Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 55

Morgunblaðið - 14.12.1986, Side 55
Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri eldhressi þáttur. Ég hef mikinn áhuga á stjörnuspeki. Nú langar mig að biðja um upplýsingar um eiginleika í fari mínu sem ég gæti nýtt mér eða bætt ef með þarf. Ég er fædd 18.06. 1954 kl. 3.30 að morgni. Með vinsemd og virðingu. Hinn dæmigerði Tvíburi." Svar: l>ú hefur Sól í Tvíbura, Tungl, Mars og Miðhiminn í Steingeit, Merkúr og Uranus saman í Krabba og sömuleiðis Rísandi og Júpíter saman í Krabba. Venus er síðan í Ljóni. Mótsagnir Framangreind upptalning táknar að þú ert að mörgu leyti mótsagnakennd persóna. Tvíburinn, Júpíter og sterkur Úranus gefa til kynna eirðar- leysi, sterka frelsisást og þörf fyrirtilbreytingu. Margarplán- etur í Steingeit og Krabba gefa hins vegar til kynna íhaldssemi og þörf fyrir öryggi. Þig getur því langað til að ferðast og skoða heiminn án þess að þora það vegna öryggisþarfar eða þess að þú ert bundin af ábyrgð t.d. vcgna fjölskyldu. Hress og jákvœö Sól í Tvíbura táknar að þú ert hress og jákvæð í grunneðli þínu. Til að viðhalda lífsorku þinni þarft þú að umgangast töluvert af fólki og lifa hug- myndalega athafnasömu lífi, þ.e. lesa bækur, fylgjast vel með því sem er að gerast i umhverfi þínu og ræða við fólk. Ábyrg Tungl í Steingeit táknar að þú ert tilfinningalega alvörugefin og ábyrg og þarft að hafa ör- yggi og reglu í daglegu lífí. Þú átt einnig til að vera tilfinn- ingalega stíf og formföst og þarft að varast að bæla eigin tilfinningar og þrár niður. Þessi staða ásamt Venusi i Ljóni táknar að þú ert trygglynd og góður vinur vina þinna. Tilfinningarík Krabbi Rísandi táknar að fram- koma þín mótast af næmleika fyrir umhverfinu, að þú hefur í þér sterkar vemdandi tilfinn- ingar. Þú ert tilfinningarík, átt til að vera ákaflega opin (Júpít- er) en átt einnig til að draga þig í hlé og einangra. Það að andrúmsloft á vinnustað og heimili sé gott skiptir þig miklu. Gott innsœi Þeir hæfileikar sem þú ættir að þroska með þér eru í fyrsta lagi tengdir hugsun. Sem Tvíburi hefur þú örugglega gaman af Jjví að tjá þig. Merk- úr og Úranus í samstöðu táknar síðan að þú hefur frum- lega hugsun, gott innsæi, sterkt sjötta skilningarvit og alemnnt óvenjulega og hæfi- leikan'ka hugsun. Skipulagsgáfa í öðru lagi hefur þú góða skipu- lags- og stjórnunarhæfileika. Það táknar að þú getur m.a. starfað sem verkstjóri eða skipuleggjandi í margs konar * félagslegu starfi. Afneitun Þegar sterkar mótsagnir eru f korti þínu eins og þínu, tog- streita á milli ábyrgðar og frelsisþarfar, er hætt við að öðrum þættinum sé afneitað. Það ættir þú að varast og reyna að þroska báðar hliðar. Takast á við ábyrgð og skapa þér ör- yggi en á þann hátt að fjöl- breytni og hreyfanleiki sé fyrir hendi. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 55 GRETTIR X-9 OHof SKo/' 6K£6ó sf/rr. O&SMUS /■ ’y&rfjaR/M £/&/7as////*&, þÓ TRÚIR- tVl KANNS<I EK-KI. SR&ttik, em éq er sÉRneÆP INGUR. i PWÍ AÐ SP/\ ! KAFTFI - KORG t>, XA. ÉG sé HÉie A'Ð þo MUNT LlFA LÖNK3U ÖG HAMIMGJUSÖMO / LÍFI. EISAMDI t>IMM EC.SÓE>L>R / OG Gtöfull, os Þó tvtuMT B&njf FARA i' FERÐALAgy 12-19 ©1985 United Feature Syndicate.lnc. EIMHUEfejAR.), ÖÆT1 ÉG . SPURMINGAR?)' FEMGlE? ) KjbtCÖIE? \ MITT AFTVJR/. !!!!!!!l!l.!!!l!!