Morgunblaðið - 21.11.1987, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1987
45
Félagsmiðstöð opnuð
í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Ellert Kristinsson afhenti Ólafi Signrðssyni lykla að húsinu.
Fjölmenni var við opnun félagsmiðstöðvarinnar.
Stykkishólmi.
MIKIÐ var um að vera í Stykkis-
hólmi laugardaginn 14. nóvem-
ber sl., en þá var tekin í notkun
félagsmiðstöð fyrir tómstunda-
starf æskuiýðsins hér i bæ, en i
haust hefir verið unnið að þvi
að breyta einu elsta húsi hér í
Hólminum undir þessa starfsemi.
Þetta hús er við Aðalgötu og
hefir glæsilegan þjónustuferil að
baki.
Upphaflega byggðu Góðtemplar-
ar þetta hús til starfsemi sinnar og
sem menningarmiðstöð í bænum.
Þetta var stúkan Auðnuvegurinn
sem þá starfaði af fullum krafti hér
í byggðarlaginu. Þegar starfí stúk-
unnar lauk tóku nokkrir félagar
hennar sig til keyptu húsið og á
þessum grunni var það rekið næstu
árin. Þá keyptu þeir W.Th. Möller
og Sigurður Agústsson og ráku það
um skeið og Sigurður til 1944, en
þá hafði húsið verið stækkað af
þáverandi eiganda, Jóni Sigurgeirs-
syni, sem um leið hóf þar kvik-
myndahúsrekstur og starfaði hann
við það til dauðadags. Magnús Sig-
urðsson og Sigurður Sigurgeirsson
ráku húsið af myndarbrag um skeið
og fleiri komu þar við sögu uns
Stykkishólmshreppur eignaðist það
og á vegum hans var húsið rekið
sem samkomu- og skemmtistaður
þar til Félagsheimilið var byggt
fyrir rúmum 10 árum. Þetta hús
hefír frá mörgu að segja ef það
hefði málið. Það var upphaflega
byggt 1901 og því farið að sýna
hrömunarmerki. En nú hefír því
verið sómi sýndur með því að færa
það í nýjan búning að innan og svo
koma sparifötin á eftir.
Æskulýðsráð Stykkishólms, en
það skipa Ólafur Sigurðsson for-
maður, Róbert Jörgensson og María
Guðmundsdóttir, hafa fylgst með
breytingum og uppbyggingu, en
margir hafa lagt hönd að verki;
Trésmiðjan Ösp, Rafhúsið, Bjöm
Benediktsson málningamreistari,
Andrés Kristjánsson pípulagninga-
maður, o.fl. og er þetta verk vel
af hendi leyst og gaman að sjá
hvemig má gera gamalt sem nýtt.
Við opnun félagsmiðstöðvarinnar
lýsti bæjarstjórinn, Sturla Böðvars-
son, verkinu, kostnaði og verkefni.
Fagnaði hann þessum áfanga og
óskaði æskulýð bæjarins til ham-
ingju og bað starfinu blessunar.
Ellert Kristinsson, forseti bæjar-
stjómar, sagði nokkur vel valin orð
og afhenti frá bænum Ólafí Sig-
urðssyni húsið til varðveislu. Einnig
fluttu ávörp María Bæringsdóttir,
formaður kvenfélagsins, sem færði
húsinu gjöf frá kvenfélaginu. Sess-
elja Pálsdóttir, formaður HSH,
færði ámaðaróskir. Þá var dagskrá
sem nemendur eldri bekkja gmnn-
skólans fluttu. Þijár telpur frá
dansskóla Eyglóar Bjamadóttur
sýndu dans, 7. bekkur kom fram
með þijú skemmtiatriði, spuminga-
keppni, sem formaður nemenda-
ráðs, Dagný Hermannsdóttir,
stjómaði og tók upp þijá sveitar-
stjómarmenn og á móti þeim var
svo æskulýðsráð, spennandi keppni
og ánægjuleg sem færði sveitar-
stjómarmönnum sigur. Að endingu
spilaði fimm manna hljómsveit og
sungu félagar hennar af mikilli inn-
lifun nýjar gamanvfsur. Þannig lauk
þessum ágæta fagnaði, og tóku við-
staddir undir með rösku lófataki.
Margir bæjarbúar og nemendur
vom þama viðstaddir til að fagna
þessum degi og var boðið upp á kók
og kökur. Um kvöldið var svo dans-
leikur og spilaði hljómsveitin.
— Árni.
