Morgunblaðið - 21.11.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987
33
Nu t.Hiiin oimu.i iiid'o.ituu
IuIkiii j’itnuin |irolilioiuin
AIKI. o t nim iio lulxt .iIIho
liu i Iikui.iiUi'i Vir*’ili11V cnim
tjiu /r;iití ii iiiiiitiii' áflcxtv luc uori
iiiiii.’ii i./u|ii’iit' iitíi’iiiiiiiin ijiitim
ii.i /ii,niliiiiiiiii j’iluu u’ii/iitiiif. B
ly lllli UOtlltl il Pl|A IIIim,'IIlllll’ll.tJ1|
Skólaverkefni Frutigers eru
meðal bestu skriftargrafíkur á
öldinni. í þessari tréristu frá
1951 hallast ekki á milli hand-
verksins og leturformanna
sjálfra.
grannt; hvort tveggja búið til þegar
vel stóð á. „Univers" bauð sex gerð-
ir milli granns og feits, og fjórar
úr mjóu í breitt. Það uppfyllti bæði
kröfur filmusetningar og blýsteypu,
og hliðstætt letur var bæði gert
fyrir kyijáls-stafrófið sem notað er
í Austur-Evrópu og það gríska. Nú
á dögum þykir sjálfsagt að nota
tölvur við að framleiða heilan ætt-
bálk af hverri leturgerð í einu lagi.
„Univers“-vinnuhópurinn varð
frægur fyrir þaulhugsaðar aðferðir
og vann fyrir tveimur áratugum
sama verk og tölvur nú.
Adrian Frutiger hefur þegið
heimboð frá Aco hf. og þriggja sam-
taka, Sambands íslenskra auglýs-
ingastofa, Félags bókagerðar-
manna og Sambands prentiðnaðar-
ins. Fyrirlestur hans slær botninn
í letursamsæti í Norræna húsinu á
þriðjudaginn og bókavinir á íslandi
þakka þeim framtakið.
HOfundur fœst við letur.
Ríkisspítalar 1986:
Skráðir legudagar
rúmlega 347 þúsund
Meðallegutími styttist
Innritaðir sjúklingar á legu-
deildum Ríkisspítala 1986 vóru
17.595 talsins sem er 3,5% aukn-
ing frá 1985. Meðallegutimi
styttist úr 21 degi í 19,7 milli
ára. „Er því augljóst að afköst á
legudeildum Rikisspítala hafa
aukist á árinu 1986 borið saman
við árið á undan,“ segir i nýút-
kominni ársskýrslu Rikisspitala.
Hjartaskurðlækningar hófust á
Landspitala um mitt siðasta ár.
Fjöldi meðferða á dagdeildum
Ríkisspftala var 2.828. Fjöldi ný-
bura á kvennadeild var 2.279.
Rannsóknir á röntgendeild Land-
spítala vóru 38.438.
Skráðir legudagar á Ríkisspít-
ölum vóru 347.346 árið 1986, sem
er 2,8% fækkun frá árinu áður.
Skipulegar lokanir deilda, m.a.
vegna ónógs faglærðs starfsfólks,
vóru svipaðar og árið áður, ef und-
an er skilin ein 23 rúma deild, sem
lokuð var í 9 mánuði. Ef tekið er
tillit til lokunar þeirrar deildar nem-
ur fækkun legudaga 0,9%, en
innrituðum sjúklingum á legudeild-
um fjölgaði hinsvegar um 5%.
Heimiluð stöðugildi á Ríkisspít-
ölum vóru rúmlega tvö þúsund.
Heildarlaunakostnaður nam 1.690
milljónum króna eða 62% heildarút-
gjalda. Rekstrarkostnaður, annar
en laun, nam 945 m.kr. eða 34%
af heildarkostnaði ársins.
Hækkun launakostnaðar, um-
fram verðlagsbreytingar, nam
rúmum 7%. Hún á rætur í nýrri
starfsemi, m.a. hjartaskurðlækn-
ingum, en þær hófust um mitt ár
1986. Skimun á blóði og rannsókn-
ir vegna eyðni höfðu og í för með
sér aukinn kostnað.
Fjögnr listaverkakort
frá Listasafni íslands
ÚT ERU komin hjá Listasafni
íslands fjögur ný litprentuð kort
með eftirprentunum af verkum
íslenskra myndlistarmanna.
Á nýju kortunum eru eftirtalin
listaverk: Bátur á heimleið, 1966,
eftir Gunnlaug Scheving, Uppstill-
ing, eftir Jón Stefánsson, Fólk í
landslagi, 1978, eftir Louisu Matt-
híasdóttur og íslandslag, 1944, eftir
Svavar Guðnason.
Áður hefur Listasafnið gefið út
70 litprentuð kort í sömu stærð og
eru þau flest fáanleg í safninu, seg-
ir í fréttatilkynningu safnsins.
STDK
\cnw\ hreinn
1\WM\\huómur|
Þegar við kynntum árgerð 1988 af FIAT UNO seldist sendingin upp á
fyrsta degi. Nú höfum við aftur fyllt sýningarsal okkar í Framtíð við
Skeifuna af nýjum FIAT UNO bílum og í þrjá daga, 20. 21. og 22. nóv-
ember getur þú komið, skoðað og valið þér bíl beint úr sýningarsal.
Vegna hagkvæmra innkaupa
getum við boðið árgerð 1988 af
FIAT UNO á 319 þús. krónur
Útborgun er aðeins 85 þús.
krónur og eftirstöðvarnar eru
lánaðar í allt að 24 mánuði.
FIAT UNO kom fyrst á markað árið 1984. Sama ár var hann kjörinn
„bíll ársins" í Evrópu. í ár (1987) er FIAT UNO mest seldi bíllinn í Evr-
ópu.* ___________
I FRAMTIÐ VIÐ SKEIFUNA SIMAR: 688850 & 685100
Heimild; Automotive News
F // A T