Morgunblaðið - 10.12.1988, Síða 10

Morgunblaðið - 10.12.1988, Síða 10
r10 morgúnbláðið; laugardágíÍr ití. " 1988 21150- 21370 Æ S Þ. VALDIMARSSON sölustjóri BJARNASON HDL. LÖGG. FASTEIGNASALI Til sýnis og sölu auk annarra eigna: 3ja herb. séríbúð innarlega viö Hæðargarð. Nánar tiltekið neðri hæð í tvíbýlishúsi. End- urn. fyrir nokkrum árum. Laus fljótlega. Sanngjarnt verð. Stór og góð á góðu verði B herb. efri hæð við Bugðulæk. Stórar og góðar stofur. Sólsvalir. Sér- hiti. Ágæt sameign. Góður bílskúr. Ákveðin sala. Bjóðum ennfremur til sölu 5-6 herb. sérhæðir m.a. við Aragötu, Rauðalæk og Bugðulæk. 2ja herb. við Miðvang Hf. Stór og góð. Sérþvottahús. 3ja herb. neðri hæð við Kópavogsbraut. Mikið endurn. Tvíbýli. Gott steinhús í Hvömmunum, Kóp. með tveimur íbúðum. Bilskúr. Raðhús ein hæð um 80 fm við Brekkubyggð Gbæ. Bílskúr. Hagkvæm skipti Getum boðið í hagkvæmum skiptum: Sérhæðir, einbýlishús, hús með tveimur fbúðum, raðhús o.m.fl. Teikningar og nánari upplýsing- ar á skrifst. Sérstaklega óskast einbýlishús eða raðhús 100-120 fm með góðum bílskúr í skiptum fyrir ágætt einbýlishús á einni hæð í Árbæjarhverfi. Nánari uppl. trúnaðarmál. Opið í dag, laugardag, kl. 10.00-14.00. Ath. breyttan opnunartíma. ALMENNA FASTEIGNASAl AN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Endurmimiingar Sigurðar Hauks Guðjónssonar ÚT ERIJ komnar endurminning- ar séra Sigurðar Hauks Guðjóns- sonar, sem Jónína Leósdóttir rit- stjóri hefur skráð, og nefnist bókin „Guð almáttugur hjálpi þér“. í kynningu útgefanda segir: „Séra Sigurður Haukur fæddist 1927 í Hafnarfírði en ólst upp í Ölfusi. Að loknu embættisprófi starfaði hann um hríð hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga en vígðist síðan 1955 prestur að Hálsi í Fnjóskadal. Frá 1964 hefur hann verið sóknarprestur í Langholts- sókn í Reykjavík, en hyggst á næst- unni láta af embætti. Fáir prestar eru umdeildari hér- lendis en séra Sigurður Haukur og má nefna snarpar ádrepur hans um ýmis málefni, „poppmessur" fyrir unglinga og suðning hans við sálar- rannsóknir og læknamiðilinn Einar á Einarsstöðum. Hefur hann jafnan verið talinn í röð hinna „fijálslynd- ari“ kennimanna hérlendis og þótt sýna áræðni í embættisverkum sínum og ýmissi nýbreytni. í frásögn sinni er prestur fundvís á eftirminnileg atvik og bregður upp ljóslifandi myndum af sam- ferðarmönnum sínum, auk þess að miðla lesendum af margvíslegum umhugsunarefnum. Má þar nefna ýmsar frásagnir af prestsstarfinu og sálusorgun, auk þess sem kynni hans af sálarrannsóknum og lækna- miðlum munu vekja áhuga margra." Bókin er 294 blaðsíður, með um 75 myndum. Prentsmiðja Áma Valdemarssonar hf. annaðist prent- un og bókband. Útgefandi er Nýja bókaútgáfan hf. ÉQaítíMtnáD Umsjónarmaður Gísli Jónsson Lesendur þáttarins bregðast vel við að venju, þegar til þeirra er leitað. Það gerði ég í næstsíð- asta þætti í framhaldi af bréfi Odds Sigurðssonar í Reykjavík um lundinn. Fyrstur tekur til