Morgunblaðið - 10.12.1988, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988
Gítartón-
leikarísafní
Signrjóns
Einleikstónleikar á gítar verða
haldnir í Listasafhi Sigxirjóns
Olafssonar á Laugarnesi sunnu-
daginn 11. desember kl. 20.30.
Listamaðurinn heitir Uwe
Eschner og er fæddur í Hamborg
1963. Hann hóf sjálfsnám á gítar
11 ára gamall en að loknu stúdents-
prófi árið 1982 hóf hann nám við
Hamburger Konservatorium og
lærði hjá Peter John McAven.
Haustið 1985 fékk hann inngöngu
í tónlistarháskólann í Freiburg og
mun útskrifast þaðan í byijun
næsta árs. Kennari hans þar er
Sonja Prunnbauer prófessor. Að
auki hefur Uwe Eschner sótt nám-
skeið hjá D. Kreidler, Roberto Auss-
el og David Russel. Hann hefur
komið fram í Þýskalandi, Sviss og
Italíu með ýmsum listamönnum.
A efnisskrá tónleikanna verða
verk eftir J.S. Bach, Mauro Giul-
iani, Leo Brouwer, F. Martin, An-
tonio Lauro og Villa-Lobos.
(Fréttatilkynning)
Steingrímur Sigflísson samgönguráðherra:
Könnun á staðsetningu varaflug-
vallar miðist ekki við herflug
Fjórir vellir verða kannaðir, niðurstaða væntanleg fljótlega
STEINGRÍMUR Sigfusson
Skólakór
Kársness
gefur út
hljómplötu
SKÓLAKÓR Kársness hefur
gefíð út hljómplötuna „Hringja
klukkurnar í kvöld“.
Á plötunni eru jóiasöngvar frá
ýmsum löndum og kórverkið
„Söngvasveigur" — A Ceremony
of Carols — eftir Benjamin Britt-
en. Monika Abendroth leikur á
hörpu og Heimir Pálsson þýddi
verkið á íslensku.
Alls syngja rúmlega sextíu börn
á plötunni, stjórnandi þeirra er
Þórunn Bjömsdóttir tónmennta-
kennari.
Nú um helgina munu kórfélagar
ganga í hús í Kópavogi og bjóða
plötuna til kaups en hún er einnig
fáanleg á Bókasafni Kópavogs.
Ragnar Bjamason er kynnir á
stjörnudansleiknum í kvöld.
Hótel Saga:
Stjörnu-
dansleikur
Síjörnudansleikur verður í
kvöld, laugardagskvöld, í Súlna-
sal Hótel Sögu. Þar koma m.a.
fram Fjórtán fóstbræður undir
stjórn Gylfa Gunnarssonar, Jó-
hann G. Jóhannsson, _ Sverrir
Stormsker, Magnús Ólafsson,
rokkhljómsveitin Síðan skein sól
og Hörður Torfason.
Kynnir á Stjömudansleiknum er
Ragnar Bjamason. Hljómsveit
hússins, Hótel, leikur fyrir dansi til
klukkan 3 og á Mimisbar er hljóm-
sveit Andra Backmann. Miðaverð á
dansleikinn er 650 krónur en þeir
sem koma fyrir klukkan 24 fá
óvæntan glaðning. Þá er jólahlað-
borð í Skrúð opið frameftir kvöldi.
Nýja kökuhúsið:
Jólasveinar
uppi á þaki
Jólasveinar munu birtast í fúll-
um skrúða þegar kveikt verður
á jólatré frá Oslóborg á Austur-
velli sunnudaginn 11. desember
nk.
Munu þeir koma fram á þaki
Nýja kökuhússins við homið á
Landsímahúsinu strax þegar at-
höfninni við jólatréð er lokið, en hún
hefst kl. 16.00, Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur jólalög á Austur-
velli frá kl. 15.30.
sam-
gönguráðherra kynnti á blaða-
mannafundi í gær ýmis mál, sem
nú er unnið að í samgönguráðu-
neytinu. Þar á meðal er könnun
á fjórum flugvöllum, sem til
greina gætu komið sem varaflug-
vellir fyrir millilandaflug, án
þátttöku Mannvirkjasjóðs Atl-
antshafsbandalagsins, mat á
hættum, sem stafa kann af
Reykjavíkurflugvelli og könnun á
breyttu fyrirkomulagi strandsigl-
inga á vegum ríkisins. Ne&idir
hafa verið skipaðar til þess að
fjalla um tvö síðarnefndu málin
og ýmis fleiri.
