Morgunblaðið - 25.10.1995, Síða 17

Morgunblaðið - 25.10.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995 17 ERLENT Clinton og* Jeltsín leiddu hjá sér mikil ágreiningsmál New York. Reuter. Ungum flóttamanni bjargað á Sri Lanka EKKERT lát hefur verið á deilum Tamíla, sem berjast fyrir sjálfstæðu ríki á Sri Lanka fyrir þjóð sína, og stjórnarhersins. Sveitir stjórnarhersins bjuggu sig í gær undir áhlaup á Jaffna- borg í norðurhluta landsins til að brjóta á bak aftur upp- reisn skæruliða Tamíla. Tam- ílskir skæruliðar myrtu 85 singalska íbúa fjögurra þorpa í austurhluta landsins um helgina og drengurinn á myndinni er einn þeirra sem komust undan. Stjórnarher- menn fundu hann í skógi eft- ir að hann hafði verið þar í felum í sólarhring. SÁTT og samlyndi virtist einkenna fund Bills Clintons Bandaríkjafor- seta og Borís Jeltsíns Rússlandsfor- seta í New York á mánudag en nið- urstaða fundarins þótti harla efnis- rýr. Jeltsín tókst að halda samskipt- unum við Bandaríkin á réttri braut án þess að gefa nokkuð eftir í mikil- vægum ágreiningsmálum. „Sam- komulag þeirra ber þess merki að forsetarnir standa báðir frammi fyr- ir kosningum," sagði heimildarmað- ur sem tengist rússnesku sendi- nefndinni. Forsetamir minntust vart á deil- una um hugsanlega stækkun Atl- antshafsbandalagsins (NATO) í austur og náðu ekki samkomulagi um hvort rússneskir hermenn, sem yrðu sendir til friðargæslu í Bosníu, ættu að vera undir yfirstjórn NATO. Ciinton sagði þó eftir fundinn að forsetarnir hefðu náð „fullu sam- komulagi" um að vinna saman að friði í Bosníu og að Rússar myndu taka þátt í friðargæsiunni. Forsetarnir virtust sammála um að leiða deilumálin hjá sér til að koma í veg fyrir að samskipti ríkj- anna versnuðu frekar og til að auð- velda Jeltsín baráttuna gegn rúss- neskum þjóðernissinnum sem hafa sakað hann um undirgefni við Bandaríkin. Vildu segja eitthvað jákvætt Clinton og Jeltsín standa báðir frammi fyrir forsetakosningum á næsta ári og hvorugum þeirra yrði akkur í frekari spennu í samskiptum ríkjanna. „Báðir forsetarnir vildu geta sagt eitthvað jákvætt heima fyrir um þennan fund. Þeir máttu ekki við misheppnuðum viðræðum," sagði stjórnarerindreki í New York. „Helsta markmið slíkra leiðtoga- funda nú um stundir er einfaldlega að afstýra því að samskiptin versni," sagði Alexander Golts, fréttaskýr- andi Krasnaja Zvezda, málgagns rússneska varnarmálaráðuneytisins. Forsetarnir drógu báðir upp bjarta mynd af samskiptum ríkjanna eftir fundinn. Til að tryggja sátt og sam- lyndi á fundinum leiddi Clinton hjá sér ítrekaðar árásir Jeltsíns á NATO síðustu vikurnar, meðal annars í ræðu á fundi Sameinuðu þjóðanna á sunnudag í tilefni af 50 ára af- mæli samtakanna. Jeltsín sagði í ræðu sinni að ekki kæmi til greina að verða við kröfu Bandaríkjamanna um að friðargæsl- uliðið í Bosníu yrði undir yfirstjóm NATO. Bandarískir embættismenn sögðu að hann hefði hvergi hvikað frá þeirri afstöðu á leiðtogafundinum þrátt fyrir staðhæfíngu Clintons um „fullt samkomulag" í Bosníumálinu. Jeltsín sagði forsetana hafa kom- ist að samkomulagi um að rússnesk- ar hersveitir tækju þátt í friðargæsl- unni, en það væri mál hersins hvern- ig að því yrði staðið og kæmi forset- unum ekki við. Reuter Læknir „Æðsta sannleiks“ fyrir rétt Játar að hafa bú- ið til taugagasið