máls Ólafur Tryggvason í Reykjavík: „Bestu þakkir fyrir margar og góðar laugardagshugvekjur. í tilefni þeirrar síðustu datt mér í hug kvæðið Danslilja eftir Þorlák Þórarinsson, prófast í Vaðlaþingi (23/12 1711-29/7 1773). Það byijar svona: Við í lund, lund fögmm eina stund sátum síð sáðtíð, sól rann um hlíð; hlé var hlýtt þar; háar og bláar, ljósar og grænar liljumar vænar í laufguðum skans þar báru sinn krans. Og síðar: Gjóði þundar góð-hróðug undi glóða sunda ijóð slóð í lundi. Ég held að ekki fari á milli mála, að það sé rjóður, sem höf- undurinn á hér við, er hann nefn- ir lund. Hitt væri fremur ankanna- legt í allri rómantík kvæðisins." Þetta þykir umsjónarmanni gott innlegg í málið. Hann hefur oft lesið Danslilju og dáðst að bragsnilld og orðfími sr. Þorláks, en mundi ekki eftir henni núna í þessu sambandi. Gjóður þundar er líklega kenning fyrir kveðskap sem stúlkan hefur fengið að heyra í lundinum, en hún nefnist þarna slóð sunda glóða (gulls). Hún er auðvitað ijóð eftir rími og kring- umstæðum. Þá tekur við Halldór Kristjáns- son frá Kirkjubóli: „Heill og sæll, Gísli. Þegar ég var í unglingaskóla átti ég á skriflegu náttúrufræði- prófí að svara: Hver er munur á lundi og runni? Ég man ekki betur en eitthvað vefðist fyrir mér að svara. „Mig langar út í lundinn með þér, jómfrú." Lundurinn er sjálfsagt autt svæði, ijóður, en það er enginn lundur án þess að til séu tré. Og segir ekki í þjóð- kvæðinu? „Riddu þig undir lundinn." Þá eru trén orðin lundurinn eða hvað? En séu trén lundur, þá er það tilskilið að eitthvert svigrúm sé hjá þeim. En hvað sem segja má um uppruna og forna merkingu held ég að í mæltu máli nú sé lundur nánast ijóður í skógi. Þannig mun vera málvenja og skilningur í minni sveit. Bestu kveðjur." Þakkir færi ég Halldóri fyrir bréf hans fyrr og síðar, og von- andi skýrist lundarmálið enn frek- ar. Lítum nú aðeins í nafnaskrána, og verða hér fyrir valinu nokkur kvenmannsnöfn sem lítt hefur verið fjallað hér um eða ekki: 1. Abela. Úr hebresku, komið af Abel = „andardráttur, gufa“. Abel var síðari sonur Adams og Evu. Abela finnst fyrst í íslensku manntali 1855, aðeins ein. Þær voru fimm 1910, tvær skírðar svo áratugina 1921-50. í þjóðskránni 1982 eru Abelur tvær. 2. Abigael. Einnig úr hebr. = „gleði, föðurgleði". Abigael var ein af konum Davíðs konungs, þótti góð kona. í 22. Passíu- sálmi segir: Abigael fær æru og sæmd, iila Jessabel verður ræmd. Jessabel var nefnilega vond kona, enda varpað út um glugga og slitin af hundum. Engin Abigael var á landi okkar 1703, en ýmist sjö eða átta í manntölum 19. aldar. Árið 1910 voru þær sex, 21—50 ein og í þjóðskrá 82 ein, fædd 1898. 3. Aðalbjörg. Þetta er íslensk 465. þáttur samsetning og ekki mjög göm- ul. Björg er sú sem bjargar, aðal táknar göfgi og góðan uppruna. í manntalinu 1703 var aðeins ein með þessu nafni, Aðalbjörg Hjálmarsdóttir, 39 ára á Nefsstöðum í Fljótum. Faðir hennar H. Erlendsson, 77 ára, fær skemmtilegan og framandi titil: „medicus et artifex", en það mun þýða læknir og listamaður. Árið 1801 voru tólf Aðalbjargir á íslandi, allar norðan og austan. Þeim hefur fjölgað nokkuð greitt: 1855 níutíu, 1910 151 og 21—50 142. Þær eru 231 í þjóðskránni 82. 