Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 44

Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Veiðigjald - eðlileg ráðstöfun auðlindar ÞAR SEM andstæð- ingar veiðigjalds eru sem fastir pistlahöf- undar á síðum Morgun- blaðsins og auglýsa ítrekað eftir útfærslu veiðigjaldsins, skal hér áréttuð tillaga sem undirritaður flutti hér á ' síðum blaðsins í vor. Útfærsla veiðigjaldsins í stuttu máli gengur hugmyndin út á það, að bjóða framseljanleg- ar veiðiheimildir út á hvetju ári. í raun er um leifru að ræða, þar sem einungis eru boðnar út veiðiheimildir til eins árs í senn. Heimild til veiða á tilteknum tonnafjölda af ákveðinni tegund sem ríkið leigir útgerð til eins árs, veitir útgerðinni forgang að því að leigja tiltekinn hundraðs- hluta (t.d. 80-90%) af heimildinni , árið eftir á sama verði; afgangurinn * (10-20%) fer í opið útboð að nýju. Með þessu er útgerðinni tryggður stöðugleiki, ábatavon ef markaðs- aðstæður batna og það val að nýta ekki forkaupsréttinn telji hún fyrra verð hafa verið of hátt. Þessi réttur tekur fram þeirri aðferð að útgerðir bjóði í aflaheimildir til nokkurra ára í senn, sökum minni áhættu út- gerða. Þá er hún margfalt skynsam- legri en sú fráleita hugmynd að bjóða veiðiheimildir út í eitt skipti fyrir öll, sem er i senn áhættusöm fyrir útgerðina, gerir það að verkum að einungis allra íjársterkustu út- gerðirnar geti boðið í veiðiheimildirnar og er stórkostlegt tap fyrir þjóðina, eiganda auð- lindarinnar. Ef þetta hefði verið gert með norsk- íslenska síldarstofninn á sínum tíma þyrftu útgerðarmenn að fara í aflabækur frá sjöunda áratugnum til að leita uppi og bjóða í fisk- veiðiheimildir í þessum stofni. Ekki veit ég hvort núverandi útvegsmenn yrðu hrifnir en milljónirnar í vasa fyrrum útgerðarmanna myndu eflaust koma þeim vel! Nokkrir kostir Duttlungar ráðamanna á hverj- um tíma hafa engin áhrif á úthlut- un veiðiheimilda. Þjóðin, eigandi auðlindarinnar, fær eðlilegt markaðsháð verð fyrir auðlindina á hveijum tíma. Sjálfvirk sveiflujöfnun því fram- boð og eftirspurn ráða verði kvót- ans á hveijum tíma. Nýliðun verður möguleg í grein- inni, en hún er vart möguleg m.v. núverandi kvótaverð. Þetta gæti orðið fyrsta skrefið í samræmdri meðhöndlun á öilum auðlindum þjóðarinnar, en ljóst er að umhverfisvænni tekjustofn fyrir hið opinbera er vandfundinn. Nokkrum rökum svarað Það er alveg merkilegt að menn, eins og t.d. þeir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Orri Hauksson og Illugi Gunnarsson, sem þykjast hafa trú á markaðinum, skuli ekki treysta á markaðslausnir til að úthluta veiði- heimildum. Þeir virðast telja að sjáv- arútvegsráðherrar fyrri ára hafi fundið hina gullnu reglu við úthlutun veiðiheimilda, sem eflaust er að finna í bók eftir Adam Smith eða Milton Friedman, og hljóðar þá sjálf- sagt_ svo: „Uthluta skal veiðiheimildum á Islandsmiðum um aldur og ævi í í stuttu máli gengur hugmyndin út á það, segir Helgi Hjálmars- son, að bjóða framselj- anlegar veiðiheimildir út á hverju ári. samræmi við veiðar skipa á árunum 1982-84.“ Illu heilli blasir þó vandi við ráða- mönnum þegar úthluta skal kvóta Helgi Hjálmarsson úr stofnum, sem ekki var veitt úr á þessum þremur upphafsárum trú- arinnar. En þá kom Móse niður af íjallinu með annað boðorðið: „Úthluta skal veiðiheimildum á íslandsmiðum í stofnum, sem ekki var veitt úr á hinum gullnu viðmið- unarárum, miðað við þrjú bestu ár skipa sem hafa samfellda veiði- reynslu á viðkomandi stofni í sex ár.