Ráðherra sagðist hafa skrifað
flugmálastjóra og flugmálastjórn og
óskað eftir því að tillögur verði gerð-
ar um uppbyggingu flugvalla, sem
þjónað geti sem varaflugvellir fyrir
millilandaflug. Ráðherra sagði að
þar sem hann hefði ákveðið að leggja
til hliðar áform um samstarf við
Mannvirkjasjóð Atlantshafsbanda-
lagsins um gerð varaflugvallar, ættu
tillögur flugmálastjóra að miðast við
þarfir almenns farþega- og vöru-
flutningaflugs en ekki við herflug-
vélar.
Sömu staðir kannaðir og
nefhdir eru í skýrsiu
flugráðs
Ráðherra sagði að fjórir kostir
yrðu kannaðir. í fyrsta lagi yrðu
kannaðir möguleikar á lengingu
Egilsstaðaflugvallar, annars vegar í
beinu framhaldi af núverandi fram-
kvæmdum við völlinn eða síðar. í
öðru lagi ætti að kanna lengingu og
aðrar endurbætur á Akúreyrarflug-
velli og sérstaklega ætti þar að gera
þar nákvæmnisútreikninga á að-
flugsskilyrðum, sem taki mið af end-
urbættum aðflugsbúnaði þar, meðal
annars nýrri ratsjá. í þriðja og fjórða
lagi ætti að kanna hvernig standa
þyrfti að lengingu og öðrum umbót-
um á Sauðárkróksflugvelli og
Húsavíkurflugvelli.
„Þessir kostir eru þeir, sem helst
eru nefndir í skýrslu flugráðs frá
síðasta vori og ég tel því eðlilegt að
þeir verði sérstaklega yfirfarnir
núna,“ sagði Steingrímur. „Það er
ætlun mín að tillaga um ákvörðun
í þessu máli verði lögð fyrir Alþingi
sem hluti af endurskoðun flugmála-
áætluna á vorþinginu. Það á ekki
að þurfa að vinna mikla grunnvinnu
í þessu sambandi, þessir kostir hafa
flestir verið kannaðir áður. Það er
því naumast annað eftir en að taka
ákvörðunina."
VERÐBREYTINGAR-
STUÐULL
FYRIRÁRÐ 1988
Samkvæmt ákvæðum 26. gr. laga nr. 7514. september 1981 um
tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað
verðbreytingarstuðul fyrir árið 1988
og nemur hann 1,1848 miðað við 1,0000 á árinu 1987.
Reykjavík 1. desember 1988
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Morgunblaðið/Emilía
Samgönguráðherra á blaða-
mannafundinum í gær.
Ráðherra sagðist vonast til þess
að fullnægjandi varaflugvöllur í öllu
tilliti yrði reiðubúinn innan fárra
ára. „Það er rétt að taka það fram
í þessu sambandi að það er verið
að gera ýmsar úrbætur á Akureyrar-
flugvelli, sem gera hann betur í
stakk búinn til þess að sinna þessu
hlutverki en verið hefur og ég á von
á að íslensku flugfélögin fari að
nota hann sem slíkan í ríkari mæli,“
sagði ráðherra. Hann sagði að að-
flugsskilyrði væru hins vegar verri
á Akureyri en til dæmis á Egilsstöð-
um og því væri æskilegt að Egils-
staðaflugvöllur eða annar hvor hinna
vallanna, sem ætti að kanna, upp-
fyllti einnig þær kröfur sem gerðar
væru til varaflugvallar.
Um kostnað við lagningu vara-
flugvallar sagði Steingrímur að úr
því það stæði ekki mikið í mönnum
að leggja 2.000 metra flugbraut á
Egilsstöðum, setti það okkur varla
á hausinn að bæta við 400 metrum.
„Þetta yrði innan ramma flugmálaá-
ætlunarinnar, sem er í gangi, en þó
er hugsanlegt að þessi viðbót yrði
þar sérverkefni," sagði ráðherra.
