmælt 1 Washington. nes um bætt samskipti við stjórnvöld í íran. Tilgangur henh- ar er sagður sá að binda endi á stuðning írana við hryðjuverka- menn og flýta fyrir lausn gíslð" málsins. Embættismennirnir segja að vopnasendingarnar hafi ekki verið liður í áætluninni en ísraelar hafi boðist til að annast flutninga á varahlutum og vopnum til íran. Ekki liggur fyrir hvort Reagan lagði blessun sína yfir vopnasendingarnar. 8. nóv. Þingmenn tilkynna að leyni- þjónustu- og utanríkismála- nefnd Bandaríkjaþings muni rannsaka hvort stjórnin hafi far-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.