Morgunblaðið - 19.02.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 49
AÐSENDAR GREINAR
Samgöngukerfi
borgarinnar
brýnasta verkefnið
Á FYRSTU tugum
þessarar aldar hugðu
menn að fram til alda-
móta myndi öll byggð í
Reykjavík rúmast inn-
an Hringbrautar, en þá
var núverandi Snorra-
braut hluti hennar.
Menn fóru fótgangandi
eða ríðandi um göturn-
ar og fluttu vaming á
hjólbörum eða hand-
vögnum. Þessa umferð
höfðu menn að leiðar-
ljósi er götur voru lagð-
ar. Gatnakerfi borgar-
innar þolir því engan
veginn þann urmul bíla
sem fyllir götumar
kvölds og morgna hvern virkan dag.
Borgir um víða veröld hafa staðið
í sömu sporum. Sumar hafa reynt
að hemja umferðina með valdboði
en án árangurs. Menn hafa látið
krók koma á móti bragði. Eflaust
yrðu Reykvíkingar þar engir eftir-
bátar, þeim þarf ekki klæki að
kenna. Vegna fólksfæðar koma
jarðgöng naumast til greinar.
Fangaráð virðist það eitt að al-
menningur teldi sér hagkvæmara
að aka um borgina í strætisvagni en
í eijgin bíl.
I árslok 1995 vora allir bílar tald-
ir á Reykjavíkursvæði. Einkabílar
töldust 70.904. Áætlað var að 42
þúsundir þeirra væru notaðir í akst-
ur milli heimilis og vinnustaðar og
vegalengd fram og aftur væri 15 km
að meðaltali. Fullhlaðinn strætisbíll
leysti af hólmi tugi einkabíla, því að
í fjórum af hverjum fimm mun að
jafnaði ökuþórinn einn.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur látið reikna rekstrarkostnað
einkabíls. Miðað er við að innkaups-
verð hafi verið 1.350.000 krónur og
honum ekið 15 þúsund kílómetra á
ári. Það reyndist 480.000 krónur ár
hvert.
Sé þetta rétt mun mörgum bíleig-
enda vera um megn að axla þennan
kostnað. Sumir eru svo hart keyrðir
að þeir halda út í umferðina á bíl
sínum ótryggðum, oft með skelfileg-
um afleiðingum. Fjöldi bíla í umferð
er eldri en hæfilegt má teljast og
ættu að vera komnir af skrá.
„Ekki er allt með felldu," stóð í
þýðingum Matthíasar forðum.
Mætti hafa það sem yfirskrift um
bardús stjórnar SVR. Sl. ár voru
akstursleiðir þeirra hannaðar að
nýju, raunar í tvígang, því sú fyrri
var fjarri öllu lagi. Skal nú drepið á
örfá atriði, sem betur mættu fara.
Vagnar, sem ekið er sömu leiðir
að hluta, leggja samtímis af stað.
Þetta lengir biðtíma væntanlegra
farþega á stoppistöðum. Aðeins
einn vagn er af minni gerð í flotan-
um, leið eitt. Raunar er hann of stór
og kemst ekki gömlu leiðina Njáls-
götu-Gunnarsbraut, þar sem hans
væri þörf, en geysist inn Hverfis-
götu og leysir þar engan vanda.
Fjölga þyrfti litlum vögnum. Þeir
henta á þröngum götum í lítilli um-
ferð og til að safna farþegum í veg
fyrir stóra vagna á aðalbrautum.
Tökum sem dæmi leið tvö: Enda-
stöðvar Grandagarður-Skeiðavogur,
aksturstími 23 mínútur, innifalinn
söfnunartími í Vogum og Heimum.
Ef lítill vagn annaðist þessa söfnun,
gæti leiðin farið fimm ferðir á sama
tíma og fjórar nú. Víða vantar bið-
skýli og það þótt umferð sé mikil og
fælir efalaust marga frá SVR því
engum er ætlandi að norpa á ber-
angri tímunum saman.
Tími milli ferða er nú 20 eða 30
mínútur, ferðir strjálli en áður var.
Mörgum er þetta of langt, einkum
þeim sem skipta þurfa um vagna.
Engar kannanir era gerðar þó að
þær séu orðnar býsna ái-eiðanlegar
og gefi svör við því sem
að er spurt. Auglýsing-
ar era að mestu snið-
gengnar. Erlendum
ferðamönnum lltt
sinnt.
En formaður SVR er
harðánægður og leikur
við hvern sinn fingur.
Sjálfumgleði hans
kemur berlega í ljós í
Morgunblaðsgrein
hans 5.12. sl. í fyrir-
sögn er valið eitt
stærsta letur blaðsins,
sem tæpast er gripið
til, nema um rosafrétt
sé að ræða. Fyrirsögn-
in hljóðar svo: Ferða-
menn ánægðir með SVR. Síðar
kemur í ljós í greininni að átt er við
erlenda ferðamenn.
Stjórn SVR, segir
Jón Á. Gissurarson,
valdi að hækka fargjöld
krakka og gamlingja.
Lítum nú á hvernig SVR hagar
fyrirgreiðslu við erlenda menn. Sl.
