Morgunblaðið - 10.12.1988, Síða 72
72
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988
Ein mynda Jóhönnu, Minning- um hest.
Vmnustofiisýning
Jóhönnu Bogadóttur
Guðmundur Pálsson í nýju versluninni.
Hafharfiörður:
Ný húsgagnaverslun
GP-húsgögn, Helluhrauni 10 í
Hafiiarfirði, opna nýja hús-
gagnaverslun í dag, laugardag-
inn 10. desember. Verslunin
verður opin virka daga frá 9—18
og laugaraga 10—16.
Til sölu verða margskonar hús-
gögn, sófaborð, sjónvarpsvagnar,
hillusamstæður og fleira, framleitt
af GP-húsgögnum og hönnuð af
eiganda GP, Guðmundi Pálssyni.
Verslunin selur einnig húsgögn
frá ítölskum framleiðendum, Bon-
aldo Casa, Casa Grande, Vavass-
ori, Marka Italia og fleirum, han-
dunna glervöru, lampa, vasa og
fleira frá Paolo Treversi á Ítalíu.
Verslunin er eins og áður segir
til húsa í Helluhrauni 10 í Hfanar-
firði en það er næsta hús við bif-
reiðaeftirlitið.
(Fréttatilkynning)
FRÉTT um vinnustofusýningu
Jóhönnu Bogadóttur birtist
brengluð og með rangri mynd í
Morgunblaðinu í gær. Fréttin er
því birt að nýju, eins og hún átti
að vera. Jóhönna Bogadóttir
heldur vinnustofúsýningu laug-
ardag til mánudags, 10.—12. des-
ember, á Hjarðarhaga 48, 4. hæð
t.v.
Þar verða sýnd málverk, teikn-
ingar og grafíkmyndir unnar með
blandaðri tækni, flest unnið á þessu
ári.
Jóhanna er nú á starfslaunum
sem borgarlistamaður og verður
með sýningu á Kjarvalsstöðum á
næsta hausti.
Leiðrétting
RANGT var farið með nafn
Ragnhildar Guðmundsdóttur, 2.
varaformanns BSRB, í mynda-
texta og frétt af blaðamanna-
fundi BSRB, sem birtust í Morg-
unblaðinu í gær.
Blaðið biðst velvirðingar á mis-
tökunum.
Lúsíuhátíð
í Gerðubergi
Félag Svía á íslandi heldur Lúsíu-
hátíð í Gerðubergi á sunnudag.
Lúsíugangan byijar kl. 15.00.
Sýningin er opin kl. 15.00—22.00
alla dagana.
Eva Benjamínsdóttir
Sýningu
Evu að ljúka
SÝNING Evu Benjamínsdóttur,
sem ljúka átti um síðustu helgi,
var framlengd og Iýkur þess í
stað á mánudag, 12. desember.
Sýningin er í Gallerí Evu, Miklu-
braut 50, og sýnir hún þar olíu-
myndir og verk unnin með bland-
aðri tækni.
Sýningin er opin kl. 15—21.
(Fréttatilkynning)
Kveikt á
jólatré í
Hafiiarfirði
LJÓS verða tendruð í dag á jóla-
tré frá vinabæ HafnarQarðar í
Danmörku, Frederiksberg. At-
höfiiin hefst kl. 15.00 á Thors-
plani og mun danski sendiher-
rann Hans Andreas Djurhus af-
henda tréð.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir forseti
bæjarstjómar flytur ávarp og séra
Sigurður Helgi Guðmundsson flytur
hugvekju. Lúðrasveit HafnarQarðar
mun leika frá kl. 14.45. Karlakórinn
Þrestir syngur nokkur lög við at-
höfnina.
í fréttatilkynningu frá Hafnar-
íjarðarbæ segir að eftir athöfnina
á Thorsplani hefjist dagskrá á
þremur stöðum í miðbænum. I Vit-
anum verður dagskrá fyrir yngstu
kynslóðina. I Hafnarborg hefst tón-
listardagskrá kl. 16.00. Þar koma
fram Gunnar Gunnarsson flautu-
leikari, Helgi Bragason orgelleikari,
Kór Þjóðkirkjunnar, Blásarasveit
Hafnarfjarðar og Karlakórinn
Þrestir. Kaffístofan í Hafnarborg
er opin frá kl. 14.00.
I Alfafelli verður leikin píanótón-
list auk þess sem boðið er upp á
kaffí og piparkökur.
Tónleikar
haldnir í
Akranes-
kirkju
Akranesi.
TÓNLEIKAR verða í Akranes-
kirkju á sunnudag 11. desember
kl. 17.00 á vegum Tónlistarfé-
lags Akraness.
Á þessum tónleikum leikur
Bjöm Steinar Sólbergsson, orgel-
leikari Akureyrarkirkju, á hið nýja
og vandaða orgel Akraneskirkju. Á
efnisskránni em Prelúdía og Fúga
í C-dúr og jólasálmsforleikur eftir
J.S. Bach, Pastorale eftir C.
Franck, Tokkata úr 5. Orgelsinfón-
íunni eftir C. Widor svo og frönsk
jólatónlist.
Björn Steinar er Akumesingur
að uppruna og nam orgelleik við
Björn Steinar Sólbergsson
orgelleikari
Tónlistarskólann á Akranesi og
Tónskóla þjóðkirkjunnar. Hann
lauk stúdentsprófí af tónlistar-
braut við Fjölbrautaskólann á
Akranesi. Kennarar hans voru
Haukur Guðlaugsson og Fríða Lár-
usdóttir. Framhaldsnám stundaði
Bjöm síðan á Ítalíu og í Frakkl-
andi.
Undanfarin ár hefur hann verið
organleikari við Akureyrarkirkju
og verið mjög virkur í tónleika-
haldi.
- J.G.
Mannrétt-
indadags-
insminnst
íslandsdeild Amnesty Inter-
national mun minnast mann-
réttindadagsins 10. desember.
Skipulögð hefúr verið svofelld
dagskrá í tilefiii dagsins á Hótel
Borg í Reykjavík:
Homaflokkur Kópavogs leikur
kl. 15.30. Margrét Heinreksdóttir
flytur stutt erindi um mannrétt-
indamál kl. 16.00. Jóhanna Ey-
jólfsdóttir varaformaður íslands-
deildar Amnesty International
flytur stutt ávarp og afhendir ut-
anríkisráðherra yfírlýsingu. Yfir-
lýsingin varðar niðurstöður undir-
skriftaherferðarinnar Mannrétt-
indi starx á íslandi.
U I I IVVULD í STRAX
Q-IÐ KYNNIR ROKKKOKKTEIL
f BOURBON STREET STEMMNINGU
§ STRAX
• SÍÐAN SKEIN SÓL
• BJARTMAR GUÐLAUGSSON
• DISKÓTEK
• TÓNLISTARVÍMA
KÚVERÐ AÐEINS KR. 750,-
t MJALTAKONUR ÞJÓNUSTA
• BOURBON Q-AMJÓLK
• Q-MEN OSTUR
• Q-RENUDJÚS
• NÝ MYNDBÖND
Q
BORGARTÚNI 32
Dansleikur í kvöld
Opnum húsið kl. 18.00
Dansaðtil kl. 3.00
STAUPASTEINN,
Smiðjuvegi 14D, s. 78630. Kópavogi.
Miðaverð kr. 700,00
Metsölublað á hvetjum degi!