Morgunblaðið - 10.12.1988, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.12.1988, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR lO. DKSEMBER 1988 Framkvæmdasj óð- ur menníngarmála eftirBirgiísl. Gunnarsson í menningu hverrar þjóðar spegiast sameiginlegur arfur kyn- slóðanna. í menningarlífí þjóðar kemur fram andlegur þroski henn- ar og þeir eiginleikar sem greina hana frá öðrum þjóðum. Það er löngu viðurkennt að menningin kemur innan frá og að umgjörðin getur aldrei skapað sanna og ósvikna menningu. Engu að síður leggja flestar þjóðir stolt sitt í það að skapa sinni menningu veglega umgjörð — byggja menningarstofnanir af ýmsu tagi. Tilgangurinn er hvort tveggja f senn: Að ýta undir margs konar menningarviðleitni og að auðvelda almenningi aðgang að menningarefni. Við íslendingar höfum reynt að fylgja fordæmi annarra í þessum efnum og reist ýmsar menningarstofnanir eftir því sem aðstæður hafa leyft. Nú er hins vegar svo komið að ýmsar þær stofnanir sem við höf- um litið á sem stolt okkar eru í mikiili niðumíðslu auk þess sem óvenju stór ný verkefni blasa við á þessu sviði. Við skulum aðeins átta okkur á því hver þessi helstu verkefni eru. Þjóðarbókhlaða. í tilefni af 1100 ára afmæli íslands byggðar var samþykkt að byggja Þjóðar- bókhlöðu. Þetta átti að vera eins konar afmælisgjöf þjóðarinnar til sjálfrar sín. I þessari stofíiun skyldi sameina Landsbókasafn og Háskólabókasafn og nýta nýjustu tækni við rekstur þessa höfuð- bókasafns þjóðarinnar. Fram- kvæmdir hafa dregist um of, þótt nokkur skriður hafí komist á verk- ið eftir að Alþingi ætlaði sérstakan tekjustofn til þessa verks. Þessu verki þarf að ljúka sem fyrst. Þjóðleikhúsið. Mjög hefur skort á að viðhaldi Þjóðleikhúss- byggingarinnar hafí verið sinnt sem skyldi. Er nú svo komið að húsið þarftiast gagngerðra endur- bóta innan dyra sem utan. Einnig þarf að byggja nokkuð við húsið ef vel á að vera. Hafa verið gerð- ar áætlanir um nauðsynlegar framkvæmdir og er ljóst að þær munu verða mjög kostnaðarsamar. Þetta verk getur hins vegar ekki beðið lengi. Þjóðminjasafh. Þjóðminja- safíisbyggingin við Hringbraut liggur undir skemmdum vegna skorts á viðhaldi. Sérstök nefhd hefur unnið að áætlun um viðgerð- ir á húsinu og uppbyggingu safns- ins að öðru leyti til aldamóta. Núverandi bygging þarftiast gagngerðrar viðgerðar og áætlanir eru uppi um viðbyggingu til að bæta aðstöðu safnsins. Kostnaður verður mjög mikill. Þjóðskjalasafíi. Þjóðskjalasafn Islands hefur miklu hlutverki að gegna. Þar fer fram söfnun og varðveisla skjala og annarra skráðra heimilda þjóðarsögunnar til notkunar fyrir stjórnvöld, stofn- anir og einstaklinga til að tryggja hagsmuni og réttindi þerira og til notkunar við vísindalegar rann- sóknir og fræðiiðkanir. Nýtt hús var keypt fyrir Þjóðskjalasafnið fyrir nokkrum árum, þ.e. hús gömlu mjólkurstöðvarinnar við Laugaveg. Aðbúnaður safnsins hefur verið bágborinn, en hið nýja húsnæði mun bæta mjög alla að- stöðu safnsins. Ríkisendurskoðun hefur nýlega gert skýrslu um þessi húsakaup. Þar kemur fram að kaupin hafí verið hagstæð og að húsið geti hentað vel þessari starf- semi. Hins vegar skorti fé til inn- réttinga og nauðsynlegt sé að gera áætlun um uppbyggingu safnsins á hinum nýja stað. Ljóst er að það mun kosta allmikið fé. Tónlistarhús. Þörfín á sérstöku tónlistarhúsi hefur lengi verið ljós. Sinfóníuhljómsveit íslands hefur búið við mjög