Morgunblaðið - 23.10.1997, Page 76
Fyrstir með
m
<Ö>
AS/400 er...
...mest selda
fjölnotenda
vidskiptatölvan í dag
Q3> NÝHERJ
I SKAFTAHUÐ 24 • SIMI S69 /700
HP Vectra PC
Whp% hewlett
WlnM PACKARD
Sjádu meira á www.hp.is
MORGUNHLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Gelmer-málið fyrir Verslunarréttinn í París eftir viku
Eigendur kvaddir til að
bera vitni fyrir dóminum
DÓMFORSETI við Verslunarréttinn í París hefur
kvatt seljendur meirihluta hlutafjár í franska fyr-
irtækinu Gelmer til að bera vitni fyrir dóminum
hinn 30. október næstkomandi. Lögmenn Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í París segja þetta
áfangasigur en eins og kunnugt er heldur SH því
fram að fyrirtækið hafi verið búið að gera bind-
andi kaupsamning um hlutabréfín áður en ís-
lenskar sjávarafurðir keyptu þau. I kjölfar vitna-
Jeiðslnanna mun dómarinn úrskurða hvort fallast
igi á kröfu SH um að hlutabréfin verði kyrrsett á
meðan leyst er efnislega úr málinu.
SH hefur höfðað mál á hendur Lanoy-fjölskyld-
unni, seljendum meirihluta hlutafjár í Gelmer,
vegna tvísölu og samningsrofs. Kominn hafi verið
á bindandi kaupsamningur og einungis hafi átt eft-
ir að undirrita samninginn hinn 14. október sl.
þegar viðsemjendum hafi snúist hugur. Velta Gel-
mer er um 7 milljarðar króna á ári og starfsmenn
eru um 360. Höfuðstöðvarnar eru í Boulogne sur-
Mer. Kaupverð hlutabréfanna hefur ekki fengist
uppgefið.
Að sögn lögmanna SH í París var gerð sú krafa
fyrir Verslunarrétti Parísarborgar að hlutabréfin í
^rclmer yrðu kyrrsett á meðan leyst yrði úr efnis-
legum ágreiningi um eignarhald að bréfunum.
Dómforsetinn í málinu féllst á það sl. þriðjudag að
hluthöfunum í Gelmer sem seldu bréfin tO IS yrði
gert að mæta fyrir dóm til að bera vitni auk for-
svarsmanna Gelmer sem munu þurfa að mæta
með hluthafaskrá félagsins. „Þetta kom okkur
þægilega á óvart því yfirleitt er vísað frá kröfum
um að taka mál af þessu tagi tafarlaust fyrh-,“
sagði einn lögmanna SH í samtali við Morgunblað-
ið í gær. „Þetta sýnir að minnsta kosti að umbjóð-
andi minn hefur heilmikið til síns máls. Dómarinn
mun meta það eftir vitnaleiðslurnar hvort efni séu
til að fallast á kröfu um kyrrsetningu hlutabréf-
anna á meðan dæmt er efnislega í málinu. Verði
fallist á þá kröfu mun ÍS ekki geta ráðstafað bréf-
unum eða farið með þau sem sín fyrr en niður-
staða er fengin.“
Hef aldrei lent í öðru eins
Að sögn lögmanna SH í París var samningur
frágenginn um sölu til SH. „Þessi samningur hafði
átt sér tveggja og hálfs mánaðar aðdraganda.
Þetta voru langar og flóknar samningaviðræður
en að morgni 14. október voru öll skjöl tilbúin tO
undirritunar og umbjóðandi minn var í samræmi
við fyrirmæli viðsemjandans búinn að útbúa ávís-
anir og ganga frá bankaábyrgðum. Það var búið
að ákveða undirritun kl. 16 þennan dag en þá féll
viðsemjandinn frá kaupunum. Eg hef aldrei lent í
öðru eins á mínum lögmannsferli," sagði viðmæl-
andi Morgunblaðsins. „Það hljóta að hafa verið
umtalsverðir fjármunir í boði, umfram það sem
hinn frágengni samningur hljóðaði upp á.“
Að hans sögn hafa verið lögð fyrir réttinn ýmis-
leg gögn um samningsgerðina, meðal annars bréf
sem gengu á milli aðOa og vitnisburður um dvöl
fjögurra forsvarsmanna IS á hóteli í Hardelot,
sem er þorp rétt fyrir utan Boulogne sur-Mer, um
það leyti sem undirrita átti kaupsamninginn við
SH, og að þeir hafi ætlað að fara heim á mánudeg-
inum 13. október en síðan framlengt dvölina
tvisvar, þ.e. fram til 15. október.
