Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Clinton segir samstarfíð við ísland byggjast á anda hins íslenska Leifs Eiríkssonar Landafundur Leifs minnir á gildi frumkvöðulsins ÞAÐ fór vel á með Kolfinnu Baldvinsdóttur, Bill Clinton Bandaríkjaforseta, Starkaði Sigurðarsyni, Jóni Bald- vin Hannibalssyni sendiherra og Bryndísi Schram í Hvíta húsinu á mánudag JÓN BALDVIN Hannibalsson, sendihen-a íslands í Washington, af- henti á mánudag Bill Clinton Banda- ríkjaforseta erindisbréf sitt í Hvíta húsinu. Clinton sagði að Jón Baldvin tæki við embætti á þýðingarmiklum tíma fyrir Island. Samskiptin aldrei betri „Samskipti milli íslands og Bandaríkjanna hafa aldrei verið betri,“ sagði hann. „Island vinnur nú að því með okkur að byggja upp þær stofnanir, sem tryggja eiga aukna hagsæld, einingu og öryggi í Evr- ópu.“ I ávarpi sínu sagði Bandaríkjafor- seti að þjóðimar hefðu skuldbundið sig tii að efla lýðræði og frelsi í heim- inum. „Sameiginleg viðleitni okkar til að greiða fyrir inngöngu Eystrasalts- ríkjanna þriggja, Eistlands, Lett- lands og Litháens, í stofnanir Evr- ópu ber einnig vitni skuldbindingu okkar við anda sjálfstæðis og sjálfsá- kvörðunarréttar, sem hinn mikli ís- lenski landkönnuður Leifur Eiríks- son er táknrænn fyrir,“ sagði Clint- on. Við afhendinguna sagði Jón Bald- vin að ekki væri úr vegi við þetta tækifæri að nefna það að fyrsti Evr- ópubúinn, sem komið hefði til Vest- urálfu, hefði verið íslendingurinn Leifur Eiríksson fyrir þúsund árum. „Með tilliti til þess að þúsund ára afmælinu verður fagnað eftir tvö ár má nefna að fyrsta barnið af evr- ópskum uppruna, sem fæddist í nýja heiminum fyrir nærri þúsund árum, átti íslenska foreldra," sagði nýi sendiherrann. „Samskiptin milli Is- lands og Ameríku eiga sér því lengri sögu en samskipti Ameríku við nokkurt annað Evrópuríki.“ Clinton sagði að það væri tilhlökk- unarefni að hefja samstarf við ís- lendinga að því að kynna anda Ianda- fundanna, ekki aðeins vegna þess að árið 2000 væru þúsund ár liðin frá því að Ameríka fannst, heldur í þágu fólks um allan heim. „Bandaríkjamenn og Islendingar eiga styrka, sameiginlega arfleifð og það að Leifur fann nýja heiminn minnir okkur á gildi frumkvöðulsins: hugrekki, sjálfstæði og sýn,“ sagði Clinton. „Þessi gildi eru kjarninn í hinum bandaríska og íslenska anda. Þegar Bandaríkin voru ung komu ís- lenskir innflytjendur og buðu hætt- um birginn í því skyni að tryggja komandi kynslóðum betra líf. Forfeður okkar í Bandai-íkjunum og á íslandi voru innflytjendur og stóðu af sér mótlæti í þvi skyni að öðlast efnahagslegt, trúarlegt og pólitískt frelsi í hvoru landi um sig. Þegar mannkyn býr sig undir að stíga skrefið inn í nýtt árþúsund er hug- rekki og ákveðni Leifs Eiríkssonar grundvöllur þeirrar sýnar, sem er Bandaríkjamönnum og íslendingum sameiginleg um að byggja betri heim.