‘!l.!!!!!!!!”!!!l.!!!!!!!!!!!!i!i!!l.!!l.!!!,!l"!l?!IIIIIMI11"11 DRATTHAGI BLYANTURINN UOSKA FERDINAND SMAFOLK I missyoumoreeach day. I love you more than words can say. I CAN ALWAY5 FILL .TMAT IN LATER.. I $ Eg sakna þín meira með Þetta er fallegt, en hverj- liverjum degi. Ég elska um ertu að skrifa? þig heitar en orð fá lýst. Það get ég alltaf fyllt út seinna_____ BRIDS Þeir spilarar eru til sem sleppa engu tækifæri til að hringsvína í lit. Þeir vita vissulega að líkurn- ar á vel lukkaðri hringsvíningu eru helmingi lakari en á ein- faldri svíningu, en það er bara svo gaman þegar snúningurinn gengur upp. Þetta viðhorf á fyllilega rétt á sér, því þegar allt kemur til alls spila menn brids sér til skemmtunar. Og hafi ménn gaman af að tapa, þá er það þeirra mál — og makkers. En stundum er tilefni hringsvíninga allt annað. Norður gefur; NS á hættu. Norður ♦ D1092 VD95 ♦ Á64 ♦ Á94 Vestur ♦ 54 ♦ 10842 ♦ D73 ♦ 6532 Suður Austur ♦ 63 ♦ ÁKG6 ♦ 10852 ♦ ÁKG87 + K87 ♦ 73 ♦ KG9 ♦ DG10 Vestur Norður Austur Suður Vestur Norður Austur Suður — Pass Pass 1 spaði Pass 3 spadar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Vestur spilar út litlu hjarta og austur tekur þar tvo slagi á gosa og ás og spilar svo kóngn- um, sem suður trompar. “ Sagnhafi tekur næst tromp and- stæðinganna og svínar svo fyrir laufkónginn. Svíningin mis- heppnast og austur spilar sig út á laufi. Vömin hefur fengið bókina og örlög samningsins ráðast nú af því hvernig sagnhafi verkar tígulinn. Að öllu jöfnu er best að taka ásinn og svína svo gos- anum. En í þessu tilfelli er það kolvitlaus spilamennska. Austur hefur sýnt ÁKG í hjarta og laufkóng — samtals 11 punkta. Með drottninguna í tígli til viðbótar ætti hann vakn- ingu. En við munum að hann passaði í upphafi, svo það er tæplega hægt að eigna honum tíguldrottninguna. En tíuna getur hann átt. Hér er því hringsvíning eini mögu- leikinn. Tígulgosanum er spilað með því hugarfari að láta hann rúlla ef vestur setur lítið. Ef vestur leggur á, er drepið á kóng og níunni svínað til baka. SKAK Það getur hefnt sín að vera ekki vel heima í skáksögunni, eins og þessi mikilvæga skák frá Ólympíumótinu í Dubai sýnir: Hvítt: Nunn (Englandi), Svart: Sokolov (Sovétríkjunum), Sikil- eyjarvöm. 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rc6, 5. Rc3 — a6 , 6. Be2 — d6, 7. Be3 - Dc7, 8. f4 - Ra5? (Þetta afbrigði hefur verið talið vafasamt allt frá 1935 þegar Lasker vann Pirc glæsilega á hvítt.) 9. 0-0 Rc4, 10. Bxc4 — Dxc4, 11. f5! — Be7 (Fyrrnefnd skák tefldist 11. — Rf6, 12. fxe6 — fxe6, 13. Hxf6! — gxf6, 14. Dh5+ - Kd8, 15. Df7 - Be7T~ 16. Rf5 og hvítur vann.) 12. Dg4 — h5, 13. Df3 - Bf6, 14. fxe6 — fxe6, 15. e5! — dxe5, 16. Re4 — Dc7, 17. Dg3 - Re7, 18. Hadl - h4, 19. Rxf6+ - gxf6, 20. Dg7 - Hf8, 21. Hxf6 - Hxf6, 22. Dxf6 - Dd6, 23. Bg5 — exd4, 24. Hxd4 — Rd5 25. Hxd5! og Sokolov gafst upp. Frábær skák hjá Nunn, En Sok- olov var óvenju léttvægur fundinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.