Morgunblaðið - 17.11.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
31
Skólpdælustöðin við Laugarlæk
Morgunblaðið/BAR
Skólpinu veitt á haf út
NÚ ER verið að vinna að gerð
tveggja skólpdælustöðva í
Reykjavík. Önnur er á mótum
Laugalækjar og Sætúns, hin á
Skúlagötu við Ingólfsstræti.
Laugalækjarstöðin verður tekin i
notkun fljótlega upp úr áramótum
en hin á síðari hluta næsta árs.
Áætlaður kostnaður vegna beggja
stöðvanna er um það bil 120 millj-
ónir króna.
Stöðvamar eru í meginatriðum eins
og annaðist norskt fyrirtæki, A.R.
Reinertsen uDnhafletra skipulagn-
ingu. Arkitekt stöðvanna er Bjöm
Hallsson, bmðarvirki hannaði Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsen en
lagnir að og frá hönnuðu starfsmenn
gatnamálastjóra og verkfræðistofan
Línuhönnun. Verktaki við bygginga-
framkvæmdimar er Hagvirki.
Hrafn Gunnlaugsson:
Gerir drög að framhalds-
þáttum fyrir Nordvision
SÆNSKA sjónvarpið hefur gert
samning fyrir hönd Nordvision
við Hrafn Gunnlaugsson um að
gera drög að framhaldsþáttum
sem gerast á tímum kristnitöku
á íslandi. Honum hefur jafn-
framt verið falið að skrifa
sjónvarpshandrit að upphafs- og
lokaþætti framhaldsmyndarinn-
ar. Hrafn Gunnlaugsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að ef
af því verður að þættirnir verða
gerðir verður þetta eitt viða-
mesta verkefni af þessu tagi á
Norðurlöndum.
Upphaflega fór sænska sjón-
varpið fram á það við Hrafn
Gunnlaugsson að hann gerði drög
að þáttaröð sem gerist á tímum
kristnitöku á íslandi. Síðastliðið
sumar sendi hann þessi drög til
þeirra og í framhaldi af því var
hann beðinn að skrifa sjónvarps-
handrit að upphafs- og lokaþætti
framhaldsmyndarinnar. Fyrirhugað
er að hún verði í sex þáttum og er
áætlað að hver þáttur verði fimmtíu
mínútna langur.
„Þetta er samnorrænt verkefni
sem allar Norðurlandaþjóðirnar
standa að á einhvem hátt, en
sænska sjónvarpið sér um allar
framkvæmdir," sagði Hrafn. „Mér
til aðstoðar við gerð sjónvarps-
handritsins hefur verið Janne Gise,
sem er danskur sérfræðingur í gerð
sjónvarpshandrita. Sú samvinna
hefur gengið afskaplega vel.
Hrafn segist byggja efni þátt-
anna fyrst og fremst á sínu eigin
hugmyndaflugi og einnig á þeirri
sögulegu staðreynd að íslendingar
gerðust kristnir á Alþingi án þess
að úthelt væri mannsblóði. „Það er
mjög sérstakt að þjóð skipti um trú
með lagasetningu og hefur það allt-
af verið mér hugstætt yrkisefni.
Annars er þetta fyrst og fremst
saga um einstaklinga sem eru uppi
á þessum tíma. í bakgrunninum er
kristnitakan sem lýsir þeirri breyt-
ingu sem verður á heimsmynd og
lífí þessara einstaklinga," sagði
Hrafti.
í sumar var hér á landi fólk frá
sænska sjónvarpinu til þess að
fylgjast með tökum á kvikmynd
Hrafns, í skugga hrafnsins, en
sænska sjónvarpið hefur gert heim-
ildarmynd um gerð kvikmyndarinn-
ar.
HEIMSINS BESTU
BÓKMENNTIR
SICILDAH
Áskriftarsími
621720
(Símsvari eftir lokun)
... ■ og
núeru
komnar
AÐEINS SELDAR HJÁ OKKUR
EIGNASTU BÓKASAFN!
7. tölublað er að koma. Áskriftarsími 621720 (símsvari eftir lokun)
TÁKN HF.
Fjölmiðlunar- og kynningarþjónusta
Bókaútgáfa
Klapparstíg 25-27, Reykjavík. Sími 621720
17.100.
FERÐASKR/FSTOFAN /^\
POLAR/S w
Kirkjutorgi4 Sími622 011
i: Hótelið er vel staðsett góðar verslanir og áhugaverðir staðir í næsta nágrenni.