Byggt sé á því að samkvæmt frönskum rétti
teljist bindandi kaupsamningur hafa verið gerður
þegar samkomulag hafi náðst um hvað sé verið að
selja, við hvaða verði, hvernig greiða eigi kaup-
verð og hvenær. „Ekki veikir það heldur málstað
umbjóðanda míns að endurskoðunarskrifstofan
Deloitte & Touche, sem aðstoðaði Lanoy-fjöl-
skylduna við samningsgerðina, hefur snúist á sveif
með SH og tilkynnt að fyrirtækið muni taka þátt í
málshöfðuninni og gera þar sjálfstæðar kröfur
vegna samningsrofs."
Morgunblaðið/Ásdís
ÞAÐ er jafnan líf og íjör á leikskólanum Gerðuvöllum í Hafnarfirði og þar dönsuðu krakkarnir konga þegar ljósmyndari smellti af myndinni.
Hraðfrystihús
Tálknafjarðar
Rauðham-
ar kaupir
á 60 millj.
RAUÐSÍÐA ehf. á Þingeyri hefur
stofnað dótturfyrirtækið Rauðham-
ar sem keypti í byrjun vikunnar
Hraðfrystihús Tálknafjarðar. Rauð-
síða á nú fjögur fiskvinnsluhús á
Vestfjörðum. Ketill Helgason, fram-
kvæmdastjóri Rauðsíðu, vildi ekki
gefa upp kaupverð Hraðfrystihúss-
ins, en samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var kaupverðið um
60 milljónir króna.
Fyrr á þessu ári keypti Rauðsíða
eignir Fáfnis á Þingeyri sem
Byggðastofnun, Fiskveiðasjóður og
Landsbanki íslands leystu til sín í
byi-jun sl. sumars. Seint í septem-
ber keypti Rauðfeldur ehf., sem
einnig er dóttui-fyrirtæki Rauðsíðu,
fiystihús og tækjabúnað Trostans á
Bíldudal.
Eigendur Rauðsíðu eru Ingibjörg
Vagnsdóttir, eiginkona Ketils, Ey-
þór Haraldsson, framkvæmdastjóri
afurðasölufyrirtækisins Norfisk hf.
í Reykjavík, og Guðmundur Frank-
lín Jónsson, verðbréfasali í New
York. Ketill rekur einnig Bolfisk hf.
í Bolungarvík sem sérhæft hefur sig
í vinnslu Rússafisks.
Rauðhamar keypti frystihúsið og
frystiklefa sem fylgir því. Ketill
sagði allsendis óvíst að óbreytt
starfsemi yrði í frystihúsinu.
Kaupir fjóra báta
Pétur Þorsteinsson, fyrrverandi
eigandi Hraðfrystihússins á Tálkna-
firði, sagði að hann héldi áfram
verkun saltfisks í Tálknafirði í öðr-
um húsakynnum og fylgir allt
starfsfólk Hraðfrystihússins hon-
um. Pétur hefur fest kaup á bátnum
Viktoríu frá Olafsvík en honum
fylgir um 100 tonna kvóti. Einnig
ráðgerir hann að kaupa þrjá báta í
viðbót og vera í viðskiptum við
nokkra báta. Þegar upp er staðið
ætlar hann að vinna úr 1.000-1.500
tonnum á ári. Hann kveðst þurfa að
bæta við sig mannskap.
Hvorki Ketill né Pétur vildu gefa
upp verðið á Hraðfrystihúsinu.
