Morgunblaðið - 10.12.1988, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988
40
______
jfgtmHnfrii
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Arvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
BaldvinJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Viðræður um
Island og EB
Miklar umræður fara nú
fram innan Evrópu-
bandalagsins og utan um
hvað raunverulega muni
gerast árið 1992, þegar
stefnt er að því, að aðild-
arríki bandalagsins verði að
einum sameiginlegum mark-
aði og allar hömlur hafa
verið felldar niður á við-
skipti þeirra í milli. Innan
Evrópubandalagsins eru
menn ekki á eitt sáttir um,
hvort þau tímamót þýði, að
bandalagið loki sig inni á
bak við rammgerða tollmúra
eða hvort það leitist við að
opna hinn stóra sameigin-
lega markað fyrir aðrar
þjóðir einnig.
Utan Evrópubandalags-
ins er þetta líka rætt hjá
smáþjóðum og stórþjóðum.
í Bandaríkjunum og Japan
eru þessi viðhorf mjög til
umræðu. Annars vegar hafa
þessar þjóðir áhyggjur af
viðskiptahagsmunum sínum
innan Evrópubandalagsins,
ef miklir tollmúrar rísa
gagnvart öðrum þjóðum.
Hins vegar eru bæði Japanir
og Bandaríkjamenn
ósmeykir við að minna Evr-
ópubandalagsríkin á, að þau
eru ekki ein í heiminum og
að ef þau setji erfíðar höml-
ur á viðskipti við ríki utan
bandalagsins verði þeim-
svarað í sömu mynt. Sú hót-
un hefur að sjálfsögðu áhrif
á Evrópubandalagsríkin af
þeirri einföldu ástæðu, að
þau hafa líka hagsmuna að
gæta, bæði í Bandaríkjunum
og Japan.
Thatcher, forsætisráð-
herra Breta, hefur lýst því
yfír, að ekki komi til greina,
að Evrópubandalagsríkin
byggi upp tollmúra í kring-
um sig og vitað er, að fleiri
leiðtogar aðildarríkjanna eru
sömu skoðunar. Það er hins
vegar alveg ljóst, að innan
EB eru aðrir aðilar, sem
telja, að fyrsta skrefíð hljóti
að vera að byggja upp ein-
hvers konar tollavígi í Evr-
ópu.
Þessar umræður innan og
utan EB sýna, að það er
alls ekki hægt að ganga út
frá því sem vísu í umræðum
hér, að við íslendingar verð-
um útilokaðir frá fiskmörk-
uðum okkar í Evrópu eftir
1992, ef við gerum ekki sér-
stakar ráðstafanir til þess
að koma í veg fyrir það.
Viðræður þær, sem
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, hefur átt
undanfama daga við forsæt-
isráðherra Breta og Belga
eru vísbending um, að menn
þurfi ekki að hafa jafn mikl-
ar áhyggjur af þessari þróun
og margir hafa talið.
Samkvæmt frásögn
Steingríms Hermannssonar
af viðræðum hans og Mar-
grétar Thatcher í London á
dögunum lýsti brezki for-
sætisráðherrann því yfir, að
íslendingar þyrftu ekki að
hafa áhyggjur af því, að
þeir yrðu útilokaðir frá hefð-
bundnum mörkuðum í Evr-
ópu eftir 1992. „Evrópu-
bandalagið á að opnast, ekki
lokast," sagði Thatcher við
íslenzka forsætisráðherr-
ann. Belgíski forsætisráð-
herrann hefur talað með
svipuðum hætti að sögn
Steingríms Hermannssonar.
Hann sagði í viðræðum við
forsætisráðherra Islands, að
hann hefði fullan skilning á
þeirri afstöðu íslendinga, að
aðild að Evrópubandalaginu
kæmi ekki til greina og að
útilokað væri að veita EB
fiskveiðiheimildir .innan
íslenzkrar fiskveiðilögsögu.
Þótt hér sé að sjálfsögðu
um almennar viljayfirlýsing-
ar að ræða af hálfu þessara
tveggja forsætisráðherra og
ljóst sé að t.d. embættis-
menn á vegum Evrópu-
bandalagsins hafa aðrar
skoðanir, er þó ljóst, að þess-
ar viðræður Steingríms Her-
mannssonar við forsætisráð-
herra Belgíu og Bretlands
hafa verulega þýðingu fyrir
okkur íslendinga. Þessar
viðræður sýna, að við eigum
skilningi að mæta hjá þess-
um þjóðum og að ekki er
ástæða til að umræður um
þetta mál fari fram hér á
Islandi á þeim grundvelli,
að hinn sameiginlegi mark-
aður verði okkur lokaður
eftir 1992.
Kór Langholtskirkju.
Stj órnar með
sprota Bruck
Rætt við Jón Stefánsson kórstjóra og nokkra meðlimi Kórs 1
„VIÐ höfum sungið verk eftir
Bruckner áður, því fyrir mörgum árum fluttum við nokkrar af mót-
ettum hans. Þegar mér var svo gefinn tónsproti sem Bruckner hafði
sjálfur átt varð úr að halda sérstaka Bruckner-tónleika," sagði Jón
Stefánsson, stjórnandi Kórs Langholtskirkju.
