Morgunblaðið - 14.12.1986, Qupperneq 81

Morgunblaðið - 14.12.1986, Qupperneq 81
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 81 Fá leikrit komast óbrjá- luðyfirá bíótjaldið, en Mike Nochols tókstað gera „Hver erhræddur við Virginíu Woolf?‘‘eft- ir Edward Albee að eftirminnilegri kvik- mynd. Elizabeth Taylor og Richard Burton voru í aðalhlutverkum. William Mastrosimone, höfundur leikritsins „Extremities", telur að áhrifamenn mnan Hollywood séu að snúa sér aftur að leikritum þar sem þeir heyri loks tómahljóðið í myndunum sem þeir hafa gert; enn- fremur að þeir viðurkenni loks að leikrit er byggt á persónum en ekki hraðri atburðarás eins og filman. „Extremities" var kvikmyndað ný- lega af Robert Young með Farrah Fawcett í aðalhlutverki, en hún vex sem leikkona með hverri mynd. Mastrosimone heldur áfram: „Þeir sem skrifa handrit fyrir kvikmyndir hugsa meira um atburði heldur en persónur, þeir halda að persónur séu vélmenni sem megi skjóta inn í hvaða absúrd-sögu sem er. Þessir menn fara aftan að hlutunum. Leik- ritahöfundar hugsa ekki þannig. Hollywood er loks að átta sig. Verðug verkefni fyrir mikla leikara Ein veigamesta ástæðan fyrir óvæntum áhuga áhrifamanna í Hollywood fyrir leikritum er sú að stjömumar svokölluðu, frægu leik- aramir, sjá mikla möguleika fyrir sjálfa sig í þessum sviðsverkum. Þeir eru metnaðarfullir sumir hverj- ir og vilja takast á við bitastæð verkefni. Það var ekki fyrr en Sissy Spacek sá „nótt, móðir" á Broadway að það kom til greina fyrir kvik- mynd. Spacek sagði umboðsmanni sínum að hún hefði áhuga á að leika dótturina; stuttu síðar var kvik- myndarétturinn keyptur. „Leikrit fjallar um fólk, flóknar persónur, manneskjur sem iða af lífi og því sækjast stjömumar eftir leikritum," segir Marsha Norman, sú sem samdi „nótt, móðir". Hún telur að venjulegar kvikmyndir veiti stjömunum ekki þessi nauðsynlegu hlutverk. Leikritahöfundurinn Lanford Wil- son bendir á að flestir kvikmynda- leikarar séu um það bil sautján ára og þvi sé ekki úr miklu að moða fyrir gamlingjana, sem komast á elliheimili um þrítugt. Það verði að veita reyndu leikuranum efni við þeirra hæfí. Dustin Hoffman fylltist skelfíngu þegar hann sá hvað kvikmynda- handritin vora farin að þynnast. Hann hvíldi sig á bíómyndum eftir „Tootsie" en sneri sér að leikhúsinu, dustaði rykið af „Sölumaður deyr“, fjöratíu ára gömlu snilldarverki eft- ir Arthur Miller og fílmaði það síðan fyrir sjónvarp undir handleiðslu þýska leikstjórans Volker Schiönd- orff. Það var 1984 og þykir kvikmyndaútgáfan stórmerkileg enda nutu Hoffman og Schlöndorff ómetanlegrar aðstoðar höfundarins sjálfs. Dustin Hoffman segin „Ég gerð- ist leikari ungur maður til að komast á Broadway. Ég gekk í leiklistar- skóla og við bekkjafélagamir stúderaðum mörg góð leikrit, völd- um sérstakar senur við okkar hæfí, en við fengum aldrei að leika þau opinberlega. Ég gafst upp og sneri tnér að kvikmyndaleik. Én þar með lagði ég til hliðar gnótt snilldarverka sem kvikmyndaleikarar hunsa ger- samlega. Ég kom því á fomar slóðir þegar ég bytjaði að leika Woily Loman á sviði." Betri ímynd Það skiptir miklu máli að frægir leikarar sýni leikritum áhuga, því þá er auðveldara að fjármagna kvik- fnyndina. Sumar „stórstjömumar" sætta sig jafnvel við lægra kaup en venjulega svo kvikmyndun leikrits geti orðið að veraleika. Venjuleg bíómynd í Bandaríkjunum kostar nú orðið 15 milljónir dala. Margar myndir kosta miklu meira, en þá era það myndir sem höfða til stórs hóps. „A Soldier’s Story“ kostaði ekki nema 6 milljónir dala, „Ama- deus“ kostaði 18 og „A Passage To India" 16, og þykir það afrek út af fyrir sig. Leikritahöfundar fá misjafnlega mikið borgað fyrir kvikmyndarétt- inn að verkum sínum. Beth Henley fékk 1 milljón dala fyrir „Crimes of the Heart", en sú mynd þykir