Morgunblaðið - 19.02.1998, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 65
I DAG
BRIDS
Um.vjón 0iióiiiiiiidiir
l’áll Arnurvon
DANINN Morten Ander-
sen gat ekki annað en hlegið
að óforum sínum: „Hvernig
er hægt að gefa tvo slagi á
þennan tromplit!?“
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
AÁG10862
V42
♦ ÁGIO
*G3
Vestur
*97
VKD10983
♦ 54
*ÁD8
Austur
AD5
V75
♦ D98632
*1064
Suður
*K43
VÁG6
♦ K7
*K9752
VesUir Noiður Austur Suður
Pass 1 grand
2 hjörtu 3 hjörtu* Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Aliir pass
*Yíirfærsla í spaða.
Spilið er frá tvímenningi
Bridshátíðar og Morten var
í suður, sagnhafi í fjónim
spöðum eftir þessar sagnir:
Vestur kom út með
hjartakóng og fékk að eiga
slaginn. Morten hallaði sér
aftur í sætinu og beið þess
að vestur gæfi slag, eða
a.m.k. íferð í trompið. Vest-
ur valdi að trompa út; gosi
úr blindum, drottning og
kóngur. Nú hefði verið far-
sælast að taka eitt ti'omp í
viðbót, en Morten ákvað að
fara strax í tígulinn. Hann
tók kóng og ás, og trompaði
þriðja tígulinn með þristi.
En þá yfirtrompaði vestur
óvænt með níu.
Sem voru slæm tíðindi
fyrir sagnhafa, en það var
þó huggun harmi gegn að
vestur virtist vera endaspil-
aður. Og þó. Vestur spilaði
hjarta og Morten fékk slag-
inn á gosa. Og fór að hlæja.
Hann átti trompfjarkann
eftir heima, en austur
fimmuna. Því var ekki hægt
að aftroma austur nema
taka slaginn í blindum. Og
þá var ekkert gagn í hjarta-
ásnum. Morten spilaði því
hjartaás strax í þeirri veiku
von að austur ætti eitt
hjarta í viðbót. En svo var
ekki; austur trompaði með
fimmunni og spilaði laufi:
Einn niður!
Það lítur út fyrir að vera
ónákvæm spilamennska að
taka ekki annað tromp
strax, en Morten hafði
ákveðna áætlun í huga.
Hann þóttist vita að vestur
ætti laufásinn og ætlaði sér
að ná fram lokastöðu, þar
sem vestur ætti eftir DIO í
hjarta og blankan laufás, en
sagnhafi ÁG í hjarta og
laufkónginn. Til að þetta
gangi upp, þarf hann að
geta spilað blindum inn á
tromp eftir að hafa stungið
tigulinn. Síðan kæmu öll
trompin og vestur yrði of-
urseldur innkastsþvingun.
Árnað heilla
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, Sent í bréfsíma
569-1329, sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavfk.
r7f\ÁRA afmæli. í dag,
I U fimmtudaginn 19.
febrúar, verður sjötugur
Trausti Eyjólfsson, kennari
við Bændaskólann á
Hvanneyri, fyrrverandi
hótelstjóri og æskulýðsfull-
trúi Vestmannaeyjabæjar.
Hann verður að heiman.
/?/AÁRA afmæli. í dag,
OU fimmtudaginn 19.
febrúar, verður sextug Elsa
Svandís Valentínusdóttir,
Silfurgötu 26, Stykkis-
hólmi. Eiginmaður hennar
er Guðni B. Friðriksson, að-
albókari. Þau verða að
heiman á afmælisdaginn.
/*A ÁRA afmæli. í dag,
OO fimmtudaginn 19.
febrúar, verður sextugur
Birgir Siguijónsson, fram-
kvæmdastjóri og formaður
Landssambands hesta-
manna, Köldukinn 17,
Hafnarfirði. Birgir er
staddur á Clifton Ford-hót-
elinu í London á afmælis-
daginn.
£7 A ÁRA afmæli. í dag,
DU fimmtudaginn 19.
febrúai', verður fimmtug
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir,
Reykjavík, áður búsett á
Bíldudal, Akureyri og í
Danmörku. Á þessum tíma-
mótum dvelur Ingibjörg hjá
syni sínum og tengdadóttur
í Kaupmannahöfn (sími
0045 4492 4990)
Með morgunkaffinu
VIÐ skulum ekkert vera að
segja manninum mínum frá
þessu, hann tekur það svo
nærri sér.
