Morgunblaðið - 19.02.1998, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 67'
FÓLK í FRÉTTUM
Alli, Gunnar, Kristbjörg, Fríða, Svava, Sara, Baldur, Daði, Karen og Aldís
v. ckx vöror
v,KU'
Laugavegi 54, Simi 552 5201
UTSOLULOKIFLASH
fimmtudag, föstudag og laugardag
Aður 4.990
nú 1.990
Pelsar •
Áður 12.990
nú 5.990
KJólar
Aður 14.990
nú 4.990
Morgunblaðið/Ásdís
VERA Sölvadóttir og Jón Gunnar Þórðarson.
LEIKRITIÐ er eitt af myrkari verkum Shakespeares.
Við höfum flutt stofuna í Ármúla 1
KOMPANlIÐ
hárgreiðslustofa
Ármúla 1, 2. hæð • Sími 588 9911
„FRUMSÝNINGIN var þungbærasta sönnun bölvunarinnar," segir
Jón Gunnar Þórðarson.11
Bölvun
skoska
konungsins
SAMKVÆMT gamalli trú er ekki
heiglum hent að sviðsetja eitt af
höfuðverkum evrópski'ar leikritun-
ar. Það er nefnilega sagt hafa til-
hneigingu til að breytast í höfuð-
verk leikaranna. Guðmundur Ás-
geirsson átti tal við fulltrúa ofur-
huganna sem lögðu á brattann þrátt
fyrir alla hjátrú og óráðshjal. Vera
Sölvadóttir og Jón Gunnar Þórðar-
son eru sýningarstjórar og aðstoð-
arleikstjórar leikhóps Menntaskól-
ans við Hamrahlíð.
Ekki hjátrú, heldur staðreynd
William Shakespeare er gjarnan
talinn mestur allra leikskálda. Und-
anfarið hefur hvert meistaraverka
Shakespeares á fætur öðru verið
sett upp, ýmist á hefðbundinn máta
eða eftir andlitslyftingar og ýmist í
leikhúsum eða kvikmyndum.
Hrollvekjan um skoska valda-
ræningjann og konungsmorðingj-
ann hefur þó orðið útundan, þangað
tii nú. Skáldjöfurinn frá Stratford
skildi eftir sig ógrynni verka sem
líklega munu verða í hávegum höfð
um ókomna tíð, en líka bölvun svo
ramma að aldirnar fá ekki dregið úr
henni máttinn, frekar en skáldverk-
unum. Er verkið lífshættuleg og yf-
irnáttúruleg slysagildra eða er goð-
sögnin um Macbeth ekkert nema
hjátrú?
„Nei,“ segir Jón Gunnar, „við er-
um sannfærð. Frumsýningin var
þungbærasta sönnun bölvunarinn-
ar. Þá fingurbrotnaði aðalleikarinn,
Orri Huginn Ágústsson, eftir að
hafa slasast á höfði.“
„Ein leikkonan fótbrotnaði ör-
skömmu síðar þegar hún datt niður
stiga eftir sýninguna," bætir Vera
við. „Sennilega hefur einhver áhorf-
enda sagt bannorðið. Ef það er gert
fer illa.“ Jón Gunnar heldur áfram:
„En vandamálin byrjuðu strax á æf-
ingatímabilinu. Það tókst nánast öll-
um sem að sýningunni stóðu að
slasa sig á einhvern máta. Leik-
stjórinn skar sig í lófann og flestir
skáru sig innan tveggja daga eftir
að reglurnar voru brotnar.“
Ævafornar reglur
Verkið var samið snemma á 17.
öld og snemma kom í ljós að slysa-
tíðni við uppsetningar var óvenju
há. Smám saman þóttust menn sjá
hvað orsakaði slysfarirnar og nú
eru til reglur sem hægt er að fylgja
til að draga úr hættunni.
„Það er alveg bannað að nefna
nafn titilpersónunnar nema á svið-
inu,“ segir Vera. „Eins er stór-
hættulegt að fara með textann í
búningsklefum. Sú regla var brotin
hjá okkur og þá fór fólk að skera
sig. Hægt er að bæta fyrir brot á
sumum reglum og losna við hroða-
legar afleiðingarnar. Ef farið er
með texta eða nafnið nefnt inni í
búningsklefa verður viðkomandi að
fara út, snúa sér í þrjá hringi og
ropa eða reka við. Síðan verður
hann að banka á hurðina og biðja
um leyfi til að koma inn aftur.“
„Gísli Rúnar leikari bætti ákvæð-
um um vindgang við gömlu regl-
una,“ bætir Jón Gunnar við. „Það er
til endalaus röð af slysasögum varð-
andi þetta verk. Eitt alvarlegasta
slysið varð á 18. öld í Englandi þeg-
ar nokkrir leikarar fórust og margir
slösuðust í sprengingu sem varð á
sviðinu. Fyi’ir skömmu varð
banaslys þegar ljósamaður fékk raf-
lost við vinnu sína. Upptalning á
slíkum atvikum gæti fyllt stórar
bækur.“
Leikrit um svartan galdur
Þetta leikrit er eitt af myi'kari
verkum Shakespeares. Það fjallar
um dekkri hliðar mannsins og er
fullt af draugum, dauðasyndum og
svörtum galdri. Skýringa á bölvun-
inni hefur verið leitað í djöfullegu
eðli leikritsins.
„Verkið hverfist um nornir og
svartagaldur,“ segir Vera. „Norn-
irnar knýja atburðarásina áfram og
eru valdar að öllum þeim illu at-
burðum sem eiga sér stað. Draugar
og tálsýnir eru þeirra verk. Ef til
vill fylgir bölvunin galdrinum.“
„Við erum ekki í nokkrum vafa
um að sagan er sönn,“ segir Jón
Gunnar. „Það er svo margt búið að
eiga sér stað í kringum þessa upp-
færslu sem getur ekki verið tilvilj-
un.“
„Við vonim með sýningu föstu-
daginn þrettánda, en þá var fullt
tungl. Þetta er dálítið ógnvekjandi,
en við vorum óhrædd,“ segir Vera,
en ekki er laust við að ótta bregði
fyrir í augunum. Það er vonandi að
allt fari vel þrátt fyrir 611103 byrjun
hjá leikhópi Menntaskólans við
Hamrahlíð. Ef blóði drifið nafn að-
alpersónunnar hrekkur ekki af vör-
um áhorfenda er einhver von til
þess að liðsauki frá dekkri hliðum
máttarvaldanna, eins og illræmdar
dagsetningar og ógnvekjandi staða
himintungla, dugi ekki tii að skaða
ungmennin frekar. Blaðamaður
sannfærðist fljótt um áhrif bölvun-
arinnar, því viðtalið þurfti að endur-
taka. Nafn skoska konungsins
heyi'ðist og hið óbilandi og trausta
segulband stöðvaðist samstundis.
me andlit ársins
NO NAME
- — COSMETICS 1
Snyrtivörukynning í dag kl. 14-18.
Silla förðunarfræðingur kynnir
og gefur ráðleggingar.
SPES, HÁALEITISBRAUT 58-60, SÍMI 581 3525