“ Eitthvað efast þó núverandi sjáv- arútvegsráðherra um hið ólympíska annað boðorð og hefur því heykst á því að tilkynna að veiðiheimildum í norsk-íslenska síldarstofninum verði úthlutað samkvæmt því. Það skyldi þó ekki vera að hann sé að athuga hvernig skyldmenni eða flokksbræð- ur koma út úr öðru boðorðinu og meta á grundvelli þess hvort rétt sé að leita í fræðunum að þriðja boðorð- inu? Spyr sá sem ekki veit, en ljóst er að hik ráðherrans kostaði þjóðar- búið hundruð milljóna króna á síð- asta ári. Það er ekki að ástæðulausu að manni dettur þvílík pólitísk sér- gæska í hug, því það voru einmitt núverandi stjórnarflokkar sem ákváðu að skipta á milli sín þeirri féþúfu sem verklegar framkvæmdir fyrir Bandaríkjaher voru. Nú eru útgerðirnar í hlutverki Aðalverk- taka. Hinn stórkostlegi hagnaður þess fyrirtækis, sem varð til sökum einokunar, réttlætir þó ekki þau óeðlilegu höft á atvinnufrelsi sem aðrir verktakar máttu sæta. Það er athyglivert að þremenningarnir skyldu ekki rísa upp á afturlappirnar til varnar Aðalverktökum því vænt- anlega hafa atvinnuréttindi þess fyr- irtækis verið stjórnarskrárvarin eins og hjá útgerðunum nú. Og vafalaust hefur dregið úr hagnaði Aðalverk- taka, þegar einokuninni er aflétt og verktakafyrirtækið gat ekki skipu- lagt sig jafnvel og áður, en arðurinn þá skilaði sér væntanlega fljótt og örugglega til þjóðarbúsins. Þá hafa þessir sömu menn miklar áhyggjur af ráðstöfun veiðigjaldsins. Ég býst við að ástæða þess sé sú, að útvegsmenn hafa talið sig hafa fullan ráðstöfunarrétt yfir öllum sköttum og gjöldum sem á greinina eru lögð. Þannig buðust þeir nýverið til að gefa nýtt hafrannsóknaskip af góðmennsku sinni. Að vísu átti opinbert gjald sem lagj; er á útgerð- ina að vera notað til að íjármagna kaupin! Þetta er svipað og ef BSRB byðist í góðmennsku sinni að kosta endurmenntunarnámskeið opinberra starfsmanna fyrir tekjuskatt félags- manna sinna! Að mínu mati væri það hið besta mál ef veiðigjaldið næði að standa undir kostnaði við Hafrannsóknastofnun, Rannsókna- stofnun fiskiðnarins, Fiskistofu, Landhelgisgæsluna og sjómannaaf- sláttinn svo eitthvað sé nefnt. Loks telja títt nefndir menn að fiskurinn í sjónum sé alveg sérstök auðlind og á engan hátt sambærileg við t.d. útvarps- og olíuvinnslurétt- indi. Og ástæðan, eins og sagt er í grein Orra og Illuga þann 11. júní 1997 hér í Morgunblaðinu: „Það er ekki hægt að bera saman eignarrétt sem myndast við nýtingu á auðlind eins og fiskveiðiauðlind við úthlutun leyfa til nýtingar á auðlind sem ekki hefur verið nýtt áður. A þessu tvennu er reginmun- ur.“ Sjaldan hafa þeir félagar komist út á hálli ís, því ég er viss um að þeim manni sem tækist að bjóða út nýtingarrétt á auðlind, sem enginn hefur enn uppgötvað að sé auðlind, eigi nóbelsverðlaunin í hagfræði næsta vís. Höfundur er verkfræðingur. Kennara- samningarnir - Dylgjum svarað GÍSLA Ólafí Pét- urssyni verður tíðrætt um andúð sína á ný- legum kjarasamning- um framhaldsskóla- kennara og fjármála- ráðherra. Endurtekn- ar dylgjur hans um Ji- annarlegt hugarfar samningamanna knýja mig til and- svara. í Morgunblaðs- greininni frá 25. okt. segir að við „höfum notað tækifærið þegar kennarar voru burtu í sumarfríi" til að bera samninginn undir at- kvæði. Hefði Gísii nýtt sér þau tækifæri sem ailir kennarar höfðu til að