Morgunblaðið - 14.12.1986, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
67
Hann stóð á einni löpp á sætinu
og teygði hina aftur fyrir sig. „Eg
sagði þijú orð í viðbót við áhættu-
manninn: Þú ert rekinn."
Ofbeldi er annað sem Newman
þolir ekki. Sally Field minnist þess
að á meðan á tökum Absence of
Malice stóð átti hann í miklum erfið-
leikum þegar hann átti að slá hana
niður og rífa blússuna hennar.
„Hann reyndi alltaf að svindla á
því.“ Newman tekur ekki til mála
að leika í kvikmynd sem inniheidur
það sem hann kallar hugsunarlaust
ofbeldi og hafnaði meira að segja
aðalhlutverkinu í hinni vinsælu æf-
intýra-gamanmynd, Romancing the
Stone (Æfmtýrasteinninn).
En hann er mikið fyrir hverskyns
glens og gamanmál. Einu sinni lét
hann saga skrifborð George Roy
Hills í tvennt og á meðan á tökum
myndarinnar Buffalo Bill and the
Indians (Buffalo Bill og indjánamir)
stóð lét hann dýfa hreindýraskinns-
hönskum leikstjórans, Robert
Altmans, í eggjahræru og brauð-
rasp og setja á borð fyrir Altman
í hádegismatnum.
Af fáu hefur þó Newman meira
gaman en því þegar fólk segir hon-
um að það kunni ekki við leik hans
eða pólitík en því þyki maturinn
hans góður. Hann hefur grætt níu
milljón dollara á m.a. salatsósu, sem
hann á heiðurinn að og er framleidd
undir heitinu Newman’s Own,
ásamt öðru góðgæti en meðeigandi
hans í fyrirtækinu er rithöfundurinn
A.E. Hotcher. Allur ágóði rennur
til líknarstarfa. Hann lét ramma inn
bréf sem hann fékk sent frá Mich-
ael Sullivan í Rancho Cordova í
Kaliförníu, sem hrósar honum fyrir
Newman’s Own spagettísósuna.
„Kærastan mín minntist á að þú
værir kvikmyndastjarna," stóð í
bréfinu, „og ég hefði áhuga á að
vita hvað þú hefur leikið. Ef þú
leikur eins vel og þú kokkar ætti
að vera þess virði að sjá myndimar
þínar.“ Svo stóð E.S.: „Eru ein-
hverjar af myndum þínum til á
myndböndum?"
„Newman hefur unun af að
Ur Gildrunni (The Sting).
skemmta sér,“ segir Redford og
minnist þess hvað hann er fljótur
að ijúka úr einu í annað. „Hann
hefur ámóta þolinmæði og elding."
I iðnaði sem er sífelldum breyt-
ingum og duttlungum undirorpinn
hefur Newman haldið stöðu sinni
sem stórstjama í þijá áratugi. En
það er aðeins núna sem honum
finnst hann vera upp á sitt besta
og vill að litið verði á sig sem leik-
ara en ekki kvikmyndastjörnu.
Honum finnst óþægilegt að fást við
frægðina. Vinur hans Hotcher
minnist þess að á góðgerðarsam-
komu í Westport þar sem Newman
var að útdeila púnsi hafi einn
styrktarmeðlimurinn beðið hann að
hræra í glasinu sínu með puttanum.
„Með ánægju," sagði leikarinn, „en
ég var að taka hann úr blásým-
flösku rétt í þessu."
Frægð Newmans á ýmislegt
sameiginlegt með þeirri athygli sem
Hollywood-stjörnur fjórða áratug-
arins nutu. Kannski saga vinar
hans, rithöfundarins Gore Vidal,
lýsi því best. Hann fór í ferðalag
til Gobieyðimerkurinnar í Mongólíu
fyrir tveimur ámm að safna efni í
skrif sín. „KGB-maður frá utanrík-
isráðuneytinu, sem fylgdist með
mér, spurði hvort hann mætti tala
við mig í einrúmi því hann hafði
svolítið mjög sérstakt að tala um,“
segir Vidal. „Þegar við vomm orðn-
ir einir, hvíslaði hann: „Hversu hár
er Paul Newman virkilega?”