4. Agnes. Komið úr grísku = „hrein, óflekkuð". Agnes var helg mær og píslarvottur, svo sem segir í Heilagra meyja drápu: Agnes var með elsku tignuð, Jesú blóm í sjálfri Róma. Þrautir háði þrettán vetra þessi mey við grimman hersi: Níðingrinn bað nökta leiða Nönnu gulls hjá heiðnum mönnum; vildi hann að skammast skyldi skrautlig mær, ef allsber væri. Haglig Ieysti hár úr dreglum hvítust meyja, fagrt að líta; fríðast var sem irúihnar klæði félli niður um likam allan. Sinifomús sætu væna sár kennandi skapár að brenna: Ýtar kyndu eldinn heita, Apes stóð í logandi glóðum. Agnesar voru 73 árið 1703, en 50—60 í flestum manntölum 19. aldar. Árin 21—50 voru svo skírðar 82 meyjar. Nafnið er í sókn. í þjóðskránni 82 eru Agnes- ar 185. Áslákur austan kvað: Að lafa á lánuðum fjöðrum og lifa i hvívetna á öðrum voru beljur og rollur og tekjur og tollur hennar Tryggvinu gömlu á Jöðmm. . _ hagkvæmur auglýsingamiðill! Aðventutónleikar í HaQgrímskirlgu Tónlist JónÁsgeirsson Mótettukór Hallgrímskirkju stóð fyrir aðventutónleikum sl. sunnudag og flutti undir stjórn Harðar Áskelssonar söngverk eftir Eccard, Grieg, Purcell, Scheidt, Schutz, Sweelinck, Hammerschmidt, J.S. Bach, Byrd, Bruckner, auk sléttsálms sem kenndur er við Ambrósíus kirkjuföður og raddsetningu Róberts A. Ottóssonar á latnesk- um hymna frá 4. öld við texta, sem eignaður er Ambrosíusi, í þýðingu dr. Sigurbjörns Einars- sonar, fyrrum biskups. Efnisskráin var einstaklega vönduð en helst til margþætt hvað stíltegundir snertir og spannaði alla kirkjusöguna, frá Ambrósíusi til okkar daga. Söngstíll kórsins er fínlegur og fellur vel að tónlist sem var sam- in fyrir og eftir 1600 en þar til má nefna höfunda eins og Ec- card, Scheidt, Sweelinck og Hammerschmidt og flutti kórinn verk þessara snillinga mjög vel. Minna bragð var af söng kórs- ins í verkum Bruckners og Gri- egs, en rómantísk tónlist nýtur sín best í tilfinningaþrunginni (heitri) tóntúlkun. Hér er ekki átt við hljómstyrk, heldur þróttmikla raddbeitingu. Mótettukór Hallgrímskirkju. Nokkrir félagar í kómum sungu einsöng og var söngur þeirra í samræmi við söngstíl kórsins, fínlegur og fallega hljómandi. Þrátt fyrir nokkuð of margþætta söngskrá voru tón- leikarnir í heild góðir og fyrsta söngverkið, Veni redemptor gen- tium, eftir Ambrósíus, hljómaði einstaklega fallega innan úr alt- ariskór kirkjunnar. Sama má segja um síðasta lagið á efnis- skránni, raddsetningu Róberts A. Ottóssonar á Nú kemur heimsins hjálparráð, sem var mjög fallega sungið, en kórinn gekk syngjandi út kirkjuna og því meir sem hann nálgaðist vesturgafl kirkjuskipsins, varð söngurinn hreinni af enduróman kirkjunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.