Morgunblaðið - 16.12.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
SVFÍ og Landsbjörg semja um víðtækt samstarf
Sameiginleg björgunar-
miðstöð og neyðamúmer
SLYSAVARNAFÉLAG íslands og Landsbjörg undirrituðu í gær samn-
ing um víðtækt samstarf sem felur meðal annars í sér rekstur sameig-
inlegrar björgunarmiðstöðvar í húsi Landsbjargar, sameiginlegt neyð-
arsímanúmer, sem svarað er í í húsi SVFI, og rekstur sameiginlegs
björgunarskóla frá 1. september næstkomandi. Þá hvetja aðilarnir
björgunarsveitir til að sameinast þar sem hagkvæmt þykir í þágu
öflugra björgunarstarfs.
Einar Sigurjónsson, forseti SVFÍ,
og Ólafur Proppé, formaður Lands-
bjargar, kváðust vonast til þess að
með samningnum takist að kveða
niður þann núning eða þau átök sem
orðið hefur vart í samskiptum þess-
ara aðila. „Ég vona að nú verði horft
fram á veginn og menn nái að hag-
ræða í björgunarstarfi og vinna bet-
ur saman en hingað til,“ sagði Ólaf-
ur Proppé, sem lagði áherslu á að
aðilamir hefðu þegar hlotið ágæta
reynslu af ýmsu samstarfi.
„Það sem við viljum er að efla og
styrkja björgunarstarfið í landinu
og við væntum þess að þetta slái á
þá erfiðleika sem verið hafa í þessum
samskiptum," sagði Einar Sigur-
jónsson. Hann sagði að vonir stæðu
til þess að með þessu sköpuðust
möguleikar fyrir báða aðila til þess
að spara og hagræða í rekstri t.a.m.
með hagkvæmari innkaupum á tækj-
um og búnaði og koma þannig í veg
fyrir offjárfestingar. „Við teljum að
það hafi verið stigin tímamótaskref
í átt að bættum samskiptum," sagði
Einar Siguijónsson.
í samstarfssamningnum kemur
fram auk þess sem fyrr er getið að
aðilamir hyggist standa sameigin-
lega að ráðstefnunni Björgun 94 um
björgunarmál í mars næstkomandi
og sams konar ráðstefnu síðan á
tveggja ára fresti. Þá muni SVFÍ
taka þátt í stofnun alþjóðlegrar
björgunarsveitar með Landsbjörg í
því skyni að veita aðstoð og hjálp
við björgunarstörf í öðrum löndum
og afla þekkingar og reynslu sem
komið geti að notum hér á landi.
Gerð verður sameiginleg áætlun um
framtíðarstefnu í búnaðarmálum
björgunarsveita með það í huga að
nauðsynlegur búnaður verði tiltækur
alls staðar þar sem þörf er á. Sam-
tökin kaupi inn búnað sameiginlega
náist um það samkomulag í fjögurra
manna nefnd beggja aðila sem skal
skila áliti fýrir árslok 1994. Þá munu
þau beita sér fyrir auknum kynnum
milli björgunarsveita beggja aðila,
m.a. með sameiginlegum æfingum.
Samræming ungliðastarfs verði
könnuð og unnið markvisst að gagn-
Samstarfið innsiglað *********
EINAR Siguijónsson, forseti SVFÍ, og Ólafur Proppé, formaður
Landsbjargar, undirrituðu í gær samstarfssamning Landsbjargar
og Slysavarnafélags íslands.
kvæmri upplýsingamiðlun. Lands-
björg og SVFI eru sammála því að
árangur hafi náðst af samstarfi í
fjarskiptaráði björgunarsveita og
vilja efla starf þess.
Einnig er að fínna ákvæði í samn-
ingnum þar sem því er lýst yfír að
samstarfi Slysavamafélags og
Landsbjargar að fjáröflun verði fram
haldið, m.a. með samningi við RKÍ
og SAÁ um rekstur söfnunarkassa.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 16. DESEMBER
YFIRLIT: Yfir N-Grænlandi er 1.032 mb haeð en víðáttumikil 960 mb
djúp lægð við Skotlanífþokast austur. Lægðardrag yfir suðvestanverðu
Grænlandshafi hreyfist hægt austur.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Vestfjarðamiðum, Austurmið-
um, Austfjarðamiðum, Austurdjúpi og Færeyjadjúpi.
SPA: Norðaustan kaldi og él um norðanvert landið en þurrt og víða
léttskýjað syðra. Vægt frost viðast hvar á landinu. Sennilega einnig él
á Reykjanesi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAQ: Austlæg átt, strekkingur og slydda eða snjó-
koma með suður- og suðausturströndinni, en þurrt og fremur kalt I
öðrum landshlutum, einkum fyrir norðan.
HORFUR Á LAUGARDAG: Nokkuð hvöss austanátt og víða hlánar um
tíma. Dálítil snjókoma/slydda um mlkinn hluta landsins.
HORFUR Á SUNNUDAG: Útlit er fyrir að vindur snúist til norðan- og
norðaustanáttar með kólnandi veðri á ný. Snjókoma eða él um landið
noröanvert, en bjart syðra.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 10.30,
22.30. Svarsfmí Veðurstofu Islands - Vaðurfregnir: 900600.
o & & & m Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyik,
Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heii fjöður er 2 vindstig..
r r r * r * * * * • JL 10° Hrtastig
r / r r r * / r * r * * * * * V V V v súld J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka '
(Kl.17.30ígær)
FÆRÐA VEGUM:
Flestir aðalvegir landsins eru nú ágætlega færir, en viða er þó hálka.