ófullkomnar aðstæð- ur og ýmiss konar annað tónlistar- hald hefur verið á hrakhólum. Samtök um byggingu tónlistar- húss hafa verið stofnuð af áhuga- mönnum og hafa þau unnið gott starf til undirbúnings byggingar tónlistarhúss. Ljóst er að ríkisvald- ið verður að koma myndarlega við söfn með fjárframlögum, ef tón- listarhús á að verða að veruleika. Hér hafa verið tilgreind nokkur stór verkefni sem nú blasa við á sviði menningarmála. Mikið fé þarf til að koma þeim í fram- kvæmd. Vorið 1986 voru sam- þykkt á Alþingi „lög um þjóðará- tak til byggingar þjóðarbókhlöðu". Samkvæmt þeim lögum var ákveð- ið að á gjaldárunum 1987, 1988 og 1989 skyldi leggja á sérstakan eignarskatt, er renna skyldi óskiptur til byggingarsjóðs Þjóðar- bókhlöðu. Því miður hefur reynsl- an verið sú að fjármálaráðuneytið Birgir ísl. Gunnarsson „Á árinu 1989 er gert ráð fyrir að tekjur af þessum sérstaka eigna- skatti verði 240 milljón- ir kr. Það er því ljóst að á þennan hátt væri unnt að jQármagna þær mikilvægu ogbrýnu framkvæmdir sem hér hafa verið tilgreindar. Er gert ráð fyrir að Þjóðarbókhlaðan hafí forgang þar til henni er lokið, en jafíiframt fái önnur verkefíii fé úr sjóðnum samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni.“ hefur reynt að seilast í þessa pen- inga til almennra útgjalda ríkis- sjóðs. Engu að síður er ljóst að með samþykkt þessara laga komst á ný verulegur skriður á byggingu Þjóðarbókhlöðunnar, þótt fram- kvæmdum muni ekki Ijúka á árinu 1989. Lögin um þjóðarátak til bygg- ingar Þjóðarbókhlöðu munu falla úr gildi í árslok 1989, þ.e. þau fjárlög sem nú eru til meðferðar á Alþingi eru síðustu fjárlög á gildistíma þessara laga. Því miður hefur reynslan verið sú að fjár- málaráðuneytið hefur reynt að seilast í þessa peninga til al- mennra útgjalda ríkissjóðs. Engu að síður er ljóst að með samþykkt þessara laga komst á ný verulegur skriður á byggingu Þjóðarbók- hlöðunnar, þótt framkvæmdum muni ekki ljúka á árinu 1989. Lögin um þjóðarátak til bygg- ingar Þjóðarbókhlöðu munu falla úr gildi í árslok 1989, þ.e. þau fjárlög sem nú eru til meðferðar á Alþingi eru síðustu fjárlög á gildistíma þessara laga. Því er nú þörf á að huga að því hver skuli vera framtíð þessa sérstaka eigna- skatts. Nokkrir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins hafa nú flutt á Alþingi frumvarp um stofnun framkvæmdasjóðs menningar- mála. Er gert ráð fyrir að hinn sérstaki eignaskattur renni í þann sjóð eftir 1989 og að þessi sjóður fjármagni síðan þær framkvæmdir á sviði menningarmála sem til- greindar eru hér að ofan. Á árinu 1989 er gert ráð fyrir að tekjur af þessum sérstaka eignaskatti verði 240 milljónir kr. Það er því ljóst að á þennan hátt væri unnt að fjármagna þær mikil- vægu og brýnu framkvæmdir sem hér hafa verið tilgreindar. Er gert ráð fyrir að Þjóðarbókhlaðan hafí forgang þar til henni er lokið, en jafnframt fái önnur verkefni fé úr sjóðnum samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni. Með þessum hætti ætti að vera unnt að tryggja framkvæmd þeirra brýnu verkefna sem nú bíða á sviði menningar- mála. Höfundur er einn afalþingis- mönnum Sjálfstæðisílokks fyrir Reykjavíkurkjördæmi. Herferð viðskiptaráðherra eftirPálma Jónsson í Morgunblaðinu 23. nóv. sl. er sagt frá ræðu Jóns Sigurðssonar viðskiptaráðherra á flokksþingi Al- þýðuflokksins undir fyrirsögninni „Herferð gegn kinda- og hrossa- kjöti eina ráðið“. Þar er tilgreint orðrétt eftir ráðherranum, sem talar um friðun lands: „Ef til vill er eina ráðið að efna til herferðar meðal almennings um að hann hætti að kaupa kjöt af þeim dýrum sem alin eru á beit afrétta í uppblásturs- hættu. Þetta á bæði við um afurðir sauðflár og hrossa." Ég tók þessi ummæli upp utan dagskrár á Alþingi daginn eftir og skoraði á ráðherrann að draga orð sín til baka en biðjast afsökunar ella. Ég vakti athygli á þvf, að hlut- verk viðskiptaráðherra væri m.a. að greiða fyrir viðskiptum lands- manna, ekki síst viðskiptum með innlendar framleiðsluvörur. Þetta hlutverk sitt rækti ráðherrann með því að hóta viðskiptaþvingunum innanlands gegn innlendri fram- leiðslu. Hann var að leggja til að almenningur í landinu efhdi til her- ferðar gegn neyslu kinda- og hrossakjöts, að efnt yrði til herferð- ar gegn bændastéttinni. I ræðu minni kom fram, að Jón Sigurðsson virtist hafa lært sitthvað af grænfriðungum úti í heimi, sem efnt hafa til herferðar gegn íslensk- um framleiðsluvörum. Og ég spurði hvort ekki kæmi að því að efna til herferðar meðal almennings gegn neyslu á fiski, þegar fískistofnar eiga í vök að verjast. Starfsaðferðir Greenpeaee-manna eru ráðherran- um augljós fyrirmynd. Hann gengur þó skrefí lengra þar sem hann hót- ar viðskiptaþvingunum innanlands, gegn sínum eigin landsmönnum, meðan Greenpeace beitir fyrst og fremst þvingunum gegn viðskiptum á milli landa. Ráðherrann virti áskoranir mínar og gagnrýni að vettugi. Þess í stað talaði hann um gróðurfarsmál, hvað landið hefði verið fagurt við land- nám, hvað síðan hefði eyðst, um nauðsyn þess að friða landsvæði fyrir búfjárbeit og um endurheimt landsgæða. Ýmislegt var þar snot- urlega sagt og réttilega, en annað byggt á misskilningi eða vanþekk- ingu. Hann forðast hins vegar kjarna málsins, þ.e. hótanir sínar um viðskiptaþvinganir, sem að mínum dómi eru fordæmanlegar hvaða tilgangi sem þær ættu annars að þjóna. Bændur og gróðurvernd Jón Sigurðsson kastaði orðalepp- um sínum til þjóðarinnar, en þó fyrst og fremst í andlit bændastétt- arinnar. Hans pólitíski tilgangur er væntanlega sá að magna óvild á milli þéttbýlis og strjálbýlis, á milli bænda og neytenda. Sú á að verða sem stundum áður hin pólitíska óskastaða Alþýðuflokksins. Bænd- ur á að stimpla sem landeyðingar- menn og búsmala þeirra sem böl- vald þjóðarinnar. Til slíkra öfug- mæla leiða orð af því tagi sem Jón Sigurðsson hefur látið sér um munn fara. Sjálfsagt er að viðurkenna þá staðreynd að búsetan og búflárhald í landinu hefur haft áhrif á gróður- farið, og í ýmsum tilvikum hefur landið verið ofbeitt. Aðrar orsakir gróðureyðingar hafa þó ekki síður verið mikilvirkar, þ.e. harðinda- skeið, eldgos, vötn og vindar og jafnvel umferð. Rofabörð á Sprengi- sandi eru tæplega vitnisburður um ofbeit þar sem sjaldnast mun hafa gengið búfénaður á liðnum öldum. Eigi að síður blés hálendið upp, einkum á harðindaskeiðinu frá því á 17. öld og fram um 1920. Á síðustu árum hafa bændur dregið mjög úr búfjárbeit á afrétt- um og hafa yfírleitt verið fúsir til samstarfs í gróðurvemdarmálum. Enda eiga þeir meira í húfí en aðr- ir um varðveislu og eflingu lands- gæða. Nú er hrossabeit á afrétti nálega aflögð. Á síðustu 11 árum hefur sauðfé í landinu fækkað um þriðjung eða um 300 þús. fullorðins fjár. Það þýðir að næsta sumar gengur um 700—750 þús. færra fé í sumarhögum en var fyrir áratug. Fleira fé gengur nú í heimahögum en fyrr og beitartími á afréttum hefur verið styttur, víðast bæði vor og haust, enda fer ástand afrétta yfirleitt batnandi. Þó munu vera undantekningar, sem oftast tengj- ast veðurfarsskilyrðum. Því er nauðsynlegt að fylgjast vel með þessum málum, hafa stjóm á beit- artíma á afréttum, stefna að því að landið fari batnandi með hóf- legri notkun og uppgræðslu. Mark- mið okkar allra er að bæta gróð- urríki landsins. Landgræðslan hefur unnið gott starf og bændur hafa gengið greiðlega til samstarfs um gróðurvemdarmálin. Það samstarf þarf að efla en ekki að efna til óvildar sem gæti komið þvi sam- starfí fyrir kattamef. Það er því bæði ómaklegt og óviturlegt að kasta stríðshanska að bændum í þessum efnum. Hótanir um við- skiptaþvinganir eru hvort sem er af allt öðrum toga og eiga ekkert skylt við gróðurfersmál. Þáttur sjónvarpsins í þingsjá sjónvarpsins 25. nóv. sl. voru sýndar glefsur úr umræðum um þessi mál á Alþingi. Sá þáttur var villandi og hlutdrægur, hvort sem það var vegna ásetning frétta- mannsins eða ekki. í kynningu á umræðunum kallar Pálmi Jónsson „Hótanir um viðskipta- þvinganir, um herferð meðal almennings gegn sölu á innlendum fram- leiðsluvörum var það sem segja þurfti til þess að verða „maður vik- unnar“.“ fréttamaður ummæli ráðherra „var- fæmisleg", en þó orðið til þess „að á ráðherra dundu skammir og fúk- yrði formælenda landbúnaðar, sauðkinda og hrossa, sumir sögðu reyndar landbúnaðarmafíu“. Mér er vitaskuld spum: Hvað kemur fréttamanni sjónvarpsins til þess að kalla okkur, sem mótmæl- um hótunum ráðherra um við- skiptaþvinganir innanlands, full- trúa sauðkinda, hrossa eða land- búnaðarmafíu? Nær hefði verið að kalla okkur fulltrúa viðskiptafrelsis. Myndir sem öðru hvoru birtust á skjánum meðan þátturinn stóð yfír áttu sýnilega að þjóna málstað ráð- herrans og e.t.v. að kynna okkur hina sem fulltrúa landeyðingarafl- anna. Engar myndir voru sýndar af þeim áróðursbrögðum sem notuð eru þegar beita á viðskiptaþvingun- um, t.d. af hálfu Greenpeace. Auk þessa fékk ráðherrann yfirgnæf- andi tíma á skjánum umfram aðra ræðumenn. Þannig komust tæplega til skila aðalatriðin í máli máls- hefjenda, þ.e. undirritaðs, og engar röksemdir úr svarræðu minni. Er þó fréttamanni nauðsynlegt að vita að í umræðu af þessu tagi á Al- þingi hefur málshefjandi rétt um- fram aðra samkvæmt þingsköpum. Hann má tala 2x3 mínútur, ráð- herra sem máli er beint til, 2x2 mínútur og aðrir þingmenn í 2 mínútur. A öllum sviðum var því máli hallað ráðherra í vil en gegn málshefjanda. Sjónvarpið bætti síðan gráu ofan á svart með því að velja Jón Sig- urðsson sem „mann vikunnar" vegna ummæla sinna. Þar var hann kynntur í uppskrúfuðum áróðurs- þætti sem maðurinn, sem hafði haft „manndóm til að segja það sem segja þurfti". Hótanir um viðskipta- þvinganir, um herferð meðal al- mennings gegn sölu á innlendum framleiðsluvörum var það sem segja þurfti til þess að verða „maður vik- unnar". Sjónvarpið hefur skyldur sam- kvæmt lögum um hlutlæga meðferð máia. Það ber ábyrgð á sínum starfsmönnum. Hætt er við að vill- andi efnistök sjónvarpsins snúi þessu máli við í hugum almenn- ings. Slík efnistök eru vítaverð. Því er óhjákvæmilegt að skýringar verði geftiar af hálfu útvarpsráðs og útvarpsstjóra. Höfundur er alþingismaður fyrir Sjáifstæðisflokkinn íNorður- landskjördæmi vestra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.