Morgunblaðið - 10.12.1988, Page 36
MORGÚNBLAÐIÐ, LÁÚGARDAÚUR^ 1Ó. ÚÉSÉMBKR 1088
36
Náttúruhamfarirnar í Armeníu
Menn úr alpasveitum franska hersins raða sér upp á Zvartnots-
flugvellinum í Jereven, en þangað komu þeir í gær til þess að að-
stoða við björgunarstarf á skjálftasvæðunum í Armeniu.
Brýnt að hefja al-
þjóðlegt hjálparstaf
- segirAndrej
Sakharov
Fúsk í húsbyggingum
ein af meginástæðunum
Almannavörnum ábótavant og skort-
ur á tækjum til björgunarstarfa v
hefur verið erlendis, til fórnar-
Iamba náttúruhamfaranna," sagði
hann.
Moskvu. Reuter.
FÚSK í húsbyggingum leiddi til
þess að tugþúsundir manna fór-
ust og stórir hlutar tveggja
borga eyðilögðust í jarðskjálft-
anum sem reið yfir Sovétlýðveld-
ið Armeníu á miðvikudag. Sov-
éska dagblaðið Komsomolskaja
Pravda skýrði frá þessu í gær,
þegar Mikhaíl Gorbatsjov Sovét-
leiðtogi kom til Sovétríkjanna
frá Bandaríkjunum til að stjórna
björgunaraðgerðum á skjálfta-
svæðunum.
Komsomolskaja Pravda, mál-
gagn ungliðahreyfingar kommúni-
staflokksins, fordæmir slæmt
ástand bygginga í borginni Lenín-
París. Reuter.
SOVÉSKI mannréttindafröm-
uðurinn Andrej Sakharov hvatti
stjómvöld í Sovétríkjunum í
gær til að hleypa erlendum
sjálfboðaliðum inn í landið til
að unnt yrði að koma fóm-
arlömbum jarðskjálftans, sem
reið yfir að morgni miðviku-
dags, til hjálpar. Þá lýsti Sak-
harov yfir því að skipuleggja
þyrfti alþjóðlegt hjálparstarf
þegar í stað.
„Ég bið Alþjóðlega Rauða
krossin, Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunina og samtök Armena er-
lendis að hefja þegar í stað hjálp-
arstarf," sagði Sakharov við komu
sína til Parísar í gær en þangað
kom hann til að vera viðstaddur
hátíðarhöld í tilefni þess að í dag,
laugardag, eru 40 ár liðin frá und-
irritun Alþjóðlegu mannréttinda-
yfirlýsingarinnar.
Sakharov sagði að tryggja
þyrfti að hjálparstofnanirnar gætu
komið hinum nauðstöddu til hjálp-
ar á beinan og milliliðalausan hátt
og því bæri stjómvöldum í Sov-
étríkjunum að veita starfsmönnum
þeirra og sjálfboðaliðum heimild
til að halda til hörmungasvæð-
anna. „Ég bið yfirvöld í Sovétríkj-
unum að hleypa sjálfboðaliðum inn
í Armeníu til að taka þátt í björg-
unarstörfum og til að dreifa fötum,
matvælum og lyfjum, sem safnað
EB sendir hiálpareföofn
Brussel. Reuter.
Evrópubandalagið (EB) hefur
ákveðið að senda hjálpargögn að
andvirði 700.000 Bandaríkjadala
(rúmra 31 milljónar ísl. kr.) til
Armeníu. Sveitir björgunarmanna
og sérfræðinga frá fjölmörgum
ríkjum eru ýmist komnar eða eru
á leið til jarðskjálftasvæðisins og
deildir Rauða krossins viða um
heim hafa heitið stuðningi sínum.
Talsmaður Evrópubandalagsins
sagði að hjálpargögn; lyf, lækninga-
tæki, teppi og tjöld, yrðu send með
tveimur flugvélum frá Belgíu og
Hollandi og jafnframt væri ráðgert
að ein flugvél til viðbótar færi frá
Bretlandi um helgina. Breska ríkis-
stjómin hefur tilkynnt að allt að
fimm milljónum punda (um 400 millj-
ónum ísl. kr.) verði varið til hjálpar
hinum nauðstöddu íbúum Armenum.
Frá Sviss héldu 37 björgunarmenn
og 20 sérþjálfaðir hundar til Sov-
étríkjanna og þaðan verða send átta
tonn af hjálpargögnum ýmis konar
til Armeníu. Hollandsdeild alþjóða-
samtakanna „Læknar án landa-
mæra" hefur afráðið að senda tvo
lækna, tvær hjúkrunarkonur og lyf
til hörmungasvæðanna en í gær
höfðu yfirvöld í Sovétríkjunum enn
ekki veitt fólkinu leyfi til að koma
inn í landið. Franskir og belgískir
læknar eru þegar teknir til starfa í
Armeníu. Hollenski Rauði krossinn
hefur sent hjálpargögn að andvirði
50.000 Bandaríkjadala (rúmlega
tveggja milljóna króna) og mun frek-
ari aðstoð hafa verið ákveðin.