Ófært er á nokkrum heiðum. Á Vesturlandi er Brattabrekka þungfær. A
Vestfjörðum er ófært um Klettsháls, Dynjandisheiði og Hrafnseyrar-
heiði. Á Norðurlandi er Lágheiði ófær, og á Austurlandi eru Hellisheiöi
eystri og Breiðdalsheiöi ófærar.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í slma 91-631500 og
á grænni línu, 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að M tíma
Akureyri
Reyltjavfk
hitl veftur
+3 úrkoma
+2 skýjað
Bergen 4 rigning
Helslnki 4*2 skýjað
Kaupmannahöfn 1 alskýjað
Narssarssuaq +17 skýjað
Nuuk +11 skafrennin;
Ósló 0 snjókoma
Stokkhólmur +1 skýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Algarve 14 heiðskirt
Amsterdam 3 súld
Barcelona vantar
Berlfn 3 skýjað
Chicago 6 suld
Feneyjar 6 þoka
Frankfurt 4 skýjað
Gtasgow 3 skúr
Hamborg 2 skýjað
London 5 skýjað
LosAngeles 7 léttskýjað
Lúxemborg 0 snjókoma
Madrkf 8 léttskýjað
Malaga 14 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Montreal 3 skýjað
NewYork 5 rignlng
Orlando 11 léttskýjað
Parfs 7 skúr
Madelra 16 skýjað
Róm 16 skýjað
Vin 6 skýjað
Washington 6 þokumóða
Winnipeg +3 alskýjað
*
V
ÍDAGkl. 12.00
Heimtld: Veöurstofa íslands
(Byggt á voöurspó kl. 16.30 í gœr)
Sameining Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna
Atkvæði greidd
fimmta febrúar
BÆJARSTJÓRNIR Keflavíkur og Njarðvíkur og hreppsnefnd
Hafnahrepps ákváðu á sameigínlegum fundi í fyrradag að láta
fara fram atkvæðagreiðslur í sveitarfélögunum um sameiningu
hinn 5. febrúar næstkomandi. Tillaga um sameiningu allra sveitar-
félaganna á Suðurnesjum var felld í nóvember. Tillagan fékk
hins vegar meirihlutafylgi í þessum þremur sveitarfélögum.
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Á fundinum var einnig rætt um
Njarðvík og formaður umdæma- ýmis sameiginleg mál og ákveðið
nefndar, sagði að í framhaldi af
niðurstöðum atkvæðagreiðslunnar i
nóvember hefði umdæmanefnd sent
þessum þremur sveitarfélögum bréf
og sveitarstjórnirnar síðan ákveðið
á sameiginlegum fundi sínum að
láta fara fram atkvæðagreiðslu um
sameiningu.
að hittast aftur vegna þeirra. Krist-
ján sagði að til dæmis væri rætt
um að kanna hvaða verkefni hið
nýja sveitarfélag kynni að fá við
verkefnaflutning frá ríkinu, ekki
síðst ef það yrði reynslusveitarfélag
sem svo er kallað.
Ólafur Jóhann Ólafsson viðmælandi Forbes
Deild Ólafs mikilvæg
fyrir framtíð Sony
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson, framkvæmdastjóri Sony Electronic
Publishing, er á meðal viðmælenda viðskiptatímaritsins Forbes
20. desember í ár. Tekið er fram að framkvæmdastjórinn sé
metsöluhöfundur skáldsagna á íslandi.
Forsíðuefni Forbes er grein um
Sony og Mickey Schulhof, for-
stjóra Sony í Bandaríkjunum.
Athyglinni er sérstaklega beint
að forystu Sony á sviði upplýsinga
og afþreyingartækni. Sagt er að
árangur Sony Electronic Publish-
ing skipti miklu, en í þeirri deild
sé samþætting margmiðlunar og
gagnvirkrar tölvutækni hvað aug-
ljósust. Deildin var stofnuð fyrir
tveimur árum og mun skila hagn-
aði á þessu ári af veltu 130 til
150 milljóna dala. Aðal söluvara
deildarinnar eru leikir fyrir Sega-
og Nintendo-leikjatölvur sem
byggja margir á kvikmyndum og
tónlist frá Sony. Sagt er að Schul-
hof hafí sett deild Ólafs það mark-
mið að tvöfalda söluna ár hvert
næstu þrjú árin. Deildin á því að
velta meira en hálfum milljarði
dala 1996 ef markmiðið næst.
„Við notum það sem við náum
í, hvort sem það er í samvinnu
við kvikmyndafélög, útgefendur
teiknimyndasagna eða sjónvarp
(ESPN),“ sagði Ólafur í viðtalinu
við Forbes. „Vandinn er að sam-
þætta efnið með þeim hætti að
neytandanum þyki það áhuga-
Úrklippa af greininni í Forbes
þar sem birtist mynd af Ólafi
Jóhanni.
vert. Það er ekki nóg að senda
frá sér fallegar myndir. Efnið
verður að hafa nóg afþreyingar-
gildi til að halda fólki uppteknu
tímunum sarnan."