líkleg til vinsælda þar sem ljórir frægir leikarar taka þátt í gerð hennar: Diane Keaton, Sissy Spac- ek, Jessica Lange og Sam Shepard. Mark Medoff fékk 1,4 milljónir dala fyrir „Children of a Lesser God“, enda naut það gífurlegra vinsælda á Broadway. Aðrir verða að sætta sig við miklu lægri upphæðir, mega jafnvel þakka fyrir að einhver sýni verkum þeirra áhuga án þess að borga krónu. En hvað fær fégíraga kvik- myndaframleiðendur til að taka þá áhættu sem alltaf fylgir því að gera kvikmynd eftir leikriti, sérstaklega þegar ekki era mjög miklar líkur á að myndin nái til íjöldans? Svarið er einfalt; þessir menn era að reisa sjálfum sér bautasteina. Menaham Golan og Yoram Globus hjá Cann- on, sem gerir aðallega harðsoðnar hasarmyndir, létu fílma þijú leikrit, „That Championship Season“, „Fool For Love“, og „Duet for One“, til að bæta ímynd sína. Dino De Laur- entiis lét fílma „Crimes of the Heart“ til að geta selt eitthvað ann- að og meira en „King Kong“. Aaron Spelling lét filma „nótt, móðir“ með Sissy Spacek og Anne Bancroft svo að nafn hans tengdist ekki aðeins sjónvarpsfroðu á borð við Miami Vice og Dynasty, framhaldsþáttun- um sem hafa gert hann ríkan. Sitthvað leikrit og- kvikmynd En það er ekki nóg að selja kvik- myndaréttinnn og brosa framan í heiminn. Það er ekki víst að leikrit, hversu gott og merkilegt það er á sviði, komist óbijálað yfír á filmuna, frekar en að sum stórbrotin skáld- verk heimsbókmenntanna komast heilu og höldnu yfír í annað tungu- mál. (Er hægt að snúa Ulysses eftir Joyce yfir á íslensku án þess að nokkuð breytist?) Við höfum mörg dæmi um leikrit sem hafa greinilega verið sundurtætt til að falla að kröf- um kvikmyndarinnar, ekki aðeins kröfum myndavélarinnar heldur einnig smekk þeirra sem myndina gera. Mörg mikilvæg atriði í „Purp- uralitnum" eftir Alice Walker vora strikuð út þegar Spielberg gerði myndina. Og ég leyfi mér að efast um að hægt sé að kvikmynda hug- lægni í skáldverkum eins og í „Töfraij'allinu" eftir Mann eða „Gatsby mikla“ eftir Fitzgerald. Nashymingarnir eftir Ionesco var fílmað fyrir nokkram áram með miður góðum árangri, einfaldlega vegna þess að verkið var samið fyr- ir svið en ekki fílmuna. Þeim, sem skrifa kvikmyndahandrit, era kennd ákveðin vinnubrögð sem samrýmast ekki vinnubrögðum leikritahöfund- arins. Regla númer eitt hjá þeim sem skrifa kvikmyndahandrit er að hafa allt nógu einfalt svo jafnvel pela- böm skilji söguna, myndin má helst ekki vera lengri en 100 mínútur svo myndin geti verið sýnd fimm sinnum á dag, og fleira í þeim dúr. Þannig hugsa ekki sönn skáld. Leikrit byggja á persónum og samtölum, kvikmyndin á hinu myndræna. Þetta kom berlega í ljós þegar „nótt, móðir" var endurskrifuð fyrir kvikmynd. Maðurinn sem fenginn var til að skrifa kvikmyndahandritið skildi ekki byggingu verksins og honum fannst endriinn alltof dapur fyrir bíómynd. Svo að hann vildi láta dótturina lifa. Það skipti hann engu þótt verkið hefði fengið Pulitz- er-verðlaunin. Annað dæmi er þegar „Crimes of the Heart“ var endur- skrifað fyrir kvikmyndina. Textinn var svo rafmagnaðar að bíófólkið áttaði sig ekki á að verkið var drep- fyndið. Þeim fannst það óskiljan- legt. □ BUBBI — FRELSI TIL SOLU „Ég held ég taki ekki of stórt upp í mig þegarég segi að „Frelsi til sölu“ sé músíklega besta plata Bubba til þessa. ÁT—HP „Christian Falk (Imperiet) fer nostursamlegum höndum um Bubba og smekkvísum og er með smexklegar útsetningar og blæbrigðaríkar. AJ—Þjóðv. „Tónlistin fellur vel að efninu, og hljómurinn er með því besta sem ég hef heyrt á íslenskri plötu. Aldrei betri Bubbi“. ÁM—Mbl. „Frelsi til sölu er tvimælalaust besta islenska plat- an sem komið hefur út á þessu ári og að mínu mati ein sú besta sem út hefur komið hér á landi i gegnum árin". SÞS—DV „Frelsi til sölu“ hefur