18 ítalskir jarðfræðingar, læknar
tæknifræðingar og björgunarmenn
héldu í gær frá Róm til Armeníu.
ERLENT
Reuter
Konur og börn sem misst hafa heimili sín í jarðskjálftunum í Lenínakan bíða á aðaltorgi borgarinnar
eftir því að verða flutt í öruggt skjól.
akan, næststærstu borg Armeníu,
þar sem 75 af hundraði bygging-
anna eyðilögðust. Um helmingur
borgarinnar Kírovakan hrundi einn-
ig til grunna og langflestir borg-
arbúanna hafa misst heimili sín eða
flúið hús sín vegna hættu á að þau
hrynji. Svo að segja öll iðnfyrirtæki
borgarinnar eyðilögðust. Þá stóð
ekki steinn yfir steini í bænum
Spítnak, sem er á milli fyrmefndra
borga. Fréttastofan TASS skýrði
ennfremur frá því að miklar
skemmdir hefðu orðið í hémðunum
Gúgar og Stepanavan í Armeníu.
Blaðið segir að auk lélegra bygg-
inga hafí slæmar almannavamir
valdið mannskaðanum. Fréttaritar-
ar blaðsins lýsa eyðileggingunni í
Lenínakan þannig að svo hafi virst
sem grimmileg styijöld hafi skollið
á, þar sem skæðustu vopnum nút-
ímans hafi verið beitt. „Hvar em
jarðskjálftafræðingarnir, arkitekt-
arnir og verkfræðingamir sem
hönnuðu og reistu byggingamar
sem hmndu eins og spilaborgir?“
spyr blaðið.
Pravda, málgagn kommúnista-
flokksins, skýrði frá því að ný ein-
ingahús, níu hæða, hefðu hmnið til
gmnna og orðið að fjöldagröf. „Til
að mynda komust aðeins örfáir lífs
af úr bamaskóla númer 9. Engin
tæki vom til staðar til að bjarga
fólkinu undan rústunum. „Borg-
arbúar vom algjörlega hjálparlausir
vegna rafmagns-, vatns- og gas-
leysis." Blaðið skýrði þó frá því að
engar skemmdir hefðu orðið á
kjamorkuVeri í Armeníu.
Gennadíj Sobolev, hjá Jarðfræði-
stofnuninni í Moskvu, sagði að bú-
ast mætti við frekari landskjálftum
á svæðinu. Hann sagði að jarð-
skjálftafræðingum í Armeníu og
Georgíu hefði verið sendar upplýs-
ingar um hættu á jarðskjálftum á
svæðinu en engar varúðarráðstaf-
anir hafí samt Verið gerðar. Hann
sagði að engin tæki hefðu verið
fengin til að vara við jarðskjálftum.
TASS greindi frá því að Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefði kom-
ið til Moskvu, eftir að hafa hætt
við fyrirhugaða ferð sína til Kúbu
og Bretlands. Edúard Shevardnad-
ze, utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, hafði skýrt frá því í New
York í fyrradag að Sovétleiðtoginn
færi beint til Jerevan, höfuðborgar
Armeníu.
Sovéskt dagblað um eyðilegginguna:
Tyrkir bjóðast til
að opna landamæri
Ankara. Reuter.
TYRKIR buðust til þess í gær
að opna landamæri sín vegna
náttúruhamfaranna í Armeníu.
Tyrkneskir embættismenn segja
að auðveldast sé að koma hjálp-
argögnum til skjáiftasvæðanna
land- eða loftleiðinga um Tyrk-
land. Engin beiðni hafði hins
vegar komið um að senda gögn
þá leið í gærkvöldi.
Talsverð skelfing greip um sig
þegar tveir nýir jarðskjálftar skóku
borgina Igdir í norðaustanverðu
Tyrklandi í fyrrakvöld, hálfum öðr-
um sólarhring eftir stórskjálftana,
sem eyðileggingunni ollu í Armeníu.
Þeirra varð einnig vart í Kars-
héraðinu í Tyrklandi, sem liggur
að landamærum Sovétríkjanna.
Fjórir Tyrkir týndu lífi er hús
hrundu og um eittþúsund manns
misstu heimili sín.
, Reuter
Ibúar borgarinnar Lenínakan við rústir húsa, sem hrundu í landskjálftanum á miðvikudag. Sovéskt
dagblað hefúr skýrt frá því að fúsk í húsbyggingum hafi leitt til þess að eyðileggingin var eins mikil
og raun bar vitni.