Morgunblaðið - 19.02.1998, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Óvenjulegt að ernir haldi sig nálægt þéttbýlisstöðum
„ Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ORNINN sem verið hefur á sveimi við ósa Varmár að undanfornu og
hefur sést hér og þar í nágrenni Reykjavíkur allt frá því í desember sl.
Orn við
ósa Varm-
ár í Mos-
fellsbæ
UNGUR örn hefur sést á sveimi í
Leirvogi í Mosfellsbæ undan-
farna daga en að sögn Kristins
Hauks Skarphéðinssonar fugla-
fræðings er þar á ferð fugl á
fyrsta ári, sem hefur haldið sig á
Sundunum, í Viðey, Grafarvogi
og Leirvogi frá því í desember.
Að sögn Valdimars Kristins-
sonar, sem sá örninn við ósa
Varmár í Leirvoginum í gær,
virðist hann óvinsæll meðal
hrafna og máva sem þar halda
sig og hafa reynt að flæma hann
í burtu. Kristinn Haukur segir
fremur óveiyulegt að ernir haldi
sig svo nálægt þéttbýli og telur
að þessi haldi í heimahaga sína,
sem væntanlega eru við Breiða-
íjörðinn eða þar í grennd, þegar
vorar. Hann kveðst muna eftir
einu tilviki frá því 1984 eða 1985
þegar örn nokkur hélt til við Sæ-
braut í Reykjavík í nokkra daga
og lá við umferðaröngþveiti þar
af þeim sökum.
Starri að herma eftir lóu?
Aðspurður um hvort lóan sé
komin kveðst Kristinn Haukur
vera mjög á varðbergi gagnvart
lóufréttum á þessum árstúna, en
í fréttum Ríkisútvarpsins í gær
var sagt frá því að heyrst hefði í
lóu í Breiðholti og einnig kvaðst
Fíkniefm
fundust á
Akranesi
LÖGREGLAN á Akranesi lagði
hald á talsvert magn af kannabis-
efnum og lítilræði af amfetamíni í
kjölfar húsleitar í bænum í fyrra-
kvöld. Einn maður var handtekinn.
Lögreglan réðst til inngöngu í
húsið eftir að vísbendingar bárust
um að þar hefði farið fram ræktun
kannabisefna í talsverðum mæli.
Einn maður var handtekinn og var
hann látinn laus í gær eftir yfir-
heyrslur. Hann hefur áður komið
við sögu lögreglu.
Ekki hefur sannast sala á mann-
inn og hann játaði eingöngu að efn-
in væru til eigin neyslu. Málið þykir
að fullu upplýst samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Akranesi.
viðmælandi Morgunblaðsins í
Mosfellsbæ hafa heyrt í lóu en
hvorugur sá þó lóuna. Kristinn
Haukur telur líklegt að þama
hafi starrinn verið að villa um
fyrir mönnum, en hann er þekkt-
ur fyrir að herma eftir öðrum
fuglum. „Starrinn er landsfræg
eftirherma og bregður fyrir sig
allskyns hljóðum, hann hermir
t.d. eftir lóum, stelkum, tjöldum
og jafnvel hröfnum," segir hann.
„Auk þess er staðreyndin sú að
langflestar Ióur sem sjást svona
snemma halda sig í fjörum,“ bæt-
ir hann við.
Reyndar segir Kristinn Haukur
það ekki einsdæmi að lóan sjáist
á þessum árstíma, á hlýju árun-
um rétt fyrir miðja öldina hafi
t.d. stundum verið hér nokkrir
fuglar allan veturinn og stöku
sinnum hafi lóa sést í febrúar.
„En ég myndi nú bxða enn um
sinn með að fagna lóunni og láta
sflamávinn vera fyrsta vorboðann
eins og venjulega, hann kemur
oft á þessum túna,“ segir hann.