fylgjast með gangi viðræðna sl. vor vissi hann að samningamenn kennara lögðu allt kapp á að ná samningum fyrir skólalok. Þótt sú ætlan gengi ekki eftir töldu menn hagsmunum kennara einfaldlega betur borgið með þeim samningi sem tókst að koma í höfn á elleftu stundu heldur en að fresta öllu og fara aftur á byijunarreit. Reyndar bendir Gísli réttilega á það annars staðar í greininni að kennarar vinna umtalsvert að undirbúningi kennslu á sumrin og því fer fjarri að gefa sér að þeir hafi upp til hópa verið í burtu í sumarfríi um það leyti sem atkvæðagreiðsla stóð yfir. ^ Gísli telur launaseðilinn „þannig að ómögulegt er að vita fyrir hvað er verið að greiða“. Um er að ræða þá einföldun að öll yfirvinna er til- greind í einu lagi í stað sundurliðun- ar áður. Er greinarhöfundur hald- inn slíku óminni að hann viti ekki hvað hann vinnur, er honum (stærð- fræðikennaranum) ofviða að leggja < saman, margfalda og deila og hefur hann í ofanálag týnt vinnuskýrsl- unni sinni þar sem allt birtist sundurliðað? Umfjöllun um skólanámskrá vitnar um að Gísli hafi alls ekki lesið 22. grein framhaldsskólalag- anna. Þar kemur skýit fram að skólanámskrá er mun víðtækari en hefðbundinn námsvísir framhaldsskóla sem Gísli virðist einblína á. Svo virðist sem Gísli tortryggi sérhveija breytingu á vinnutíma kennara og telji hana til vinnuaukningar. Eins og nærri má geta er slíkt ekki raunin, enda er vinnu- tímaramminn eftir sem áður 1.800 klst. á ári eins og almennt tíðkast. Mál er að linni, segir Lárus H. Bjarnason; þykir honum sem Gísla sjáist yfir það í offorsi sínu að samningurinn gerir ráð fyrir að aðilar sníði í sameiningu af honum ýmsa vankanta. Undirbúningur kennara fyrir kennslu er einstaklingsbundinn og skiptist misjafnlega milli sumar- vinnu, kvöldvinnu heima og vinnu í skólanum. Sundurgreining vinnu- tímans í einstaka þætti undirbún- ingsins verður því aldrei annað en nálgun við raunveruleikann. Ein- mitt þess vegna er horfið frá fyrri skilgreiningu um 19,53 klst. viku- legan undirbúning og 150 klst. að sumri, en þess í stað kveðið á um Lárus H. Bjarnason heildarvinnutíma i kennslu og und- irbúning (allt að 1.177 klst. á ári) sem kennari skipuleggur sjálfur. Ekkert í samningnum mælir því í mót að töluverður tími undirbún- ingsþáttarins sé að sumri. Grund- vallaratriði er að meðalundirbún- ingstími fyrir hveija kennslustund er ekki skertur frá því sem áður var. Þetta með að „forystan hafi fallist á að raða þessum 130 tímum efst í vinnuskyldurammann" eins og Gísli kemst að orði segir ná- kvæmlega ekkert annað en að þeir teljist til dagvinnu. Einu gildir hvort þeir eru efst, neðst, til vinstri eða hægri í einhverri myndrænni framsetningu sem greinarhöfund- ur sér fyrir sér. Gísli varpar fram þeirri skýringu í formi spurningar að „þessi en- demi“ kunni að vera runnin undan rifjum stjórnenda. Seta undirritaðs í samninganefndinni hlýtur að hafa kveikt þessa ímyndun Gísla. Ég bendi á að ég fór ekki í samninga- nefndina fyrir atbeina skólastjórn- enda, heldur var tilnefndur í hana af stjórn HÍK til þess að vinna að bættum kjörum félagsmanna og hef hagað mér samkvæmt því. Ég frábið mér getgátur um óheilindi vegna þess eins að ég er aðstoðar- skólameistari. Reyndar held ég að einhver hefði bent á það á undan Gísla ef ég ynni gegn kennurum. Mál er að linni. Mér þykir sem Gísla sjáist yfir það í offorsi sínu að samningurinn gerir ráð fyrir að