“ Jón Baldvin sagði í gær að orð Clintons staðfestu rækilega marg- yfirlýsta stefnu Bandaríkjamanna um samstarf við íslendinga vegna árþúsundsins. „Þau taka væntanlega einnig öll tvimæli af um hverrar þjóðar Leifur Eiríksson var,“ sagði hann. „Við eig- um eftir að sjá það betur að þetta samstarf getur borið mikinn árangur ef rétt er á haldið." Framkvæmdastj óri sýkn- aður af kröfum um ábyrgð HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær Gísla Öm Lárusson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Arctic-ferða- þjónustunnar, af kröfum enskra fyrirtækisins Independent Aviation Group sem krafðist þess að Gísli Öm yrði látinn sæta ábyrgð sem framkvæmdastjóri hinnar gjald- þrota þjónustu og greiða 103 þús- und ensk pund, eða um 7,5 millj. kr. Flugfélagið var jafnframt dæmt til að greiða Gísla Erni 250 þúsund krónur í málskostnað. Arctic Tours varð gjaldþrota 24. nóvember 1997 og fékkst ekkert upp í lýstar kröfur sem námu 1,7 milljónum króna en enska flugfélag- ið lýsti ekki kröfum. Málshöfðunin byggðist á að Arct- ic hefði aldrei verið rekið sam- kvæmt reglum hlutafélagalaga, stjórnarfundir og aðalfundir hafi aldrei verið haldnir og félagið sé gjaldþrota og eignalaust. Gísli Örn hafi borið ábyrgð á rekstrinum og komist ekki undan ábyrgð með því að skýla sér á bak við félag sem aldrei hafi verið starf- rækt og þar sem allar starfsreglur hlutafélaga hafi verið brotnar. í dómi Hæstaréttar segir óum- deilt að Arctic-ferðaþjónustan hafi verið stofnuð með lögformlegum hætti og 5.000.000 hlutafé, sem Gísli Öm hafi lagt fram að hálfu. Félagið hafi verið rekið í 6 vikur og séu stjórnarmenn sammála um að þeir hafi haft samráð sín á milli þann tíma þótt formlegir stjórnarfundir hafi ekki verið haldnir. Starfseminni virðist hafa verið hætt þegar í ljós kom að ekki var grundvöllur fyrir rekstrinum. Þeg- ar til þess er litið telur Hæstiréttur ekki að Independent Aviation Group hafi sýnt fram á að Gísli Öm hafi brotið reglur hlutafélagalaga eða samþykktir hlutafélagsins þannig að það hafi valdið Independent Aviation Group tjóni, sem er skilyrði bótaábyrgðar. Ekki verði heldur fallist á að sýnt sé að Gísli Örn hafi frá upphafi mátt gera sér grein fyrir því að hlutafélagið gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar. I því sambandi lítur Hæstiréttur til þess að hann hafði sannanlega hætt nokkru af eigin fé til rekstrar- ins. Deilt um Afl- vakann VIÐRÆÐUR hafa undanfarið staðið á milli Sjónvarpsstöðv- arinnar Sýnar og Aflvakans hf, um kaup Sýnar á fyrirtækinu. Jón Ólafsson, stjómarfor- maður Sýnar, segir að kaupin séu fi-ágengin. Að mati hlut- hafa Aflvakans var samkomu- lag fyrirtækjanna ekki ásætt- anlegt, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, og var Sýn tilkynnt sú afstaða í fyrradag. Aflvakinn á 49% í Fínum miðli, sem rekur útvarpsstöðv- arnar Aðalstöðina, FM, Klassík FM, Sígilt FM og X-ið. Sjálfur á Baldvin Jónsson, stjórnarformaður Aflvakans, 1% í Fínum miðli. Fullt hús matar SÝNINGIN Matur ’98 var opn- uð í íþróttahúsinu Smáranum í gær, en að henni standa at- vinnumálanefnd Kópavogs, Hótel- og matvælaskólinn, Ferðamálaskólinn, Ferðamála- samtök höfuðborgarsvæðisins og fagfélög í matvælaiðnaði. Hér er verið að sýna Birni Bjamasyni menntamálaráð- herra og konu hans, Rut Ing- ólfsdóttur, einn af þeim íjöl- mörgu réttum sem em kynntir á sýningunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Barnabarn