Morgunblaðið - 14.12.1986, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
Sá siður er orðinn algengur
hér á landi að bjóða upp á jóla-
glögg í desember. Þessi siður
mun vera kominn frá Svíum, en
er mjög algengur á hinum Norð-
urlöndunum, og að sjálfsögðu
er hann kominn til Norðurlanda
fjær, svo sem íslands. Hvort
þessi siður er heppilegur eða
ekki, skal ósagt látið, en eitt er
víst að hann er mjög vinsæll.
Fyrirtæki bjóða upp á jólaglögg,
skólar halda hátíð með jóla-
glöggi, klúbbar hafa jólaglögg
o.s.frv. Þetta er yfirleitt mjög
ljúfur drykkur og því mikið
drukkið af honum, og þótt hann
sé yfírleitt ekki, mjög áfengur,
er þó áfengismágn yfírleitt það
mikið, að menn verða að gæta
sín, en því miður éru sumir órag-
ir við að keyra bflinn heim á
eftir. Raunar skil ég ekki hvers
vegna þessi drykkur þarf endi-
lega að vera áfengur. Hægt er
að bjóða upp á heitan óáfengan
drykk í staðinn, enda eru þeir
alltaf nokkrir sem ættu að láta
sér hann nægja, auk þess sem
bömin vilja gjaman vera með.
Þessi heiti, kryddaði drykkur,
jafnt áfengur sem óáfengur er
hressandi á köldum vetrardegi,
og gaman að bjóða hann með
smákökum, hnetum og rúsínum
í skál eða þá eplaskífum eins
og Danir gera. En ekki eiga all-
ir eplaskífupönnu, og er gott að
hafa góðar þykkar lumrnur með
þessum drykk, en þær ættu all-
ir að geta bakað.
Ekki er nauðsynlegt að nota
dýrustu tegundir af víni í jóla-
glögg. Það er kryddað og því
þarf bragðið ekki að vera eins
fínt og ef vínið er drukkið hreint.
í Þýskalandi er búið til dýrt
og fínt vín úr vínberjum, sem
eru uppskorin frosin, en þannig
em þau pressuð í flýti og aðeins
verða eftir frosnir vatnskristall-
ar, og himnan utan af berjunum.
Aftur á móti verða eftir sæt
efni, sýrur og safar í fljótandi
formi, og það er einmitt það sem
er svo eftirsóknarvert. Vínberin
em látin hanga á tijánum og
bíða frosts, og ef vínbændur em
svo heppnir að frostið kemur á
jólanótt, er það dýrasta vínið
sem þá fæst. Þetta vín er kallað
ísvín, og það vín sem pressað
er á jólanótt nefnist einfaldlega
Jólanóttarísvín eða Kristsvín í
Þýskalandi. Nóg um það. Það
að lyfta glasi og bjóða gieðileg
jól er ekki alveg nýr siður. Hann
var stundum meðal víkinga, sem
við miðsvetrarhátíð dmkku
Jólaskál" og óskuðu hver öðmm
árs og friðar.
Jólaglögg
1 magnum (IV2 lítri) rauðvín
1 flaska (3 pelar) portvín
2 dl kláravín
2 kanilstengur
5 heilar kardimommur
7 negulnaglar
100 g molasykur
100 g rúsínur
50 g möndlur
rifínn börkur af 1 appelsfnu
1. Setjið kláravínið í kmkku
með loki. Setjið kanilstöng,
komin innan úr kardimommun-
um og negulnagla út í og látið
standa þannig yfír nótt.
2. Setjið Vs hluta portvínsins
í aðra kmkku með loki. Setjið
rúsínumar út í og látið standa
yfír nótt.
3. Hellið rauðvíninu í pott
ásamt molasykri. Hitið vel, en
látið ekki sjóða. Hrærið í þar til
sykurinn er bráðnaður.
4. Hellið brennivíninu út í
gegnum sigti, en takið kiyddið
úr og setjið í grisju, bindið fyrir
og setjið út í pottinn. Látið þetta
vera við ísnarpan hita í 20
mínútur.
5. Setjið portvfnið ásamt
rúsínunum út í, einnig það
portvín sem þið skilduð eftir.
Látið vera áfram við fsnarpan
hita í 10 mínútur. Takið krydd-
pokann út og fleygið.
6. Hellið sjóðandi vatni á
möndlumar. Látið standa í 10
mínútur. Afhýðið þær sfðan og
skerið langsum í stórar ræmur.
7. Hellið glögginu í púnsskál,
stráið rifnum appelsínuberki yfír
ásamt möndlum og berið fram.
