Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 63
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 63
1
MORGUNBLABIÐ_________________________________________
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur tekið til sýninga myndina The Boxer, Hnefaleikarinn. í aðalhlutverkum eru bresku stórleik-
ararnir Daniel Day-Lewis og Emily Watson. Leikstjóri er Jim Sheridan.
Ast, hnefa-
leikar og borg-
arastyrjöld
Frumsýnd
NEFALEIKARINN er
þriðja myndin þar sem Dan-
iel Day-Lewis, Jim Sheridan
og handritshöfundurinn Ten-y
George leggja saman krafta sína.
Fyrri myndimar tvær hafa báðar
komið við sögu á óskarsverðlauna-
hátíðum.
Hnefaleikarinn fjallar um Danny
(Daniel Day-Lewis), sem losnar úr
fangelsi eftir að hafa afplánað þar
fjórtán ára dóm fyrir aðild að hryðju-
verkum IRA. Heima í hverfinu hans
hefur Maggie, æskuástin hans
(Emily Watson), gifst öðrum manni
og elur upp son. Faðir hennar er for-
ingi í IRA og maðurinn sem hún gift-
ist var með Danny í fangelsinu.
Danny er að hrynja saman and-
lega eftir 14 ár í fangelsi og kann
illa á lífið utan múranna. En eins og
Maggie finnur hann að árin hafa
engu breytt um tilfinningar þeirra
hvors til annars.
En vinátta þeirra og ást er for-
boðin í rammkaþólsku samfélagi og
vinir, fjölskylda og IRA fylgist
grannt með samdrætti gömlu
elskendanna. IRA býr sig undir að
grípa til allra tiltækra ráða; því
heragi hryðjuverkasamtakanna nær
yfir eiginkonur „hermannanna" í
fangelsunum.
Danny líður eins og dýri í búri og
fyrir þær tilfinningar fær hann út-
rás í hnefaleikahringnum. Þar er
hann á heimavelli og lífíð þar virðist
auðveldara en úti í stjórnlausu,
stríðhrjáðu samfélaginu. í hringn-
um eru reglurnar skýrar og mörkin
augljósari en annars staðar. I
hringnum á Danny auðvelt með að
finna í sér það sem hann þarf til að
umbreyta aðstæðum sínum og
byggja upp líf sitt af reisn.
Sheridan, Day-Lewis og George
unnu síðast saman við gerð mynd-
arinnar In The Name of The Father
og þar áður við My Left Foot.
Handrit George að Hnefaleikar-
anum er skáldskapur en varð þó til
með hliðsjón af óuppfærðu leikriti
eftii’ Sheridan, sem fjallar um líf
írska hnefaleikarameistarans Barry
McGuigan. Barry varð þjálfari
Daniel Day-Lewis meðan á gerð
myndarinnar stóð.
Jim Sheridan og Teny George
vinna þannig að þeir leggja af stað
með handritsdrög sem leikaramir
fá svo mikið svigrúm til að útfæra.
Daniel Day Lewis er hrifinn af
þessari aðferð leikstjórans. „Þegar
maður gerist þátttakandi í ein-
hverju veit maður ekki hvernig því
lyktar. Það að vinna svona kallar
fram talsvert óöryggi sem er gagn-
legt bæði fyrir mig og Jim.“
Sjálfur segir leikstjórinn: „Eg sé
fjölmargar myndir sem eru skipu-
lagðar í smáatriðum en ganga aldrei
upp. Hlutirnir fara að gerast því lík-
ari sem kvikmynd verður heimildar-
mynd, og lætur nægja að fylgjast
með því sem gerist, og að sama
skapi ólíkari óperu, þar sem allt er
skipulagt.
I myndinni tekur Danny þátt í
þremur bardögum og Daniel Day-
Lewis þurfti að leggja á sig mikla
þjálfun til að verða trúverður boxari
í myndinni. Hann hafði þegar
stundað hnefaleikaþjálfun sér til
heilsubótar í þrjú ár en gamli meist-
araboxarinn Bany McGuigan var
fenginn til að fínpússa formið hjá
stórleikaranum, sem þurfti svo að
halda sér í bardagaformi þær 16
vikur sem unnið var við tökur
myndarinnar. „Það tók rosalega á
að halda sér við allan þennan tíma,“
segir Day-Lewis. „Iþróttamenn
fara í gengum tímabil til þess að
Ferming í FLASH
- Nýir kjólar -
Síðir kjólar frá kr. 7.990
Stuttir kjólar frá kr. 4.990
Blúnduskyrtur frá kr. 2.990
n
Blúndukjólar kr. 6.990 Laugavegi 54, simi 552 5201
I HRINGNUM er Danny á heimavelli og bar-
daginn þar hjálpar honum að takast á við erfið-
leikana hið ytra.
FORBOÐIN ást Maggie (Emily Watson) og Danny
(Daniel Day-Lewis) kemur róti á lokað, stríðshrjáð
samfélagið sem þau tilheyra.
undirbúa sig undir einn atburð þar
sem þeir keyra sig út,“ segir leikar-
inn.
En McGuigan gamli segir að
Day-Lewis hafi verið „sá harðasti
og ákveðnasti maður sem ég hef
nokkru sinni hitt. Hann er algjört
kamelljón. Hann mótaði sjálfan sig
eins og þurfti. Ég hef unnið með
hnefaleikurum sem lögðu ekki
næstum því jafnhart að sér og hann.
Svo getur þessi náungi barist í raun
og veru. Ég ferðast um allt Bret-
land og ég þekki alla millivigtarbox-
arana. Hann gæti barist við hvern
sem er af þeim tíu bestu. Ef hann
hefði verið 19 ára þegar við byrjuð-
um að æfa saman hefði ég gert úr
honum heimsmeistara," segir
McGuigan um Daniel Day-Lewis.
Gamli þjálfarinn segir að hnefa-
leikar neyði bardagamanninn til
þess að takast á við sínar innstu til-
finningar. „Menn verða að takast á
við spumingar um hugrekki og eðli
sitt. Á endanum snýst þetta um
manngerðina. Þjálfunin og vinnan
með hugann skiptir sköpum og ger-
ir menn að betri mönnum."
Day-Lewis hlaut óskarsverðlaun
fyrir My Left Foot og tilnefningu til
verðlaunanna fyrir I nafni föðurins.
Nú kemur til liðs við hann og Sher-
idan Emily Watson sem skaust
fram á hvíta tjaldið í Brimbroti eftir
Lars Von Trier og þótti sýna ótrú-
lega magnaðan leik. Hún var fyrir
vikið tilnefnd til óskarsverðlauna
þótt ekki hreppti hún hnossið.
R NÆT\
WARNERBROS.■
, MALPASO «,.»icí,ov iSILVERPICTURES KEVIN SPACEY |OHN CUSACK
MIDNIGHT IN THEGARDEN OE GOOD AND EVIL ó LLNNIE NIEHAUS ’ ARNOLD STIEEEl
ANITA ZUCKERMAN TOM ROOKER JOHN LEE HANCOCK
V; ; )OH N BERÉNDT CLINT EASTWOOD
www.goodandevíl.
KRINGLUBM Sýnd kl. 5; 7, 9 og 11
K~;
<
4