Hannes öruggnr
með áfanga fyrir
síðustu umferð
Skák
Margeir Pótursson
Þrátt fyrir að ein umferð sé
eftir af alþjóðlega skákmótinu
f Njarðvík þegar þetta er ritað,
hefur Hannesi Hlífari Stefáns-
syni samt tekist að tryggja sér
sinn fyrsta áfanga að alþjóðleg-
um meistaratitli. Þetta er stórt
spor fyrir Hannes, sem er að-
eins fimmtán ára gamall og
einn yngsti skákmaður f heimi
sem hefur náð slíkum áfanga.
Heimamaðurinn Björgvin Jóns-
son og Þröstur Þórhallsson
þurftu jafntefli í sfðustu um-
ferðinni til að ná samskonar
árangri og það kunna því að
vera stórtfðindi úr skákheimin-
um á fréttasfðum Morgunblaðs-
ins f dag, þvf mótinu átti að
Ijúka í gærkvöldi.
Fyrir Þröst myndi jafntefli við
Helga Ólafsson, stórmeistara,
tiygeja honum titil alþjóðlegs
meistara, því Þröstur á tvo áfanga
fyrir. Björgvin á einnig að mæta
stórmeistara í síðustu umferð,
Guðmundi Siguijónssyni.
Tímaritið Skák heldur mótið í
samvinnu við heimamenn og er
tilgangurinn með því fyrst og
fremst að gefa ungum og efnileg-
um skákmönnum tækifæri, á
sama hátt og á alþjóðamótinu í
Ólafsvík um daginn. Baráttan um
efsta sætið fellur því nokkuð í
skuggann af titilveiðunum, en hún
er engu síður spennandi. Helgi
Ólafsson hefur haldið forystunni
allt mótið, þar til að honum voru
mjög mislagðar hendur í næstsí-
ðustu umferðinni gegn Finnanum
Antti Pyhálá. Helgi tapaði þeirri
skák eftir að hún hafði farið í bið
og því er komungur Englending-
ur, David Norwood, efstur fyrir
síðustu umferð með sjö og hálfan
Hannes H. Stefánsson
vinning. Helgi og Hannes Hlífar
hafa sjö vinninga, en Þröstur
Þórhallsson og Björgvin Jónsson
em næstir með sex og hálfan
vinning. Guðmundur Siguijónsson
er sjötti með sex vinninga.
Það verður hart barist í síðustu
umferðinni, því allir efstu menn
tefla innbyrðis. Hannes hefur
hvítt gegn Norwood, Helgi hvítt
gegn Þresti og Björgvin hefur
hvítt gegn Guðmundi.
Hannes Hlífar er vel að áfang-
anum kominn, þótt honum hafí
ekki enn tekist að leggja neinn
titilhafa að velli í Njarðvík. Hann
gæti þó bætt úr því gegn Nor-
wood. Hannes hefur teflt mjög
mikið að undanfömu. Eftir að
hann varð heimsmeistari í flokki
16 ára og yngri í sumar var hann
um tíma í lægð, en á opnum
mótum í Gausdal og London í
ágúst náði hann sér vel á strik
og hann varð síðan fjórði á ís-
landsmótinu. Eftir þessa miklu
ástundun þarf árangur hans ekki
að koma á óvart. Vinningsskákir
Hannesar vom flestar í lengra
lagi, e.t.v. hefur það stafað af því
að byijanaþekking er ekki hans
sterkasta hlið.
Við skulum nú líta á mikilvæg-
ustu sigurskák hans á mótinu í
Njarðvík:
Hvitt: Hannes Hlífar Stefáns-
son
Svart: Björgvin Jónsson
Sikileyjar-vörn
I. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. Bb5+
Hannes gefur Björgvin ekki
kost á að tefla uppáhaldsafbrigði
sitt, drekann, sem kemur upp eft-
ir 3. d4 — cxd4 4. Rxd4 — Rf6
5. Rc3 — g6.
3. - Bd7 4. Bxd7+ - Rxd7 5.
0-0 - Rgf6 6. Hel - e6 7. c3
- Be7 8. d4 - 0-0 9. Rbd2 -
Hc8?!
Svartur ætti ekki að vera í
neinum vandrasðum með að jafna
taflið, þar sem hvítur hefur ekki
gert miklar kröfur í byijuninni.
Hér virðist t.d. einfaldast að leika
9. — cxd4 10. cxd4 — Hc8 og
II. e5 þá einfaldlega svarað með
11. - dxe5 12. dxe5 - Rd5.
10. e5 - Re8
Þessi riddari á litla framtíð fyr-
ir sér uppi í borði, en eftir 10. —
Rd5 11. c4 - Rb4 12. exd6 -
Bxd6 13. Re4 fær hvítur eitthvað
betri stöðu.
11. Re4 - cxd4 12. cxd4 - Db6
13. Dd3 - h6 14. Bd2 - d5 15.
Rg3 - Rc7 16. Rh5
Hvítur er kominn með góða
sóknarmöguleika á kóngsvæng.
