Morgunblaðið - 10.12.1988, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Hlíf Ragnarsdóttir eigandi Hámýjungar að klippa fyrsta viðskipta-
vininn, sem er Matthías meðeigandi.
Þorlákshöfii:
Þj ónustufyrir-
tækium fj ölgfar
Þorlákshöfn. V QM C J
MIKIL aukning hefur orðið á
þjónustu hér á síðustu mánuðum.
Ný og glæsileg matvömverslun
var opnuð um miðjan síðasta
mánuð, hárgreiðslustofa, bill-
jarðsalur, skipaþjónusta, barna-
fataverslun og fleira er nú starf-
rækt í Þorlákshöfn.
Ný og glæsileg hárgreiðslustofa
var opnuð hér í Þorlákshöfn fyrir
stuttu í Unubakka. Eigendur stof-
unnar eru þau Hlíf Ragnarsdóttir
hárskeri og Matthías Sveinsson.
Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma
sem hér er hárgreiðslustofa en und-
anfarið hafa komið hér farandrak-
arar og hárgreiðslufólk um helgar.
Nýja stofan hlaut nafnið „Hár-
nýjung" og er hún opin alla daga
vikunnar nema sunnudaga og
mánudaga.
Björt og rúmgóð nýlenduvöru-
verslun var opnuð um miðjan októ-
ber á Selvogsbraut 2 hér í bæ.
Aðaleigandi er Heimir O. Davíðsson
en hlutafélag var stofnað um rekst-
urinn. Verslunin er á 600 m2 gólf-
fleti og auk þess er fataverslun á
lofti sem er yfir hluta hússins.
Heimir segir að það verði stolt
þeirra að kjötborðið verði ávallt sem
glæsilegast — kjötiðnaðarmaðurinn
er danskur og heitir Lars Andersen.
Verslunin er opin alla virka daga
frá kl. 9 til 18 nema föstudaga er
opið til kl. 19 og laugardaga frá
kl. 10 til 14. Kvöldsalan er alltaf
opin til kl. 22 og þar er einnig
myndbandaleiga. - J.H.S.
Kaupfélag Héraðsbúa:
Sauðfjárslátrun lokið
Egilsstöðum.
SauðQárslátrun hjá Kaupfé-
lagi Héraðsbúa á Egilsstöðum
lauk fyrir nokkru. Slátrað var i
þremur sláturhúsum á Egilsstöð-
um, Fossvöllum og Reyðarfirði
alls 56.142 ijár. Dilkar voru
53.523 en fullorðið fé 2.619. Alls
er þetta um 720 tonn af dilka-
kjöti.
Á Egilsstöðum var slátrað 19.599
kindum, þar af voru 18.464 dilkar.
Meðalþyngd 13,31 kg. Þyngstidilk-
urinn var frá félagsbúinu Uppsöl-
um, 25,0 kg. Hæsta meðalvigt var
áfélagsbúinu Breiðavaði, 16,26 kg.
Á Fossvöllum var slátrað 22.463
kindum, þar af 21.447 lömbum.
Meðalvigt var 13,3 kg. Þyngsta
dilkinn átti Aðalsteinn Jónsson
Klausturseli, 25,0 kg. Mestu meðal-
vigt hafði Vernharður Vilhjálmsson
Möðrudal, 15,93 kg.
Á Reyðarfirði var slátrað 14.080
kindum þar af 13.612 dilkum. Með-
alvigt var 13,69 kg. Þyngsta dilkinn
átti Eiríkur Kjerúlf, Vallholti, 31,9
kg. Hæstu meðalvigt hafði Halla
Kjartansdóttir, Kolluleiru, 16,68
kg-
I samræmi við fækkun sláturfjár
hér á Austurlandi hafa þau slátur-
hús sem starfrækt eru týnt tölunni.
Fyrir tveimur árum hætti Kaup-
félag Héraðsbúa starfrækslu slátur-
húss á Borgarfirði eystra enda hef-
ur allt fé í firðinum verið skorið
niður vegna riðuveiki. Útlit er fyrir
að þetta hafi verið síðasta haustið
sem sláturhúsið er starfrækt á
Reyðarfirði. Hjá Verslunarfélagi
Austurlands í Fellabæ var ekki
slátrað í haust en þar hefur verið
slátrað um 10 þúsund fjár undan-
farin ár.
- Björn
Orðabók fyrir
yngstu lesenduma
BARNAORÐABÓKIN heitir
orðabók sem bókaforlagið Iðunn
hefiir gefið út fyrir yngsta les-
endahópinn. Sigurður Jónsson
frá Arnarvatni tók saman bók-
ina. Barnaorðabókin er ætluð
lesendum í yngri bekkjum grunn-
skóla og er samin með það fyrir
augum að nýtast sem kennslubók
í notkun orðabóka.
Sigurður sagði í samtali við
Morgunblaðið að haft hefði verið
samband við hann frá forlaginu,
eftir að ákveðið hafði verið að gefa
út slíka orðabók og hann beðinn
að sjá um ritun bókarinnar.
„Þetta var mjög spennandi verk-
efni,“ sagði Sigurður. „Ég hef ekki
fengist við svona orðabókargerð
áður. Ég naut hins vegar leiðsagnar
og ráða hjá þeim sem betur vissu
á ýmsum sviðum, þar á meðal frá
foreldrum, bömum og kennurum."
Hann var spurður hvað hefði
ráðið vali orða í bókina. „Við létum
útbúa fyrir okkur tíðniorðaskrá með
um það bil tveimur milljónum orða.