Þessi óskaplega frægð hefur
áhrif á allt í kringum Newman,
persónuleika hans, lífsstíl, vinskap
og fjölskyldutengsl. „Stundum
finnst manni þetta ömurlegt," segir
Susan, elsta dóttir hans, en hún er
33 ára og ein af fimm dætram leik-
arans. „Hvenær sem er getur það
komið fyrir, kannski þegar maður
hefur ekki séð gamla manninn í ár,
að maður ætlar að reyna að segja
honum eitthvað sem skiptir máli en
þá hefur fólk hópast um hann hróp-
andi: „Paul, Paul,“ skrifaðu hér.
Og ef hann gefur ekki eiginhand-
aráritun er hrópað: „Mig langar
aldrei til að sjá neina mynd með
þér aftur.“
Hann er næstum alltaf kurteis
meira að segja þegar mjög er þrengt
að honum eins og kvöld eitt síðasta
sumar í Fond du Lac í Wisconsin.
Hann var að fá sér drykk fyrir
svefninn á hótelbamum með félög-
um sínum úr kappakstrinum. Á
skömmum tíma birtust hundmð
manns á bamum og allt í kringum
hann. Flassljós spmngu og fólkið
kallaði til Newmans að „líta vel út
fyrir myndavélina". Þetta var sena
sem minnti á mynd meistara Hitch-
cocks, Fuglarnir. Kona í svörtum
kvöldkjól braust í gegnum mann-
þröngina og kraup við stól
Newmans. „Hæ, Paul,“ sagði hún
og lagði glasið sitt við glasið hans.
„Segðu mér hvernig gekk í kapp-
akstrinum í dag.“ Hann sagði henni
það ljúfmannlegur að hlutimir
hefðu gengið vel fyrir sig en að
hann þyrfti nú að fara upp í her-
bergið sitt að sofa. Þegar hann stóð
upp og fór, skellti konan sér í stól-
inn hans, snéri sér að vinum hans
og spurði: „Er hann alltaf svona
ókurteis?"
„Það, sem er verst við þessa
ímynd kyntáknsins, er að það em
rithöfundar sem skapa þessar kyn-
þokkafullu, glæsilegu og aðgangs-
hörðu persónur sem má vera að
hafi ekkert að gera með hvemig
þú ert sjálfur. Þú ert ekki alltaf
með Tennesse Williams með þér til
að skrifa fyrir þig glæsilegar setn-
ingar."
Honum finnst að með ámnum
hafi línumar á milli hlutverka hans
og persónuleika tekið að óskýrast.
„Það kemur að því að auðveldara
er að leika mllu sem fólk þekkir
og er viðurkennd á tjaldinu en að
leika sjálfan sig . . . Þú átt svo
mikið í hlutverkunum sem þú leik-
ur. Stundum verðurðu að stoppa
og hugsa hvort þú ert að leika sjálf-
an þig eða einhvem annan. Vildi
hinn raunvemlegi Dustin Hoffman
gjöra svo vel og standa upp? Hvar
er Jack Nicholson? Hvar er Marlon
Brando? Ég hef ekki hugmynd um
hveijir þessir náungar em í raun-
inni. Veist þú það?“
En hvemig náungi er svo New-
man. Kannski saga sem hann sagði
blaðamanni The New York Times
varpi nokkm ljósi á það. Nýlega
var leikarinn á labbi eftir Fimmtu
götu þegar hann sá hvítklædda
konu, sem vakti talsverða athygli
vegfarenda. „Virkilega glæsileg.
Menn sném sig úr hálslið til að sjá
betur." Augu þeirra mættust andar-
tak og Newman gekk áfram út að
Lexington-götu og nam staðar við
glugga að fomgripaverslun. Það
snart einhver öxlina á honum. Það
var hvítklædda konan. Hún skýrði
honum frá því að hún væri gleði-
kona en fyrir hann þyrfti það ekkert
að kosta. Hún beið eftir svari. Og
beið svolítið meira.
Leikarinn, sem þekktur er fyrir
hvað hann er kaldur og rósamur,
blóðroðnaði af feimni. „Maður
hugsar um hvemig maður mundi
leika eitthvað eins og þetta. Helst
vildi maður segja eitthvað sniðugt
og töfrandi við hana, eitthvað eins
og Cary Grant eða Clint Eastwood
myndu segja. Hvemig ætli Hombre
mundi snúa sér í þessu, hugsar
maður. Og hvað ætli hafi gerst
þegar þessi kona kom upp að mér
— manninum sem lék Hud? Það
varð algjört Laurel og Hardy-
númer. Það eina sem ég gat gert
var að tvístíga í ofboði og hlykkjast
eins og ormur á öngli."