Tókýó. Reuter. FYRSTI sakborningurinn í réttar- höldunum vegna gastilræðisins í Tókýó 20. mars var leiddur fyrir rétt í gær og játaði að hafa búið til taugagasið sem notað var. Sak- sóknarinn sagði að sértrúarsöfn- uðurinn „Æðsti sannleikur" hefði staðið fyrir tilræðinu til að skapa ringulreið í Tókýó í von um að geta þannig komið í veg fyrir fyrir- huguð áhlaup lögreglunnar á höf- uðstöðvar safnaðarins. Tomasa Nakagawa, 32 ára einkalæknir Shokos Asahara, leið- toga safnaðarins, var leiddur fyrir réttinn í gær og kvaðst saklaus af ákærum um morð og morðtil- raunir vegna gasárásarinnar, sem varð ellefu manns að bana, auk þess sem þúsundir manna veikt- ust. Hann kvaðst hafa búið til sarin-gasið, sem notað var í tilræð- inu, en neitaði að hafa vitað af því að til stæði að nota það. Verði Nakagawa fundinn sekur um morð og morðtilraunir á hann yfir höfði sér dauðadóm. Talið er að vitnisburður læknisins geti veg- ið þungt í réttarhöldunum yfir Asahara, sem eiga að hefjast á fímmtudag. Þeim kann þó að verða frestað vegna meiðsla veijanda hans sem lenti í bílslysi. Að sögn veijanda Asahara ætl- ar hann að halda fram sakleysi sínu og neita því að hafa vitað að félagar í söfnuðinum hygðu á gastilræði. Nakagawa sagði hins vegar að Asahara hefði gefið fyrir- mæli um framleiðslu sarin-gass- ins.- Ásókn í sæti Margir hafa hug á að fylgjast með réttarhöldunum og gripið var til þess ráðs að úthluta fjölmiðlum 40 sætum í réttarsalnum en 56 sæti voru ætluð almenningi. Um 5.000 manns, sem komu í dóms- húsið í gær, fengu númer og dreg- ið var um hveijir hrepptu sætin. Flest þeirra féllu í hlut náms- manna á vegum fjölmiðla, sem vildu tryggja sér fleiri sæti. HEIMILISSTÖRF eru hluti af efnahagsstarfsemi allra þjóða en gleymast hins vegar ávallt þegar þjóðarframleiðslan er metin. Kemur þetta fram í grein, sem hagfræðingurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Gary S. Becker ritaði í bandaríska tíma- ritið Business Week fyrir hálf- um mánuði. Segir hann, að með þessu sé verið að vanmeta mikil- vægan þátt þjóðarbúskaparins og draga úr sjálfsvirðingu þeirra, sem verkin vinna, eink- um kvenna. Becker segir, svo stiklað sé á stóru í greininni, að heimilin séu í raun litlar verksmiðjur, sem veiti þýðingarmikla þjónustu, jafnvel í iðnvæddum ríkjum. Þar fer fram barnauppeldi og mat- argerð, hlynnt er að sjúkum og öldruðum og svo má lengi telja. Þessi störf eru að 70% unnin af konum og raunar næstum ein- göngu í hinum fátækari löndum. Sumar kvenréttindakonur telja, að yrðu heimilisstörfin reiknuð inn í þjóðarframleiðsiuna myndi það styrkja stöðu kvenna í þró- unarlöndum vegna þess, að þá mætti jafnvel sýna fram á, að þær hefðu meiri „tekjur“ en karlarnir. Aðrar mæla hins veg- Heimilisstörfm — týnda stærðin í efnahagslífinu lega einfaldast að hafa mið af því hvað sama þjónusta kost- ar á markaðinum. Vitnar hann í rann- sókn hagfræðings- ins Roberts Eisners, sem telur heimilis- störfin hafa sam- svarað 20% af vergri þjóðarfram- leiðslu í Banda- ríkjunum frá miðj- um fimmta áratugn- um og fram á þann níunda, og nefnir o „ D D . einnig óljósari út- fyrir að vinna þau, ^ary a. Becker reikninga Samein- þá sé framlag hennar talið með uðu þjóðanna, sem sýna, að hús- en ekki þegar foreldrar inni þau verkin svari til 40% af heims- af hendi. Becker segir, að um framleiðslunni. sé