BÖRN læra það sem fyrir
þeim er haft á heimilunum.
COSPER
Leiðindaveður? Þakkaðu bara fyrir að ekki skuli snjóa.
STJÖRNUSPA
eftir Franoes Urake
FISKAR
Aimælisbarn dagsins: Pú
ert tilfínningaríkur og átt
stundum erfítt með að hafa
stjórn á þér. Þroskaðu
sjálfsstjórn þína.
Hrútur —
(21. mars -19. apríl)
Láttu fúllyndið ekki ná tök-
um á þér. Reyndu að finna út
hvað amar að þér og gerðu
svo eitthvað í því.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Til að ná settu marki skaltu
fylgja þínu eigin brjóstviti.
Taktu ekki mark á öðrum en
þeim sem þú treystir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) A A
Þú þarft að klára verkefni
þín áður en þú getur leyft
þér að slaka á. Einhvern mis-
skilning þarf að leiðrétta..
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu allar umræður um
fjármál liggja milli hluta þar
sem þær eiga ekki við.
Skemmtu þér á eigin kostn-
að.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) ilW
Einbeittu þér að fjölskyld-
unni og komdu lagi á það
sem betur mætti fara. Ein-
hver mál þarf að ræða í ein-
lægni.
Mtyja
(23. ágúst - 22. september) <B5L
Nú er rétti tíminn til að sýna
sig og sjá aðra. Bjóddu fólki
heim til þín eða lyftu þér upp
á einhvern hátt.
(23. sept. - 22. október) « A
Þú hefur haft í mörg horn að
líta og ekki haft tíma aflögu
fyrir sjálfan þig. Bættu úr
því í kvöld og lyftu þér upp.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú þarft að einbeita þér að
sérstöku verkefni og þarft
því að geyma aðrar skyldur
þai' til síðar. Hvíldu þig í
kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú mátt eiga von á óvenju-
legu heimboði. Fram-
kvæmdu hugmynd þína um
að efla kunnáttu þína.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Einhverra hluta vegna hefur
þér ekki tekist að koma skoð-
un þinni á framfæri við ást-
vin þinn. Reyndu aftur.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Þú mátt eiga von á óvæntum
fjárútlátum. Ef þú horfist í
augu við staðreyndir og ert
bjartsýnn, mun allt fara vel.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú hefur ekkert leyfi til að
dæma gjörðir annarra.
Ræddu málin við viðeigandi
aðila í einlægni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaiegra staðreynda.
. Aftga Vlku/l^
- kjarni málsins!
LÍMMIÐAPRENT
Þegar þig vantar límmiða!
Skemmuvegí 14 • 200 Kópavogur
Sími: 587 0980 • Fax: 557 4243
Farsími: 898 9500
AUGLÝSING ÞESSI ER EINGÖNGU BIRT í UPPLÝSINGASKYNI
ÍSLENSKA ÚTVARPSFÉLAGIÐ HF.
(Nafnabreyting vard um áramót, en áóur hét félagið Fjöliniðlun hf.)
Skuldabréf
1. flokkur 1997 B á Verðbréfaþingi íslands
Verðbréfaþing íslands hefur ákveðið að taka skuldabréf
íslenska útvarpsfélagsins hf. á skrá.
Bréfin verða skráð 23. febrúar næstkomandi.
Helstu upplýsingar um 1. flokk 1997 B:
Nafnverð 350.000.000
Útgáfudagur 7. ágúst 1997
Grunnvísitala Vísitala neysluverðs, ágúst 1997 180,1
Nafnvextir 6,9% fastir vextir
Lánstími Gjalddagar vaxta eru tvisvar á ári, 30. maí og 30. nóvember ár hvert, fyrst 30. maí 1998. Síðasti vaxtagjalddagi og gjalddagi höfuðstóls er hinn 30. maí 2005.
Skráningarlýsingu og önnur gögn, t.d. samþykktir og síðasta ársreikning er hægt að nálgast hjá umsjónaraðila skráningarinnar,
Sparisjóði vélstjóra Borgartúni 18,105 Reykjavík.
íí
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA