Morgunblaðið - 19.02.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 11
FRÉTTIR
ÞAÐ verður heldur dýrara að sóla sig á ströndum Suðurlanda í sumar en í fyrra.
6 til 11% hækkun
á orlofsferðum
MILLI 6 og 11% verðhækkun á or-
lofsferðum milli ára kemur fram þeg-
ar litið er á nokkur dæmi í verðskrám
ferðaskrifstofanna og Flugleiða sem
kynntar voru um síðustu helgi.
Hækkun er á pökkunum flug og bfll
og flug og gisting og nokkur hækkun
er einnig á dvöl á sólarströndum.
Einnig má fínna dæmi um verðlækk-
un frá í fyrra svo og um að verðið
hafi staðið í stað.
Sem dæmi má nefna hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn verð á flugi til
Kaupmannahafnar með bflaleigubíl í
B-flokki í tvær vikur fyrir tvo. Kost-
aði slíkur pakki í fyiTa 41.300 krónur
á mann en í ár er hann 44.600 kr.,
sem er um 8% hækkun. Þriggja
vikna dvöl á Beni Beach á Benidorm,
fyrir tvo í tveggja herbergja íbúð,
kostaði í fyrra 80.500 en í ár 89.600,
sem er yfir 11% hækkun. Tveggja
vikna dvöl í sumarhúsi í Hollandi, þar
sem fjórir eru saman í húsi, kostaði í
fyrra 53.800 en fer í ár í 57.100, sem
er tæplega 6% hækkun. Hjá Heims-
ferðum má nefna sem dæmi að
Mexíkóferð með vikudvöl fyrir tvo á
Hotel Posada Real í Cancun kostaði
á manninn 79.500 í fyrra en 81.200
kr. í ár, sem er innan við 3% hækkun.
Ford Escort bflaleigubíll á Benidorm
á Spáni í viku kostaði í fyrra 20.600
en í ár 21.000 kr. Þá kostaði vikuferð
til Parísar með gistingu á Hotel
Appollinaire 35.600 kr. fyrir tvo í her-
bergi með morgunmat í fyrra en í ár
38.200 kr. og er það tæplega 8%
hækkun.
I verðskrá Heimsferða er einnig
dæmi um verðlækkun. Þriggja vikna
dvöl fyrir fjóra í íbúð með tveimur
svefnherbergjum á Benidoi-m kostaði
í fyrra 75.200 kr. fyrir manninn
ásamt flugi en í ár fer hún niður í 63
þúsund krónur.
Sé litið á nokkur dæmi úr verðskrá
Flugleiða kemur í ljós að flug á
Kaupmannahöfn og gisting í viku í
tveggja manna herbergi á Copen-
hagen Star hótelinu kostaði í fyrra-
sumar 56.000 kr. fyrir manninn en í
sumar er verðið 60.800. Er það tæp-
lega 9% hækkun. I Lúxemborg kost-
ar slíkur pakki 58.400 kr. á City Hot-
el í ár en var 52.400 í fyrra, sem er
tæplega 11% hækkun. Þá bjóða Flug-
leiðir flug og gistingu á Costa Brava
á Spáni, sem kostar á mann miðað við
tvo í íbúð á Brava Park 54.400 kr. í ár
en var í fyrra á 51.100 kr. og er
hækkunin milli ára innan við 7%.
Andri Már Ingólfsson forstjóri
Heimsferða segir að skýringar á
hækkunum séu annars vegar hærra
gengi dollars og hins vegar verð-
hækkanir á gististöðum víða erlendis
vegna mjög aukinnar eftirspurnar
frá Bretlandi, Þýskalandi og fleiri
löndum í Mið-Evi'ópu. Skýirnguna á
verðlækkun sagði Andri m.a. þá, að
náðst hefðu betri samningar um flug
til Benidorm og Costa del Sol svo og
einfaldari samningar um gistingu
þar.
Breikkun Gullinbrúar sýnda á skipulagsuppdrætti
Ekki talin vera þörf á
mati á umhverfísáhrifum
„ÞAÐ er af og frá að túlka Aðal-
skipulag Reykjavíkur á þann veg að
Gullinbrú sé ekki þar inni,“ sagði
Stefán Hermannsson borgarverk-
fæðingur, vegna fréttar í Morgun-
blaðinu þar sem haft er eftir skipu-
lagsstjóra ríkisins, að framkvæmda
við Gullinbrú sé hvergi getið í ný-
staðfestu Aðalskipulagi Reykjavík-
ur. Sagði Stefán að Gullinbrú væri
ekki á lista yfir matsskyldar fram-
kvæmdir, þar sem ekki var talin
þörf á mati á umhverfisáhrifum.
„Fréttin var villandi," sagði Stef-
án. „I kaflanum um aðalgatnakerfið
í Aðalskipulagi Reykjavíkur
1992-2016 kemur mjög skilmerki-
lega fram á korti að breikkun Gull-
inbrúar er inni á framkvæmdatím-
anum. Hennar er ekki getið í texta,
en aftast í skjalinu er upptalning á
framkvæmdum og þar hefur lengi
verið til siðs að telja eingöngu upp
nýja vegi en ekki breikkun eða
fjölgun akreina. Tilvitnunin í Gullin-
brú í kafla um nýbyggðasvæði
fannst mér vera langsótt."
