Morgunblaðið - 14.12.1986, Page 48

Morgunblaðið - 14.12.1986, Page 48
 MIÍOAQUMVIU 48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 200 ára gömul bók eftir Goethe þýdd á íslenzku Raunir W erthers Johann Wolfang von Goethe er löngu genginn en skáldpersónur hans eins og Fást og Werther ráfa enn um ofanjarðar og hafa gert í hart nær tvö hundruð ár. Goethe var rétt orðinn tvítugur þegar hann skrifaði bókina um hinn unga Werther og raunir hans (Die Leiden des jungen Werthers), bókin var snögglega þýdd á helstu tungur veraldar og lesin spjaldanna á milli af öllum sem kunnu að lesa og meira að segja þeir sem ekki kunnu að lesa fengu aðra til að lesa hana fyrir sig — og þannig varð „ Werther“ mest lesna og umtalaðasta skáldsagan síðan „Tom Jones“ eftir Henry Fielding kom til sögunnar þrjátíu árum áður. Mál og menning gefur út á þessu hausti „Raunir Werthers" í íslenskri þýðingu Gísla Ásmundssonar. Geysimikil áhrif bókarinnar Mikið var um að vera í bók- menntaheimi Evrópu á 18. öld, tíma ensku skáldanna Popes sem samdi „Essay on Man“, Defoes sem samdi „Robinson Crusoe", Samuel John- sons, Smolletts, og Ossians sem átti eftir að valda straumhvörfum í lífi Werthers; tíma þýsku speking- anna og okáldanna Klopstocks, Lessings, Kants og Schillers, og þýsku tónsnillinganna Wolfangs Amadeus og Ludwigs van; það var einnig tími Prévosts sem skrifaði „Manon Lescaut", Montesquieus og Rousseaus sem skrifuðu heimspeki- rit og skáldverk, Diderots og Voltaires, en sá síðamefndi lést háaldraður þegar Goethe var að hefja sinn skáldskaparferil. Goethe var því ekki í slæmum félagsskap. En það var ekki félagsskapur við ofangreinda menn sem Goethe sótt- ist eftir; hann sagði síðar í stór- merkri sjálfsævisögu sinni, Dichtung und Wahrheit, að með „Werther" hefði hann einfaldlega skrifað sjálfan sig frá sjálfsvígi. Goethe skrifaði að meðal merkra gripa í vopnasafni sínu hafi verið flugbeittur rýtingur, sem hann var vanur að leggja á rúm sitt áður en hann sjálfur lagðist til svefns. Goet- he var þunglyndur á þessum ámm og gældi oftsinnis við þá hugmynd að fyrirfara sér. En það tókst hon- um aldrei, hann hló bara að heimsku sinni og vildi lifa, en til að lifa ham- ingjusamlega varð hann að skrifa skáldverk sem innihélt allar hans heitu tilfinningar og ófullnægðu langanir. Það vom því kaldhæðnisleg örlög að æskuverk hans um Werther skyldi verða þess valdandi að fjöldi ungra manna vítt og breitt um Evrópu féll fyrir eigin hendi, að hætti hins sorgmædda Werthers. Goethe skrifaði í ævisögu sinni: „Áhrif bókarinnar vom einstök, því hún kom út á réttum tíma. Ungt fólk á þessum ámm tók bókinni með slíku offorsi þar sem það hafði þegar afskrifað sjálft sig; en það var fyrst með útkomu bókarinnar að fólk bar tilfinningar sínar á torg, ófullnægðar hvatir og langanir gus- uðust út úr sérhvetjum unglingi, það var eins og ímyndunaraflið hefði orðið til þá.“ Og ungir, óharðnaðir menn létu tilfinninga- semina, sem Werther boðaði, ana sér út í dauðann, enda lá sterkur uppreisnarandi í loftinu (franska byltingin var ekki langt undan), ómerkileg ástarmál ungra manna leiddu til þess að óðfluga fækkaði í stríðsheijum Evrópuþjóða, og varð kirkjan að grípa til reiðilesturs á sunnudögum, og ríkisstjórnir og einræðisherrar bönnuðu bókina, því öllu sæmilegra þótti fyrir unga menn að falla í blóðbaðinu sjálfu en ekki uppi á háalofti um nótt; síðar kom þó í ljós að ekki ómerk- ari maður en Napóleon keisari hafði lesið bókina að minnsta kosti átta sinnum. Goethe skrifaði þetta æskuverk sitt á þeim dásamlegu ámm þegar bókin, hið skrifaða orð, hafði áhrif; þegar fólk hafði enn ímyndunarafl; þegar bókin skipti einhverju máli fyrir mannskepnuna. Skáldskapur byggður á reynslu höfundar Goethe hafði lokið lögfræðiprófi til að þóknast föður sínum og setst að í smábænum Wetzlar til að öðl- ast starfsreynslu. Það var árið 1772 og Goethe 23 ára. Hann fékk fljótt leið á starfi lögfræðingsins, enda maður með ríkt ímyndunarafl og heitar tilfinningar. Hann vafraði um sveitina sem var undurfögur. Kvöld eitt í júní fór Goethe á dansleik og þar kynntist hann átján ára stúlku sem hét Charlotte Buff. Goethe, sem skömmu áður hafði slitið trú- lofun sinni við Frederíku Brion (afkomandi hennar, Marcel Brion, skrifaði síðar ævisögu Goethes), réð ekki við tilfinningaflóðið og hann varð yfir sig hrifinn af Charlotte, Engin mynd er til af Frederíku Brion, sem Goethe sagði skilið við, skömmu áður en hann kynntist Charlottu Buff, nema þetta portrett. Johann Wolfang Goethe. Málverk eftir Joseph Stieler, 1828. eða