Skipti mér ekki af
utanríkisráðherra og hann
ekki af mér
Steingrímur var spurður um orð
utanríkisráðherra um að þótt Mann-
virkjasjóður NATO greiddi hluta
kostnaðar við varaflugvöll, yrði hann
ekki hernaðarmannvirki og þeim
möguleika hefði ekki verið hafnað
endanlega. Steingrímur var einnig
spurður um verkaskiptingu utanrík-
isiáðherra og samgönguráðherra
hvað varðaði mál varaflugvallar.
„Ég fer með samgöngumál en Jón
Baldvin með utanríkismál. Ég lít svo
á að ég fari að sjálfsögðu með öll
samgöngumál nema ef vera kynni
innan hinna svokölluðu varnar-
svæða. Ef það væri meiningin að
byggja þennan varaflugvöll við hlið-
ina á hinum flugvellinum í Keflavík
væri það væntanlega á borði ut-
anríkisráðherra. Mér er hins vegar
ekki kunnugt um að Aðaldalshraun
eða aðrir slíkir staðir hafi verið lýst-
ir varnarsvæði, þannig að ég lít svo
á að samgöngur þar eins og annars
staðar á landinu heyri undir sam-
gönguráðuneytið og vinn samkvæmt
þessari reglu,“ sagði Steingrímur.
Er hann var inntur eftir því hvort
hann hefði ekki samráð við utanrík-
isráðherra um málið, sagðist hann
ekki skipta sér af því hvernig ut-
anríkisráðherra ynni og hann ætti
ekki að skipta sér af sínum verkum.
Málið hefði ekki verið rætt mikið í
ríkisstjóminni og ekki gefið tilefni
til þess.
Tónlistarskóli Grindavíkur:
120 söngvarar og hljóðfæra-
leikarar á iólatónleikum
Ginndoirllf
Gríndavik.
ALLS munu 120 söngvarar og
hljóðfæraleikarar koma fram á
jólatónleikum Tónlistarskóla
Grindavíkur sem haldnir verða
sunnudaginn 11. desember kl.
17.00 í Grindavíkurkirkju.
Efnisskráin er geysifjölbreytt og
sýnir hversu starfið er þróttmikið í
tónlistarlífi Grindvíkinga um þessar
mundir en nemendur við skólann á
haustönn losa hundraðið.
Að sögn Jóns Hjaltasonar skóla-
stjóra koma yngstu nemendur skól-
ans fram á tónleikunum en þeir eru
í forskóla. Börnin leika á blokk-
flautur og hluti af þeim syngur með
undir stjóm Ingu Runólfsdóttur.
Þá koma fram nýstofnaðir barna-
kórar grunnskólans undir stjórn
Önnu Guðmundsdóttur, nýráðins
organista við kirkjuna, en hún starf-
ar einnig við tónlistarskólann. Sam-
kór skólans kemur fram, en hann
hefur nú starfað í þijú ár og tekið
miklum framförum. Jafnframt
munu margir ungir píanóleikarar
leika bæði einleik og fjórhent auk
þess sem hljómsveit skólans lýkur
tónleikunum með hressilegri jóla-
tónlist.
Það er von forráðamanna skólans
að Grindvíkingar og aðrir fjölmenni
en aðgangur er ókeypis.
- Kr.Ben.
Opið hús og- j ólafagriaður
Félagsstarf aldraðra i Hvassa-
Ieiti 56—58 verður með opið hús
á laugardag, 10. desember, kl.
14-17.
Sýndar verða myndir og málverk
sem unnin hafa verið í vetur. Boðið
verður upp á heitt súkkulaði og
smákökur.
Jólafagnaður félagsstarfs aldr-
aðra í Hvassaleiti verður mánudaj
inn 12. desember kl. 14.00. S
Gylfi Jónsson flytur hugvekju
Sigrún Hjálmtýsdóttir óperusönj
kona syngur einsöng og Kór Kárí
nesskóla kemur í heimsókn og synj
ur. Boðið verður upp á aðventi
kaffi með góðu meðlæti.
(Fréttatilkynning)
Frá félagsstarfí aldraðra Hvassaleiti 56—58.