Morgunblaðið - 10.12.1988, Qupperneq 80
Dagvextir í stað dráttarvaxta;
Gjaldheimtur fái
aðlögunartíma
MEIRIHLUTI Qárhags- og viðskiptanefndar efri deildar Alþingis
leggur til að fresta því til 1. júlí að dráttarvextir verði reiknaðir
sem dagvextir af skattskuldum. I bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinn-
ar um efnahagsaðgerðir er ákvæði um að dráttarvextir skuli reikn-
ast sem dagvextir, og er þessi breyting a.m.k. þegar komin tii fram-
kvæmda hjá Gjaldheimtunni i Reykjavík.
Dráttarvextir á skattskuldir
hafa, í Gjaldheimtunni, verið reikn-
aðir út 3.-4. hvers mánaðar fyrir
byijaðan mánuð, og þeir sem
greiddu skuldir sínar 1.-2. hvers
mánaðar sluppu við dráttarvexti.
Um mánaðamótin október-nóvem-
ber voru dráttarvextir hins vegar
ekki reiknaðir, heldur voru dráttar-
vextir fyrir nóvember reiknaðir út
í lok mánaðarins og lögðust á skuld-
ir strax 1. desember.
Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinn-
ar komu úr nefnd í gær, og þar
leggur meirihlutinn til að eldri
ákvæði um dráttarvexti skuli hald-
ast óbreytt til 1. júlí 1989 hvað
varðar innheimtu opinberra gjalda
til ríkissjóðs og sveitasjóðs. Eiður
Guðnason formaður nefndarinnar
sagði Morgunblaðinu að þessi til-
laga væri samkvæmt ábendingu
Sambands sveitarfélaga og væri
ætlað að gefa sveitarfélögum aðlög-
unartíma fyrir breytinguna á út-
reikningi dráttarvaxta. Hins vegar
hefði ekki verið ætlast til þess að
þær gjaldheimtur sem þegar reikn-
uðu dagvexti breyttu vaxtatökunni
aftur í fyrra horf.
Atvmnutryggingasj óður:
-Heimildir til fyrir-
greiðslu rýmkaðar
Forsætisráðuneytið hefur breytt reglugerð sinni um Atvinnutrygg-
ingarsjóð útflutningsgreina þannig að heimildir til að veita fyrir-
greiðslu úr sjóðnum hafa verið rýmkaðar. Bráðabirgðalögin, sem
reglugerðin er byggð á, eru nú til annarrar umræðu í efri deild
Alþingis. I nefhdaráliti minnihluta fjárhags- og viðskiptaneihdar
deildarinnar er lagt til að Atvinnutryggingarsjóður verði lagður
niður og í hans stað stofnuð sérstök rekstrardeild við Byggðastofiiun.
Iengri tfma er litið að loknum skipu-
lagsbreytingum á fjárhag þeirra og
rekstri.
Sjá nánar á þingsíðu á bls. 45.
í nefndaráliti minnihlutans er
stofnun Atvinnutryggingarsjóðs
gagnrýnd. Sagt er að skipun stjórn-
ar hans brjóti í bága við þingræðis-
hefð og veki tortryggni. Hér sé um
að ræða viðbót við sjóðakerfið sem
hafi óþarfa kostnað í för með sér.
Minnihlutinn leggur til að í stað
sjóðsins verði stofnuð sérstök
rekstrardeild við Byggðastofnun.
Hlutverk hennar verði að treysta
fjárhagsstöðu fyrirtækja í útflutn-
ings- og samkeppnisgreinum í
tengslum við fjárhagslega endur-
skipulagningu, meiriháttar skipu-
lagsbreytingar, samruna fyrirtækja
og annað er horfi til hagræðingar.
Breytingamar sem forsætisráðu-
neytið hefur gert á reglugerð um
Atvinnutryggingarsjóð eru á þann
veg að nú segir að fyrirtæki komi
því aðeins til greina við lánveitingu
eða skuldbreytingu að grundvöllur
teljist fyrir rekstri þeirra þegar til
Morgunblaðið/Sigurgcir
Vetrarbeit í Lambhillu
„Það þarf að kanna staðhætti
og afla ýmissa upplýsinga. En
ég lít ekki á þetta sem bráðatil-
felli,“ sagði Kristján Torfason,
bæjarfógeti í Vestmannaeyjum
í samtali við Morgunblaðið, en
honum hefur borist kæra Sam-
bands dýraverndunarfélaga
vegna þess að 6 gemlingar eru
hafðir í vetrarbeit í Lambahillu
í Stórhöfða. Bæjarfógeti fól
rannsóknarlögreglunni í Vest-
mannaeyjum málið til með-
ferðar. Meðfylgjandi mynd
af Lambhillu í Stórhöfða voru
teknar í gær, en þá var svo
hvasst, að gemlingarnir héldu
sig í skjóli upp undir berg-
veggnum, þar sem auga mynda-
vélarinnar náði ekki til þeirra.
Gulandar-
stofiiinn
er í hættn
Fuglavemdarfélag íslands tel-
ur að gulandarstofhinn hérlendis
sé jafhvel í hættu vegna ólög-
legra veiða á honum. Um þetta
mál er fjallað í nýjasta frétta-
bréfi félagsins. Gulöndin er al-
firiðuð allt árið en hefur stundum
verið litin hornauga af hags-
munaaðilum í fiskeldi og fisk-
rækt.
Jóhann Óli Hilmarsson er ritar
um málið í fréttabréfinu segir að
gulendur hafi löngum verið skotnar
við fiskeldisstöðvar hvort sem er í
eigu eða umsjá opinberra- eða
einkaaðila. Fé hafi verið lagt til
höfuðs gulöndum á frægri laxveiðiá
á Norðvesturlandi og greiðsla boðin
fyrir hverja önd sem færð er veiðifé-
laginu.