Björgvin hefur þó líklega ofínetið
þá, því hann sér sig nú knúinn
til að grípa til róttækra úrræða.
Eftir næsta leik hans situr hann
uppi með mjög slæmt bakstætt
peð á e6, auk þess sem hvitur
getur notað e5-reitinn til sóknar.
Hinn möguleikinn og sá skárri var
að tefla þrönga vöm og leika 16.
— Hfd8 og síðan Rd7-f8 og
Rc7-e8 ef þörf krefur.
16. - f5 17. exf6 - Rxf6 18.
Rxf6+ - Hxf6? 19. Re5 - Da6
20. Dxa6?!
Með þessu slakar hvítur tals-
vert á klónni. Bezti leikurinn í
stöðunni var 20. Hacl! og svartur
virðist eiga við óyfírstíganleg
vandamál að stríða. Drottnin-
gauppskiptin létta á stöðu Björg-
vins, en vegna veiktrar peðastöðu
hans, tekst honum aldrei fyllilega
að jafna taflið.
20. - Rxa6 21. Rd7 - Hg6 22.
Hacl - Hd8 23. Re5 - Hf6 24.
g3 - Bd6 25. Bf4 - Rb4 26.
Hc3 — Bxe5
Eftir 26. — Rxa2 27. Hb3 vinn-
ur hvítur peðið til baka undir
hagstæðum kringumstæðum, því
27. — Rb4 er svarað með 28. Rg4!
27. Bxe5 - Hf7 28. a3 - Rc6
29. b4 - Rxe5?
Björgvin var nú orðinn naumur
á tíma og freistast til að skipta
upp á liði. Það leysir þó alls ekki
vandamál hans að komast út í
hróksendatafl, því yfírráð hvíts
yfír c-línunni reynast afdrifarík.
Þar sem svarti riddarinn stendur
mjög vei á c6 var sjálfsagt að
leika 29. — a6! og stöðuyfírburðir
hvíts em aðeins smávægilegir.
30. Hxe5 - Hd6 31. a4 - Hfd7
32. a5 — Kf7? Nauðsynlegt var
32. — a6. Taflmennska Björgvins
ber því vitni að hann var í miklu
tímahraki.
33. b5 - Ke7 34. Hel - Kd8
35. Kg2 - Hc7 36. Hxc7 -
Kxc7 87.' Kf3 - Kd8 38. Kf4 -
Ke7 39. Hcl - a6? 40. b6 -
Hd7 41. Ke5
Hannes hefur haldið vel á spöð-
unum í tímahrakinu og staða hans
er nú gjörunnin.
41. - Kd8 42. Kxe6 - He7+
43. Kxd5 - Hf7 44. Hc7 - Hf6+
45. Kd6 - Hf6+ 46. Ke5 -
Hxf2 47. Hxb7 - Ha2 48. Kd6
- Kc8 49. Hxg7 - Hxh2 50.
b7+ - Kb8 51. Kc6 - Hc2+ 52.
Kb6 og svartur gafst upp.
Stig- 1 2 3 ‘ H s (o ? s 9 HO H 11 VINN. RÓÐ
1 þtfÖSTUR ÞÓRHfíl-LZSOH 2M5- y/A ÍVV7 'lz. 1 '/z •k 0 i ’/z i 'h i
2 D. NORWOOÐ(€N6Lf\Nb\) wos '/z /y/j 'k i 1 i /z i o i
3 Dfl/lD ÖLQFSSOM 230S 0 0 Y/// '/z •k \ 0 o 0 0 0
H G-UÐLVIUNWR ClGURTS. 2W5 '/z '/z Iz y//. V/// 0 /z i i '/z 'k i
5 JÓHfíNNES Í9GÚSTSS0N 2215 ií 0 '/z i I i 0 'h 0 0 o
(o C. WELWN (ibfiNÞM.) 2210 i 0 0 •k 0 m /z 'A i 0 0
? 6. JóCOGS (ENGLfíNbl) 23ÖO 0 0 i 0 •k 7/yy. 'Á 7z \ 0 i
8 QkTÖROVIN JÓNSSON 2310 w '/z i \ ’h •k y/7/ i 0 •k i
9 SisurðukT). Sisfáss. 220C 0 o o Iz 0 •k 0 m 0 •k /z
10 Hfinnes Hl. Stffánss. 2335 '/z i /z i 1 0 i i y/Z/ 7í •k
11 IÓEL6I ÖLfíFSSON 2550 i i '/z i i i '/z 'k '/z vu/ Q
11 fi. PVHALti (F/NNL.) 2395 0 0 i 0 i 0 0 !z •/z 1 i