aðilar sníði í sameiningu af honum ýmsa vankanta á samn- ingstímanum og þess má geta að sú vinna er þegar hafin. Einnig þykir mér miður að Gísli og skoð- anabræður hans um 130 tímana undir stjórn skólameistara skuli ekki hafa látið að sér kveða þegar kennarar mótuðu kröfur sínar bæði fyrir samningana 1995 og 1997, því þær buðu beinlínis upp á að samið yrði um slík ákvæði. Geði blandar við blekkingu, blæs til sóknar gegn þekkingu. Líkar ei sátt, leikið er grátt lítið kennaraundur - í hrekkingu. Höfundur er fulltrúi HÍK í samninganefnd framhaldsskólakennara. „Köttur í ból bjarnar“ NÚ ER undirbún- ingur hafinn í Kenn- araháskólanum og menntamálaráðuneyt- inu að víkka starfssvið Kennaraháskólans og stofna til stofnunar sem á að heita Uppeld- is- og kennaraháskóli íslands. Þessi breyting eða ummyndun þarfn- ast fjölgunar starfs- krafta sérmenntaðs fólks, stóraukins tækjabúnaðar og þess vegna mun rýmra hús- næðis en núverandi stofnun býr við. Leið- arljósið verðurVæntan- lega aukin hagnýting sem mun lík- lega spara ríkinu eða skattborgurum landsins stórfé. Yfirstjórn menntamála hefur nú til alvarlegrar athugunar að koma hinni nýju stofnun í hentugt og rúmgott húsnæði og hefur Sjó- Sjómannaskólinn hefur fyllilega staðið undir því í hálfa öld, segir Sig- laugur Brynleifsson, að heita „háborg ís- lenskrar sjómanna- stéttar“. mannaskólinn orðið fyrir valinu. Fjölmörg rök eru borin fram til rétt- lætingar þessari áætlun, bæði frá seminaristum Kennaraháskólans, arkitektum og þeim aðilum sem sinna hagnýtingarhugmyndum. Vafalaust standast öll þessi rök sannprófanir og falla að líklegustu reiknilíkönum sérhæfðustu starfs- krafta ráðuneytisins og hagsýslu- gerðar manna að þeirra mati - en þrátt fyrir það eru ekki allir sam- þykkir þessum áætlunum. Sjó- mannaskólinn og fleiri skólar og stofnanir tengdar sjávarútvegi starfa í byggingu Sjó- mannaskólans, en hann hefur starfað í þessu húsi í hálfa öld. Húsinu var valinn staður á ágætum stað, þaðan sem sér út á flóann og vítt er til allra átta. A sínum tíma var Sjó- mannaskólinn nefndur „ háborg íslenskrar sjó- mannastéttar" og hefur fyllilega staðið undir því heiti í hálfa öld. Þessi stofnun er mennta- og menningarsetur ís- lenskra sjómanna og skipstjórnarmanna og þar hefur skapast hefð - menningarhefð í skólum íslenskra sjómanna. Þeim skara sem nú sækir sem fastast að sjómenn rými borg sína er flest betur gefið en skilningur á menningarhefðum eins og glöggt má marka af stefnu þeirra sem mótað hafa skólastefnuna hér á landi undanfarna áratugi ásamt þeirri útgáfustarfsemi sem menntamálaráðuneytið hefur styrkt með ráðum og dáð og fjar- stýrt er af „gáfnabanka" Kennara- háskólans. Nú þegar hafa menn snúist til varnar þessum áætlunum í ræðu og riti svo ekki er útséð um hvort töku Sjómannaskólans verður haldið til streitu. En ef svo skyldi fara að seminaristar og starfskraftar menntamálaráðuneytisins ráðist þar til inngöngu þá má vænta þess að sjómenn og skipstjórnarmenn fylki liði til varnar borg sinni. Ef slíkt varnarlið yrði til staðar er ekki ann- ars að vænta en að sóknarlið semin- arista yrði allhrætt eins og Mökkur- kálfi' til forna, þá er hann sá Þór og að það sama hendi þá og Mökkur- kálfa, svo að ekki komi til þess að hendur skipti. ‘P.s. Sjá Snorra Sturluson: Skáld- skaparmál XXIII. Höfundur er rithöfundur. Siglaugur Brynleifsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.