Morgunblaðið - 10.12.1988, Page 51

Morgunblaðið - 10.12.1988, Page 51
aaor qTJHM'R'P'írT nr anrrtr'Tqí.rrur t mn» rtTMTTnanM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988 við Breta í þorskastríðum ykkar. Þetta fólk vill frelsi og á líka að fá það. En til þess verður að setjast niður og ræða málin og senda til þess fullorðið fólk. Flokkur okkar, Verkamannaflokkur ísraels, er ekki á móti því að arabamir á Vestur- bakkanum sameinist arabaríkinu í Jórdaníu. Og með tímanum gætum við haft sams konar landamæri og eru milli Bandaríkjanna og Kanada. Þá gætum við hjálpað þeim að byggja upp eigið land. Mikilvægast er að setjast niður og ræða málin til að fínna lausn. Sellóleikari og kennari Menahem Meir fór héðan til Dan- merkur, þar sem hann heldur tón- leika á fimm stöðum. Þaðan ætlaði til Puerto Rico, þar sem hann stund- aði á sínum tíma nám hjá Pablo /Cassals og hefur nú í nokkur ár kennt þar sellóleik á einkanám- skeiðum. Eftir að hann hætti skóla- stjóm Tónlistarskólans í Tel Aviv og getur um fijálst höfuð strokið, fer hann líka árlega til Salzborgar og kennir á sumamámskeiðum í Mozarteum. „Það er ákaflega skemmtilegt, því þangað koma þá nemendur alls staðar að úr heimin- um, bæði sem virkir og óvirkir nem- endur. Þó varla nokkur Austurríkis- maður. Þeir em líklega í sumar- leyfi á öðmm námskeiðum. Fyrir utan Puerto Rico kenni ég líka oft á námskeiðum víðar í Bandaríkjun- um. Mér fellur svo vel að vera óbundinn og geta ferðast og leikið á sellótónleikum og kennt svo á námskeiðum inn á milli. En ég vil helst ekki skipuleggja allt of langt fram í tímann. Núna þarf ég til dæmis að skreppa frá Puerto Rico til tónleikahalds í Frakkiandi og Belgíu í apríl og aftur til Miinchen áður en ég verð í Salzburg í byijun júlí. í millitíðinni getur konan mín komið með mér til Puerto Rico. En geðlæknir hleypur ekki svo glatt frá sjúklingum sínum, svo hún er ekki nemá stöku sinnum með mér á ferðalögum. Synir okkar tveir em 1 í stærðfræði, annar að ljúka námi í Bandaríkjunum í hagnýtri stærð- fræði og ég hlakká til að sjá hann þar, hinn í hreinni stærðfræði í Isra- el. Elsti sonur okkar var við tónlist- arnám í Kalifomíu, en er nú nýkom- inn heim. Hans hljóðfæri er habsi- kord, og við stillum saman strengi." En víkjum að bókinni, ævisögu Goldu Meir, sem er tilefni heim- sóknar Menahem Meirs til íslands í þetta sinn. Hann segir mér að þær Björg Einarsdóttir og Bryndís Víglundsdóttir hafi verið á ferðalagi í Israel 1985 og keypt ævisögu móður hans. Þeim fannst hún svo góð og upplýsandi um land og þjóð, að Björgu varð að orði að gaman væri að fá hana þýdda á íslensku. Bryndís svaraði að bragði: Ég skal þýða bana ef þú vilt gefa hana út! Og þegar heim kom fengu þær heimild útgáfunnar til verksins og Bryndís hóf þýðinguna. Hvað var það þá sem hreif þær svona? Því svarar Bryndís í ávarpsorðum fram- an við bökina: „Mér virðist hún ( Golda Meir) hafa verið hin ágæt- asta manneskja, kona, móðir, for- ingi, stjórnmálamaður, vinur, ein- beitt í átökum, ævinlega sjálfri sér trú, rekin áfram af einlægri ást á þjóð sinni, gyðingum. Sjálf sóttist hún ekki eftir embættum heldur ýtti tiltrú félaga hennar og traust þjóðarinnar þeim að henni. Henni tókst að vinna mikil og erfið opin- ber störf á sama tíma og hún tók virkan þátt í uppeldi barna sinna og ræktaði vinskap við fjölskyldu sína og vini." Þar kom að útgefandinn, Björg Einarsdóttir, hafði samband við Menahem Meir, sem segir að þau systkinin hafi orðið mjög glöð yfir að bók móður þeirra skuli koma út á íslensku, og völdu þau og lánuðu myndir til birtingar í henni. Enn glaðari varð hann að fá boð um að koma til landsins þegar hún kom út og taka við fýrsta eintakinu. „Þetta er gott land og friðsælt. Ég gæti vel hugsað mér að eyða síðustu árum mínum á víxl í Israel og á íslandi!“ sagði Menahem Meir í lok samtalsins og kvaðst áreiðanlega eiga eftir að koma hér aftur, þótt ekki fái hann svona góða afsökun fyrir því. VIÐTAL: Elín Pálmadóttir SUPERGLANDIN HÚÐNÆRING inniheldur GLA (Gammalínólsýru), sem er fjölómettuð fitusýra. GLA er líkamanum eiginleg og hverfur því strax inn í húðina í stað þess áð liggja utan á. Superglandin húðnæring: * Hindrar öldrun húðarinnar fyrir tímann » Kemur í veg fyrir uppþornun og eykur mýkt húðarinnar * Eykur blóðstreymi og styrkir frumuveggina Superglandin húðnæring er heilsuvara og sænskir læknar og húðsérfræðingar hafa mælt með notkun hennar við margskonar húðvandamálum. INNFLUTNINGSVERSLUN SÍMI 611659 Superglandin 10% afsláttur Dagkrem, næturkrem og næringarhylki. Dagkrem, næturkrem og næringarhylki. IJ ^.l“j,l^ jii ■ .U .. .. •W...uu -> Skólabraut 1 • 170 Seltjarnarnes SING SAUMAVÉLAR SPARA ÞÉR SPORIN SAMBA EXCLUSIVE Saumavél með 11 mismunandi nytja-, skraut- og teygjusaumum. ■ír Beinn saumur ☆ Zig-zag ☆ Styrktur zig-zag ☆ Blindfalds saumur ýý Opinn loksaumur ☆ Þriggjaspora zig-zag ☆ Tíglasaumur ☆ M-saumur ■fr Loksaumur Einnig hefur vélin sjálfvirkan hnappagatasaum, frjálsan arm og þægilega yfirbreiðslu. LADY STAR Saumavél með 6 mismunandi saumum. ☆ Beinn saumur ☆ Zig-zag ý!r Blindfalds saumur m kr. 18.915 stgr. ☆ Þríggjaspora zig-zag ☆ M-saumur Vétin er með frjálsum armi og sjálfvirkum hnappagatasaum. Það er auðvelt að þræða hana og létt aö spóla. kr. 15.820 stgr. Við kaup á einni af neðangreindum saumavélum fylgir Magic Taylor tölufestingavél eða viðgerðavél í bónus. SINGER tölvuvél mód. 6268 kr. 54.500 stgr. SINGER Serenade 30 mód. 6235 kr. 42.720 stgr. SINGER Serenade 10 mód. 6233 kr. 30.780 stgr. Tölufestingavél MAGIC TAlK)R Viðgerðavél w SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM, SÍMI685550 ÁRMÚLA 3, SÍMI 697910 OG KAUPFÉLÖGIN GREIÐSLUKORT OG GÓÐIR GREIÐSLU- SKILMÁLAR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.