Ekki talin þörf á mati
Að sögn Stefáns er Gullinbrú
ekki með á lista yfir matsskyldar
framkvæmdir, þar sem ekki var tal-
in vera þörf á mati á umhverfis-
áhrifum. „Við vorum ekki með
neinn lista inni í Aðalskipulaginu yf-
ir matsskyldar framkvæmdir í
fyrstu yfirferð en skipulag ríkisins
gerði við það athugasemd og vildi fá
upptalningu á helstu framkvæmd-
um,“ sagði hann. „Við lögðum fram
lista og þeir bættu inn á hann en
nefndu ekki Gullinbrú. Ef til vill
vegna þess að þeir hafa ekki áttað
sig á að hún er á breytingakortinu.
Núna segja þeir að þessi listi sé
ekki tæmandi og hann ræður því
sennilega ekki úrslitum en hann
varð nú samt til þess að við gerðum
ekki ráð fyrir umhverfismati þegar
við hófum vinnuna við brúna í
haust.“
Athugun á umhverfísáhrifum
Stefán sagði að alltaf hafi verið
gert ráð fyrir að allar athuganir á
umhveifisáhrifum yrðu gerðar
vegna Gullinbrúar eins og alltaf væri
gert. Ennfremur benti hann á að í
Aðalskipulagi frá 1990, sem staðfest
var áður en lög um mat á umhverfis-
áhrifum tóku gildi, þá sé breikkun á
brúnni sýnd með sama hætti og nú.
„Það eru rök fyrir því að formlegt
mat þuifi ekki að fara fram þar sem
lögin gera ekki ráð fyrir að eldri
samþykktar framkvæmdir þurfi slíkt
mat,“ sagði hann. „En við munum
hlíta úrskurði um mat eða ekki mat
með glöðu geði.“
Sjálfstæðisfélag Bessastaðahrepps
Gengið frá vali
framboðslista
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Bessa-
staðahrepps hefur gengið frá vali á
framboðslista til sveitarstjórnar-
kosninga sem haldnar verða 23. maí
nk. Framboðslistinn var valinn að
undangengu prófkjöri sem haldið
var 22. nóvember 1997. Listinn er
samhljóða niðurstöðu prófkjörs í
fyrstu níu sætin, en fjögur efstu sæt-
in í prófkjörinu fengu bindandi kosn-
ingu.
Framboðslistinn er skipaður eftir-
töldum:
1. Guðmundur G. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri, Norðurtúni 3.
2. Snorri Finnlaugsson, deildarstjóri,
Vesturtúni 10.
3. Soffía Sæmundsdóttir, myndlistar-
maður, Blikastíg 2.
4. Jón G. Gunnlaugsson, framkvæmda-
stjóri, Brekkukoti.
5. Þórólfur Árnason, verslunarmaðm-,
Lambhaga 12.
6. Bjarni Berg, flugmaður,
Litlubæjarvör 1.
7. Hervör Poulsen, bókari,
Smáratúni 4.
8. Hallgrímur P. Sigurbjörnsson,
Túngötu 9.
9. Salbjörg Bjarnadóttii', markaðs-
fulltrúi, Vesturtúni 26.
10. Katrín Gunnarsdóttir, húsmóðir,
Ásbyrgi.
11. Ársæll Hauksson, bift'eiðastjóri,
Vesturtúni 4.
12. Níelsa Magnúsdóttir, húsmóðir,
Austurtúni 2.
13. Birgir Guðmundsson, tæknifræð-
ingur, Lambhaga 16.
lJ. Maria Sveinsdóttir, fulltrúi, Jörfa.
Á aðalfundi sjálfstæðisfélagins var
kosin ný stjórn þess. Katrín Gunn-
arsdóttir sem verið hefur formaður
síðastliðin ár gaf ekki kost á sér aft-
ur til formennsku, i stað hennar var
kosinn Ársæll Hauksson.
Með honum í stjórn eru Hallgrímur
Viktorsson, Brynja Guðmundsdóttir,
Þórólfur Árnason og Jóhanna Jóns-
dóttir. í varastjórn eru Björn Jó-
hann Björnsson, Kjartan Þorgeirs-
son, Katrín Gunnai'sdóttir, Sigfríður
E. Ingvadóttir og Oddný Sigurðar-
dóttir.
Bókaðu núna
og tryggðu þér
kr.
afslátt
fyrir fjölskylduna til
Benidorm
Heimsferðir kynna nú hagstæð-
ustu verð sumarsins til Benidorm,
og ef þú bókar núna getur þú
tryggt þér 6.000 kx. afslátt
fyrir manninn, eða allt að
30.000 kr. afslátt fyrir fjöl-
skylduna. Fáðu bæklinginn
sendan og kynntu þér
glæsilega nýja gistivalkosti
fyrir sumarið og tryggðu
þér besta verðið í sumar.
Fáðu bældinginn sendan
MtSVU
200S*V»
Verð
39.932
Verð kr.
53.960
Hjón með 2 börn, 2-11 ára, 2 vikur, M.v. 2 í íbúð, Vina del Mar, 2 vikur,
Vina del Mar. 15. júlí._______________________________
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð -sími 562 4600