Tónsprotinn er vart yngri en 150 himni. Það bendir hins vegar ekk-
ára gamall. Hann er úr íbenhoiti
og fílabeini og skreyttur með perlu-
móður. Helmut Neumann gaf Jóni
sprotann í fyrra. Afi Neumanns var
arftaki Bruckners sem kórstjóri og
organleikari í borginni Linz og tók
við sprotanum frá tónskáldinu.
„Anton Bruckner er gífurlega
mikils metið tónskáld í dag. Hann
var tímamótatónskáld í Austurríki,
líkt og Wagner og Brahms í Þýska-
landi og segja má að Bruckner sé
ein skærasta stjarna síðrómantíska
tímabilsins í klassískri tónlist.
Einna þekktastur er hann fyrir stór-
kostlegt hugmyndaflug í hljóma-
setningu og ein af mótettum hans,
Christus factus est, er oft nefnd sem
dæmi um það.“
Eina tónverk Bruckners sem flutt
hefur verið hér á landi með hljóm-
sveit er Te Deum. Á tónleikum um
þessa helgi, í dag laugardag og á
Mjög krefjandi fyrir kórinn
í mótettunum syngur kórinn án
undirleiks en í messunni nýtur hann
aðstoðar 15 blásara.
„Þetta er mjög óvenjuleg hljóð-
færaskipan og ég man ekki eftir
neinni messu með álíka hljóðfæra-
skipan. Sumir hafa haldið því fram
að hún sé tilkomin vegna þess að
messan var frumflutt undir berum
ert til annars en að Bruckner hafi
alltaf ætlað sér að hafa þessa hljóð-
færaskipan í messunni. Hann var
hrifinn af blásturshljóðfærum og
útsetti gjaman fyrir básúnur og
horn.“
Kór Langholtskirkju hefur æft
efnisskrá tónleikanna í allan vetur.
„Við byrjuðum á messunni strax
í haust og höfum æft hana óslitið
síðan. Hún er meira og minna í 8
röddum og útsett í flókinni fleyg-
röddun. Þessi messa gerir gífurleg-
ar kröfur til kórsins. Hún er radd-
lega, tæknilega og tónheyrna rlega
mjög erfið þó hún sé ekki mjög
löng,“ sagði Jón Stefánsson.
Ovanalegt að syngja frá pp
uppí fff
Gunnlaugur Snævarr bassi sagði
verk Bruckners í hópi þeirra
Gunnlaugur Snævarr, Bergþóra Bja
skemmtilegri sem hann hefði sung-
ið.
morgun sunnudag, ætlar Kór Lang-
holtskirkju að flytja messu í e-moll
eftir Bruckner, auk nokkurra mót-
etta sem hann samdi til flutnings
í me ssum, þeirra á meðal mótett-
una Christus factus est.
„Messa Bruckners í e-moll er
gífurlega fagurt verk og áhrifamik-
ið. Bmckner samdi þijár messur
og af þeim er þessi talin áhrifamest
og dýpst. Bruckner sækir hér efni-
við fleiri aldir aftur í tímann, allt
aftur til endurreisnartímabi lsins.
Úrvinnsla hans á verkinu boðar hins
vegar nýja tíma í tónlistarsögunni
og það þarf að leita til tónskálda
sem voru uppi á eftir Bruckner til
að fínna eitthvað álíka."
Anton Bruc
Einn afmeisturum kirkjutónli
EINS og svo margir snillingar
fékk Anton Bruckner ekki fúlla
viðurkenningu sem tónskáld fyrr
en eftir dauða sinn. En jafii mis-
skilinn og hann var í lifanda lífi
er hann í dag álitinn einn af
meisturum kirkjutónlistarinnar.
Anton Bmckner var fæddur í
þorpinu Ansfelden nálægt Linz í
Austurríki árið 1824. Faðir hans
var skólastjóri í þorpinu og hjá hon-
um fékk Bmckner fyrstu tilsögnina
í tónlist. Ellefu ára að aldri var
hann tekinn í kórinn í St. Florian-
klaustrinu og þar fékk hann ágætt
tónlistaruppeldi. Eftir að hafa starf-
að sem kennari, skólastjóri og org-
anleikari í Linz, St. Florian og ná-
grenni, var hann ráðinn organisti
við St. Florian-klaustrið 1851 og
við Dómkirkjuna í Linz 1856.
Árið 1875 var Bmckner ráðinn
orgel- og tónfræðikennari við Tón-
listarháskólann í Vín. Þar starfaði
hann til ársins 1891 er hann fór á
eftirlaun. Síðustu fimm árin helgaði
hann sig tónsmíðum, aðallega
níundu sinfóníu sinni sem honum
auðnaðist þó ekki að ljúka við.
Bmckner andaðist árið 1896, sjötíu
og tveggja ára að aldri.
Messan í e-moll
tímamótaverk
Verkum Bmckners var oft illa
tekið, því hinum íhaldssömu Aust-
urríkismönnum þótti hann snið-
ganga hið hefðbundna form sin-
fónía og messa. Margir héldu því
fram að tónsmíðar hans líktust um
of tónsmíðum hins þýska Richards
Wagners sem Bmckner hafði mikl-