Morgunblaðið - 21.11.1987, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987
43
ísafjörður:
Salur menntaskólaus
vígður til helgihalds
ísafirði.
SR. SIGURÐUR Guðmundsson,
settur biskup íslands, er væntan-
legur til ísafjarðar þar sem hann
mun vigja altari og blessa sal
Menntaskólans á ísafirði á sunnu-
daginn kemur.
Bjöm Teitsson skólameistari hef-
ur boðið ísafjarðarsöfnuði aðstöðu
þar meðan byggð verður ný kirkja
í stað þeirrar sem brann á síðasta
sumri.
Salurinn hýsir álíka marga og
gamla kirkjan. Þar er verið að koma
fyrir nýjum ræðustól sem Halldór
Sigurðsson útskurðarmeistari
smíðaði, en hann er gjöf frá 60 ára
fermingarbömum frá því í vor. Þá
hefur verið keypt lítið ijögurra
radda orgel frá Þýskalandi og von
er á 150 bólstruðum beykistólum
frá Noregfi.
Vígslan hefst klukkan fjórtán á
sunnudag með því að biskup, sókn-
arprestur og sóknarfólk bera gripi
ísafjarðarkirkju á hinn fyrirhugaða
guðsþjónustustað. Þá vígir biskup-
inn með fyrirbæn altari fyrir
söfnuðinn, ræðustól, skímarfont og
orgel og blessar húsnæðið. Að því
búnu hefst messa þar sem biskupinn
prédikar og gengið verður til altaris.
Að messu lokinni verður svo
kirkjukaffi í borðsal menntaskólans.
— Úlfar
Keypt hefur verið nýtt fjögurra radda pípuorgel frá Tzschöckel í
Þýskalandi. Samskonar orgel hefur um alllanga tíð verið notað til
bráðabirgða i íslenskum kirkjum meðal annars í Hallgrímskirkju í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Þennan ræðustól gáfu 60 ára
fermingarbörn ísafjarðarkirkju
í vor. Halldór Sigurðsson frá
Bæjum smíðaði gripinn. Á milli
merkjanna Alfa og Omega er
greypt skjaldarmerki ísafjarðar.
Ræðustólinn kemur sér nú afar
vel í hinu nýja samkomuhúsi ísa-
fjarðarsafnaðar.
Hinir vammlausu í Háskólabíói
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Hinir vamm-
lausu; leikstjórn Brian De Palma.
Með aðalhlutverk i myndinni
fara Kevin Costner, Robert De
Niro, Sean Connary, Andy Garc-
ia og Charles Martin Smith.
Myndin á að gerast í Chicago á
þriðja áratugnum, tíma kreppu, of-
beldis og spillingar. Chicago er borg
A1 Capone sem er annálaður bófí.
Allar tilraunir til að stöðva vald
hans á skipulagðri glæpastarfsemi
höfðu mistekist og það leiddi til
allsheijar stríðs í undirheimunum.
Fjármálaráðuneytið skipar því
hæglátan og hógværan mann til
að vinna verkið og fyrir valinu verð-
ur Eliot Ness (Kevin Costner). Eliot
þarfnast traustra vina og það eru
írski lögregluþjónninn og hörkutólið
Malone (Sean Connery) og tveir úr
íjármálaráðuneytinu, skyttan Stone
(Andy Garcia) og Wallace (Charles
Martin Smith), gamansamur endur-
skoðandi. Þeir félagar hafa þann
ásetning að bijóta A1 Capone (Ro-
bert De Niro) á bak aftur og hreinsa
til í Chicago, segir í frétt frá kvik-
myndahúsinu.
Minning:
Olína Hjáhnarsdóttír
frá Siglufirði
Fædd 4. ágúst 1923
Dáin 13. nóvember 1987
Ólína Hjálmarsdóttir lést í
Sjúkrahúsi Siglufjarðar að kvöldi
13. nóvember. Dauðinn var sterkari
en lífið í þetta sinn eins og svo oft
áður. En við fráfall mágkonu
minnar er margs að minnast, því
Lína var allt öðruvísi en flestir aðr-
ir. Hún var mjög mikil félagsvera
og starfaði mikið að félagsmálum
á Siglufirði og hún var einhvem
veginn félagi allra sem kynntust
henni. Hún var skemmtileg, vel
greind og var alæta á bækur. Marg-
ar skemmtilegar stundir hefi ég átt
með Nonna og Línu og þau voru
samheldin hjón. Þau áttu mjög
miklu bamaláni að fagna, sem sér-
staklega kom fram í veikindum
móður þeirra. Þegar þau voru að
koma norður, skiptust þau á að
vera hjá móður sinni, það var nú
ekki hægt um vik, þar sem þau em
búin að skapa sér heimili víðsvegar
á landinu. En þau eiga góðar minn-
ingar og það er dýrmæt eign.