að ræða nokkrar aðferðir við Becker segir, að það gefi ekki að meta heimilisstörfin og lík- rétta mynd af hagvextinum þeg- ar gegn þessu og segja, að mikilvæg- ara sé að koma kon- unum út af heimil- inu og út á vinnu- markaðinn. Mat á heimilisstörfum í greininni segir Becker, að kominn sé tími til að reikna heimilisstörfin inn í þjóðarframleiðsl- una og bendir á, að sé utanaðkomandi ar heimilisstörfin eru ekki talin með. Hinn mikli vöxtur þjóðar- framleiðslunnar á síðustu ára- tugum, sem stafi af aukinni úti- vinnu kvenna, sé.ekki alveg rétt- ur því að gleymst hafi að taka tillit til minni vinnu á heimilun- um á móti. Vöxtur dagvistunarkerfisins Meiri útivinna kvenna er aðal- ástæðan fyrir vexti dagvistunar- kerfisins á síðustu tveimur ára- tugum og Becker vitnar í rann- sókn, sem Sherwin Rosen við Chicagoháskóla vann að í Sví- þjóð. Er það niðurstaða hans, að niðurgreidd barnagæsla hafi ýtt undir töluverða óskilvirkni með því að hvetja þær konur til að fara út á vinnumarkaðinn, sem jafnvel höfðu ekki áhuga á því. Becker segir að lokum, að það muni verða til að auka sjálfs- virðingu þeirra, sem vinna heimilisstörfin, að reikna þau inn í þjóðarframleiðsluna. Það myndi einnig gefa réttari mynd af henni og leiða kannski til nýrrar stefnumótunar hvað varðar eðlilega skiptingu tímans milli heimilisstarfa og annarrar vinnu. 29 farast í skjálfta í S-Kína AÐ MINNSTA kosti 29 manns létu lífið og 100 slös- uðust í hörðum jarðskjálfta í Yunnan-héraði í Kína í fyrra- kvöld. Fjöldi fólks missti heimili sín í skjálftanum sem mældist 6,5 stig á Richter. Talið er að hann og öflugir eftirskjálftar hafí staðið í allt að fímmtán mínútur en um 200 eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Miklar rigningar eru nú í héraðinu, sem gerðu björgunarstarf erfitt og juku á erfiðleika þeirra sem misstu allt sitt í skjálftanum. Hann varð skömmu fyrir kl. 7 að staðartíma og voru því flestir enn heima. Fórust 27 manns er veggir heimila þeirra hrundu yfír þá, en alls eyði- lögðust um 200 hús. Ekki hafa enn borist fréttir frá stijálbýlustu svæðunum og kann tala látinna því að hækka. Flytja sendi- ráð til Jerú- salem ÖLDUN GADEILD Banda- ríkjaþings samþykkti í gær, að sendiráð landsins í ísrael skyldi flutt frá Tel Aviv til Jerúsalem fyrir 31. maí 1999. í lögunum er þó Bandaríkja- forseta veitt heimild til að fresta flutningum sex mánuði í senn ef þeir væru taldir geta skaðað friðargjörð í Mið- austurlöndum. Ungverjar og Rúmenar ræðast við UNGVERJAR og Rúmenar hafa að tillögu Ions Iliescus Rúmeníuforseta ákveðið að hefja viðræður í næsta mán- uði þar sem þess verður frei- stað að sætta sögulegar deil- ur ríkjanna tveggja um rétt- indi ungverska minnihlutans í Rúmeníu. 17 fórustí lestarslysi ALLT að 17 manns biðu bana og um 100 slösuðust þegar farþegalest fór út af sporinu í afskekktum fjallahéruðum Vestur-Jövu í fyrradag. Sautján stundum eftir slysið voru fregnir af því enn óljós- ar. Fagna dómi fyrir mis- notkun ALÞJÓÐLEG samtök sem láta sig réttindi og velferð bama varða fögnuðu í gær dómi yfír breskum lækni, Gavin Scott, sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Kambódíu í gær fyrir að hafa misnotað 14-16 ára pilta kyn- ferðislega. Jafnframt var hann sviptur lækningaleyfi í landinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.