ár heimsóttu 403 þúsundir erlendra
manna Island, langflestir með flugi
og eiga allir leið um Reykjavík og
gista flestir þar eina eða fleiri næt-
ur. Ætla mætti að formanni SVR
þætti ómaksins vert að eiga sam-
skipti við þennan urmul, og það
einmitt þá mánuði sem minnst er
álag á vagna hans vegna sumarleyfa
heimamanna. En ekkert er gert til
þess að hæna þá að. Að vísu er til
handhægur bæklingur sem sýnir að
með strætisvögnum má komast til
hinna ýmsu staða, sem menn ætla
að séu forvitnilegir útlendingum.
En svo er vanrækt að koma pésan-
um í réttar hendur. Ná hefði þó
mátt til allra í Leifsstöð, jafnvel fá
honum dreift til farþega í flugvél í
byrjun ferðar. Kver þetta er heldur
ekki að hafa í strætisbflunum sjálf-
um né heldur í afgreiðslum ferða-
manna svo sem Ferðamiðstöð
Reykjavíkur. Hagnaður af þessum
viðskiptum hefði þó getað lækkað
halla SVR sem borgarsjóður gi-eið-
ir. Hann nam sl. ár fjögur hundruð
milljónum krónum.
Nauðsyn þótti 1996 að hækka far-
gjöld með SVR. Hvers kyns hækk-
un opinberrar þjónustu er stjórn-
völdum þvert um geð og þau óttast
fylgistap í næstu kosningum. En
stjórn SVR dó ekki ráðalaus. í stað
þess að hækka jafnt á öllum, valdi
hún úr tvo hópa, krakka og gaml-
inga, og hækkaði fargjöld þeirra
meira en annarra, vitandi að ekki
yrðu allir þessir ki-akkar komnir á
kjörski'á í næstu kosningum og hin-
ir farnir að týna tölunni.
Skýi’slur sýna ótvírætt að SVR
veldur sárafáum slysum og litlu
tjóni í umferðinni og era þó vagnar
þeiiTa í akstri stanslaust frá morgni
til kvölds hvernig sem viðrar, enda
vegnar traustir og vagnstjórar frá-
bærir. Aðeins öflugt SVR er þess
megnugt að bæta umferð á götum
Reykjavíkur. Með leiðabók sinni
hefur R-listi lagt spilin á borðið.
Menn bíða í ofvæni eftir útspili D-
listans.
Til glöggvunar: R-listinn hefur
breytt nafni sínu og kallast nú
Reykjavíkurlisti. Minnir það á
brúnu merina hans Páls Ólafssonar
sem ummyndaðist í vaki'a Skjóna.
Höfundur er fv. skólastjóri.
Tískuverslunin Qhmtu
v/Nesveg Seltjarnarnesi Síml: 561 1680
Barnaskoutsala
Moonboots frá 790,990,1790
Smáskór
í bláu húsi við Fdkafen
Sími 568 3919
L,- (jœðavara
Gjdfdvaia nidtdr og kdínslell. Heim
Allir verdflokkar. ^ m.a. (
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsírægii hönnuóir
m.d.Gidnni Versdce.
Jón Á.
Gissurarson
Kanebo KYNNING
I SNYRTIVÓRUVERSLUNINNI ANDORRU, STRANDGÖTU 32, HAFNARFIRÐI
i DAG, FIMMTUDAG, OG FÖSTUDAG FRÁ KL. 13-18.
SÉRFRÆÐINGUR FRÁ KANEB0 VERÐUR MEÐ HÚÐGREININGARTÖLVUNA
OG VEITIR FAGLEGA RÁÐGjÖF. KANEBO, HÁÞRÓUÐ TÆKNI FRÁ jAPAN.
W
IÐNÞING 1998
Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið föstudaginn 20. febrúar nk. í samkomusalnum Gullhömrum, í Húsi iðnaðarins að Hallveigarstíg 1.
10:00 Formót: Niðurstöður úr stefnumótunarvinnu Samtaka iðnaðarins. Opinn fundur með þátttöku stjórnar og ráðgjafaráðs.
11:45 Mæting og móttaka fundargagna.
12:00 Iðnþing sett. Hádegisverður í boði Samtaka iðnaðarins.
13:15 Ræða formanns Sl, Haraldar Sumarliðasonar. Ræða iðnaðarráðherra, Finns Ingólfssonar.
14:15 Hlutfallsleg fækkun starfsmanna í iðnaði. Afleiðing efnahagsmistaka eða eðlilegrar þróunar efnahagslífsins?
De-lndustrialization: The Case of lceland. - R.E. Rowthorn, prófessor í hagfræði við háskólann í Cambridge.
Umræður og fyrirspurnir.
15:15 Hlé.
15:30 Aðalfundarstörf og úrslit kosninga.
16:45 Ályktun Iðnþings afgreidd.
17:00 Þingslit.
19:30 Hóf Samtaka iðnaðarins í veislusalnum Gullhömrum, Hallveigarstíg I.
0) SAMTÖK m!k IÐNAÐARINS HALLVEIGARSTÍG 1 • PÓSTHÓLF 1450 • 121 REYKJAVÍK • SÍMI 511 5555 • FAX 511 5566 HEIMASÍÐA www.si.is • TÖLVUPÓSTUR mottaka@si.is