Línu verður sárt saknað og hún
er kvödd með þökk og virðingu.
Og vel verður tekið á móti henni
handan við móðuna miklu.
Bróður mínum bið ég allrar bless-
unar og það sama gerir fólkið hans
fyrir sunnan. Systkinunum og öllum
niðjum þeirra biðjum við sömu bæn-
ar, megi Guð varðveita þau öll.
Ásta Jónsdóttir
Nú er dimmt og nú er kalt norð-
ur við heimskaut. Dagurinn er
stuttur og sólin hættir að sjást, og
það er langt í vorið. Lína frænka
er dáin. Hún hafði unnið margar
orrustur, en hún hlaut eins og allir
aðrir að bíða ósigur í síðustu orr-
ustunni. Ef til vill fullkomnast lífið
fyrst í dauðanum — hann er það
sem enginn er lifír getur flúið og
eina vissan í lffinu.
Minningamar hrannast upp; sár-
ar og ljúfar í senn en allar góðar.
í stóm fjölskyldunni okkar á Siglu-
firði var mikið talað og ennþá meira
hlegið, og Lína frænka átti stóran
þátt í því og hún gat meira að segja
gert hvom tveggja i einu, og það
var oft mikill hávaði þegar allir
vom saman komnir í skúmum —
hamingjuhöliinni okkar, því flestir
töluðu hátt og allir hlógu dátt.
Lína frænka var yngst þrettán
bama Kristrúnar Snorradóttur og
Hjálmars Kristjánssonar frá Húsa-
bakka í Aðaldal. Þau fluttu til
Siglufjarðar um miðjan þriðja ára-
tuginn og þá var yngsta bamið
aðeins nokkurra ára og ól því næst
allan aldur sinn í faðmi hárra fjalla
Siglufjarðar og unni þeim firði
ósegjanlega mikið. Fjöllin, sjórinn,
sólarlagið og mannlífíð vom henni
uppspretta ljóða og tilfínninga. Það
var svo ótal margt sem skipti Línu
máli. Hún hafði skoðanir og lét þær
í ljósi, hún vildi hafa áhrif á samtíð
sína, og þess vegna tók hún þátt í
félags- og menningarmálum bæjar-
félagsins síns. Hún var meðal
annars í stjóm verkalýðsfélagsins í
þrjá áratugi, lengst af ritari þess
og hún tók þátt í leikfélaginu.
Tilfínningar Línu frænku vora
ríkar, en hún var ekki alltaf að flíka
þeim. Við sem héldum að við vissum
þær og skildum þær vomm ekki
alltaf öll sátt við hversu djúpt hún
gróf þær á stundum. Og það var
aldrei neitt „vesen“ þegar gera átti
hlutina. Hún Lína frænka var ekki
að hafa áhyggjur af smámunum —
ef til vill fannst sumum það stund-
um jaðra við kæmleysi — en það
var það ekki — það var að kunna
að greina kjamann frá hisminu —
og það kunni hún Lína frænka.
í sumar vom 45 ár síðan Lína
giftist honum Nonna, Jóni Kristni
Jónssyni, Reykvíkingi sem ungur
kom til Siglufjarðar. Þau vom ung
er þau bundust og með ámnum
styrktust böndin og það var sjaldan
að sagt var Lína nema að Nonni
fylgdi á eftir. Síðustu mánuðir hafa
verið Nonna erfiðir en Nonni henn-
ar Línu er enginn meðal Jón. Hann
hjúkraði henni heima nánast fram
á síðustu stundu og hjálpaði henni
að halda þeirri reisn og sjálfsvirð-
ingu sem henni var í blóð borin.