(Unnið úr The New York Times.)
— ai.
________Brids__________
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Húnvetn-
ingafélagsins
Hjá deildinni stendur yfir tveggja
kvölda einmenningur og er spilað á
sömu spil í tveimur 16 manna riðl-
um.
A-riðill:
Guðmundur Magnússon 253
Kristín Jónsdóttir 239
Guðni Skúlason 239
B-riðill:
Lárus Pétursson 264
Kári Siguijónsson 259
Jean Jensen 238
Meðalskor 210
Keppninni lýkur á miðvikudag-
inn. Spilað er í Félagsheimili
Húnvetningafélagsins kl. 19.30.
Aðalsveitakeppnin hefst 7. jan-
úar 1987.
Bridsdeild Breiðfirð-
ingafélagsins
Að loknum 14 umferðum af 19
í aðalsveitakeppni félagsins er staða
efstu sveita þannig:
Sveit Matthíasar Þorvaldssonar 279
. \
Sveit Hans Nielsens 278
Sveit Ingibjargar Halldórsdóttur
270
Sveit Birgis Sigurðssonar 268
SveitGísla Víglundssonar 249
Sveit Sigmars Jónssonar 235
Sveit Arnar Scheving 233
Sveit Jóhanns Jóhannssonar 231
Sveit Elísar Helgasonar 227
Sveit Magnúsar Halldórssonar 216
Athygli spilara er vakin á því að
næsta fímmtudagskvöld verður
spilaður eins kvölds jólatvímenning-
ur. Spilamennska hefst kl. 19.30.
Bridsfélag
Haf narfjarðar
Sl. mánudag fengu félagar -í BH
að reyna sig við valkyijumar úr
Bridsfélagi kvenna og var viður-
eignin háða alls 10 borðum.
Skemmst er frá að segja að barátt-
an um impana varð bæði löng og
ströng en úrslit urðu á eftirfarandi
vfcgu:
(Gestimir taldir á undan.)
Borð:
1. Gunnþórunn Erlingsdóttir —
Ólafur Gíslason 10—20
2. Alda Hansen —
Kristófer Magnússon 10—20
3. Aldís Schram —
Kristján Hauksson 13—17
4. Guðrún Halldórsdóttir —
Erla Siguijónsdóttir 12—18
5. Ester Jakobsdóttir —
Sigurður Lámsson 13—17
6. Sigrún Pétursdóttir —
Ólafur Torfason 9—21
7. Lovísa Eyþórsdóttir —
Einar Sigu rðsson 12— 18
8. Ólafía Þórðardóttir —
Þórarinn Sófusson 7—23
9. Elín Jóhannsdóttir —
Árni Hálfdánarson 13—17
10. Halla Ólafsdóttir —
Karl Bjarnason 15—15
Þó svo að BH ynni sigur á flest-
um borðum, vom úrslit mjög tvísýn
og réðust í flestum leikjunum ekki
fyrr en á síðustu spilunum. Stjórn
BH vill þakka kvenfólkinu heim-
sóknina og er þegar hafin vinna við
uppstillingu sveita fyrir næsta ár.
Nk. mánudag em 9. og 10. um-
férðimar í sveitakeppninni á spila-
áætlun og sennilegast ráðast
úrslitin í keppninni það kvöldið.
BHjólastórmót
Jólastórmót BH í tilefni af 40
ára afmæli félagsins og með stuðn-
ingi Sparisjóðs Hafnarfjarðar
verður haldið í Flensborg þann 27.
desember nk.
Spilaður verður tölvuvæddur
Mitchell og hefst spilamennskan kl.
13.00 og lýkur kl. 17.30. Þrenn
verðlaun verða veitt í hvora átt,
alls að upphæð 62 þúsund krónur.
Spilagjald er 1.000 krónur á par-
ið og þátttöku á að tilkynna til
Ingvars í s. 50189 og Kristjáns í
s. 50275.
Vissara er að vera tímanlega í
því að tilkynna þátttöku, en tekið
er við skráningum allt til upphafs
keppninnar, þ.e.a.s. á meðan hús-
rúm leyfir.
Úrslit í Reykjavíkur-
mótinu í tvímenningi
Urslit í Reykjavíkurmótinu í
tvímenningi 1986 verða spiluð í
Hreyfils-húsinu v/Grensásveg um
þessa helgi. Spilamennska hefst kl.