Ketti bjargað
úr sjálfheldu
MÁLIN sem koma til kasta lög-
reglu og slökkvOiðs eru sem betur
fer ekki öll háalvarleg eins og
slökkviliðið í Reykjvík varð vart
við eitt kvöld fyrir skömmu þegar
lítil stúlka í Vesturbæ hringdi í
Neyðarlínuna og óskaði aðstoðar.
Stúlkan, sem heitir Ása, hringdi
skömmu eftir miðnætti og tilkynnti
áhyggjufull mjög að kettlingurinn
hennar hefði smokrað sér út um
þakglugga og væri nú í sjálfheldu,
þrátt íyrir ítrekaðar tilraunir eig-
enda til að koma honum til hjálpar.
Hjartað í Ásu brennur
Atvikalýsing slökkviliðsins í
skýrslu vegna þessa „eldsútkalls“
vax- því svohljóðandi: „Er einhver í
hættu: Kisa. Hvað brennur: Hjart-
að í Ásu. Sérstakar hættur: Hún
gæti dottið."
Slökkviliðið sendi stigabíl á stað-
inn og tókst fljótt og vel að bjarga
dýrinu úr klípunni, eiganda kisu til
mikillar gleði. Einn elsti varðstjóri
slökkviliðsins, Þorsteinn Ingi-
mundarson, ákvað að færa eftir-
farandi vísukom undir liðinn aðrar
upplýsingar á skýrslu slökkviliðs
vegna málsins, í orðastað Ásu:
Hún tróð sér út um þakgluggann og situr
úti á syllu,
sleikir sig og snurfusar og ráfar um í
villu.
Ég treysti á ykkur strákar og vonir mínar
hengi,
hjartahlýju og hugrekki, ég dái vaska
drengi.
Símtalsflutningur
Með einfaldri aðgerð get-
urðu flutt símtöl í venjulegan
síma, farsíma eða boðtæki.
Nánari upplýsingar um verð
og sérþiónustu Landssímans
færðu í síma 800 7000 eða
SÍMASKRÁNNI.
LANDS SfMINN
Þarftu aðflytja
símtöl úrþínum
síma í annan?
Jarð-
skjálfti í
Hengli
JARÐSKJÁLFTI sem mældist 3,2
á Richterskvarða varð í norðaust-
anverðum Hengli klukkan 10.05 í
gærmorgun.
Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlis-
fræðingur á Veðurstofu íslands,
segir engan í nágrenninu hafa
hringt til Veðurstofunnar vegna
þessa. Hins vegar viti hún til þess
að fólk á Ránargötu, Kjalamesi og
í Svínadal hafi fundið skjálftann.
Steinunn segir að svo virðist sem
upptök skjálftans hafi verið í Kýr-
dal sem sé vestarlega á virka svæð-
inu. Allt þetta svæði sé hins vegar
meira og minna virkt og því sé
alltaf von á skjálftum þar öðm
hverju.
Þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins send-
ir út spurningaskrá í 93. skipti
Upplýsingar
um kraftaverk
og matarhefðir
ÞJÓÐHÁTTADEILD Þjóðminja-
safnsins hefur sent spumingaskrá
til um það bil 400 manna þar sem
spurt er annars vegar um matar-
hefðir þjóðarinnar og hins vegar
um reynslu svarenda af krafta-
verkum.
Varðandi matarhefðirnar segir
Hallgerður Gísladóttir, deildar-
stjóri þjóðháttadeildar Þjóðminja-
safnsins, að fólk sé beðið um að
segja frá samkomnum þar sem
menn rækta ákveðnar matarhefð-
ir, t.d. kútmagakvöld, lundaveislur
og fleira. Söfnunin er þó ekki
bundin við það sem rammíslenskt
er. Hallgerður nefndi að í eina
svaiúnu sem henni hefur borist við
nýpóstlögðum spurningalistanum
fylgdi það sögunni að barnaböm
svarandans hefðu það fyrir sið að
halda pizzuveislur á laugardögum.