Skráin var sett saman úr 60 til 70
textum. Við tókum toppinn af
henni.“
Sigurður segir að þegar sé hafinn
undirbúningur þess að gefa út
næstu bók í þessum flokki, það
verður orðabók fyrir eldri bekki
grunnskóla og framhaldsskóla-
nema. Sú bók verður með 20 til 30
þúsund orðum.
Sigurður Jónsson frá Amarvatni
hefur unnið við Orðabók Háskólans
og með íslenskri málnefnd.
Barnaorðabókin inniheldur 2.300
orðmyndir og er skreytt með rúm-
lega 400 teikningum eftir Gunnar
Karlsson. Bókin er 263 blaðsíður
að stærð.
0
INNLENT
Akranes
Bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni veröur hald-
inn i Sjálfstæöis-
húsinu við Heiðar-
geröi sunnudaginn
11. desember kl.
10.30.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
Kæru Seltirningar
Bráðum koma blessuð jólin
Nú ætlum við að vera með okkar árlega jólaglögg á Austurströnd
3 laugardaginn 10. desember kl. 20.30. Salurinn okkar er i hátiðar-
búningi og viö öll í jólaskapi aö sjálfsögðu.
Tökum okkur saman félag ungra og eldri, um að eiga góða kvöld-
stund saman í jólaskapi. Jólalög og piparkökur.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Seltirninga
og FUS Baldur.
Heimir FUS,
Keflavík
Aðalfundur Heimis, félags ungra sjálfstæðis-
manna i Keflavik, verður haldinn i Sjálfstæöis-
húsinu laugardaginn 10. desember kl. 14.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Mætum öll.
Stjórnin.
Keflvíkingar - jólafundur
Jólafundur 10. desember
Sameiginlegur jólafundur sjálfstæðisfélag-
anna í Keflavík verður haldinn i Glóöinni
sunnudaginn 11. desember og hefst með
borðhaldi kl. 19.30. Gestur fundarins verð-
ur Halldór Blöndal.
Sjálfstæöisfólk fjölmennið.
Félag sjálfstæðismanna í Árbæ, Selási, P
Ártúnsholti og Grafarvogi halda jólafund i
■ ^ ií félagsheimilinu, Hraunbæ 102b, laugardag-
inn 10. des. nk. kl. 17.00-19.00.
Gestur tundarins verður Geir H. Haarde. i..HSj
. JjSjfö ;ll|^ ^ ■ alþingismaður. |
\ Boðið upp á léttar veitingar.
j
ÍwErjB
Stjómimar.
Stjórnimar.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
O MlMIR 598812127 = 1Frf.
□ Gimli 598812127 - 1
Slysavarnadeild kvenna
íKeflavík
Jólafundur verður haldinn ( Iðn-
sveinafélagshúsinu þriðjudaginn
13. desember kl. 20.30. Eru kon-
ur minntar á að koma með jóla-
pakka. Konur úr deildinni í Garði
koma í heimsókn.
Nefndin.
Norðurijósin - jólafundur
Jólafundur Norðurijósanna verður
haldinn mánudaginn 12. des. kl.
12.15 i Leifsbúð Hótel Loftleiðum.
Fjölmennum.
Stjórnin.
Sundlaugavegi 34.
Sími 881616
Gömlu dansarnir
Mánudaginn 12. desember kl.
21.00-23.00 kennum við
Tyrolavals og hopsa, Svensk
maskerade og hambo. Verð kr.
400. Allir velkomnir.
V.Vl
lomrn
KFUM - KFUK
Samkoma á morgun að Amt-
mannsstig 2b kl. 16.30. Erind-
reki hans. Ræðumaður: Jónas
Þórisson. Barnasamkoma verð-
ur á sama tíma i húsinu.
Allir velkomnir.
IKJJ Útivist
SunnudagsferA 11. des.
kl. 13
Stórstraumsfjöruferð I Gróttu.
Einstakt tækifæri til að ganga
út i Gróttu og um Seltjarnarnes-
ið. Hugað að fjörumó. Létt
ganga. Verð 400,- kr., frítt f.
börn m. fullorðnum. Brottför fró
BSÍ, bensinsölu. Munið óra-
mótaferðina i Þórsmörk 30. des.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir Ferðafélags
ins:
Sunnudaginn 11. des.:
Kl. 13.00 Geldinganes.
Geldinganes er láglent nes sem
gengur út í Kollafjörð. Ekið verður
að Eiði skammt innan við Gufu-
nesverksmiðjuna og gengið það-
an eftir eiðinu út i nesiö og kring-
um það. Verð kr. 5.00,-
Sunnudagur 18. des.:
ESJA - Kerhólakambur.
Brottför kl. 10.30. Verð kr. 500,-
Brottför í feröirnar er frá Um-
feröamiöstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bíl.
Áramótaferð F.í.
Þeir sem oiga frátekna miða f
áramótaferð til Þórsmerkur
verða að greiða þá fyrir 10.
des., annar seldir öðrum.
Næsta myndakvöld verður t
Sóknarsalnum, Skipholti 50a,
miðvikudaginn 14. des.
Sýndar verða myndir úr ferðum
félagsins í sumar.
Ferðafélag (slands.
Auðbrekku 2.20) Kðpavogur
Samkoma I kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
^ VEGURINN
y Kristið samfélag
Þarabakki 3
Okkar árlegi basar verður í dag
kl. 13.00-17.00. Skreyttar tertur,
smákökur, kerti og skreytingar.
Einnig ódýrar lifandi jólastjörnur
og margt fleira.
Verið velkomin.
Vegurinn.