verið lofað af gagnrýnendum og hvarvetna fengið stórkostleg- ar viðtökur. □ IMPERIET — SYND Spennandi plata. Tónlist- armennirnir, sem Bubbi vinnur „Frelsi til sölu" með. Ein fremsta rokk- sveit Evrópu með splúnk- unýja plötu. Imperiet krafmiklir og í góðu formi. Hiklaust þeirra besta verk til þessa. □ LYSTISNEKKJAN GLORIA (KASSETTA + BÓK) Ljóðasnælda no. 2 er komin út. Á þessari snældu lesa skáldin Anton Helgi Jónsson, Björk Guðmundsdóttir, Sjón, Einar Már Guðmundsson, Geir- laugur Magnússon, Steinþór Stefánsson og Þór Eldon úr verkum sínum. Útgáfa, sem gefur vísbendingu um þá grósku og fjöl- breytni, sem ræður ríkjum í íslenskri Ijóðagerð. Ath: Takmarkað upplag. Aðeins 200 útgefnar. NYJAR □Artists For Animals — Madness, Style Council, R. Wyatt o.fl. O Bangles — Diffrent Light □ BAD — No. 10 Upping Street .□ Blue Aeroplane — Tolerance □ James Brown — Gravity □ Kate Bush — The Whole Story □ Eric Clapton — August □ Cocteau Iwins — Victorialand □ Leonard Cohen — Various Position □ E. Costello — Blood And Chocolate (Allar) □ Cure — Seventeen Seconds □ Cure — Faith □ Cure — Three Imaginary Boys □ Dead Kennedys — Frankenchrist □ Depeche Mode — Black Celebration □ Dire Straits — Allar □ Doors — Waiting For The Sun □ Easterhouse — Contenders □ The Edge — Captive □ Einsturzende Neubauten — Halber Mensch □ The Enemy Within — A Touch Of Sunburn D Frankie — Liverpool □ Imperiet — Synd □ Linton Kwesi Johnson — Forces Of Victory □ Grace Jones — Inside Story □ Killing Joke — Brighter Than A Thou- sand Suns □ Richard H. Kirk — Black Jesus Voice O Kraftwerk — Electric Café □ New Order — 1981—1982 O Nico — Camera Obscure □ Klaus Nomi — Simple Man Q Klaus Nomi — Best of □ Klaus Nomi — Klaus Nomi O Anne Pigalle — Everythmg Could Be So Perfect □ Iggy Pop — Blah Blah Blah □ Pet Shop Boys — Disco □ Pretenders — Get So Close □ Propaganda — Secret Wish O REM — Murmur □ REM — Fables Of The Reconstruct- ions □ Paul Simon — Graceland D Smiths — The Queen Is Dead □ Smiths — Meat Is Murder □ Smiths — Hatful Of Hollow □ Springsteen — Live 1975—1985 + flestar stúdíóplötur □ Stranglers — Dreamtime O Stranglers — Over The Beaten Track □ Sting — Bring On The Night □ D. Sylvian — Gone To Earth □ Talking Heads — True Stories O Tina Turner — Break Every Rule □ U2 - Allar O Suzanne Vega — Suzanne Vega O Yello — The New Mix In One Go C SMITHEREENS ESPECIALLY FORYOU Ferskt og tilfinningarikt Bítlarokk, þar sem laglegar laglínur og rifandi gítarleikur bítur hlustandann i eyr- □ STRYPERS - TO HELLWITHTHE DEVIL Rokkarar krossins. Þungarokkssveit i sérflokki. Strypers flytja þungt og kraftmikið rokk sem um leið er melódísktog grípandi. NÝJAR ISLENSKAR: □ New Order — State (ný) O New Order — Perfect Kiss □ New Order — Blue Monday □ New Order — Ceremony □ Smiths — This Charming Man O Smiths — Still III □ Smiths — Heaven Knows l'm Mis- erable O Smiths — How Soon Is Now □ Smiths — That Joke Isn't Funny □ Smiths — The Boy With The Thorn In His Side □ Smiths — Bigmouth Strikes □ Smiths — Panic □ Smiths — Ask (7“) □ Woodentops — Good Thing □ Woodentops — Everyday Living — og margt margt fleira □ Bubbi — Frelsi til sölu □ Megas — I góðri trú □ Megas — Allur □ Stormsker — Lifsleiðin(n) + Hitt er annað mál □ Strax — Strax □ Sinfóníuhljómsveit Islands — i takt við tímann O Að visu — Visnavinir □ Sykurmolar — Einn mol'á mann □ Jól alla daga — Ýmsir Eigum fyrirliggjandi fjölbreytt úrval af alls konar endurút- gáfum, Blues, Jazz, Soul, Rock’n Roll o.fl. o.fl. □ WOODENTOPS - GIANT Sumir segja Woodentops arftaka Smiths. Breskir gagnrýnendur segja plötuna einhverja bpstu plötu ársins Sendum i póstkröfu samdægurs GÆÐA TONLIST ÁGÓÐUMSTAÐ gramm LAUGAVEGI 17 _ SÍMI 31-12040 LAUGAVEGI 17 - SÍMI 91-12040
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.