Morgunblaðið - 19.02.1998, Side 62
62 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
f WFIZNIG 6EN6U/Z SAM&llW}
j>fci&e aöno hess/i þmana H
Grettir
Tommi og Jenni
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sindri fordæmir
vinnubrögð í
sj ómannadeilunni
Frá skipstjóra- og stýrimannafélag-
inu Sindra á Austfjörðum:
STJÓRN skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Sindra á Austfjörð-
um fordæmir þau vinnubrögð, sem
viðgengist hafa í vinnudeilum milli
sjómanna og útgerðarmanna, og ít-
rekað hafa endað með því að sett
hafa verið lög á sjómenn og með því
brotin á þeim þau almennu mann-
réttindi, sem stjórnvöld hafa skuld-
bundið sig til að virða með alþjóð-
legum samningum, og sú skýring að
þjóðarheill krefjist þess að auðlindir
sjávarins (sameign þjóðarinnar) séu
nýttar, látin nægja.
Það hlýtur að vekja furðu að
aldrei skuli koma upp sú staða hjá
kjömum stjómendum landsins að
gera neitt fýrr en komið er verkfall.
Rétt er að benda á að samningar
hafa verið lausir og kröfur legið
frammi í 13 mánuði, og á þeim tíma
hafa forsvarsmenn útgerðanna ekki
fengist að samningaborðinu, fyrr en
búið var að samþykkja að hefja
verkfall.
Á þeim tíma sem „viðræður" hafa
farið fram hefur lítið gerst annað en
að útgerðarmenn hafa algerlega
neitað að ræða aðalkröfu sjómanna
um að afnumið verði það kvóta-
brask, sem nú viðgengst hjá
nokkram aðilum í samtökum út-
gerðannanna, og sjómenn hafa ver-
ið neyddir til að taka þátt í vilji þeir
halda sinni atvinnu.
Þetta þarf engan að undra því svo
vissir hafa þeir verið um stuðning
stjórnvalda að þeir hafa bara neitað
kröfunum þangað til ekki verður
lengur komist hjá að binda enda á
deilurnar með setningu laga, og
staðfesta þar með sukkið með sam-
eignina, og sjá til þess að braskið
geti haldið áfram að leggja efnahag
og atvinnuöryggi íbúa hinna dreifðu
byggða fískverkafólks og sjómanna
í rúst.
Því verður ekki trúað að óreyndu
á alþingismenn og ráðherra að það
sé þeirra vilji að þannig sé að verki
staðið, þó vitað sé að innan þeirra
raða séu aðilar, sem eiga hluti í út-
gerð og fiskvinnslu.
Það er því skýlaus krafa okkar að
tekið verði á þessum málum á hinu
háa alþingi með þeim hætti að þjóð-
in finni að hér er um sameign þjóð-
arinnar að ræða, en ekki gæluverk-
efni handa nokkrum útvöldum „sæ-
greifum“ til að braska með.
F.h. skipstjóra- og stýrimannafélags-
ins Sindra,
AÐALSTEINN VALDIMARSSON,
formaður,
STURLAUGURSTEFÁNSSON,
ritari.
I
Smáfólk
„Vísbending um hugsanlega námsörðugleika... á erfitt með að
muna... gerir stafavillur... á erfítt með að halda á blýanti...“
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FORSYNING I KVOLD KL. 9
Seven Years
In Tibet