Lottu eins og hún var kölluð. en svo illa vildi til að Lotta var lof- uð sendiráðsritaranum Johann Kestner, og ekki dró það úr áliti skáldsins verðandi á ungu stúlk- unni. Goethe elti hana á röndum og fór ekki leynt með tilfinningar sínar. Kestner lét það gott heita, og þótti mörgum það kyndugt. Þannig leið sumarið 1772 og það var ekki fyrr en í september það ár að Goethe sá sitt óvænna og hvarf á braut. Charlotte og Kestner gengu í það heilaga snemma árs 1773. Á sama tíma og Goethe átti í misheppnuðu ástarsambandi átti ungur lögfræðingur að nafni Carl Wilhelm Jerusalem, sem var efnað- ur prestssonur, í útistöðum við yfirvaldið og lauk máli því þannig að Jerusalem skaut sig. Goethe frétti af þessu og sýndi málinu furðu mikinn áhuga, fékk meira að segja Kestner til að afla upplýsinga um málið. Og meira af einkennileg- um tilviljunum: Jerusalem fékk lánaða skammbyssu Kestners til að fremja verknaðinn um nótt, án þess þó að Kestner vissi um ráðahaginn. Jerusalem hafði verið hryggbrotinn af ungri konu, hann hafði einnig verið sárlega móðgaður af fyrirfólk- inu í bænum. Það sama kemur fyrir Werther um það leyti sem hann er að missa af elskunni sinni. Nú líður og bíður. Goethe lætur ekki á sér kræla uns út kemur full- mótað skáldverk, Raunir Werthers unga. Vinir Goethes vissu ekki hvað hann aðhafðist vikurnar og mánuð- ina eftir flótta hans frá Lottu; það vitum við hins vegar ef við lesum „Dichtung und Wahrheit". Það var fyrst og fremst dauði Jerusalems sem hristi upp í Goethe, fékk hann til að skoða eigið líf og endurmeta, og gaf honum vel þegið tækifæri til að skrifa skáldverkið sem gæti bjargað honum sjálfum frá sjálfs- vígi. Goethe skelfdist hvað líf sitt líktist lífi veslings Jerusalems, því gat þá ekki eins farið fyrir honum? Goethe sá engan mun á ímyndun og veruleika. Hann lokaði sig inni, meinaði vinum að koma í heimsókn, gruflaði í eigin fortíð til að nota í söguna sem var að brjótast um í honum. Þannig var komið fyrir Johanni Wolfang von Goethe um það leyti sem hann skrifaði verkið sem fyrst vakti athygli á honum sem skáldi. Það tók Goethe ekki nema §órar vikur að setja verkið saman; sem er mun lengri tími en það tók Vol- taire að hripa niður bókarkornið „Birtíng". Listrænir þræðir Sagan um Werther og raunir hans myndi eflaust ekki vekja jafn mikla athygli nú tvöhundruð árum síðar eins og raun ber vitni ef hún væri bara hrá saga af reynslu höf- undarins, þótt merkilegur sé. Goethe gætti þess að ljá sögu sinni listræna þræði sem gefa henni var- anlegt gildi. Verkið skiptist í tvennt, eins og persónuleiki Werthers: í fyrri hlut- anum er að finna dagbækur Werthers, lýsingar hans á sjálfum sér, náttúrufegurðinni og hvað lífið sé yfirleitt dásamlegt. Hann stúder- ar bækur Hómers og líkir þeim saman við náttúruna sjálfa. Síðan hittir Werther Lottu og persóna hans breytist, hann fyllist sjúklegri ást til þessarar ungu stúlku og ást hans magnast aðeins þegar Albert, kærasti Lottu, snýr heim. Dag- bókarformið heldur áfram í upphafi síðari hlutans, þá er Werther langt leiddur í ást sinni sem ekki er endur- goldin á þann hátt sem hann helst vildi. Werther og Lotta verða góðir vinir, þau eiga m.a. það sameigin- legt að elska bækur og sanan lesa þau Ossían, sem Werthf r tekur fram yfir Hómer þegar svört ský brostinna vona sigla um himininn. Sagan endar á samantekt ritstjór- ans, sem fær dagbækurnar og bréfin um síðustu daga Werthers í hendur. Goethe var að skrifa þetta verk á æskudögum skáldsögunnar og því verður vart á móti mælt að ýmsa bernskusjúkdóma er á bókinni að sjá, og á ég þá sér í lagi við þátt „ritstjórans“, sem veit allt of mikið um sálarlíf Werthers undir það síðasta; Goethe á hér við sama vandamál og Lermontov sem einna fyrstur skrifaði skáldsögu í Rúss- landi. Ritstjórinn skrifar stundum eins 'og venjulegur blaðamaður sem hefur veitt upplýsingar um Werther annars staðar frá, en svo koma atriði, sem enginn varð vitni að, en ritstjórinn kann að lýsa í smáatrið- um! Og Werther verður að liggja á hleri, rétt eins og Pítsjorin hjá Lermontov, til að vissar upplýsingar komist til skila. Annað atriði sem þykir óður á verkinu, er hversu ii:vi:nuain í Ossían er gcypilöng. En það eru aðeins smáhnökrar sem næstum hverfa í samanburði við þá listrænu heild sem verkið myndar. Goethe tæpir á mörgum hliðarstefjum við meginsöguna til að sýna okkur fram á að saga Werthers er ekkert einsdæmi, engin tilviljun, án þess þó að draga úr áhrifum hennar. Werther fréttir af ungum heldurenekki ástföngnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.