Athugið: Hægt er að sleppa
kláravíninu, en setja þá kryddið
í grisjunni beint út í heitt rauð-
vínið og hita með því. Þetta
glögg er þræiáfengt og er ekki
ætlast til að það sé þambað.
Raunar á aldrei að drekka mikið
af glöggi.
Jólag-lög-g- fyrir börn
1. dós „Lindavia" rifssafi (Jo-
hannisbeere)
1 dós „Lindavia" eplasafí (Apfel-
saft)
2 msk. hunang
10 mýrarber (Cranberries) fást
fersk eða frosin
1 kanilstöng
5 negulnaglar
V2 dl rúsínur
1 flaska 7-up (millistærð)
1 appelsína í örþunnum sneiðum
1. Setjið rifssafa, eplasafa og
hunang í pott.
2. Bijótið kanilstöngina, setjið
hana ásamt negulnöglum í
grisju og stingið ofan í safann.
3. Seljið mýrarberin saman
við. Látið sjóða við hægan hita
í 10—15 mínútur. Setjið rúsínur
út í þegar tíminn er hálfnaður.
Látið sjóða upp.
4. Takið kryddpokann upp úr
og fleygið, en hellið hinu í skál.
5. Setjið 7-up út í.
6. Skerið appelsínuna í ör-
þunnar sneiðar, hendið enda-
sneiðunum. Sefjið sneiðarnar
ofan á skálina og berið fram.
Athugið: Hægt er að nota
annan eplasafa og einnig má
nota krækibeijasafa í stað rifs-
safans. Yfírleitt er ekki sett gos
út í glögg, en bömum fínnst það
betra, auk þess kælir það drykk-
inn, en böm vilja ekki drekka
mjög heita diykki.
Næstu 2 drykkir em úr nýút-
kominni bók minni „220
gómsætir ávaxta- og beijarétt-
ir“.
Ananasdrykkur
(óáfengur)
10 glös
1 hálfdós kurlaður ananas
1 msk. kókosijómi (cream of
coconut) fæst víða í krukkum
1 biti sultaður engifer eða 4
bitar sykraður. Sultaður engifer
(stem ginger) fæst í matvöm-
verslunum en sykraður í hnetu-
búðum.
1 sítiúna út í drykkinn
4 flöskur engiferöl (ginger ale)
1 sítróna í sneiðum til að setja
á barm glasanna
nokkrir ísmolar.
1. Notið blandara, en ef þið
eigið hann ekki, er hægt að
nota hrærivél.
2. Opnið dósina, hellið inni-
haldi hennar f blandara.
3. Afhýðið sítrónuna, þannig
að hvíta himnan fari af. Skerið
síðan aldinkjötið upp úr laufún-
um með hnífí. Setjið saman við
ananasinn.
4. Saxið engiferinn smátt og
setjið saman við ávextina. Setjið
kókosijóma út í og hrærið vel
saman.
5. Setjið ísmolana í stykki og
sláið á með kjöthamri þannig
að ísinn myljist smátt. Setjið
síðan ísinn í blandarann.
6. Setjið engiferöl út í og
hrærið saman.
7. Hellið strax í glös, skerið
sítrónuna í sneiðar, skerið síðan
rauf í sneiðamar og smeygið
upp á glasbarminn.
8. Setjið teskeið í hvert glas
og berið fram.
Appelsínu/kaffi-
drykkur (áfengur)
10 bollar
1 stór appelsína
15 g smjör (1 smástykki)
V* dl strásykur (45 g)
1 peli appelsínulíkjör
1 peli brandy
1 lítri sterkt heitt kaffí
1 peli ijómi
1. Afhýðið appelsínuna mjög
þunnt í hring, þannig að mjóir
vafningar myndist úr berkinum.
Kreistið síðan appelsínuna.
2. Bræðið smjör ásamt sykri,
gætið þess að það brenni ekki.
3. Hellið appelsínusafa, líkjör
og brandý út í pottinn og hitið
að suðu.
4. Hitið sterkt kaffí, hellið út
í pottinn. Hellið síðan drykknum
í púnsbolla eða venjulega kaffí-
bolla.
5. Þeytið ijómann og skiptið
ofan á bollana.
6. Setjið vafíiing úr berkinum
ofan á drykkinn, og látið lafa
út yfír barminn.
7. Berið strax fram.
BORHIN VEUA
pkwmobll
TOmSTUDDRHUSID HP
LcugauegilBI-ReqfciDuil: s-21201