Kennarar slaka á kröfum og vilja 114 þúsund í byrjunarlaun í lok samningstíma
Gagntilboð kennara metið
til um 40% launahækkunar
Þyrla sótti
vanfæra
konu
ÞYRLA og eldsneytisvél varnar-
í Keflavík sóttu veika
"konu um borð í íslenska úthafs-
togarann Sigli um 350 sjómílur
suðvestur af landinu í gær. Tog-
arinn var of langt á hafi úti til
þess að TF-Líf, þyrla Landhelgis-
gæslunnar, gæti komið að notum.
Sjúkrafiugið tók tæpar sex
j^ukknstundir. Konan sem sótt
. ar er vanfær. Hún var flutt á
Sjúkrahús Reykjavíkur.
SAMNINGANEFND kennarafélag-
anna slakar á fyrri kröfugerð sinni í
gagntilboði til samninganefndar
launanefndar sveitarfélaganna sem
kennarar lögðu fram á níunda tíman-
um í gærkvöldi. Skv. upplýsingum
Morgunblaðins er samanlögð krafa
kennara um almennar launabreyt-
ingar nú metin til um það bil 40%
hækkunai- á öllu samningstímabil-
inu, samanborið við 57% í fyrri
kröfugerð. Gert er ráð fyrir að
samningstíminn verði frá 1. ágúst sl.
til 1. október árið 2000. Sveitarfélög-
in buðu aftur á móti 27,7% almennar
launahækkanir í tilboði sínu, að með-
talinni 4% hækkun sem samið var
um í mars sl.
Þá falla kennarar frá kröfu um 110
þús. kr. byrjunarlaun grunnskóla-
kennara strax í upphafi samnings-
tíma en krefjast þess nú að byrjun-
arlaun hækki í upphafi í 91.202 kr.
og verði komin í 101.602 í ágúst á
næsta ári og í 114.281 kr. í lok samn-
ingstímans. í tilboði sveitai-félag-
anna var gert ráð fyrir að byrjunar-
laun yrðu 103.638 kr. í lok samnings-
tímans.
í gagntilboði kennara eru lagðar
til breytingar á röðun í launaflokka
og gerð krafa um að öll laun hækki
um 3,5% frá 1. ágúst sl., um 4% 1.
janúar næstkomandi, 4% 1. ágúst á
næsta ári, 4,5% 1. janúar 1999, 4,5%
1. janúar árið 2000 og 3% þann 1.
ágúst sama ár.
Mikil óánægja og áskoranir
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Islands, sagði að í
gagntilboði sínu kæmu kennarar
verulega til móts við viðsemjanda
sinn. I gagntilboðinu legðu kennarar
fyrst og fremst áherslu á launakröf-
ur en önnur atriði ættu ekki að
standa í vegi samkomulags. „Þetta
tilboð er sett fram með það að mark-
miði að koma í veg fyrir að verkfall
bresti á. Gerist það er þetta tilboð
ekki lengur á borðinu," sagði Eirík-
ur.
Mikil óánægja er meðal kennara
með tilboð sveitarfélaganna og á
fundi um 50 trúnaðarmanna grunn-
skóla í Reykjavík í gær var þess
krafist að staðið yrði fast á uppruna-
legri kröfu um 57% launahækkun og
110 þúsund kr. Forystu kennarafé-
laganna bárust í gær tugir áskorana,
sem nokkur hundruð kennara höfðu
undirritað, um að hafna tilboði sveit-
arfélaganna.
Tilboð sveitarfélaganna talið
kosta 4,5 milljarða
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er áætlað að launakostnaður
sveitarfélaga á öllu landinu myndi
aukast um 4,5 milljarða kr. á samn-
ingstímanum öllum ef farið yrði eftir
launatilboði launanefndar sveitarfé-
laganna.
Samninganefnd sveitarfélaganna
fer nú yfir gagntilboð kennara og er
búist við að hún taki afstöðu til þess
á sáttafundi í dag. „Menn koma til
með að ræðast við fram á síðustu
stundu," sagði Jón G. Kristjánsson,
formaður samninganefndarinnar, í
gærkvöldi.
■ Einhugur/6