sendiherr- ans hitti Clinton JÓN Baldvin Hannibalsson, sendi- herra íslands í Washington, var ekki einn í för þegar hann fór á fund Bills Clintons Bandaríkja- forseta í Hvíta húsinu á mánudag að afhenda erindisbréf sitt. Með Jóni Baldvini, eiginkonu og dótt- ur, var dóttursonurinn, Starkað- ur Sigurðarson, sem er sjö ára. Jón Baldvin sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hirðsiða- meistarar Bandaríkjaforseta hefðu Iátið boð berast um að því væri vel tekið við athafnir af þessu tagi að nýir sendiherrar tækju með sér aðra fjölskyldu- meðlimi. Lærði að ávarpa forsetann „Var tekið fram að þar væri einkum átt við ungviði,*1 sagði hann. „Ég tók með mér dótturson minn, Starkað Sigurðarson, og fyrir utan formsatriði og hátíð- legheit var augljóst að forsetinn kann vel að meta slíka gesti. Það fór vel á með þeim. Drengurinn hafði lært að segja „how do you do, mr. President" og gleymdi því ekki. Forsetinn beygði sig að honum og svaraði virðulega: „I am fine, but how are you?“ Þar var kðnnáttu drengsins lokið þannig að hann gat Iitlu svarað utan að kinka kolli.“ Jón Baldvin kvaðst hafa sagt Clinton að þessi ungi maður væri mjög framsýnn, hann væri hugs- anlega fjórða kynslóð sósíal- demókratískra stjórnmálamanna og það mundi kannski koma sér vel fyrir hann ef hann álpaðist í framboð um 2030 að eiga mynd af sér með Clinton. „Það skipti engum togum að forsetinn bað hirðljósmyndarana að taka sérstaklega myndir af þeim tveimur,“ sagði Jón Baldvin. „Síðan sagði forsetinn við dreng- inn að stjórnmál væru áhættusöm iðja, en hann óskaði honum vel- gengni." Þegar Bill Clinton var ungling- ur fór hann í Hvíta húsið og tók í hönd Johns F. Kennedys. Hefur ljósmynd, sem þá var tekin af Clinton og Kennedy, oft verið birt eftir að hann hóf afskipti af stjórnmálum. ----------------- Ekki gengið nógu langt SJÁLFSTÆÐISMÖNNUM í borg- arstjóm þykir samþykkt borgarráðs um að gerð skuli tilraun með sveigj- anlegan afgreiðslutíma vínveitinga- húsa ekki ganga nógu langt í frjáls- ræðisátt. Þetta kom fram í málflutn- ingi borgarfulltrúa flokksins á borg- arstjórnarfundi í Ráðhúsinu í gær- kvöld. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagðist hins vegar telja óvar- legt að tala um að gefa einhvern hlut frjálsan þegar ljóst væri að það yrðu að vera ákveðnar takmarkanir á honum. Samkvæmt samþykkt borg- amáðs, sem miðast m.a. að því að draga úr mannfjölda í miðbænum, mun hluti veitingahúsa geta keypt leyfi til lengri afgreiðslutíma aðfara- nótt laugardags og sunnudags. Inga Jóna Þórðardóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagðist telja að til að leysa vandann þyrfti að gefa afgreiðslutíma frjálsann þar sem hugmyndir meirihlutans myndu einungis leiða til þess að mannfjöldi safnaðist saman í miðbænum einum til tveimur klukkustundum seinna en nú er. Helgi Hjörvar, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, svaraði því til að ekkert hefði verið gert í þessu máli þegar sjálfstæðismenn voru í meiri- hluta og að sér þætti því ódýrt að yf- irbjóða í málinu í minnihluta. I í I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.