Morgunblaðið - 25.10.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.10.1995, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C/D 0 miiinMafr iíb STOFNAÐ 1913 243. TBL. 83. ARG. MIÐVIKUDAGUR 25. OKTOBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Clinton Bandaríkjaforseti og Jiang Kínaforseti ræddust við í New York Engin lausn á vax- andi áaTeininsri o o New York. Reuter. FORSETAR Bandaríkjanna og Kína, Bill Clinton og Jiang Zemin, áttu tveggja stunda fund í New York í gærkvöldi. Að sögn Mike McCurrys, talsmanns Bandaríkja- forseta, voru viðræðurnar „mjög gagnlegar" en eftir sem áður væru alvarleg ágreiningsefni í samskipt- um ríkjanna. Var m.a. fjailað um mannréttindamál í Kína á fundi forsetanna. „Þessi tvö stóru ríki eiga mikið undir því að ræðast við á upp- byggilegan hátt og eiga náið sam- starf þar sem það er gerlegt,“ sagði Clinton áður en fundurinn hófst. Jiang var fáorður en gaf í skyn að málefni Tævans væru eitt mikilvægasta deiluefnið í sam- skiptunum við Bandaríkjamenn. I sumar fékk forseti Tævans leyfi til að heimsækja Bandaríkin þrátt fyrir hörð mótmæli stjóm- valda í Peking. Þar á bæ er ekki viðurkennt að Tævan sé annað en hiuti Kína og í orði kveðnu er það stefna Bandaríkjanna, sem ekki hafa stjórnmálasamband við forna bandamenn sína á Tævan, að Kína skuli vera eitt ríki. Clinton verður hins vegar að taka tillit til öflugs stuðnings sem málstaður Tævana nýtur á Bandaríkjaþingi. Kínveijar og Bandaríkjamenn hafa einnig átt í æ harðari deilum vegna mannréttindabrota í Kína og vaxandi halla á viðskiptum ríkj- anna, Kínveijum í hag. „Yfirskin frelsis og lýðræðis" Jiang flutti ræðu á afmælishátíð Sameinuðu þjóðanna í gær og gagnrýndi þar harkalega „viss stórveldi" sem skiptu sér af innan- landsmálum annarra. Þau græfu Breytingar á héraðsstjórn Tsjetsjníju Rússnesk stjóm- völd friðmælast Moskvu. Reuter. RÚSSAR stokkuðu í gær upp hér- aðsstjórn er þeir hafa komið á í Tsjetsjníju og sögðu markmiðið vera að reyna að sætta andófs- menn í suðurhluta lýðveldisins'. Talið er að nýi forsætisráðherr- ann, Doku Zavgajev, sé ásættan- legri kostur fýrir heimamenn en forveri hans í embætti, Salambek Khadzíjev. Neitaði helsti leiðtogi uppreisnarmanna, Dzokhar Dúdajev, að eiga viðræður við Khadzíjev. Zavgajev var forseti þings Tsjetsjníju og leiðtogi kommún- istaflokksins á Sovéttímanum en var ýtt til hliðar er Dúdajev tók við völdum. Dagblaðið Izvestíja sagði í gær að með þessu væri verið að reyna að losá Tsjetsjena við menn er færu í taugarnar á þeim og undirbúa þannig jarðveginn fýrir kosningar. Skotið á mótmælendur Það skyggði nokkuð á þessar breytingar að lögregla hóf skothríð á um 3.000 manna hóp er kom saman til að mótmæla hinum nýja forsætisráðherra. Fjórir særðust í skothríðinni. Rússneskir fallhlífahermenn gerðu í gær skyndiárás með sjö þyrlum á flugvöll í grannhéraðinu Ingúsetíu eftir að hafa fengið fregnir af því að tsjetsjenskir upp- reisnarmenn hefðu hertekið völl- inn. Einn farþegi féll og tveir særð- ust. Fregnin um uppreisnarmenn- ina reyndist röng og sögðu stjórn- völd í Ingúsetíu að um vísvitandi ögrun hefði verið að ræða. Kartöflur í geimferð Canaveralhöfða. Reuter. KARTÖFLUPLÖNTUR um borð í bandarísku geimfeijunni Colombia fóru að spíra í gær en vísindamenn kanna nú hvort hægt sér að framleiða kartöflur og fleiri jarðávexti við aðstæður þar sem þyngdarafl er nánast ekkert. Kannað verður hvort skortur á þyngdarafli dregur úr framleiðslu sterkju í jurtinni. Geimfararnir í Columbia munu ekki nota afurð- irnar til að drýgja forðann heldur taka þær með sér til jarðar 5. nóvember, þar sem