Slíkar upplýsingar eru einnig
þegnar með þökkum og eftir þeim
sækist þjóðháttadeildin, segir
HaUgerður.
Varðandi kraftaverk er fólk
spurt hvort það hafi sjálft eða
þekki einhvem sem hefur bjargast
úr alvarlegum háska eða hlotið
lækningu af alvarlegum veikindum
á einhvem hátt sem nánast er óút-
skýranlegur. „Hafa menn orðið
vitni að einhverju sem telja má til
kraftaverka? Vita menn um,
þekkja eða hafa heyrt sögur af
fólki sem talið er búa yfir mætti til
að gera kraftaverk?" er spurt.
93. spurningaskráin
Hallgerður segir að þjóðhátta-
deildin hafi frá árinu 1960 sent
spurningaskrár af þessu tagi til
hóps fólks; að jafnaði tvisvar á ári.
Spumingamar sem nú em sendar
er að finna í 93. spurningaskránni.
Flestir í þeim um 400 manna hópi
sem fær skrámar sendar em á
aldrinum 70-100 ára.
Hún leggur áhei-slu á að verið sé
að leita að „algjörlega persónuleg-
um heimildum“ frá þeim sem fá
spurningamar sendar. „Við eram
ekki að biðja fólk að fletta upp í
bókum, heldur að spyrja hvað það
hafi heyrt og reynt,“ segir hún.
Þótt viðtakendur skránna séu
aðeins 400 talsins og allir rosknir
segir Hallgerður að vonandi hugsi
flem til þjóðháttadeildar Þjóð-
minjasafnsins. Hún taki fagnandi á
móti upplýsingum frá yngri sem
eldri um hvaðeina sem lýtm’ að
reynslu fólks af matarhefðum ís-
lensku þjóðarinnar íyrr og síðar.
Reynslusögur af kraftaverkum
þiggur Þjóðminjasafnið einnig með
þökkum.
FLUTNINGASKIPIÐ Tia bundið við bryggju í Castletownbere.
íslenskur skipstjóri fyrir rétti í fíkni-
efnamáli í Cork á írlandi
Sýknaður af
öllum ákærum
HÉRAÐSDÓMUR í Cork á ír-
landi hefur sýknað íslenskan skip-
stjóra á flutningaskipinu TIA, sem
gmnaður var um þátttöku í sam-
særi um að flytja kókaín inn til fr-
lands, af öllum sakargiftum.
Starfsmaður dómstólsins stað-
festi í samtali við Morgunblaðið í
gær að málinu hefði lokið síðastlið-
inn fóstudag þegar dómari gaf
kviðdómi fyrirmæli um að fella
þann dóm að skipstjórinn væri sak-
laus af ákæram um að hafa tekið
þátt í samsæri um að flytja kókaín
inn til írlands.
Þegar úrskurðui’inn var kveðinn
upp, sl. fóstudag, var meðferð
málsins ekki lokið og sagði starfs-
maður réttarins að dómarinn hefði
gefið kviðdóminum fyrirmælin
„vegna lagaatriða, áður en málið
vai’ komið til efnislegrar meðferðar
hjá kviðdóminum".
Skipið TIA, sem skráð var í
Belize, var fært til hafnar í bænum
Castletownbere á suðurodda ír-
lands í nóvember 1996 vegna gnms
um að skipið hefði flutt kókaín til
Irlands frá Suður-Ameríku. Eig-
andi skipsins og skipstjóri er Is-
lendingur á sjötugsaldri. Við ítar-
lega margra daga leit lögreglu í
skipinu fundust engin fíkniefni en
skipstjórinn var engu að síður
ákærður og fékkst niðurstaða í það
mál fyrst sl. fóstudag. Skipstjórinn
var hafður í haldi í nokkrar vikur
en dvelst nú í Svíþjóð. Skip hans
liggur hins vegar enn í höfn á ír-
landi.