13 á laugardag og á ný kl. 10 árdeg-
is á sunnudag. Alls keppa 20 pör
til úrslita og verða spiluð 95 spil,
eftir barometer-fyrirkomulagi, allir
v/alla.
Eftirtalin 20 pör keppa til úrslita
(töfluröð):
1. Gissur Ingólfsson
— Gísli Steingrímsson.
2. Anton R. Gunnarsson
— Friðjón Þórhallsson.
3. Isak Örn Sigurðsson
— Ragnar Hermannsson.
4. Magnús Ólafsson
— Páll Valdimarsson.
5. Karl Logason
— Svavar Björnsson.
6. Aðalsteinn Jörgensen
— Ásgeir P: Ásbjörnsson.
7. Þorlákur Jónsson
— Þórarinn Sigþórsson
8. Björn Eysteinsson
— Guðm. Sv. Hermannsson.
9. Jón Baldursson
— Sigurður Sverrisson.
10. Ragnar Magnússon
— Valgarð Blöndal.
11. Steingrímur Steingi'ímsson
— Örn Scheving.
12. Guðlaugur R. Jóhannsson
— Örn Arnþórsson.
13. Hrólfur Hjaltason
— Oddur Hjaltason.
14. Jón I. Björnsson
— Kristján Lilliendahl.
15. Hermann Lámsson
— Ólafur Lárusson.
16. Ingvar Hauksson
— Sverrir Kristinsson.
17. Jakob R. Möller
— Stefán Guðjohnsen.
18. Hörður Arnþórsson
— Jón Hjaltason.
19. Guðmundur Páll Arnarson
— Símon Símonarson.
20. Jónas P. Erlingsson
— Kristján Blöndal.
Varapör em: Ásmundur Pálsson
— Jón Ásbjörnsson og Jón Páll Sig-
uijónsson og Sigfús Örn Ámason.
Bridssamband
Reykjavíkur
Skráning í Reykjavíkurmótið í
sveitakeppni, sem jafnframt er úr-
tökumót fyrir íslandsmótið í sveita-
keppni 1987, er hafin. Hægt er að
skrá sveitir hjá öllum félögunum í
Reykjavík (sem aðild eiga að BSÍ)
fram til jóla, en yfír nýárið og fram
til mánudagsins 5. janúar er hægt
að skrá sveitir beint til Ólafs Láras-
sonar (á skrifstofu BSÍ eða heima).
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni
hefst svo miðvikudaginn 7. janúar,
væntanlega í Sigtúni 9 (nýja hús-
næðinu). Spiladagar mótsins verða
þessir. Miðvikudagur 7. janúar,
fímmtudagur 8. janúar, miðviku-
dagur 14. janúar, laugardagur 17.
janúar, sunnudagur 18. janúar,
þriðjudagur 20. janúar, laugardag-
ur 24. janúar, sunnudagur 25.
janúar, laugardagur 31. janúar og
sunnudagur 1. febrúar. Þetta em
alls 10 spiladagar, en óvíst er hvort
þörf er fyrir þá alla (miðast við
þátttöku hveiju sinni).
Fyrirkomulag verður með sama
sniði og sl. ár, þ.e. allir v/alla 16
spila leikir í undanrásum og 6 efstu
í úrslit. Þær sveitir sem komast í
úrslit, taka með sér stigin í inn-
byrðis viðureignum og gilda þau
sem fyrri hálfleikur í úrsiitum,
þannig að í úrslitum spila sveitirnar
16 spil til viðbótar, allir v/alla.
13 efstu sveitirnar komast síðan
á íslandsmót, sem er óvenju stór
„kvóti" fyrir Reykjavík. Það þýðir
að möguleikar spilara á að komast
í íslandsmótið að þessu sinni, em
mjög góðir. Keppnisgjaldi verður
stillt mjög í hóf. Spilað er um silfur-
Stig.
Itrekað er, að þátttaka er öllu
spilaáhugafólki opin.
Bikarkeppni Bridssambands
Reykjavikur hefst einnig í janúar.
Þar verður ca. mánuður milli leikja
í hverri umferð. Þetta er ný keppni
sem er að fara af stað. Keppnis-
gjaid aðeins kr. 3.200 pr. sveit og
spilað um afar góð verðlaun, auk
silfurstiga.