gerðar verða ýmsar rannsóknir á kartöflunum. Þá verða þær sennilega á stærð við greipaldin. Vonir standa til að hægt verði einhvern tímann í framtíðinni að framleiða ýmiss konar matvæli í geimnum. Reynt verður að rækta plöntur í geimskipum á langferð- um, einnig í geimstöðvum þeim sem lengi hafa verið á teikniborð- inu. undan fullveldi þeirra og þjóðar- einingu „undir yfirskini frelsis, lýðræðis og mannréttinda“. Nokkur þúsund Tævanar og útlægir Tíbetar og Kínveijar voru fyrir utan fundarstað forsetanna í gær og mótmæltu stefnu kommúnistastjórnarinnar. Ætiun- in var upphaflega að viðræðurnar yrðu í bókasafni New York en Kínveijar mótmæitu vegna þess að á sýningu í safninu eru myndir af blóðbaðinu á Torgi hins him- neska friðar 1989. Var þá ákveðið að forsetarnir hittust í Lincoln- listasetrinu. Reuter EINN andstæðinga Kína- stjórnar í New York, klædd- ur grímu með svip Clintons, aftar er brúða í líki Jiangs. Reuter ALMYRKVI á sólu var í ýmsum Asíulöndum í gær. Hófst hann í Mið-Afganistan skömmu eftir dögun en færðist siðan austur eftir álfunni og var mest 100 km breiður. Víðast hvar lagðist nið- ur vinna og umferð meðan á myrkvanum stóð, í eina til tvær mínútur, en nokkuð var um að hjátrúarfullt fólk feldi sig innan dyra. Höfðu sumir stjörnuspámenn spáð því, að myrkvinn boðaði einhverjar hörmungar en allt fór þó vel og ekki er vitað til, að neinn hafi skemmt í sér augun með því að horfa á mánann gleypa sólina. Myrtaf handa- hófi AÐDRAGANDI og orsakir morða í Bandaríkjunum hafa breyst hratt undanfarin ár, að sögn bandaríska blaðsins Washington Post. 1991 fór hlutfall morða sem framin voru nánast af handahófi í fyrsta sinn yfir 50%. Samkvæmt tölfræði banda- ríska dómsmálaráðuneytisins hefur hlutfall morða þar sem fjölskyldubönd eru milli morð- ingjans og fómarlambsins lækkað, eða úr þriðjungi morða 1965 í 25% 1975 og rösk 10% árið 1992. Á sama tíma hefur hlutfall morða sem tekst að upplýsa stórlækkað eða úr 91% árið 1965 í 65% fyrir þremur árum. Byssur og fíkniefni Afbrotafræðingar segja þijár sömu ástæðurnar eiga við í báðum tilfellum; aukna byssueign, fíkniefnaviðskipti og vaxandi ofbeldisverk ungl- inga. Að sögn embættismanna er fyrr gripið til manndrápstóla í ofbeldisverkum nú en áður og byssuglaðastir eru yngstu afbrotamennimir. Hefur hlut- fall ungs fólks bæði í hópi fóm- arlamba og afbrotamanna, þegar um ofbeldi gegn ókunn- ugum er að ræða, vaxið hratt. Myrkur um miðj- andag Myndin var tekin við hina frægu byggingu Taj Mahal í Ind- landi og sýnir sólina hverfa á bak við tunglið og birtast síðan aft- ur. Mest var þó um að vera í Astleysi dugar ekki Madrid. Reuter. AFRÝJUNARDÓMSTÓLL á Spáni úrskurðaði í gær að lagalega séð dygði hjónum ekki að bera því við að ástin væri horfin til að fá skiln- að. Dómstóllinn er í borginni Pontevedra í Galiciu-héraði í norð- urhluta landsins. Að sögn spænska sjónvarpsins tók dómarinn ekki heldur tillit til þess að hjónin hafa ekki búið saman í heilt ár og ann- að hjónanna, ekki var sagt hvort, hefur kvartað undan hótunum hins. indversku borginni Fatehpur Sikri en hún var reist á 16. öld og yfirgefin skömmu síðar vegna vatnsleysis. Reiknað hafði verið út, að þar yrði myrkvinn mestur og því flykktust þangað sljarn- fræðingar og ferðafólk víðs veg- ar að úr heimi. Þegar sólin myrkvaðist táruðust sumir eða klöppuðu og aðrir föðmuðust og skáluðu í kampavíni. „Myrkvinn hefur fært okkur hamingju," hrópaði verslunar- eigandi nokkur á staðnum og voru það líklega orð að sönnu því að viðskiptin hafa aldrei ver- ið líflegri en þessa siðustu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.