Morgunblaðið - 19.02.1998, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
\ Askorun á forseta Islands
Frá Ástþórí Magnússyni:
FRIÐUR 2000 skorar hér með á
forseta íslands, hr. Ólaf Ragnar
Grímsson, að beita sér nú þegar að
friðarmálum í Mið-Austurlöndum.
Astandið í Persaflóa er að taka
Ióheillavænlega stefnu með deilun-
um á milli íraks og hins vestræna
| samfélags undh' forystu Samein-
| uðu þjóðanna og Bandaríkjanna.
Ljóst er að þessi deila gæti orðið
til þess að ógna heimsfriðnum og
þar með öryggi íslensku þjóðar-
innar. Það hlýtur að vera for-
gangsverkefni fyi-ir forseta Is-
lands að stuðla að heill og velsæld
íslensku þjóðarinnar. Astæða er til
að ætla að Persaflóadeilan geti
| dregið þjóðina inn í alþjóðlegt
| stríðsástand og öldu hryðjuverka.
I Varað er við þeim væntingum að
Bandaríkjamenn leiði friðarferlið
til farsældar. Framganga Banda-
ríkjamanna að undanfórnu hefur á
margan hátt lagt þá hugsjón í rúst
að Sameinuðu þjóðirnar geti leitt
þjóðir heims til Mðar. Þær at-
hugasemdir að samtökin og örygg-
isráðið séu ekki óhlutdrægur aðili
| á alþjóðavettvangi virðast á rökum
I reistar. Hvers vegna er vopnaeft-
' irlitsnefnd sem að mestu er skipuð
P Bandaríkjamönnum send til íraks
á vegum Sameinuðu þjóðanna,
þegar vitað er að slíkt skapar deil-
ur í írak?
Friður 2000 hefur tvívegis áður
skorað á embætti forseta íslands
að taka frumkvæði í friðarmálum
Mið-Austurlanda. Enn og aftur er
skorað á forseta íslands að beita
sér í þessu máli og fara óhefð-
bundnar leiðir sé þess þörf til að
koma á viðræðum við alla aðila,
jafnt ríkisstjórnir sem og hryðju-
verkasamtök, í viðleitni til að finna
friðsamlega lausn á deilumálum.
Þróun ofbeldis og stríðsátaka í
Mið-Austurlöndum getur haft
mun alvarlegri afleiðingar fyrir
heimsbyggðina en okkur er í dag
ljóst. Vopnaðar árásir í nafni Sa-
meinuðu þjóðanna gætu leitt til
„Heilags stríðs“ sem milljónir
fólks gerðust þátttakendur í af
blindri hugsjón fyrir því sem þetta
fólk sér sem réttlæti og gegn yfir-
ráðastefnu Bandaríkjanna á al-
þjóðavettvangi.
Ef deilurnar þróast þannig enn
frekar til sundrungar gæti reynst
erfitt að hemja þann fjölda öfga-
hópa sem sprottið hafa upp í hin-
um ýmsu ríkjum í Mið-Austur-
löndum og heift þeirra sem hafa
stundað hryðjuverk á svæðinu.
Hætt er við að deilurnar milli Pa-
lestínu og ísrael myndu fljótlega
fuðra upp í kjölfarið og myndast
gæti alþjóðlegt stríðsástand milli
tveggja menningarheima. í bak-
gi'unninum blundar upplausn í
Austur-Evrópu sem gæti leitt til
nýrrar blokkamyndunar á alþjóð-
legum vettvangi með fjárhagsleg-
um stuðningi arabaríkja og flutn-
ings kjarnorkuvopna frá Rússlandi
til Mið-Austurlanda.
Friður 2000 hefur leitast við að
kynna nauðsyn þess að ísland láti
til sín taka á alþjóðlegum vett-
vangi sem hlutlaust, afl til friðar.
Ekki aðeins hefur Island mjög já-
kvæða ímynd erlendis, við erum
einnig sú þjóð heims sem búið hef-
ur við frið í nær þúsund ár, og eig-
um einstaka sögu af því hvernig
vandasöm deilumál hafa verið
leyst eins og t.d. með sáttafundi á
Þingvöllum árið 1000. Raunveru-
legur friður næst ekki með
stríðstólum, friður verður að
byggjast á réttlæti, umburðarlyndi
og kærleika.
Aðild forseta Bandaríkjanna,
sem er stærsti vopnasali heims,
virkar sem olía á eld á núverandi
ástand. Hann fer fremstur í flokki
í því að virða að vettugi flestar þær
tillögur sem fram eru komnar af
virtum sérfræðingum um þær að-
gerðir sem nauðsynlegar eru til að
tryggja frið í heiminum. Hann er
því ekki rétti aðilinn til að ganga á
milli í viðleitni til að finna friðsam-
lega lausn, enda er allt sem bendir
til þess að stríðsástand sé að skap-
ast. Forsetinn virðist jafnframt
eiga fullt í fangi með vandamál sín
heimafyrir, og miðað við þann
áróður sem þar hefur verið um
íraksmálið, er ólíklegt að vanda-
mál forsetans séu friðarmálum til
framdráttar.
Friður 2000 skorar á forseta ís-
lands að láta strax í dag í sér
heyra á alþjóðavettvangi með
áskorun um friðasamlega lausn
mála og að þær tillögur nái fram
að ganga sem fram eru komnar af
alþjóðanefndum um umbreytingar
á Sameinuðu þjóðunum í þágu
heimsfriðar.
Hjálagt sendist uppkast að
áskorun um heimsfrið. Forseti Is-
lands er beðinn að taka forystu og
verða fyrstur þjóðhöfðingja til að
undirrita þessa áskorun.
Friður 2000 og samstarfsaðilar
eru reiðubúnir á allan hátt að
styrkja friðarstarf forseta íslands
og aðstoða embættið við öflun upp- \
lýsinga og að koma á samböndum
við ýmsa sérfræðinga. Við vonum
að forseti íslands sjái sér fært að
taka á þessu mikilvæga máli og j
láta það hafa forgang.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON,
Aiþjóðastofnunin Friður 2000. (
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjonusta - þekking - ráðgjöl. Aratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Siæzsmur
SUNDABORG 1. RVK • SlMI 568 3300 • FAX 568 3305
STEINAR WAAGE_____
SKÓVERSLUN
Nýkomin stór sending frá
ocr 'NJ mmjy'
.495,
Litir: Svartir krókó
Stærðir: 37-42
Teg. Jenny
Verð: 6.995,-
Sigur: Svartir
Stærðir: 37-42
Ath. breiðir og með
þunnum gúmmísóla
STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR • POSTSENDU
STEINAR WAAGE £
---------------
SKÓ-VERSLUN
STEINAR WAAGE
SiMI 551
8519 ^
____
SKOVERSLUN vjS"
SlMI 568
Á-
I
!
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I,
I
ítalir eru frægir fyrir matargerð... þeir
vita hvað þeirvilja og hvemig
| eldhúsið á að Irta út....þess vegna
koma öll bestu eldhústækin frá halíu.
ítalskir
Elhúsháfar5’
Verð f rá kr. 39.900.
ISIARDI
Ofnar og helluborð
ftölsk hönnun eins og hún geríst best!
Hágæða
blöndunartæki
\ Mikið úrval
Kopar
Stál
Svartir
Hvítir
erum
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
á íslandi
Stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja f Evrópu
VERIÐ VELKOMIN í VERSLUN OKKAR
i