Astæður þess að gulöndin er svo
illa séð er einkum sökum þess að
hún lifir aðallega á smáfiski í ám
og vötnum. Þannig sækir hún mik-
ið í smásilung og laxaseiði sem eru
undir 10 sm að stærð.
I umfjöllun sinni segir Jóhann
Óli: „Vafasamt er að íslenski gul-
andarstofninn þoli miklar „veiðar"
og sennilega er hætta á að þær
aukist fremur en minnki ef tekið
er mið af vaxandi umsvifum í fisk-
eldi og þeirra gullkistna sem lax-
veiðiárnar eru fyrir veiðirétthafa.
Þessar „veiðar" eru oftast stundað-
ar af misskilningi og vanþekkingu
því gulöndin tekur venjulega bæði
unga fiska og smáa . . . og er senni-
legt að veiðar hennar hafi sáralítil
áhrif á vöxt og viðgang fiskistofna.
Að auki er gulandarstofninn það
lítill að telja verður ólíklegt að seiða-
og smáfiskaát gulanda hafi einhver
áhrif að ráði.“
Sovétmenn kaupa freð-
fisk fyrir tæpan milljarð
Samið um 5% verðlækkun og 1.000 tonnum minna en á þessu ári
hefur á sjávarafurðum á síðustu
SAMNINGAR um sölu á frystum
fiski til Sovétríkjanna á næsta
ári voru undirritaðir í sendiráði
íslands í Moskvu í gær. Samið
var um sölu á 9.700 tonnum að
verðmæti 20,8 milljónir dala, um
Eimskipafélagið
fékk Keflavíkina
Vík í Mýrdal
UPPBOÐSHALDARINN í Vík í
Mýrdal gekk í gær að 160,5 millj-
ón króna tilboði Eimskipafélags
íslands í Keflavík, skip Skipafé-
lagsins Víkur hf. Hæstbjóðandi,
Saltsalan hf, stóð ekki við 161
milljón króna tilboð sitt.
Keflavíkin er nú á leið frá New
York til Spánar og er skipið
væntanlegt til landsins í janúar.
Frestur sá sem Einar Oddsson,
sýslumaður í Vik, hafði gefíð Finn-
oga Kjeld, framkvæmdastjóra og
aðaleiganda Saltsölunnar og skipa-
félagSllis . iiM.i, i.ii i.n aLaiiua við
hæsta tilboð rann út síðdegis í
gær. Þá tjáði Finnbogi sýslumanni
símleiðis að ekki yrði staðið við til-
boðið. Lögmaður Eimskipafélagsins
var mættur í þinghaldið í Vík og
að fengnu svari Finnboga, gekk
sýslumaður til samninga við Eim-
skip. Greiddi lögmaður þess fjórð-
ung tilboðsijárhæðarinnar, auk
kostnaðar, alls rúmlega 42,4 millj-
ónir króna að sögn sýslumanns.
Finnbogi Kjeld vildi ekki tjá sig
um málið í gær. Fréttaritari
950 milljónir króna, til afhend-
ingar á fyrstu 7 mánuðum árs-
ins. Verðlækkun í dölum talið frá
samningi síðasta árs er um 5%
og magnið nú 1.000 tonnum
mimia.
Samningarnir voru gerðir sam-
eiginlega af Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og Sjávarafurðadeild Sam-
bandsins, en í hlut SH koma tveir
þriðju hlutar magnsins en einn þriðji
til Sambandsins. Samið er um sölu
á 700 tonnum af heilfrystum fiski,
3.600 tonnum af ufsaflökum og
5.400 af karfaflökum og flökum
af öðrum tegundum. Á síðasta ári
nam salan 10.700 tonnum að verð-
mæti um 23,7 milljónir dala. Þá
tókst ekki að ná samningum um
frekari sölu á frystum fiski í austur-
veg. Það atriði hins nýja samnings,
að afhending skuli afmörkuð innan
fyrstu 7 mánaða ársins, gæti hins
vegar gefið vonir tii þess að á næsta
ári verði mögulegt að auka söluna,
enda mun ákveðið að það mál verði
rætt er líður á veturinn. Verðlækk-
unin frá samningi ársins í ár endur-
speglar þá verðlækkun, sem orðið
misserum.
Samingsgerðina í Moskvu önnuð-
ust þeir Gylfi Þór Magnússon, fram-
kvæmdastjóri hjá SH, og Benedikt
Sveinsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Sjávarafurðadeildar SÍS.
Morgunblaðið náði sambandi við
þá Benedikt og Gylfa Þór í Kaup-
mannahöfn í gærkvöldi. Þeir sögðu,
að þrátt fyrir ákvæði í hinum ný-
gerða samningi um að afgreiðslu
skuli vera lokið í júlí á næsta ári,
lægju engin loforð fyrir um frekari
kaup Svoétmanna síðar á árinu.
Samningsaðilar væru hins vegar
sammála um að leita bæri allra leiða
til þess að unnt yrði að halda áfram
viðskiptum út allt árið.
Flying' Tigers
koma 10. jan.
BANDARÍSKA flutningaflugfé-
lagið Flying Tigers hefúr ákveðið
fyrstu lendingu sína hér á íslandi
á pólleiðinni til Japans þann 10.
janúar næstkomandi. Jafnframt
verður það í fyrsta sinn, sem boð-
ið verður upp á fragtflug héðan
beint til Japans.
Fyrst í stað verða lendingar hér 7
í viku, en fjölgar fljótlega upp í 11.
Þá verður boðið upp á fragtflug héð-
an austur á sunnudögum og þriðju-
dögum og oftar, verði nægileg eftir-
spurn eftir fragt, lágmark um 10
tonn hveiju sinni.