Lína og Nonni eignuðust sex
böm. Eitt dó skömmu eftir fæð-
ingu. Bömin fímm em Kristrún,
búsett á Egilsstöðum, gift Benedikt
Jónassyni; Snorri, búsettur í Vest-
mannaeyjum, giftur Þyrí Ólafs-
dóttur; Kristján Óli, býr á
Sauðárkrók, giftur Jónínu Hjart-
ardóttur; Þórður býr í Reykjavík,
giftur Margréti Sigurðardóttur, og
Jón Kristinn, býr á Egilsstöðum.
Unnusta hans er Sigrún Ingadóttir.
Bamabömin era 14. Þetta er stór
og gjörvilegur hópur og var Línu
frænku kær.
Nú em aðeins tvö systkin eftir
af stóra Húsabakka-hópnum. Þau
em Þórhalla og Jóhannes og búa
þau á Siglufirði. Nú sjá þau á bak
yngstu systur sinni. Þau Húsa-
bakka-systkinin sem komust til
fullorðinsára og em nú látin, hafa
öll kvatt í svartasta skammdeginu.
Mér fínnst eins og það sé ekki ein-
göngu tilviljun heldur það að þessi
náttúmböm og fegurðamnnendur
hefðu ekki getað kvatt þessa veröld
meðan allt var í blóma lífsins — en
sú veröld er þau hafa gengið inn í
úr skammdeginu hlýtur að vera í
blóma.
Ég ætla ekki að bera of mikið
lof á Línu frænku því ég veit að
ekkert hefði verið henni eins á
móti skapi, enda var hún mér of
kær og of skyld til þess að ég geti
fundið tilfinningum mínum réttu
orðin.
Við Boggu-krakkar emm svo
þakklát fyrir að hafa átt hana Línu
frænku og þó að söknuðurinn sé
sár þá em minningamar svo ljúfar
að þær lýsa upp skammdegið. Og
þannig vildi hún Lína frænka hafa
það. Þó nú sé dimmt norður við
heimskautið og langt í vorið þar —
þá er eins víst að það er bjart og
það er vor þar sem Lína frænka
er nú.
Sigríður K. Stefánsdóttir
Sýning á
tækjum
fyrir sjón-
skerta
SÝNING á tækjum fyrir sjón-
skerta verður opnuð sunnudag-
inn 22. nóvember. Sýningin
verður í húsakynnum Sjónstöðv-
ar íslands að Hamrahlíð 17 í
Reykjavík og stendur til þriðju- „
dagsins 24. nóvember.
Á sýningunni gefst fólki kostur
á að kynna sér tæki þau er sjón-
skertir geta notað við lestur.
Tæki þessi em myndbands-
skermur með innbyggðri myndavél
sem með rafbúnaði stækkar upp
allt að 60 sinnum. Auk þess má
nota tækin með ritvél eða tölvu.
Tækin á sýningunni em framleidd
af bandaríska fyrirtækinu VTEK í
Kalifomíu. Fulltrúi frá fyrirtækinu
VTEK Europe, sem er dótturfyrir-
tæki þess í Kalifomíu, verður á
sýningunni og veitir leiðbeiningar.
Umboðsmenn VTEK á íslandi er
fyrirtækið Jón Brynjólfsson hf.
Sýningin í Hamrahlíð verður opin
kl. 14-18 sunnudag til þriðjudags.
20 myndir
sýndar
á Mokka
GUNNAR I. Guðjónsson sýnir
myndir sínar á Mokka við Skóla-
vörðustíg í Reykjavík til 22.
nóvember.
Tuttugu myndir Gunnars hanga
uppi á Mokka. Myndimar em unnar
úr vatnslitum, tússi og olíu.
Árni Sævar
Gunnlaugsson
Fæddur 8. desember 1950
Dáinn 13. nóvember 1987 <
Það var hræðilega sárt að frétta
það 9. nóvember sl. að faðir okkar
lægi á gjörgæsludeild Borgarspítal-
ans mikið veikur og væri vart hugað
líf. Við lifðum þó í voninni en hún
brást og það var kannski það besta
úr því sem komið var. En við vitum
að honum líður vel núna hjá Guði
og líka að hann er hjá okkur þó
að við sjáum hann ekki.
Bráðum koma jólin og það verður
skrítið að fara ekki í heimsókn til
pabba. Við eigum eftir að sakna
pabba.
Við biðjum góðan guð í bænum
okkar á kvöldin að gæta hans. Þá
líður okkur betur. Við vitum líka
að við eigum eftir að hittast aftur,
einhvem tfmann. Við kveðjum elsku
pabba okkar.
Einar og Sigurlaug